Morgunblaðið - 23.05.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Opnunartími virka daga frá kl. 14.00-18.00 - um helgar frá kl. 10.30-18.00
Stendur til 29. maí - Upplýsingasími 551 8464
í Perlunni
OKKAR TAKMARK:
Verð 50-80%
undir fullu verði
:
i f ll i
Verðdæmi: Okkar verð: Fullt verð:
Didriksons regnsett 2.000 kr. 4.990 kr.
Catmandoo kuldagallar barna 3.600 kr. 7.990 kr.
Puma fótboltaskór 2.000 kr. 5.990-10.990 kr.
Asics skór 4.500 kr. 9.500-15.900 kr.
Casall hjólabuxur 2.000 kr. 5.990 kr.
Adidas hlaupaskór 5.500 kr. 10.990 kr.
Cintamani barnafleece 1.500 kr. 5.990 kr.
Strákaskór nr. 22-32 m/frönskum rennilás
1.000 kr. 3.500 kr.
Sandalar barna frá 500 kr.
Mikið úrval: O´Neill - Casall - Osh Kosh - Confetti
Sundföt - Fótboltaskór
catmandoo
R Ö H N I S C H
Columbia
CINTAMANI
PONYAND1
Firefly
ÍSFÉLAG Vestmannaeyja
skilaði 635 milljóna króna
hagnaði á árinu 2004 og er
það 5 milljóna króna aukning
frá árinu áður. Af reglulegri
starfsemi eftir skatta nam
hagnaðurinn 515 milljónum
en árið áður var hann 216
milljónir króna. Heildarvelta
Ísfélagsins á árinu 2004 var
3,4 milljarðar og jókst um
100 milljónir frá árinu áður.
Hagnaður fyrir afskriftir og
vexti, EBITDA, hækkaði úr
820 milljónum í um 956 millj-
ónir króna og var 28% af
veltu ársins.
Rekstur Ísfélags Vest-
mannaeyja hf. gekk vel
fyrstu þrjá mánuði ársins
2005, að því er segir í til-
kynningu, en félagið byggir
afkomu sína að langstærst-
um hluta á veiðum og
vinnslu á loðnu og síld. Því
sé ljóst að verði ekki loðnu-
veiðar í sumar eða haust
muni það hafa mikil áhrif á
rekstur félagsins á árinu
2005.
Sumarhús fyrir
starfsfólkið
Í ljósi góðrar afkomu árs-
ins ákvað stjórn félagsins að
afhenda starfsmannafélagi Ís-
félagsins sumarhús til afnota
sem þakklætisvott fyrir vel
unnin störf á undanförnum
árum.
Ísfélagið
með 635
milljóna
hagnað 2004
SAMRÆMD vísitala neysluverðs lækkaði um 0,5% milli
mars og apríl hér á landi en hækkaði hins vegar um 0,4%
í EES-ríkjum. Í tilkynningu frá Hagstofu Íslands segir
að vísitalan hafi lækkað á Íslandi vegna mikillar sam-
keppni á dagvörumarkaði.
Frá apríl 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan,
mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að með-
altali bæði í ríkjum EES og á evrusvæðinu en hins vegar
1,6% á Íslandi. Mesta verðbólga á Evrópska efnahags-
svæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,1% í Lettlandi
og 4,7% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan 0,4% í Sví-
þjóð, og 1,1% í Finnlandi.
Ekki grunnur að verðtryggingu lána
Verðtryggðar skuldbindingar hér á landi miðast ekki
við samræmda vísitölu neysluverðs heldur við sérstaka
íslenska vísitölu neysluverðs. Í þeirri vísitölu er húsnæð-
isliður sem mælir breytingu á verði húsnæðis, en sá liður
er ekki í samræmdri vísitölu neysluverðs. Verðbólgan
hér á landi mæld samkvæmt hinni íslensku vísitölu
neysluverðs var 2,9% síðastliðna 12 mánuði. Í aprílmán-
uði mældist verðbólgan hins vegar 4,3%. Hún lækkaði
milli apríl og maí, mest annars vegar vegna samkeppni á
matvörumarkaði og hins vegar vegna þess að Hagstofan
breytti aðferðum sínum við útreikning vaxta af húsnæð-
islánum við mælinu á breytingum á vísitölu neysluverðs.
