Morgunblaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 41
UMRÆÐAN
Á DÖGUNUM voru samþykkt lög
um starfsemi græðara. Eru þau kær-
komin bót á stöðu þeirra fjölmörgu
sem starfa að því að
bæta heilsufar þjóð-
arinnar utan hins op-
inbera heilbrigð-
iskerfis. Hingað til
hefur mátt segja að
starfsemi ýmissa græð-
ara hafi fallið undir
ákvæði læknalaga um
skottulækningar, en
með hinum nýju lögum
er græðurum færð
sæmandi réttarstaða.
Í ljósi aukins fram-
boðs af meðferð-
armöguleikum er nauðsynlegra en
áður að almenningur sjálfur sé gagn-
rýninn á þær upplýsingar sem veittar
eru. Því miður hafa margir af þeim
meðferðarmöguleikum sem í boði
eru, bæði í hefðbundnu heilbrigð-
iskerfi og meðal græðara, ekki verið
rannsakaðir nægilega. Notkun þeirra
byggist e.t.v. á tilfinningu læknis,
aldagamalli hefð eða jafnvel fáeinum
dýratilraunum, en engar sannanir
eru fyrir því að meðferðin bæti heilsu
eða lengi líf manna. Með aðferðum
vísindarannsókna er hins vegar hægt
að fá skýr svör við því hvort einhver
meðferð sé gabb eða gagnleg. Til
þess að t.d. lyf sé talið gera gagn er
nauðsynlegt að gera rannsókn á
stórum hópi einstaklinga sem skipt er
í tvennt. Fær annar hópurinn hið
virka lyf en hinn lyfleysu, en hvorki
sjúklingarnir, né sá læknir sem þá
annast og metur árangurinn, veit
hver fær hvað. Venjulega reynist lyf-
leysuhópurinn fá einhvern bata, en
með tölfræðilegum aðferðum er síðan
greint hvort marktækt betri árangur
náist með notkun hins virka lyfs. Að-
eins að undangengnum slíkum rann-
sóknum er hægt að fullyrða að lyfið
hafi áhrif, en þó hægt sé að finna ein-
staklinga sem hafa prófað lyfið og
finnst það hafa gert gagn er ekki
hægt að líta á það sem sönnun um
gagnsemi. Því miður er ekki sjald-
gæft að sjá einstaklinga notfæra sér
trúgirni almennings með því að selja
vöru eða þjónustu sem engar eða
ófullnægjandi sannanir eru fyrir að
hafi áhrif. Hitt er einnig til og sýnu
verra, þegar seld er þjónusta sem
lækning þegar óyggjandi sannanir
eru fyrir hún sé gagnslaus og jafnvel
skaðleg. Þjáist einstaklingur af sjúk-
dómi sem hann fær ekki lækningu við
er eðlilegt að hann leiti allra leiða til
þess að fá bót meina sinna. Að hafa
neyð sjúklinga að féþúfu með sölu
meðferðar sem ósannað er að hafi ár-
angur er glæpsamlegt og ættu
læknar og græðarar að sameinast um
aðfordæma slíkt.
Í dag er almenningi auðvelt að afla
sér hlutlausra upplýsinga án þess að
vera háður því að heyra eingöngu
skoðun þeirra sem hafa fjárhags-
legan ávinning af því að selja vöruna.
Á síðunni www.hvar.is er að finna
hlekk inn á gagnagrunninn Ovid, en
þar er yfirlit um allar vísindagreinar
sem birtar hafa verið í helstu lækn-
isfræðitímaritum frá 1966. Því miður
finnast stundum ekki nægilegar
rannsóknir til að meta mögulega
gagn- og skaðsemi af meðferðum.
Hafi einhverjar rannsóknir verið
gerðar á efninu geta þær verið af
ófullnægjandi gæðum þannig að ekki
er mark takandi á niðurstöðunni.
Einnig getur verið að ógrynni rann-
sókna sé til á efninu, en erfitt fyrir
leikmann að túlka niðurstöður þeirra.
