Morgunblaðið - 22.05.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 49
MINNINGAR
Elsku Sigga amma. Í
dag hefðir þú orðið 81
árs. Þú yfirgafst þenn-
an heim hinn 29. apríl sl.
eftir erfið síðari ár. Þó
það sitji eftir svo ein-
lægur söknuður þegar svo hjarthlýr
hluti af manns tilveru fer á næsta
stað, þá vega hinar miklu og góðu
minningar um þig upp á móti þeim
söknuði. Minningar, sem að stóru
leyti gera mig að þeim manni sem ég
er í dag. Minningar, sem eiga sitt
hlutverk í sérhverri niðurstöðu og
ákvörðun sem ég tek á degi hverjum
og mun taka í framtíðinni. Mér finnst
yndislegt að hugsa til þess hvað þú átt
mikið í mér.
Það er ekki að ástæðulausu að
margar af mínum minningum um þig
snúast um mat. Í hvert skipti sem þú
opnaðir dyrnar á Hjalló upp á gátt var
dýrindis matur í allsnægtum. Í dag er
það svo að í hvert skipti sem ég fæ
mér soðna ýsu með kartöflum hugsa
ég ávallt til þín og Sigga afa með
skemmtilegum áherslum á furðuleg
smáatriði. Það er bara einu sinni
þannig með bernskuminningar, að
SIGRÍÐUR
MAGNÚSDÓTTIR
✝ Sigríður Magnús-dóttir fæddist á
Bæ í Reykhólasveit
22. maí 1924. Hún lést
á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni í Reykjavík
29. apríl síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Fossvogs-
kirkju 10. maí.
þær skreyta hversdags-
leikann og setja áhersl-
ur á sérstaka staði, hluti
og athafnir. Í hvert
skipti sem ég fæ mér
grjónagraut eða finn
bara smákanillykt hell-
ast yfir mig fjölmargar
minningar með öllu
mínu frændfólki í aðal-
hlutverki. Flatköku-
lyktin, kleinuilmurinn
og þitt þétta faðmlag
birta minningar sem
spila á ljúfa strengi og
ég veit að þannig mun
það verða um ókomna
tíð. Það er ómetanlegt að eiga og
horfa á þá ljósmynd sem til er af þér
haldandi á Gunnari Elísi meðan heilsa
þín var enn góð. Sonur minn í þínu
hlýja fangi er falleg minning sem
hann mun læra að ylja sér við þegar
framlíða stundir. Þau fá mann til að
brosa, þessi stolnu augnablik sem eru
manni svo einstaklega dýrmæt þegar
allt kemur til alls.
Megi góður Guð vaka yfir þér,
elsku amma mín. Megi þér líða vel í
faðmi ættingja sem tekið hafa á móti
þér þarna hinum megin. Hafðu með
þér innilega þökk fyrir allt það sem
þú gafst mér.
Þú geislar svo oft af brosi björtu
að birtir allt upp og veitir oss yl.
Það gleymist svo oft, að glaðari hjörtu
græða og styrkja það, að vera til.
(Höf. ók.)
Þórólfur Gunnarsson (Tóti).
laust haft mikið að segja í þínu lífi.
Þú hélst alltaf miklu og góðu sam-
bandi við Heddu systur þína sem
reyndist þér vel svo og Siggi og
Nanna. Þú starfaðir lungann úr
þínu lífu með föður þínum í sæl-
gætisgerð KÁ og fórst þér vel að
halda utan um reksturinn alla tíð.
Eins sýndir þú kvikmyndir í Hafn-
arfjarðarbíói í forföllum föður þíns
og var heimsókn til þín í sýning-
arklefann ævintýri út af fyrir sig.
Þú sagðir mér frá merkjunum í
myndunum sem birtust og gáfu til
kynna að spóluskipti væru í nánd.
Allt varð að ganga snurðulaust fyr-
ir sig og það tókst þér svo að
áhorfendur urðu þess ekki varir að
önnur vél var komin í gang með
næstu spólu.