Samræmd vísitala lækk-
ar hér en hækkar í EES
Samkeppni á dagvörumarkaði skýrir lækkun hér
Samkeppnin Hagstofan segir að mikil samkeppni á
dagvörumarkaði skýri lækkun samræmdrar vísitölu
neysluverðs hér á landi.
VELTA dagvöruverslana var um
4,6% meiri í apríl en í sama mánuði
árið 2004, að teknu tilliti til verðlags-
breytinga, samkvæmt nýjustu mæl-
ingu Rannsóknaseturs verslunar-
innar. Sala á áfengi minnkaði um sem
nemur 1,6%. Líkt og fyrri mánuði er
velta lyfjaverslana heldur minni en
undangengið ár, eða 3% fyrir apr-
ílmánuð. Verðvísitala dagvöru hefur
lækkað um 1,9% frá því í apríl í fyrra
á meðan verð á áfengi hefur hækkað
lítillega, eða um 0,6%. Verðhækkanir
í lyfjasmásölu síðustu 12 mánuði
nema 3,7% sem er svipað og verðlag
hefur hækkað almennt.
Í aprílmánuði var talsverð veltu-
aukning frá árinu áður, eða 4,6%,
þrátt fyrir að páskahelgin hafi í ár
verið í mars samanborið við miðjan
apríl í fyrra. Ekki er hægt að benda á
neina eina skýringu á þessari þróun.
Þriggja mánaða meðaltal vísitölu
dagvöruveltu hefur hækkað um
7,6% frá sama tímabili í fyrra. Þó svo
að áfengissala í apríl dragist lítillega
saman á milli ára er vöxtur þriggja
mánaða meðaltals af svipaðri stærð-
argráðu og í dagvöruverslun og
raunar meiri, eða 8,9%.
Samdráttur í lyfjaverslun um 3%
frá því í fyrra skýrist fyrst og fremst
af því að á síðasta ári fór af stað átak
til lækkunar lyfjakostnaðar.
Smásöluvísitalan er reiknuð af
Rannsóknasetri verslunarinnar við
Viðskipaháskólann á Bifröst sam-
kvæmt upplýsingum sem berast
beint frá fyrirtækjunum og ÁTVR.
Velta í smásölu 4,6% meiri
● HAGNAÐUR af rekstri Opinna Kerfa
Group hf. á fyrsta fjórðungi þessa árs
var 57 milljónir króna, samanborið við
58 milljónir króna á sama tímabili í
fyrra. Rekstartekjur tímabilsins eru
mun lægri en í fyrra, 2,7 milljarðar
samanborið við 3,7 milljarða en það
skýrist af því að Skýrr og Teymi eru
ekki lengur hluti af Opnum kerfum
heldur voru fyrirtækin færð til Kög-
unar, sem er aðaleigandi Opinna
kerfa, um áramótin.
EBITDA hagnaður tímabilsins var
109 milljónir króna, og EBITDA hlutfall
var 4,1%, en í fyrra var EBITDA hagn-
aður 161 milljón króna og EBITDA
hlutfall 4,4%.
Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli er
16,4% samanborið við 9,9% í fyrra.
Aukin arðsemi
eigin fjár OKG
● ALÞJÓÐLEGA fjármálafyrirtækið
Morgan Stanley, sem verið hefur ráð-
gjafi einkavæðingarnefndar vegna
einkavæðingar Símans, hefur verið
dæmt til þess að greiða bandaríska
athafnamanninum Ronald Perelman
1,45 milljarða Bandaríkjadala, sem
samsvara tæplega 96 milljörðum
króna, í skaðabætur. Frá þessu er
greint á fréttavef Financial Times.
Málsatvik eru þau að Perelman,
sem er stjórnarformaður Revlon og
einn helsti fjármálamaður Bandaríkj-
anna, seldi Sunbeam, sem er við-
skiptavinur Morgan Stanley, eitt fyr-
irtækja sinna. Hann tapaði 604,3
milljónum dala, um 40 milljörðum
króna, á viðskiptunum vegna svika
Sunbeam og hefur Morgan Stanley nú
verið dæmt meðsekt þar sem fyr-
irtækið sat á gögnum sem voru mik-
ilvæg og trassaði að reiða þau fram.
Hagnaður Morgan Stanley á fyrsta
fjórðungi ársins nam 1,47 milljörðum
dala og því ljóst að hér er um fjárhags-
legt áfall að ræða fyrir fyrirtækið.
Morgan Stanley dæmt