Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
58,1 fm góð 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin skiptist í hol, dúk-
lagt eldhús, flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, parketlagða stofu og tvö parketlögð
svefnherbergi með fataskápum. Í risi er sérgeymsla og sameiginlegt þurrkherbergi. Í
kjallara er sameiginlegt þvottahús. 5516. V. 12,9 m. Friðrik, sími 663 7676, sýnir í
dag frá kl. 12-13.
Opið hús í dag frá kl. 12-13
Rauðarárstígur 32
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
RAUÐARÁRSTÍGUR 32 – JARÐHÆÐ
Góð 2ja herbergja íbúð á jarð-
hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin er á
götuhæð Skarphéðinsgötu-meg-
in. Nýtt parket á gólfum. Þvotta-
hús í sameign við hlið íbúðar.
Gott gler og gluggar. Hús í góðu
ástandi. Laus strax.
Verð 10,4 millj.
ÍBÚÐIN ER TIL SÝNIS Í DAG MILLI KL . 14 OG 16
REYKJAVEGUR - 270 MOSF.
Gott einbýlishús 140,4 fm.
ásamt 38,0 fm. bílskúr á góð-
um stað í Mosfellsbæ með
stórum garði í rækt. Fjögur
svefnherb. Baðherbergi allt ný-
lega tekið í gegn. Arinn í stofu.
Stór hellulögð verönd með hita í. Góð aðkoma er að húsinu. VERÐ
34,0 millj.
SVÖLUÁS - 220 HFJ.
Sérlega glæsileg 4ra herb. íbúð
á frábærum útsýnisstað.
Vandaðar innréttinga og Lúm-
ex lýsing. Flísar og parket á
gólfi. Vestursvalir og toppeign
í alla staði. VERÐ 25,0 millj.
NAUSTABRYGGJA - 110 RVK
Stórglæsileg 6 herb. 190,9 fm
íbúð, að hluta til á tveimur
hæðum. Mikil lofthæð og stórir
gluggar. Fjögur svefnherbergi.
Tvennar svalir. Glæsileg eld-
hússinnrétting og gaseldavél
með áfastri viftu, granít á
bekkjum. Allar innréttingar og
hurðir úr hlyn. Myndir á netinu.
VERÐ 35,8 millj.
ÁLFKONUHVARF - 201 KÓP
Þriggja herbergja 96,2 fm íbúð
á 2. hæð, ásamt stæði í bíl-
skýli. Aðeins þessi eina íbúð
eftir. Eignin er í byggingu en
skilast í júní/júli fullbúin án gólf-
efna. Eikarinnréttingar upp í loft
og tæki úr burstuðu stáli.
VERÐ 19,4 millj.
GVENDARGEISLI - 113 RVK
Glæsileg 3ja herb. 121 fm íbúð
á 1. hæð með sérafnotarétt í
garði og stæði í bílageymslu.
Gengið beint inn. Innréttingar
úr eik og upp í loft. Eignin
skilast fullbúin án gólfefna.
Áætluð afhending í ágúst/sept.
VERÐ 25,8 millj.
AUSTURSTRÖND - 170 SELTJ
Skemmtileg 50,8 fm 2ja herb.
íbúð ásamt stæði í lokuðu bíl-
skýli. Baðherb. flísalagt í hólf
og gólf, sturtuklefi. Parket á
gólfum. Frábært útsýni til norð-
urs. VERÐ 14,5 millj. Fyrirhug-
aðar framkvæmdir greiðast af
seljanda.
ÁSTÚN - 200 KÓP.
Falleg 2ja herb. 64,0 fm endaí-
búð á 2.hæð í litlu góðu fjölbýli.
Stórar vestursvalir. Þvottahús
á hæð. Sam. leikherb. í sam-
eign. Frábært útsýni yfir Foss-
voginn og fjöllin. Stutt í
gönguleiðir og þjónustu.
VERÐ 15,7millj.
VALLARÁS - 110 RVK
Falleg 2ja herb. 56,5 fm íbúð á
3. hæð í góðu lyftuhúsi. Parket
á gólfum. Suðursvalir. Gervi-
hnattasjónvarp. Stutt í leik-
skóla, skóla og alla þjónustu.
Mjög skemmtileg íbúð á góð-
um stað. VERÐ 13,3 millj.
Sími 594 5000 - Fax 594 5001
Lynghálsi 4//110 Reykjavík//Lögg. fasteignasali Halla Unnur Helgadóttir
GVENDARGEISLI - 113 RVK.
Fjögurra herbergja 138,3 fm
íbúð á 2. hæð í nýju fjölbýli
ásamt stæði í bílskýli. Eignin
skilast í ágúst/sept. fullbúin án
gólfefna. Eikarinnréttingar upp í
loft, tæki úr burstuðu stáli.
Rúmgóðar suður-svalir. Stutt í
náttúruna. VERÐ 28,9 millj.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Sími 588 4477
Höfum kaupanda að einbýlishúsi á Seltjarnarnesi. Verðhugmynd
50-100 millj.
Upplýsingar veitir Bárður Tryggvason í síma 896 5221.
