Morgunblaðið - 22.05.2005, Qupperneq 64
64 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Ó.H.T Rás 2
Sláandi sálfræðitryllir eins og hann gerist bestur. Með
Óskarsverðlaunahafanum, Adrien Brody (The Pianist) og Keira
Knightley úr „Pirates of the Caribbean” og „King Arthur”.
Crash kl. 5.50 - 8.10 - 10.30 b.i. 16
The Jacket kl.5.45 - 8 - 10.10 b.i. 16
The Motorcycle Diaries kl. 5.30 - 10.20
The Hitchhikers guide... kl.5.45 - 8 - 10.15
Napoleon Dynamite kl. 8.05
Vera Drake kl. 8
Maria Full og Grace kl. 6 - 10 b.i. 14
Geggjaðasta og frumlegasta grínmynd ársins
er komin í bíó.Byggð á einni vinsælustu bók
alheimsins eftir Douglas Adams.
j l í i
i í í . i i i l
l i i i l .
H.L. MBL
Ó.H.T Rás 2
S.V. MBL
Ó.H.T Rás 2
SLÓ RÆKILEGA Í GEGN
Á ÍSLANDI, USA OG Á BRETLANDI
I Í
Í I, I
MBL
DV Í hraða lífsins kemur að því að
við rekumst á hvert annað
lí i í
i
Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann,
Paul Haggis (“Million Dollar Baby”).
Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma.
Kvikmynd eftir
Óskarsverðlaunahafann, Paul
Haggis (“Million Dollar Baby”).
Sláandi og ögrandi mynd sem
hefur fengið einvala dóma.
ROGER EBERT
ROLLING STONE
ROGER EBERT
ROLLING STONE
Í hraða lífsins kemur að því að
við rekumst á hvert annað
RAPPARINN Nelly er brosmildur
mjög, eins og sést á þessari mynd
sem tekin var við frumsýningu
myndarinnar The Longest Yard á
fimmtudaginn. Myndin er end-
urgerð á samnefndri mynd frá
árinu 1974, sem fjallaði um það
þegar fótbolta-
kappi var send-
ur í fangelsi.
Nelly leikur í
endurgerðinni,
en aðalhlutverk
eru í höndum
Adams Sandlers,
Chris Rocks og
Burts gamla
Reynolds. Mynd-
in verður frumsýnd vestra á föstu-
daginn.
Nelly sýnir
tennurnar
Það fór ekki framhjá mörgum ís-
lenskum rokkaðdáendum þegar
lagið Hot Damn, That Woman Is A
Man byrjaði að hljóma á öldum
ljósvakans síðasta sumar. Ótrúlega
fingrafimi mátti heyra í gítarund-
irspilinu á meðan groddaraleg visk-
írödd rumdi sögu af pilti sem lend-
ir í kröppum dansi í Amsterdam.
Fljótlega heyrðust fleiri lög í svip-
uðum stíl og ljóst var að rokkaðdá-
endur fögnuðu þessari viðbót í
rokkflóru landsins.
Það eru þeir Smári „Tarfur“
Jósepsson og Jens Ólafsson sem
skipa hljómsveitina Hot Damn en
þeir félagar eru báðir þaulreyndir
tónlistarmenn. Smári er líklega
þekktastur sem fyrrum gítarleikari
Quarashi en Jens þandi radd-
böndin fyrir hina akureyrsku Toy
Machine áður en hann gekk til liðs
við Brain Police.
Á föstudaginn leit svo loksins
fyrsta breiðskífa tvíeykisins dags-
ins ljós, The Biǵn Nasty Groové O
Mutha.
Og þá liggur beint við að spyrja
hvað þeim gangi til með nafninu á
plötunni. „Það lýsir henni bara svo
vel“ segir Smári og glottir. „Á
plötunni er að finna „nastí“ eða
skítugar sögur og þess vegna
fannst okkur nafnið alveg smell-
passa.“
Smári semur lögin og textana á
plötunni en auk þess fylgja í um-
slaginu smásögur sem liggja að
baki textunum. „Sko textarnir eru
eftir mig en sögurnar eru yfirleitt
reynslusögur af Jensa.“
Og eru allar sögurnar sannar?
„Já!“ segja þeir í kór og svo
bætir Jens við, „pældu í því!“
Þeir félagar segjast ekki hafa
þekkst náið áður en þeir byrjuðu á
plötunni. „Ég átti fullan lager af
blús-rokk dóti og svo ákvað ég
bara einn daginn að gera eitthvað
við þetta og hóaði þá í Jensa. Þetta
gerðist mjög hratt og eftir fyrstu
tvö skiptin sem við hittumst voru
komin ein sex lög.“
Það er útgáfufyrirtækið Ruf Rat
Records sem gefur út plötuna og
kemur hún út í 1.000 eintökum.
Hvaða fyrirtæki er þetta?
„Segir nafnið ekki allt sem segja
þarf?“ Svarar Smári og eftir heil-
mikla útúrdúra og undanskot fellst
hann á að útskýra málið. „Þetta er
alveg frábært fyrirtæki sem
trommaradrýsillinn á plötunni
stendur á bak við. Hann heitir Tim
Roman og spilaði á sínum tíma
körfubolta hér á landi. Þessi plata
er fyrsta platan sem kemur út á
vegum fyrirtækisins en hann á
mjög líklega eftir að verða afkasta-
mikill hér á landi í náinni framtíð.
Mikill snillingur hér á ferð og hald-
inn gríðarlegri ástríðu á tónlist.“
Athygli vekur að Bubbi Mort-
hens spilar munnhörpusóló í einu
lagi á plötunni,Tag Along.
„Við hringdum í Bubba og út-
skýrðum fyrir honum textann í lag-
inu sem fjallar um mann sem rís
úr ösku fíkniefnagleðinnar og hann
kom inn, dúndraði inn sólóinu á
nokkrum mínútum og svo fór
klukkutími í að segja sögur, a la
Bubbi. Það var draumurinn að fá
Bubba og KK til að heyja munn-
hörpusóló en það heppnaðist því
miður ekki. En Bubbi gerði þetta
frábærlega og lagið er stórkostlegt
fyrir vikið.“
Eins og fyrr segir er hljóm-
platan komin, fáanleg í öllum betri
hljómplötubúðum og mun Hot
Damn halda útgáfutónleika á mið-
vikudaginn næstkomandi á Kvía-
bryggju.
„Við erum þarna að hætta lífi og
limum til að spila fyrir harðsvíraða
glæpamenn,“ segir Smári. „Förum
alveg óvarðir þarna inn og spilum.“
Harðsvíraða?
„Ja, það hljómar alla vega bet-
ur.“
Tónlist | Fyrsta plata Hot Damn komin út
Skítugar sögur
Ljósmynd/Marinó Thorlacius
Smári Tarfur og Jens í hvínandi blús-ham.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is