Þegar ég heimsótti þig í Skip-
holtið, þar sem þið feðgar höfðuð
vinnustað, tók ég vel eftir hve ið-
inn þú varst. Þú vildir spjalla en
jafnan hafa hendur á banönum og
froskum sem þú varst búinn að
súkkulaðihúða og vildir koma í
pakkningar. Þú hafðir margt til
brunns að bera og hefðir getað
orðið hvað sem hugur þinn hefði
stefnt að. Þú hafðir viðurnefnið
„Brynjólfur greindi“ hjá mörgum
vina þinna sem skynjuðu dýpt þína
í hugsunum. Krefjandi bóknám
hefði farist þér vel hefðir þú kosið
að fara þá leið. Þú hefur barist
hetjulega við illvígan sjúkdóm og
sýnt af þér æðruleysi og sálar-
styrk, tilbúinn að taka því sem
verða vildi.
Hugsun til þín kallar fram góðar
minningar um góðan tíma æskuár-
anna og þann vandaða persónu-
leika sem þú áttir. Hvíl þú í friði,
kæri vinur.
Þormar Ingimarsson.
Það er hverju smáu
byggðarlagi happa-
fengur þegar heil-
steyptur og hæfileika-
ríkur einstaklingur
flyst í það og blandast
þeirri flóru mannlífs,
sem fyrir er.
Þannig var því varið fyrir 56 ár-
um þegar ung kona flutist í Keldu-
hverfi í Norður-Þingeyjarsýslu.
Konan var Ásdís Einarsdóttir ættuð
austan af Langanesströnd, af góðu
og gagnmerku fólki komin.
Ásdís giftist eftirlifandi eigin-
manni sínum Birni Guðmundssyni
bónda og síðar oddvita og hrepp-
stjóra í Lóni, rótgrónu menningar-
heimili í sveitinni. Í Lóni tókst Ásdís
á við margþátta lífshlutverk sitt:
stórfjölskyldu heimilisins, uppeldi
barnanna 6, bústörf, góðgerðar-
starfsemi í þágu kvenfélagsins, leik-
listar- og tónlistarlíf sveitarinnar
svo að nokkuð sé nefnt.
Ásdís var falleg kona, glaðsinna
og greind og lagði gott til allra mála.
Góð dómgreind, jákvæðni og æðru-
leysi hennar gerðu það verkum að
hún leysti hvert viðfangsefni öðrum
betur og aðdáunarvert var að fylgj-
ast með henni í þungbærum veik-
indum og síðar við fráfall yndislegs
ungs sonar.
Þrátt fyrir að óhjákvæmileg
boðaföll tilverunnar hlífðu Ásdísi
ekki fremur en flestum öðrum var
hún mikil gæfukona; hún var elskuð
og virt að verðleikum af góðum eig-
inmanni, afkomendur svo og
tengdabörnin einstaklega gjörvu-
legur og giftusamur hópur. Þá varð
hún og þeirra gæfu aðnjótandi að
sjá búsetu í Lóni farsællega fram
haldið af góðum syni og mætri
tengdadóttur, sem nú á ævikvöldi
Ásdísar gáfu henni lítinn sólargeisla
og alnöfnu.
ÁSDÍS
EINARSDÓTTIR
✝ Ásdís Einars-dóttir fæddist á
Hallgilsstöðum á
Langanesi 13. júlí
1924. Hún lést á líkn-
ardeild Landakots
28. apríl síðastliðinn
og var jarðsungin í
kyrrþey.
Ásdís átti við erfið
veikindi að stríða mörg
undanfarin ár, þar
brást hún við sem áð-
ur, með yfirvegun og
skynsemi; hún fann sér
viðfangsefni við hæfi
þrátt fyrir mikið skert
líkamlegt þrek, prjón-
aði á yngstu meðlimi
fjölskyldunnar til síð-
asta dags og sagði að
meðan hún gæti reykt
laxinn sinn og aðstoðað
við uppeldi barna-
barnanna, fyndist sér
hún mega vel við una.
Ásdís lagði mikið upp úr háttvísi
og tillitssemi í umgengni við aðra,
barnabörnunum skyldi kennt að
heilsa, kveðja og þakka fyrir sig.
