Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 29

Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 29
Morgunblaðið/RAX MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 29 „BÍDDU, ég fékk bara í bakið. Ekki þarf ég á geðhjúkrunarfræðingi að halda vegna þess?“ Sólborg Olga Bjarnadóttir set- ur bara upp ró- lyndisbros; hún hefur greinilega heyrt þetta áð- ur! „Það tvinnast oft saman,“ seg- ir hún, „að þeg- ar menn hafa glímt við verki í langan tíma, þá skjóta andleg vandamál upp koll- inum. Það er eitt og annað sem fer úrskeiðis og það leggst þungt á fólk; það upplifir sig sem undir- málsmanneskjur og dregur sig í hlé. Þegar fólk kemur hingað er því boðið upp á samtal við mig og svo met ég hvort það þarf á frekari einstaklingssamtölum að halda. Ég held mig við hugræna atferl- ismeðferð, sem felst í því að breyta hugsanaganginum úr nei- kvæðum hætti yfir í jákvæðan; að hjálpa fólki til að finna það já- kvæða og festa sig við það.“ – Er það stórt hlutfall af hópn- um sem kemur oftar en einu sinni til þín? „Margir þiggja tíma strax, en aðrir telja sig ekki þurfa á slíku að halda. Það eru svo oft sjúkraliðar og eða hjúkrunarfræðingar, sem meta manneskjuna þannig að hún hefði gott af geðstuðningi og telja þá viðkomandi á að koma til mín. Ég hugsa að gróft tekið geti allt að helmingi hópsins hverju sinni verið í einstaklingsmeðferð hjá mér. Það er svo mikils virði að ná upp sjálfsmatinu hjá fólki, sem finnst það hafa misst tökin á lífinu vegna veikindanna. Áhyggjur magna upp verkina þannig að þetta getur orðið einn andlegur og líkamlegur vítahring- ur. Þegar menn taka svo gleði sína á ný, geta brosað og litið á já- kvæðu hliðarnar, þá léttist lífið og það verður auðveldara að fást við vandamálin; í bakinu sem annars staðar.“ Verkjaglíman kostar andleg vandamál Sólborg Olga Bjarnadóttir HRAFNHILDUR Jónsdóttir er deildarstjóri háls- og bakdeild- arinnar. Hún segir 13 rúm vera á deildinni og „alltaf fullt“. Á biðlistanum eru oft um 50 manns og nú er lögð áherzla á að „éta hann upp“ fyrir sum- arfrí, því deild- inni verður lok- að meðan þau standa. Til deildarinnar leita um 500 manns á ári og um 200 þeirra leggjast inn og fara í meðferðina. Fólkið kemur alls staðar að af landinu. Deildin er rekin sem fimm daga deild; gert er ráð fyrir að fólk fari heim um helgar. Þó geta sjúklingar fengið að vera um helgar, ef þeir eiga um langan veg að fara, eða sjúkraþjálfarar eða læknir mæla með því. Hrafnhildur segir það ómet- anlegan kost, að vera utan að- alþéttbýlisins. Fólk fái næði til þess að hugsa sinn gang og slaka á. Hér getur fólk farið út úr sínu daglega fari og einbeitt sér ótruflað að eigin málum. Meðallegutími er ellefu dagar, en sumir dvelja styttra og aðrir lengur en í tvær vikur. Reynt er að halda lyfjagjöf í algeru lág- marki. Starfsmenn deildarinnar eru læknir, tveir hjúkrunarfræðingar, sem m.a. sjá um slökunartíma með sjúklingunum, geðhjúkr- unarfræðingur í hlutastarfi og einn starfsmaður á deild. Hrafnhildur segir orsakir bak- verkja margvíslegar, þar á meðal sé röng líkamsbeiting og umferð- arslys og vinnuslys eru drjúgir valdar að háls- og bakmeiðslum. Afleiðingarnar taki oft mjög á og valdi andlegri vanlíðan ekki síður en líkamlegri. Því sé það ekki síð- ur mikilvægt að sjúklingum bjóð- ist geðhjálp en að fundin sé bót á líkamlegum verkjum. „Í lang- vinnu verkjastríði bjátar ýmislegt á og það nartar í sálina.