Morgunblaðið - 22.05.2005, Page 50

Morgunblaðið - 22.05.2005, Page 50
50 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Hann Eyfi frændi er dáinn. Svo óvænt. Einhvernveginn óraunveru- legt. Við sjáum hann fyrir okkur sitj- andi í sófanum heima hjá mömmu, sposkur á svip þrátt fyrir rólegt yfir- bragðið. Fylgist með öllu, kemur með skemmtileg innskot í umræðuna. Ein- staklega viðræðugóður enda vel að sér í öllum mögulegum málefnum. Víðlesinn. Ljóð, skáldsögur, fræðirit hvað sem er og allt festi hann sér í minni. Bækur voru líklega það eina af veraldlegum hlutum sem hann sank- aði að sér í seinni tíð. Honum var annt um velferð okkar, það urðum við oft vör við og gátum við leitað til hans með hvað sem var. Oft- ast var það bara spjall sem við sótt- umst eftir sem leiddist oftar en ekki EYJÓLFUR ALFREÐSSON ✝ Eyjólfur KristinnLemann Alfreðs- son fæddist í Reykja- vík 17. desember 1948. Hann lést í Reykjavík 27. apríl síðastliðinn og var út- för hans gerð frá Fossvogskirkju 9. maí. út í afar heimspekilegar samræður. Honum var líka einkar lagið að út- skýra alla hluti á ein- faldan og hnitmiðaðan hátt eins og þegar hann kenndi Alla stærðfræði á einni kvöldstund þeg- ar Alli var að búa sig undir samræmdu próf- in á sínum tíma. Það voru ekki margir í fjölskyldunni sem Al- freð gat rætt við um nám sitt af viti þegar hann byrjaði í raf- magnstæknifræðinni. Þar kom Eyfi sterkur inn og þegar kom að því að honum fannst eitthvað vanta upp á kunnáttu sína, þá skellti hann sér bara á bókasafnið og las sér til. Mætti svo sprækur og upplýstur til leiks reiðubúinn til aðstoðar. Þegar Eyfi var yngri var hann skáti, varð meira að segja foringi. Kunni að binda allskyns hnúta og átti allt sem þurfti í almennilega útilegu. Stundum fóru þau systkin Eyfi, Halli og Gréta, með foreldrum okkar í ferðalög þegar Veiga og Alli voru lítil, það var sko fjör, hellar voru rannsak- aðir, farið í feluleiki í „skóginum“ og gengið á fjöll. Svo þegar litlir stubbar þreyttust og neituðu að labba lengra í miðri fjallshlíð, var þeim einfaldlega stungið ofan í bakpokana þeirra pabba og Eyfa og bornir í þeim á leiðarenda. Eyfi æfði fótbolta með Fram sem strákur og hafði gaman af því að taka í boltann langt fram eftir aldri. Hljóp hann oft í skarðið fyrir pabba þegar pabbi var upptekinn og fór með Alla út að sparka og eru þess- ar fótboltastundir þeirra tveggja Alla afar hugleiknar. Hann Eyfi var að vísu hættur að sparka að mestu leyti sjálfur þegar Pálmi var orðinn liðtæk- ur fótboltastrákur en var óspar á hvatningarorðin og horfði stundum á Pálma á vellinum án þess að Pálmi vissi af, til þess að fá marktæka sýn á leikni hans að eigin sögn. Það er af mörgu að taka og margs að minnast en við megum ekki ofgera, það hefði ekki verið honum móður- bróður okkar að skapi, hann var ekki mikið fyrir vol og víl og hafði oft lýst því yfir að hann vildi ekkert bless- partý þegar hann færi. Við ætlum að lokum að kveðja hann Eyfa eins og hann ávarpaði okkur alltaf – „Heill og sæll frændi“ og takk fyrir allt. Sigurveig (Veiga), Aðalsteinn (Alli), Alfreð og Pálmi. Valtýr bróðir minn ólst upp í foreldrahús- um til 10 ára aldurs. Ár- ið 1924 fluttist fjölskyld- an frá Rauðbarðaholti að Nýp, en Valtýr varð eftir þar hjá Kristmundi föðurbróður sínum og konu hans Salóme Einarsdóttur til 16 ára aldurs, er hann kom heim að Nýp. Valtýr vann almenna sveita- vinnu þar vestra en árið 1941 fluttist hann til Reykjavíkur. Hjá Valtý beygðist krókurinn snemma að trésmíði, sem varð hans ævistarf. Hann lærði húsasmíði hjá Magnúsi Ketilbjarnarsyni í Reykja- vík, lauk námi í Iðnskólanum og sveinsprófi í húsasmíði árið 1945 og fékk síðan meistararéttindi. Árið 1949 fluttist fjölskyldan til Stykkishólms. VALTÝR GUÐMUNDSSON ✝ Valtýr Guð-mundsson fæddist í Gröf í Laxárdal í Dalasýslu 12. okt. 1914. Hann lést í St. Franciskusspítalan- um í Stykkishólmi 31. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Stykkis- hólmskirkju 8. janúar. Valtýr var harðdug- legur og fylginn sér við öll störf. Valtýr var mjög góð- ur smiður, vandvirkur og heiðarlegur. Hann byggði mörg hús í Stykkishólmi og ná- grenni. Hann sagði mér fyrir nokkrum árum, að hann hefði aldrei fengið neinar kvartanir frá þeim sem hann vann fyrir, og er það vottorð um hans vinnulag og samviskusemi. Valtýr átti marga góða vini og traustur þeim sem honum féll vel við, sem sagt vinur vina sinna og hjálp- samur þeim á ýmsa lund. Valtýr var vel greindur, hafði ákveðnar skoðanir og lét þær í ljósi við hvern sem var. Valtýr og Ingunn eignuðust fimm mannvænleg börn, 3 stúlkur og 2 drengi, sem öll lifa föður sinn. Valtýr og Ingunn áttu gott og farsælt hjóna- band allt til loka eða um rúmlega 64 ára tímabil. Valtýr var góður heimilisfaðir, vel- ferð þess og framtíð barnanna skipti hann mestu. Eftir rúmlega níutíu ára lífsferil var heilsan farin að gefa sig sem eðli- legt er en andlega hress til síðustu stundar. Ég hafði samband við hann nokkru áður en hann lést, þá var hann hinn ánægðasti og sagði að það væri allt í lagi með sig, hann þyrfti ekki yfir neinu að kvarta. Þannig var hans viðhorf til tilver- unnar, ánægður þótt elli kerling sækti að. Síðustu árin áttu þau heima að Skólastíg 14a, í Stykkishólmi í góðri lítilli íbúð, þar sem snyrtimennska þeirra bar sýnilega vott um. Úr íbúðinni var fagurt útsýni yfir Breiðafjörðinn og fjallahringinn um- hverfis hann. Ingunn mín. Nú er skarð fyrir skildi. En ég veit að þú átt góðar minningar um góðan eiginmann sem þú áttir samleið með langa ævi. Við Valtýr áttum ekki langa sam- leið vegna fjarlægðar heimila okkar eftir að hann flutti til Stykkishólms en ég búsettur syðra og nú síðustu árin að mestu leyti erlendis, en við höfðum alltaf samband símleiðis og skrifuðumst á. Ég kveð þig, kæri bróðir, með söknuði, og þakka þér samfylgdina hérna megin. En við hittumst aftur á nýju tilverustigi í fyllingu tímans, og þá verða aftur fagnaðarfundir. Ingunn mín. Við Kristín og sonur okkar Gestur Valgeir vottum þér og öðrum ástvinum hins látna samúð okkar. Guð blessi ykkur öll. Gestur Guðmundsson. Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 Fallegir steinar á góðu verði Englasteinar www.englasteinar.is Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj, s. 691 0919 Vönduð og persónuleg þjónusta Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR frá Bæ í Króksfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á hjúkrunar- heimilinu Sóltúni. Jóhanna Friðgeirsdóttir, Gunnar Þórólfsson, Hrefna Friðgeirsdóttir, Kjartan Hálfdánarson, Salome Friðgeirsdóttir, Sveinn Geir Sigurjónsson, Magnús Friðgeirsson, Sigurveig Lúðvíksdóttir, Sigurveig Sigurðardóttir, Karl Guðmundsson, Arndís Magnúsdóttir, Ólafur og Gunnlaugur, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar systur okkar, mágkonu og frænku, KRISTÍNAR STEFÁNSDÓTTUR, Hnappavöllum, Öræfum. Páll Stefánsson, Sigríður Stefánsdóttir, Þórður Stefánsson, Sigrún Bergsdóttir og systkinabörn hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar dóttur minnar og systur okkar, SÓLVEIGAR EIRÍKSDÓTTUR, síðast til heimilis á Fellsenda í Dölum. Bryndís Tómasdóttir, Eiríkur Eiríksson, Auðunn Eiríksson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.