Áhrifa þessa gætti þá er undirrituð
tók eftir því, nú fyrir nokkrum ár-
um, hve ungur þáttastjórnandi, í
morgunþætti Rásar 2, bauð viðmæl-
endur sína fallega velkomna og
sömuleiðis hve fallega hann kvaddi
þá og þakkaði fyrir komuna; en þar
kom á daginn að á ferðinni var ein-
mitt eitt barnabarna Ásdísar með
dýrmætt veganesti úr uppeldi
ömmu.
Okkur öllum sem ólumst upp í
næsta nágrenni við Ásdísi gleymast
seint fínu kökuveislurnar sem hún
hélt okkur smáfólkinu, allir leikirnir
sem hún kenndi okkur og öll glað-
værðin sem fylgdi þeim. Því er nú
mikið skarð fyrir skildi og hennar
sárt saknað af öllum sem þekktu
hana.
Birni frænda, afkomendum og
tengdabörnum þeirra flyt ég dýpstu
samúðarkveðjur.
Í nafni systkina minna.
Ragna Sigrún Sveinsdóttir.
Okkar elskulegi eiginmaður, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
HALLGRÍMUR EGILL SANDHOLT
verkfræðingur,
lést á Landspítala við Hringbraut fimmtu-
daginn 12. maí.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 23. maí kl. 15.00.
Þóra Sandholt,
Bergur Sandholt, Th. Stella Hafsteinsdóttir,
Kristín Sandholt, Ingvar Vilhelmsson,
Ingibjörg Sandholt, Ei. Ómar Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir okkar, mágur og frændi,
BRYNJÓLFUR KRISTINSSON,
andaðist þriðjudaginn 10. maí sl. á LSH.
Hjartans þakkir til þeirra, sem önnuðust hann
í veikindunum.
Einnig til þeirra, sem sýndu minningu hans
virðingu með blómum og nærveru við útför
hans sem fór fram frá Fossvogskapellu mið-
vikudaginn 18. maí.
Helga Kristinsdóttir, Ríkharð Laxdal,
Gunnar Kristinsson, Valgerður Andersen,
Ragnar, Kjartan og Kristinn.
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda-
móðir og amma,
BÁRA KRISTJÁNSDÓTTIR
þroskaþjálfi,
Íragerði 12,
Stokkseyri,
lést á Landspítalanum laugardaginn 7. maí.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn
24. maí klukkan 13:00.
Kristján Geir Arnþórsson,
Erla Hafliðadóttir,
Njörður Sigurjónsson, Valgerður Halla Kristinsdóttir,
Arnþór Kristjánsson,
Björn Kristjánsson,
Marta Kristjánsdóttir,
Pétur Juul Arnþórsson.
Ástkær sonur minn, bróðir og mágur,
STEINI BJÖRN JÓHANNSSON
vélfræðingur,
Kóngsbakka 5,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn
24. maí nk. kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir,
en þeir, sem vilja minnast hans, eru beðnir að láta Krabbameinsfélagið
njóta þess.
María S. Finsen,
Karl F. Jóhannsson, Bergljót Aradóttir,
Steinunn Jóhannsdóttir, Anna Guðrún Jóhannsdóttir,
Gunnar Jóhannsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURJÓN G. SIGURJÓNSSON,
Birkigrund 71,
Kópavogi,
andaðist á heimili sínu föstudaginn 20. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Anna Ásgeirsdóttir,
Freyja Sigurjónsdóttir, Þórir Sigurgeirsson,
Ásgeir Sigurjónsson, Silja Sverrisdóttir,
Drífa Sigurjónsdóttir, Ólafur Baldursson,
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
SIGURÐUR BJÖRGVINSSON
frá Garði,
Mývatnssveit,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi, föstudaginn
20. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Margrét Björnsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
JÓHANNA ÁSDÍS JÓNASDÓTTIR,
Mánatúni 2,
Reykjavík,
lést á heimili sínu föstudaginn 20. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Birgir J. Jóhannsson,
Guðrún Birgisdóttir, Chuck Mack,
Jónas B. Birgisson, Stella Guðmundsdóttir,
Inga Jóhanna Birgisdóttir Halldór Úlfarsson,
Sigrún Birgisdóttir, Óskar Baldursson,
Haukur Birgisson, Áslaug María Magnúsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.