Fyrir þá sem ekki vilja pæla í
gegnum frumheimildir er auðvelt að
fá skýr svör með því að nýta sér sér-
þekkingu háskólamenntaðra heil-
brigðisstétta á rannsóknum og túlkun
á aðferðafræðilegum gæðum fræði-
greina. Cochrane stofnunin
(www.cochrane.org) er fyllilega hlut-
laus og taka vísindamenn hennar fyr-
ir ákveðin málefni innan heilbrigð-
isfræða. Skoðaðar eru með
skipulögðum hætti allar þær rann-
sóknir sem gerðar hafa verið á mál-
efninu, metin gæði þeirra og hvort
mark sé á þeim takandi. Að lokum er
svo gefin út niðurstaða á skiljanlegu
máli um hvort viðkomandi lyf eða
önnur meðferð sé gagnleg eða ekki,
eða hvort ófullnægjandi rannsóknir
séu til staðar. Auk málefna almennr-
ar læknisfræði hefur Cochrane tekið
fyrir margt af því sem
flokkast undir starfsemi
græðara. Til dæmis
sýna niðurstöður þeirra
með óyggjandi hætti já-
kvæð áhrif af nála-
stungum til að draga úr
ógleði og verkjum í
völdum tilfellum, yoga
hefur reynst geta
minnkað verki og að-
ferðafræði grasalækn-
inga bætt líðan slitgigt-
arsjúklinga.
Á næstu áratugum er
líklegt að hætt verði að horfa til hinn-
ar gömlu skiptingar í hefðbundna og
óhefðbundna læknisfræði. Með vax-
andi vísindaþekkingu á öllum lækn-
isráðum er líklegt að með opnum hug
verði það nýtt sem raunverulega
virkar úr báðum fræðiheimunum.
Jafnframt er ekki óeðlilegt að harðar
verði gengið fram í því að ekki sé ver-
ið að notfæra sér trúgirni fólks með
því að selja þjónustu, lyf eða annan
varning sem ófullnægjandi sannanir
eru fyrir að hafi áhrif. Líklegt má
teljast að hlutverk lækna í að sinna
alvarlegum og bráðum vandamálum
verði að mestu óskorað í framtíðinni.
Á öðrum sviðum þar sem ekki er um
bráð vandamál að ræða, heldur van-
líðan og vanstillingu í líkams-
starfseminni, er líklegt að að-
ferðafræði ýmissa stétta græðara
geti verið betur til þess fallin að bæta
líðan og heilsu með því að ná fram
slökun og auka innra jafnvægi í lík-
amanum. Bæði græðarar og hefð-
bundnar heilbrigðisstéttir starfa að
sama marki og því eiga þær að geta
unnið saman að því að veita þjónustu
sem sannað hefur verið að skili ár-
angri.
Raunverulegar lækningar
Hjalti Már Björnsson fjallar um
rannsóknir á læknisfræðilegum
meðferðum ’...með hinum nýju lög-um er græðurum færð
sæmandi réttarstaða.‘
Hjalti Már Björnsson
Höfundur er læknir á LSH.
Skipholti 29a,
105 Reykjavík
fax 530 6505
heimili@heimili. is
Einar Guðmundsson, lögg. fast.
Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast.
Bogi Pétursson, lögg. fast.
sími 530 6500
Síðumúla 27 108 Reykjavík
sími 534 4040, fax 5340 4044
Erlendur Davíðsson, lögg. fasteignasali og verðbréfamiðlari
Mjög fallegt parhús ásamt tvöföldum bíl-
skúr, alls 194,5 fm að stærð, á frábærum
stað nærri miklu útivistarsvæði. Eignin
skiptist í forstofu, forstofuherbergi,
snyrtingu, sjónvarpsol, þrjú svefnher-
bergi, baðherbergi, stofu, borðstofu, eld-
hús, búr og þvottaherbergi. Geymsla er í
bílskúrnum og sjálfvirk hurðaopnun á
báðum bílskúrshurðunum. Húsið er vel
staðsett neðst í botnlanga og var tekið í
gegn að utan fyrir nokkrum árum og lítur
vel út. Verð kr. 33.900.000
ÁLMHOLT, MOSFELLSBÆ
Glæilegt 164,1 fm einbýlishús á einni
hæð auk 31,5 fm bílskúrs, sem stendur
á fallegri vel staðsettri ræktaðri lóð. Hús-
ið, sem er sérlega vel innréttað og skipu-
lagt, skiptist í forstofu, hol, eldhús, búr,
stofu, borðstofu, sólstofu, herbergi, bað-
herbergi, tvö svefnherbergi, þvottaher-
bergi og bílskúr. Á gólfum er eikarparket og flísar. Innréttingar eru úr kirsu-
berjaviði og eik. Endurhönnun var gerð á húsinu fyrir um 6 árum síðan og er
hún öll hin vandaðasta með sérsmíðuðum innréttingum.
