Morgunblaðið - 23.05.2005, Síða 9

Morgunblaðið - 23.05.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 9 FRÉTTIR                  Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Sumarlegir jakkar Borgarholtsskóli Innritun eldri nemenda (fæddir fyrir 1989) á haustönn 2005 stendur yfir og lýkur 25. maí Í boði fyrir þá eru eftirtaldar námsbrautir: Nánari upplýsingar um einstakar námsbrautir eru á heimasíðu Borgarholtsskóli, v/Mosaveg, 112 Reykjavík. Sími 535 1700. Bréfasími 535 1701. Sjá nánar á heimasíðu: www.bhs.is Iðnnám • Bifvélavirkjun • Bifreiðasmíði • Bílamálun • Grunndeild bíliðna • Fyrrihlutanám í málmiðnum • Vélsmíði • Rennismíði • Blikksmíði • Stálsmíði Bóknám til stúdentsprófs: • Félagsfræðabraut • Málabraut • Náttúrufræðibraut • Viðbótarnám til stúdentsprófs eftir starfsnám Annað starfsnám: • Félagsliðabraut • Námsbraut fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum • Verslunarbraut • Upplýsinga- og fjölmiðlabraut Listnám: • Margmiðlunarhönnun, grafísk áhersla • Margmiðlunarhönnun, fjölmiðlatækni Innritun nýnema (fæddir 1989) er rafræn og lýkur 14. júní Þjónusta skólans við þá nemendur verður auglýst síðar 93 MILLJÓNIR króna voru veittar til ýmissa málefna úr Pokasjóði verslunarinnar í fyrradag og hefur aldrei meira fé verið veitt í styrki á þeim tíu árum sem sjóðurinn hefur verið starfræktur. Í fyrra var 73 milljónum úthlutað. Stöðug aukn- ing hefur verið í styrkveitingum undanfarin ár en nú eru um 90% af allri dagvöruverslun aðilar að sjóðnum. Að þessu sinni fékk Rauði kross Íslands 5 milljónir kr. í styrk vegna hamfaranna í Asíu í desember og sömu upphæð fékk Skógrækt- arfélag Íslands til áframhaldandi stuðnings við skógræktarfélögin. Þá fékk Húsgull sömu upphæð fyrir endurreisn landkosta á Hólasandi. 640 styrkumsóknir bárust að þessu sinni og námu óskir um fram- lög 750 milljónum króna. 109 að- ilum var veittur styrkur, allt frá 100 þúsund kr. upp í 5 milljónir. Að sögn Bjarna Finnssonar, for- manns stjórnar Pokasjóðs, er svið sjóðsins orðið mun víðfeðmara en það var fyrir fáeinum árum með því að sjóðurinn veitir ekki eingöngu umhverfisstyrki eins og áður, held- ur styrki til menningar, forvarna- starfs, íþróttastarfs og margs ann- ars. „Hugmyndin er sú að sjóðurinn styrki málefni sem varði almanna- heill og ég held því að sjóðurinn muni geta sinnt helstu málaflokk- um,“ segir Bjarni. Meðal verkefna sem fengu styrki frá 180–500 þús- und kr. má nefna reiðþjálfun fatl- aðra, sumarbúðir fyrir sykursjúk börn, tónleikar á vistheimilum aldr- aðra, listahátíð fatlaðra og Þjóða- hátíð Alþjóðahússins 2006. Sjö krónur af hverjum plastpoka renna til pokasjóðs og greiða 100 verslanir um land allt í sjóðinn. Á þeim áratug sem sjóðurinn hefur starfað hefur 500 milljónum kr. verið úthlutað. Stærstu framlög úr sjóðnum á þessum áratug hafa farið til skógræktarfélaganna eða alls 65 milljónir kr. Þá hefur Húsgull feng- ið 42,6 milljónir. Pokasjóður veitir 93 milljónir króna í styrki Morgunblaðið/Árni Torfason Þristavinafélagið fékk eina milljón króna úr Pokasjóði og komu fulltrúar félagsins til athafnarinnar fljúgandi á landgræðsluflugvélinni Páli Sveinssyni til að taka á móti styrknum fyrir Þristadag Pokasjóðs. „ÞETTA var mjög góður dagur og allir voru ánægðir,“ sagði Guð- björg Guðmundsdóttir, starfsmað- ur Klúbbsins Geysis, um aðstand- enda- og kynningardag klúbbsins, sem haldinn var í húsakynnum klúbbsins, að Skipholti 29 í Reykjavík fyrir helgina. Hún segir að um sjötíu manns; félagar og aðstandendur þeirra, hafi komið í klúbbinn, notið veit- inga og ljúfra tóna frá hljómsveit- inni South River Band. Félagar og starfsmenn kynntu einnig starf- semi klúbbsins. Klúbburinn Geysir starfar eftir hugmyndafræði Fountain House. Markmiðið er að styrkja félaga sem hafa átt eða eiga við geðræn veikindi að stríða. Í Geysi er lögð áheyrsla á jákvæðni og horft á styrkleika hvers og eins. Morgunblaðið/Árni Torfason Aðstandendur og félagar nutu veitinganna hjá Klúbbnum Geysi. „Mjög góður dagur og allir ánægðir“ Kynningardagur hjá Klúbbnum Geysi STEFNT er að því að milliliðalaus sala bænda á afurðum sínum hér- lendis geti hafist fyrir alvöru upp úr næstu áramótum. Árni Jósteinsson, fulltrúi Bændasamtakanna í verkefnishópi sem vinnur að undirbúningi á heimasölu bænda, segir að fram- undan sé að búa til umgjörð utan um verkefnið, hanna vörumerki, o.fl. Stefnt er að því að hópur áhugafólks á sviði heimavinnslu kynni afurðir sínar á handverks- sýningu í Hrafnagili í ágúst. Eftir sumarfrí hefst vinna við að taka saman leiðbeiningarefni um heima- vinnslu og á þeirri vinnu að ljúka í kringum áramót. Í verkefnishópnum eiga sæti auk Árna, fulltrúi frá Lifandi landbún- aði, fulltrúi Hólaskóla, Matra og Ferðaþjónustu bænda. Heimagerðir ostar og kjöt og grænmeti Að sögn Árna er það skoðun verkefnishópsins að unnt sé að mestu að skapa umhverfi fyrir heimavinnslu bænda innan núver- andi reglugerðarverks með ein- hverjum breytingum þó, m.a. er lúta að tilslökun á gerilsneyðingu mjólkur og mjólkurvara. Fyrstu viðræður hafa farið fram milli hópsins og embættis yfirdýralækn- is um þetta efni. Vinna verkefnishópsins byggist á skýrslu nefndar um heimasölu afurða bænda sem kynnt var fyrr á þessu ári, en mat nefndarinnar var að ekkert kæmi í veg fyrir milliða- lausa sölu bænda á afurðum sínum hérlendis svo fremi sem þeir hefðu tilskilin leyfi til sölunnar. Lög og reglur væru þó óþarflega flókin og sköpuðu hindranir. Að sögn Árna má gera ráð fyrir að á næsta ári geti neytendur keypt heimagerða osta, kjötvörur, fisk og grænmeti, o.fl. beint af bóndanum. Milliliðalaus sala afurða undirbúin Í framkvæmd upp úr næstu áramótum smáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.