Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 32

Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 32
32 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ F lestir telja sig vita sitthvað um náttúr- una og eðli hennar, sumir heilan helling, hún er jú allt um kring hlutvakin og huglæg, menn sjá hana jafnt og skynja. Og þó kem- ur hún hálærðum vísindamönnum stöðugt á óvart, þeir eiga í sumum tilvikum jafnerfitt að botna hana og sjálfan lífsandann, þennan frjó- anga verundarinnar sem þjappaði tóminu saman í árdaga og gerði rými og tíma að afstæðri nálægð. Nýjar uppfinningar og sigrar mannsandans hafa aldrei verið jafnáþreifanlegar staðreyndir og síðustu 150 ár, svo komið er hrað- inn orðinn svo mikill að maðurinn telst auðmjúkur undirsáti hans. Berst áfram í einhverju tímalegu fárviðri sem hann hefur ekki leng- ur stjórn á, lífið er sem andartak og horfið áður en menn ná að átta sig. Við fylgjumst með fjölþættum afrekum mannsins jafnt á jörð niðri sem í háloftunum, tengjum þau afburðagáfum einstaklinga, sem má rétt vera. Hugsum minna til þess að heila undrið er sótt til lögmála allt um kring sem við átt- um okkur síður á, tók raunar mannkynið árþúsundir að skil- greina. Þó liggur landið þannig að engin mikil uppgötvun lítur dags- ins ljós að hliðstæðu og forsendu hennar sé ekki að finna í nátt- úrunni, jafnvel fyrir framan nefið á okkur. Allar framfarir í mann- heimi byggjast á einhvern hátt á hagnýtingu og beislun lögmála náttúruskapanna, frá þeim fyrstu og fálmkenndu í árdaga til há- tækni og geimvísinda nútímans. Þetta er mönnum að vísu kennt í skólum, mismikið þó og sjálf greiningin misdjúp, liggur eðlilega ekki alltaf ljós fyrir. Ósjaldan var það svo fyrir einskæra tilviljun að vísindamenn rákust á fyrirbæri sem leiddu til mikilla uppgötvana og straumhvarfa, í ljósi þessa óskiljanlegt að fyrst á síðustu 10– 20 árum hafa risið upp miðstöðvar víða um heim til skipulegra rann- sókna á vettvanginum. Skyldu margir hafa áttað sig á mikilvægi hljóðsins í náttúrukeðj- unni, að tíðni þess getur verið slík að mannseyrað greini það ekki, en svo er einmitt með öskur leð- urblökunnar sem jafnframt er ratsjá hennar. Bergmálið sem framkallast við þessa hátíðni gerir leðurblökunni kleift að fara allra sinna ferða í kolsvarta myrkri til að leita sér æti, smjúga á milli trjágreina sem albjart væri. Annað undrið er að skordýr nokkuð sem hún leitar mikið á nemur hljóðið og reynir í ofboði að forða sér, en til þess hefur það ekki eyru heldur hefur náttúran þróað með því vörn; heyrn eða nokkurs konar hljóðmóttakara á brjóstinu. Menn hafa lengi dáðst að gullna sniðinu, sem uppgötvað var í an- tíkinni, og hafið til hárra hæða á tímum endurreisnar. Lögmál sem stuðst hefur verið við um þúsundir ára og er forsenda allra framfara í byggingarlist, myndlist og listiðn- aði eins og margur veit. Gullna rétthyrninginn töldu Forn-Grikkir jafnframt fegurstan allra rétthyrn- inga. Lögmálið í kringum gullna sniðið var þó frá fyrstu tíð í næsta nágrenni mannsins, finnst til að mynda ekki einungis í bilinu á milli svörtu og hvítu randanna á sebrahestinum eða fjarlægð- arinnar á milli mismunandi lita á páfuglsfjöðrinni heldur einnig í ýmsum hlutföllum í sjálfum