Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 61

Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 61 Paul Carrack er best þekktur semsöngspíra hljómsveitarinnar Mike& The Mechanics, sveitar Mike Rutherford, gítarleikara og bassaleikara Genesis. Þekkt lög sveitarinnar eru m.a. „The Living Years“, „Over My Shoulder“, „All I Need Is A Miracle“, og „Another Cup of Coffee“. Carrack hefur þó einnig starfað sem sólólistamaður en fyrsta breiðskífa hans kom út ár- ið 1980, fimm árum áður en Mike & The Mecha- nics settu í gang. Fyrir stuttu sendi Carrack frá sér tvöfaldan mynddisk sem var tek- inn upp á tónleikum í Liverpool í október á síðasta ári og er ein- faldlega titlaður Live in Liverpool. Carrack er mikill hæfi- leikamaður og á nokkuð merkilegan feril að baki en auk þess að syngja leikur hann á gítar og hljóm- borð. List sína hefur hann þó mestanpart stundað á bakvið tjöldin en hefur dúkkað upp á mörgum og ólíkum plötum og hann er t.a.m. eftirsóttur leiguspilari, lék þannig á orgel á fyrstu plötu The Smiths. Hann hefur unnið svipaða hluti fyrir listamenn á borð við Elton John, Undertones, Pretenders, Roger Waters, Eric Clapton, Simply Red, BB King og fleiri. Carrack hóf feril sinn í kráarrokk- bandinu Ace (breska „pub-rock“ bylgj- an var undanfari pönksins) og lék svo inn á tvær plötur með Roxy Music áður en hann gekk til liðs við Squeeze. Eftir stutta viðvöl þar ein- beitti hann sér að sólóferli, allt þar til að Rutherford bankaði upp á og bauð honum í Mike & The Mechanics. Sólóplötur með Car- rack koma þó út reglulega. Sú síðasta, hin mjög svo fína It Ain’t Over, kom út í hitteðfyrra. Venjuleg geisladiskaútgáfa af Live in Liverpool mun þá koma út í kjölfar mynddisksins og Carrack læðir að sjálfsögðu nokkrum vel völdum Mechanics lögum í settið sitt. Tónlist | Paul Carrack gefur út tvöfaldan mynddisk Paul Carrack á að baki langan og at- hyglisverðan feril þótt lágt hafi farið. PARIS Hilton segir draumastarf sitt vera starf dýralæknis. Hún segir að ef hún væri ekki margmilljónamæringur með eigin raunveru- leikaþátt vildi hún gjarn- an hjúkra dýrum, en reyndar segist hún eiga 600 gæludýr í litlum dýra- garði sem hún hefur kom- ið sér upp við heimili sitt í Hollywood. „Ef ég hefði fæðst inn í venjulega fjöl- skyldu væri ég dýralækn- ir. Ég unni dýrum. Ég ann hundum, köttum og mörð- um,“ segir hún. Hún hefur einnig látið hafa eftir sér að hún sé al- gjörlega hugfangin af uppáhaldshundinum sín- um, Tinkerbell, og gefi honum rándýrar gjafir, en eignir Parisar eru tald- ar nema um 42 millj- örðum króna. „Dýrasta flíkin sem ég hef keypt handa Tinkerbell er dem- antskragi. Hún á líka kasmírfrakka og ofsalega svala skó.“ Paris ann mörðum Reuters Paris Hilton er mikill dýravinur og ger- ir vel við hundinn sinn, Tinkerbell. Lifandi í Liverpool Do you want to study Computer Science or IT? Erhvervsakademi Syd Grundtvigs Allé 88 Sønderborg Tlf. 45 7412 4141 www.eass.dk ● Do you want to study in Denmark? ● Do you want to study in Denmark in an international environment? ● Are you looking for education which give good job possibility after graduation? ● Are you interested in computers and IT? ● Are you looking for a short education at university level? Do as Eva Björk Arnadóttir and other brave young students. Every year The Academy for Business and Technical studies in Sønderborg Denmark welcomes students from Iceland. Come and join us! Sønderborg has an active "Íslendingafélag". Visit our website www.eass.dk to read more of your future in Denmark. Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan Barcelona. Þar er Port Aventura, glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Salou skartar stórkostlegum ströndum, fjölbreyttri afþreyingu og litríku næturlífi. Terra Nova býður þér einstakt tækifæri á ótrú- legum kjörum. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. - SPENNANDI VALKOSTUR Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • sími 591 9000 Akureyri sími 461 1099 • www.terranova.is Kr. 34.995 í 5 daga / kr. 39.990 í 12 daga Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn. Súpersól tilboð, 27. maí, 5 eða 12 dagar. Kr. 39.990 í 5 daga / kr. 49.990 í 12 daga Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna. Súpersól tilboð, 27. maí, 5 eða 12 dagar. Salou Súpersól 27. maí frá kr. 34.995

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.