“ Ómetanlegt að vera utan aðalþéttbýlisins Hrafnhildur Jónsdóttir liðþófunum aðeins takmarkað. Rannsóknir benda eindregið til þess, að flest bakvandamál byrji í lið- þófunum. Rannsóknir í Brisbane leiddu í ljós, að þegar fólki var sagt að hreyfa einhvern útlim sendi heilinn boð til þeirra vöðva sem framkvæma þá hreyfingu. En örskoti áður sendi hann boð til tveggja vöðva sem tengjast neðsta hluta hryggsúlunnar og stífuðu hana af áður en höndin fór á loft. Þessir vöðvar virðast vernda mjóbakið. Rannsóknir hafa svo sýnt, að hjá langflestum bakverkjasjúk- lingum eru þessir vöðvar dottnir út og starfa alls ekki. Það eru meðal annars þessir vöðvar, sem þjálfun okkar beinist að. Þannig virðast allar hreyfingar byrja á því að vöðvar hryggjarins búi hann undir hreyfingu og átök.“ freysteinn@mbl.is Verkfræ›ideild Háskóla Íslands hyggst bjó›a meistaranám í verkefnastjórnun, MPM (Master of Project Management) sem er tveggja ára nám me› starfi. Fyrsti hópurinn mun hefja nám hausti› 2005. Teki› er vi› skráningu á skrifstofu verkfræ›ideildar Háskóla Íslands til 1. júlí 2005. Nánari uppl‡singar um námi› veitir Gu›rún Helga Agnarsdóttir í síma 525 4646. Me› fyrirvara um endanlegt samflykki háskólará›s. Meistaranám í verkefnastjórnun er n‡r og spennandi kostur fyrir flá sem hafa áhuga á mjög hagn‡tu stjórnunarnámi samhli›a starfi. Í náminu undirgangast nemendur alfljó›lega vottun í verkefnastjórnun sem gefin er út af Verkefnastjórnunarfélagi Íslands í umbo›i alfljó›asamtaka verkefnastjórnunarfélaga (IPMA). MPM M A S T E R O F P R O J E C T M A N A G E M E N T M A S T E R O F P R O J E C T M A N A G E M E N T N†TT MEISTARANÁM VI‹ HÁSKÓLA ÍSLANDS Umsjónarkennarar námsins eru allir framúrskarandi kennarar vi› verkfræ›ideild Háskóla Íslands, me› yfirbur›aflekkingu á verkefnastjórnun og fleim fjöldamörgu fláttum stjórnunar sem henni tengjast. Auk fleirra kenna í náminu fræ›imenn og fagmenn á ‡msum svi›um, bæ›i innlendir og erlendir. Meistaranám í verkefnastjórnun er opi› fleim sem hafa loki› BA/BS/B.ed. e›a sambærilegu. Mi›a› er vi› a› nemendur hafi minnst 3 ára reynslu úr atvinnulífinu og æskilegt er a› fleir hafi umtalsver›a reynslu af flví a› starfa í verkefnum. Hausti› 2005 munu um 30 nemendur hefja meistaranám í verkefnastjórnun. Almennur kynningarfundur um námi› ver›ur haldinn kl. 16 fimmtudaginn 26. maí næstkomandi. Fundurinn ver›ur í húsnæ›i Endur- menntunar Háskóla Íslands a› Dunhaga 7. • Stefnumótun • Áætlanager› í verkefnum • Lei›toginn og sjálfi› • Lei›toginn og umhverfi› Í meistaranámi í verkefnastjórnun er lög› áhersla á: • fijálfun í a› takast á vi› margvísleg vi›fangsefni me› a›fer›um verkefnastjórnunar • A› beita tæknilegum a›fer›um vi› undirbúning, framkvæmd og frágang verkefna • Samskipti, myndun og mótun hópa, hvatningu og eflingu li›sheildar • Undirbúning vi› a› undirgangast alfljó›lega vottun (IPMA) á flekkingu sinni, reynslu og færni • A›gengi a› fjölbreytilegum starfsvettvangi um allan heim Me›al námsefnis á fyrra námsári er: • Ferli og ferlisvæ›ing í verkefnum • Fjármál verkefna • Fjölfljó›leg verkefni • Stjórnandinn og menning Stjórnun Fjölfljó›leg verkefni Lei›togafljálfun Vísindalegar a›fer›ir Stefnumótun Áætlanager› Mótun hópa Hvatning Alfljó›leg vottun Fjölbreyttir starfsmöguleikar Nánari uppl‡singar og umsóknarey›ublö› má fá á www.mpm.is VERKEFNASTJÓRNUN Me›al námsefnis á seinna námsári er:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.