mannslíkamanum. Fingurliðirnir í manninum koma gullna sniðinu við, einnig hlutföllin frá hendi til framhandleggs. Einnig má álykta að lögmál gullna sniðsins sé inn- byggt í mannshuganum sem og líf- verum láðs og lagar, þannig ekki fullkunnugt um að búið hafi verið að skilgreina það til fulls þegar píramídarnir í Egyptalandi voru reistir og önnur stórkostleg undur fornalda. Sterkar líkur benda þó til þess að menn hafi þó verið farnir að gera sér góða grein fyrir lögmálunum þótt skilgreiningin væri ekki fullkomlega á hreinu. Öruggt að Forn-Grikkir gerðu sér góða grein fyrir lögmálum gullna sniðsins, kemur enda bæði fram í skrifum Platons „Timaeus“ svo og Euklíðs „Elementer“. Á tímum endurfæðingarinnar myndlýsti Leonardo bók Paciolis „Divina proportione“ (Guðdómur hlutfall- anna). Jafnvel í bókmenntum og tónlist hafa menn hagnýtt sér lög- mál gullna sniðins, kemur skýrt fram í fyrra fallinu og talið að bæði Dvorak og Bartók hafi með- vitað hagnýtt sér þau í byggingu tónstigans en óvíst um Bach, Moz- art og Beethooven, alveg mætti þó álykta að lögmálin hafi verið inn- byggð í þeim. Af öllu þessu getum viðdregið þá raunsönnuályktun að margur hefurunnið stóra sigra fyrir að uppgötva áður ókunn lögmál nátt- úrunnar, einnig að ekkert undir sólinni er hreinn spuni; improv- isation. Aldrei boðað góða lukku til lengri tíma litið að fjarlægjast lög- mál náttúrinnar eða grípa fram fyrir hendur hennar, hvorki í hug- vísindum né verki. Hér má minn- ast orða hins mikla vísindamanns Niels Stensen, sem talinn er faðir nútíma jarðfræði: Fallegt er það sem við sjáum / Fallegra það sem við skiljum / Fallegast það sem við skiljum ekki, (1674). Nú kunna einhverjir vera farnir að velta fyrir sér hvert skrifari sé að fara, en svo er mál, að til er heiti á rannsóknarsviði, sem Jack Steele verkfræðingur í flugþjón- ustu Bandaríkjahers kom fyrst fram með 1958. Um að ræða hug- takið Bionik, sem vísar til skil- greiningar á eftirgerðum á fyr- irbærum náttúrunnar og sækir hugmyndir til lögmála hennar. Og sem áður greinir eru ekki nema einn eða tveir áratugir síðan menn gerðu sér fulla grein fyrir mik- ilvægi þessa og upp risu rann- sóknamiðstöðvar víða um heim. Þetta telst því mjög ferskt svið sem menn eru einnig farnir að hagnýta sér markvisst í sjón- menntum eins og fram kemur til að mynda í verkum Ólafs Elías- sonar og félaga. Uppgötvun röntgen-geislanna og gegnumlýs-ingar hluta í lok nítjándualdar olli miklum tíma- hvörfum og varð að múgæði tím- anna, fólk flykktist á fjölleikahús til að upplifa undrið og ekki þótti kviksjáin minna undur. Þetta hafði mikil og gagnger áhrif á listamenn eins og Edvard Munch, einkum gegnumlýsingin og sú afhjúpun sem við blasti. Þannig borðleggjandi að mað- urinn hefur um þúsundir ára beint sjónum sínum til náttúrunnar í því skyni að finna lausnir á tækni- legum og hönnunarlegum vanda- málum. Í ljósi þessa voru til að mynda listamenn og listheimspek- ingar öðrum þræði á villigötum þegar þeir sneru baki við sýni- legum fyrirbærum náttúrunnar á tímum strangflatalistarinnar og óformlegrar tjáningar, einstreng- ingslegri afneitun þeirra sem raunsannri túlkun myndsköpunar. Í raun réttu voru listamennirnir sjálfir að vinna útfrá lögmálum hennar í markaðri skipan