Morgunblaðið - 23.05.2005, Page 2
„HANN bar sig ótrúlega vel miðað við að-
stæður og svona gerir enginn nema þrek-
maður,“ sagði Hjalti Gunnarsson, bóndi í
Fossnesi, sem tók á móti slösuðum bílstjóra
sandflutningabíls sem hafði oltið skammt
frá Þverá í Þjórsárdal snemma í gærmorg-
un. Bílstjórinn gekk á sokkaleistunum
nærri þrjá km heim að Fossnesi til að láta
vita af sér og var síðan fluttur á Landspít-
alann.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður, 3 stiga frost
og 10-15 m/sek mótvind tókst bílstjóranum
að komast heim að bænum. Hjalti lýsir
göngu bílstjórans sem miklu þrekvirki eftir
jafnalvarlegt slys en bíllinn er gerónýtur
að sögn lögreglunnar á Selfossi.
Tilkynnt var um slysið um sexleytið í
gærmorgun. Bílstjórinn var með gám fullan
af sandi og voru aðstæður á slysstað góðar,
þ.e. vegurinn borinn olíumöl og lítilsháttar
sveigja á honum þar sem hann liggur upp á
hæð við slysstaðinn.
Talið er að bíllinn hafi farið eina eða
tvær veltur. Stýrishúsið er alveg sam-
anfallið, en líklegt þykir að bílstjórinn hafi
kastast út úr því.
Gekk slasaður eftir bílveltu tæpa þrjá kílómetra eftir hjálp í gærmorgun
„Svona gerir enginn nema þrekmaður“
Vörubíllinn var mjög illa farinn eftir velturnar og húsið hafði nánast lagst saman.
VEIKUR sjómaður var sóttur af
Landhelgisgæslunni langt á haf
út í gær og fluttur á Landspít-
alann. Vegna lengdar sjúkra-
flugsins var þyrla Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli fengin til að
fylgja TF-LIF þyrlu Landhelg-
isgæslunnar þar sem TF-SIF
hafði ekki flugdrægi í svo langt
flug og Fokker Gæslunnar var í
viðgerð. Er þetta í fyrsta skipti
sem varnarliðsþyrla fylgir TF-
LIF í sjúkraflug. Sjómaðurinn
var af togaranum Hermanos
Gandon Quadro sem var staddur
á úthafskarfaslóð 220 sjómílur
suðvestur af Reykjanesi. Var
hann með öll einkenni botnlanga-
kasts.
Sjómaður sóttur
langt á haf út
2 MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VILL HALDA KOSNINGAR
Flest bendir nú til að haldnar
verði þingkosningar í Þýskalandi í
haust, heilu ári á undan áætlun. Ger-
hard Schröder, kanslari Þýskalands,
lýsti því yfir í gær að hann vildi
halda kosningar svo fljótt sem auðið
væri, enda vildi hann sækja endur-
nýjað umboð frá þýskum almenningi
til að hrinda umbótaáætlun sinni í
framkvæmd. Yfirlýsing Schröders
kom í kjölfar þess að ljóst var orðið
að flokkur hans, Jafnaðarmanna-
flokkurinn, hafði tapað illa í sam-
bandskosningum í Nordrhein-
Westfalen, stærsta sambandsríki
Þýskalands.
Engin kona í framboði
Kjörstjórn í Íran hefur úrskurðað
að aðeins sex einstaklingar fái að
vera í framboði í forsetakosningum
sem eiga að fara fram í landinu 17.
júní nk. Alls höfðu 1.014 lýst yfir
framboði. Engin þeirra 89 kvenna,
sem hugðu á framboð, hlaut náð fyr-
ir augum hinnar íhaldssömu kjör-
stjórnar. Líklegast er talið að Akbar
Hashemi Rafsanjani verði næsti for-
seti Írans en hann hefur áður gegnt
embættinu.
Markaði tímamót
Nýafstaðinn landsfundur Sam-
fylkingarinnar markaði, að mati
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
nýkjörins formanns, mikil tímamót í
sögu flokksins. Segir hún að fram á
sjónarsviðið sé kominn stór og öflug-
ur flokkur, sem sýnt hafi samkeppn-
ishæfni sína.