Einbýlishús óskast
á Seltjarnarnesi
Höfum kaupanda að einbýlis-, rað- eða parhúsi í Grafarvogi, Graf-
arholti, Reykjavík, Kópavogi eða Garðabæ. Verðhugmynd 30-45
millj.
Einbýlis-, rað- eða parhús
óskast
Höfum kaupanda að raðhúsi í Hóla- eða Fellahverfi. Sérstaklega
er leitað að húsi á einni hæð en annað kemur til greina.
Upplýsingar veitir Ellert í síma 893 4477.
Raðhús óskast í Fellunum
Höfum ákveðinn kaupanda að einbýli-, rað- eða parhúsi í Mos-
fellsbæ eða á Kjalarnesi.
Einbýli eða raðhús óskast
eignum í Reykjanesbæ, Vogum og Hveragerði. Hafið samband.
Áratuga reynsla allra sölumanna Valhallar veitir ykkur seljendur
góðir ákveðið öryggi.
Óskum eftir
GSM símar sölumanna: Bárður sími 896 5221,
Ingólfur sími 896 5222, Ellert sími 893 4477 og
Þórarinn sími 899 1882.
Röng mynd
Röng mynd birt-
ist með aðsendri
grein Gunnars Svav-
arssonar, forseta
bæjarstjórnar Hafn-
arfjarðar, í blaðinu í
gær. Rétta myndin
birtist hér og er beð-
ist velvirðingar á
mistökunum.
Svöruðu rektor HR
Ranglega var sagt í fyrirsögn í
blaðinu í gær að kennarar við HÍ
væru að svara rektor HA. Svarið átti
við rektor HR, Háskólans í Reykja-
vík, og er beðist velvirðingar á rang-
herminu.
LEIÐRÉTT
Gunnar
Svavarsson
SAMSTARF Norðurlanda á sviði
jafnréttismála á að ná til fleiri sviða
en nú og setja þarf í forgang að
skoða valdakerfi samfélagsins og
starfsval ungs fólks.
Þá þarf í ríkara mæli að draga
karla inn í jafnréttisbaráttuna. Þetta
ákváðu norrænir ráðherrar jafnrétt-
ismála á fundi sínum í Kaupmanna-
höfn föstudaginn 19. maí. Á fundin-
um samþykktu þeir nýja norræna
jafnréttisáætlun fyrir tímabilið
2006–2010. Í henni er lögð áhersla á
að í fjölþjóðasamfélagi þurfi að setja
ný markmið í jafnréttismálum og að
sú vinna verði að ná til fleiri sviða
samfélagsins.
Á Norðurlöndum er þátttaka
kvenna í stjórnmálum hvað mest í
heiminum, en engu að síður þarf að
gera átak til að konur eigi sömu
möguleika og karlar á að gegna for-
ystustörfum í stjórnmálum og at-
vinnulífi, segir í yfirlýsingu ráð-
herranna.
Á ráðherrafundinum var kynnt ný
skýrsla um mennta- og starfsval
ungs fólks. Á grundvelli hennar
verður efnt til ráðstefnu í haust og
ákveðið hvernig breyta megi kyn-
skiptum vinnumarkaði og fá ungt
fólk til að velja óhefðbundnar
mennta- og starfsleiðir.
Í haust verða líka gefnar út leið-
beiningar fyrir ungt fólk um jafn-
réttismál þar sem greint verður frá
því sem hefur tekist vel í jafnrétt-
isbaráttunni á Norðurlöndum. Bæk-
lingnum verður dreift í skólum, til
náms- og starfsráðgjafa, mennta-
stofnana og stjórnvalda.
Ráðherrarnir ræddu m.a. hvort
styrkja ætti sérstaklega ungt fólk
sem reri gegn straumnum og kysi að
starfa í hefðbundnu kvenna- eða
karlastarfi.
Eins hvort breyta ætti menntun
kennara og náms- og starfsráðgjafa
til þess að gera þá hæfari til þess að
hafa áhrif á starfsval nemenda.
Efla á norrænt
samstarf í jafn-
réttismálum
Selfoss | Heilbrigðisstofnun Suður-
lands hefur fengið færanlegt hús í
eigu ríkissjóðs til afnota fyrir skrif-
stofur á Selfossi. Húsið hefur verið
staðsett austan við núverandi skrif-
stofuhús stofnunarinnar. Ætlunin er
að færa eldra húsið til og tengja hús-
in saman.
Aðkoma verður bætt svo hreyfi-
hamlaðir eigi góða aðkomu að skrif-
stofum stofnunarinnar. Með þessari
viðbót verður betri aðstaða fyrir
stjórnsýslu stofnunarinnar í kjölfar
aukinna verkefna í framhaldi af sam-
einingu heilbrigðisstofnana á Suður-
landi.
Skrifstofur Heilbrigðisstofnunar-
innar á Selfossi hafa verið í bráða-
birgðahúsnæði síðan stofnunin tók
við rekstri Réttargeðdeildarinnar á
Sogni árið 1992.
Enn er um „bráðabirgðalausn“ að
ræða þar til skrifstofur verða fluttar
í núverandi húsnæði heilsugæslunn-
ar eftir að starfsemi hennar hefur
verið flutt í nýbygginguna, sem nú er
verið að reisa.
Nota færanlegt
skrifstofuhús