form- og litaheilda, en á hinn bóginn skyn- rænni „formleysu“ eins og sumir vilja kalla óformlega tjáningu, en verður að telja misvísandi. Náttúr- an mótar sköp sín og þegar þau hafa lokið líftíma sínum taka þau að eyðast og gera það viðlíka skipulega. Í báðum tilvikum felst mikil fegurð í þróunarferlinu, hér nærtækast að vísa til grómagna vorsins og litbrigða haustsins. Ekkert bendir til þess að náttúran sé fullkomin hönnun, þvert á móti eiga sér stað tilviljunarkenndir árekstrar, og þeir eiga ekki svo lít- inn þátt í sköpun lífs og allífs, full- komin formleysa þannig naumast til nema sem aðgreining and- stæðra hugtaka og póla. Í allri þessari hátækni nútímans sem á margan hátt hefur orðið mannkyn- inu til blessunar felst um leið meiri ógn í átt til tortímingar en í samanlagðri þróunarsögunni, verndun náttúrunnar helsta hald- reipið til björgunar. Hinar risa- stóru heimssýningar síðari ára bera þess glöggt vitni hvernig arkitektar og hönnuðir leita til lögmála hennar og hér hefur tölv- an gagnast þeim til mikilla afreka. Lausnir á byggingarfræðilegum vandamálum sem tölvan leysir auðveldlega voru þó sem inn- byggðar í hugskoti Jørns Utzons þegar hann hannaði óperuhúsið í Sydney. Leiða vinnubrögð hans ekki svo lítið hugann til bygg- ingaafreka fornaldar áður en lög- mál gullna sniðsins voru að fullu skilgreind, mótað brjóstvit réð ferðinni. Samfara því, að Bionik erfyrir þörf og nauðsyn orðiðað umfangsmikilli og örtvaxandi vísindagrein í heiminum, hefur áhugi fólks á náttúrufyrirbærum stóraukist, eins og aðsókn á hin stóru nátt- úrusögu- og vísindasöfn beggja vegna Atlantsála ber með sér. Áhugasömum skal vísað á þessi söfn en tilefni þessarar sam- antektar er upplýsandi sýning í Dýrasafninu, Háskólanum í Kaup- mannahöfn, sem stendur til 23. september og nefnist „Bionik, maðurinn lærir af náttúrunni“. Hafði bæði lesið um hana áður en ég hélt utan og var bent á hana kominn til Hafnar. Sýningin ekki einasta vel upp sett og fróðleg, heldur fylgir henni mikil sýning- arskrá/katalóga sem bætir um bet- ur, þá er safnið sjálft hið áhuga- verðasta. Gestir sjá svart á hvítu hvernig vísindamenn nútímans hafa leitað til náttúrunnar, geim- vísindi alls ekki undanskilin og rekur margur upp stór augu. Fyr- irmyndirnar og kímið að há- tækninni finna menn jafnvel í smæstu lífverum og hér hefur kóngulóin, form og vefir hennar dugað mikið vel. Og hvað að okkur sjálfum snýr, skyldi þá einhverjum að óreyndu láta sér detta í hug að fyrirmyndin að burðarvirkni Eif- felturnsins er sótt í lærbein mann- skepnunnar? Eða að þessi og fram til 1930 hæsta bygging í heimi og allar götur síðan helsta kennitákn Parísarborgar átti aðeins að standa tímabundið, en miklar framfarir í hljóðvarpstækni björg- uðu frá niðurrifi? Móðir náttúra og „Bionik“ Burðarvirkni lærbeins var fyrirmynd Gustafs Eiffel þegar hann hannaði Eiffelturnin í tilefni heimssýningarinnar í París 1889. Grunnþættir flatarmálsfræðinnar, (Elementa in artem geometriæ) fyrsta út- gáfa af riti Euklíðs, prentað í Vicenza 1491. Byrjar á línu og punkti og er fyr- irmynd seinni tíma stærðfræðibóka. SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson bragi@internet.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.