Bjargaði mannslífi
Íslenskur læknir í Gautaborg
bjargaði mannslífi eftir að hafa sjálf-
ur hlaupið hálfmaraþon. Þórdís Jóna
Hrafnkelsdóttir læknir var nýkomin
í mark þegar hún heyrði kallað eftir
læknishjálp. Veitti hún manni um
sextugt í hjartastoppi skyndihjálp,
en sá hafði fengið höfuðhögg og í
kjölfarið misst meðvitund þegar
hann var nálægt því að koma í mark.
Næturfrost alltítt í maí
Bændur hafa nokkrar áhyggjur af
kornræktinni sökum þess hversu títt
næturfrost hefur verið það sem af er
mánuði. Ljóst þykir að sprettunni
muni seinka nokkuð vegna kuldans
og óttast menn einnig að nætur-
frostið grisji kornakra. Á Norður-
landi hefur kuldinn haldist í hendur
við nokkra bleytu og hafa sauðfjár-
bændur gripið til þess að ráðs að
koma fénu aftur í hús enda ærnar
sérlega viðkvæmar fyrir júgurbólgu
þar sem þær eru flestar vetrar-
rúnar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 21/23
Fréttaskýring 8 Dagbók 26/28
Vesturland 12 Myndasögur 26
Viðskipti 13 Víkverji 26
Erlent 14 Staður og stund 27
Listir 17, 29 Leikhús 29
Daglegt líf 14/16 Bíó 30/33
Umræðan 20 Ljósvakar 34
Bréf 20 Veður 35
Forystugrein 18 Staksteinar 35
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
AMTSBÓKASAFNIÐ á Akureyri
hefur undanfarin tvö ár átt í sam-
starfi við lögfræðiþjónustu Intrum
varðandi innheimtuaðgerðir til þess
að sporna við vanskilum. Hugmyndir
eru uppi um að Borgarbókarsafn
Reykjavíkur taki upp slíkt samstarf
en vanskil á bókum eru orðin talsvert
vandamál.
Guðrún Kristín Jónsdóttir, deild-
arstjóri útlánadeildar Amtsbóka-
safnsins, segir samstarfið við Intrum
hafa gengið vel en það hófst árið
2003. Hún segir þá sem standa í van-
skilum fá send bréf frá bókasafninu
þar sem fram kemur að viðkomandi
aðili sé í vanskilum og sé gefinn
ákveðinn frestur til þess að skila
gögnunum. „Ef það er ekkert gert,
annaðhvort skilað eða greitt, þá fer
þetta sína leið til Intrum,“ segir Guð-
rún og bætir því við að vanskil þýði
bæði glatað fé fyrir bókasafnið og
skerta þjónustu fyrir notendur
safnsins. Hún segist hafa sent um
520 bréf fyrir árin 1999-2003 og
bendir hún á að langflestir skili bók-
unum að lokum áður en málið fer til
Intrum. Guðrún segir fólk fá tvær til
þrjár rukkanir áður en það fær loka-
aðvörun. Fólk fái því góðan tíma til
þess að skila bókunum en u.þ.b. ár
líður á milli fyrsta bréfsins og end-
anlegar viðvörunar. „Þetta er loka-
aðferðin hjá okkur til þess að ná inn
gögnunum,“ segir Guðrún og bætir
því við að lítið hafi verið um leiðindi í
tengslum við þetta. Hún segir fólk
ekki hafa viljað trúa þessu til að
byrja með, þ.e. að bókasafnið væri
farið að ganga á eftir bókum, en fljót-
lega hafi fólk tekið við sér og þetta
hafi gengið vandræðalaust að mestu.
Einar Ólafsson, deildarbókavörð-
ur á Borgarbókasafni Reykjavíkur,
segir töluvert um að fólk skili seint
eða jafnvel alls ekki bókum á bóka-
söfn. Aðspurður segir hann það vera
í umræðunni að taka upp samstarf
við lögfræðiþjónustur varðandi inn-
heimtuaðgerðir því oft sé um afar
dýrar og verðmætar bækur að ræða
sem skili sér seint eða illa.