Verð kr. 50.000.000
SEIÐAKVÍSL, REYKJAVÍK
Mjög góð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í
lyftuhúsi, með inngangi af svölum. Hús
og sameign eins og best verður á kosið.
Eignina má aðeins selja aðilum 67 ára
og eldri. Mikil þjónusta tengist íbúðum
hússins. Verð kr. 20.500.000
VESTURGATA, REYKJAVÍK
Glæsileg 137 fm íbúð á 2. hæð og risi
auk bílskúrsréttar í litlu fjölbýli. Íbúðin er
með vönduðum innréttingum og gólfefn-
um. Skipting íbúðarinnar er forstofa, hol,
eldhús, stofa og borðstofa, þvottaher-
bergi, baðherbergi og þrjú svefnherbergi
á hæðinni. Í risi er sjónvarpshol og
svefnherbergi. Tvennar svalir. Húsið ný-
lega viðgert að utan. Fyrir liggur að
byggja bílskúr. Mjög góð staðsetning.
Verð kr. 28.400.000
LAXAKVÍSL, REYKJAVÍK
Mjög falleg 4ra herbergja 119 fm íbúð á
neðstu hæð í þríbýlishúsi með sérinn-
gangi. Eignin skiptist í forstofu, hol, fjög-
ur herbergi, baðherbergi, stofu og eld-
hús. Parket og flísar á gólfum. Baðher-
bergið hefur verið glæsilega endurnýjað.
Hús í góðu standi. Mjög góð staðsetn-
ing. Verð kr. 19.900.000
UNNARBRAUT, SELTJARNARNESI
Mjög góð 90 fm hæð auk 31 fm bílskúrs
í mjög góðu steinhúsi, byggðu árið 1952.
Íbúðin skiptist í hol, eldhús, baðhebergi,
stofu og borðstofu og þrjú svefnher-
bergi. Eignin er öll hin snyrtilegasta og
húsið í sérlega góðu ástandi að utan,
þak nýlega yfirfarið og málað. Frábær
staðsetning. Verð kr. 22.700.000
BARÐAVOGUR, REYKJAVÍK
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Svöluás 26 - Parhús
Vorum að fá í einkasölu frábærlega staðsett 194,4 fm parhús á tveimur hæðum með
innbyggðum bílskúr á góðum útsýnisstað í Hafnarfirði. Neðri hæðin skiptist í forstofu,
snyrtingu, bjartar stofur með vængjahurð út í garð og eldhús með fallegum kirsuberj-
ainnréttingum. Efri hæðin skiptist í þrjú svefnherbergi, stórt sjónvarpsherbergi með
fallegri vængjahurð (auðvelt að nýta sem svefnherbergi) með útgangi á norður- sval-
ir, þvottahús og fallegt baðherbergi með kirsuberjainnréttingu, nuddhornbaðkari og
glugga. Í stigaholi er mjög stór og fallegur gluggi sem gefur mikla birtu. Allar hurðir
og innréttingar eru úr kirsuberjaviði. Áhv. 16,4 millj. með 4,15% vöxtum. Við yfirtöku
láns sparar kaupandi kr. 410.000 í stimpil- og lántökugjöld. Verð 38,9 millj. (564)
Inga sölumaður tekur vel á móti gestum í dag frá kl. 17 - 19.
Teikningar á staðnum.
Opið hús í dag frá kl. 17-19