Hann bendir þó á að það sé ekki
komið á það stig ennþá hjá Borgar-
bókasafninu. Á þeim rukkunum sem
hafi verið sendar út síðast komi fram
að fólk sé vinsamlegast beðið um að
skila bókunum sem fyrst svo það geti
komist hjá óþarfa innheimtuaðgerð-
um. Hann segir slíkar rukkanir bæði
kosta fyrirhöfn og peninga enda sé
um talsverðan fjölda að ræða. „Svo
er verið að eyða tíma í að hringja í
fólk og svona. Þannig að þetta er
vandamál og mjög slæmt hvað marg-
ir skila illa.“
Aðalatriðið að fá bækurnar inn
Aðspurður segir Einar ekki gefið
upp hver hámarkssektin sé við að
skila seint og illa, en ef komið sé fram
yfir skilafrest bætist 10 kr. gjald á
dag á hverja bók sem er í láni. Bóka-
safnið láti þó sektirnar ekki fara upp
í neinar óheyrilegar fjárhæðir. „Það
er alltaf aðalatriðið að fá bækurnar
inn. Við viljum frekar fá bækurnar
en að fólk þori ekki að skila þeim á
bókasafnið út af himinháum sekt-
um,“ segir Einar.
Lögfræðingar inn-
heimta vanskilabækur
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra verður í veikindaleyfi í
kjölfar aðgerðar sem hann gekkst
undir á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi sl. föstudag.
Ráðherrann gekkst undir aðgerð
vegna brjóskloss í baki. Verður
hann í veikindaleyfi um óákveðinn
tíma.
Samgönguráðherra
í veikindaleyfi
HÓPURINN Hugarafl hlaut hvatningarverð-
laun Samfylkingarinnar sem afhent voru á
landsfundi flokksins í gær. Í skjali sem undir-
ritað var af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur,
formanni Samfylkingarinnar, segir að Hugarafl
hljóti verðlaunin fyrir áhrifaríkt framtak við að
ryðja nýjar brautir í geðheilbrigðismálum.
Verðlaunin eru jafnan veitt einstaklingi eða
félagsskap sem skarað hefur fram úr á ein-
hverju tilteknu sviði þjóðlífsins, eins og Bryn-
dís Hlöðversdóttir, fráfarandi þingmaður
flokksins, sagði í kynningu á starfi hópsins í
gær.
Unnið út frá hugmyndum um valdeflingu
Hugarafl var stofnað af Auði Axelsdóttur
iðjuþjálfa og fjórum notendum með langa
reynslu af geðrænum vandamálum, Garðari
Jónassyni, Jóni Ara Arasyni, Hallgrími Björg-
vinssyni og Ragnhildi Bragadóttur. Erla
Björnsdóttir iðjuþjálfi starfaði með hópnum í
fyrstu en Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstöðu-
vinna gegn fordómum og efla atvinnusköpun
fyrir geðsjúka. Bryndís rakti í kynningu sinni á
hópnum að í honum ynnu notendur heilbrigð-
isþjónustunnar og iðjuþjálfar á jafningjagrund-
velli út frá sjónarhóli þeirra sem hefðu reynslu
af geðrænum vandamálum en væru í bata.
Unnið væri út frá hugmyndinni valdefling sem
gengur út að fela vald í heldur skjólstæðingi,
gera hann færan um eitthvað sem eykur sjálf-
stæði hans sem um leið veitir honum viður-
kenningu á því að vera jafngildur öðrum í sam-
félaginu.
Hugarafl starfar á heilsugæslunni í Drápu-
hlíð þar sem hópurinn fundar tvisvar í viku.
Starf hópsins er m.a. að halda úti útgáfu,
fræðslu, kynningu og heimasíðu um málefni
geðsjúkra auk þess sem hópurinn er í samstarfi
við ýmsa aðra hópa.
Að lokinni kynningu veitti Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir fulltrúum hópsins verðlaunin. Mar-
grét Guttormsdóttir, meðlimur í Hugarafli,
þakkaði í stuttu ávarpi fyrir viðurkenningu
Samfylkingarinnar og sagði að markmið með-
lima Hugarafls væri að sjá það jákvæða í þeim
vágesti sem geðsjúkdómar væru.
iðjuþjálfi Landspítala – háskólasjúkrahúss,
gekk fljótlega til liðs við hópinn og hefur starf-
að með Hugarafli síðan, ásamt Auði.
Markmið Hugarafls er að skapa hlutverk,
auka ábyrgð notenda geðheilbrigðisþjónustu,
Hugarafl fékk hvatningar-
verðlaun Samfylkingarinnar
Eftir Kristján Geir Pétursson
kristjan@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir afhenti fulltrúum
Hugarafls hvatningarverðlaunin í gær.