Morgunblaðið - 23.05.2005, Side 14

Morgunblaðið - 23.05.2005, Side 14
Borðið rétta fitu, holla og líf-ræna,“ segja ÞorbjörgHafsteinsdóttir og OscarUmahro Cadogan næring- arþerapistar þegar þau gefa góð ráð fyrir grillveislur sumarsins. Fita er nefnilega ekki bara fita. Til er fita sem er nauðsynleg lík- amanum, m.a. fyrir frumuhreysti, jafnvægi blóðsykurs, insúlínnæmi, framleiðslu hormóna, brennslu, ein- beitingu og jafnvægi hugans. Hins vegar er neysla á kjöti dýra sem alin eru á öðru en grasi og nátt- úrulegu fóðri, eins og nautakjöti, kjúklingum og kalkúnum, hættuleg heilsunni. Hún getur valdið ýmsum velmegunarsjúkdómum. Það sem skiptir öllu máli er gæði fitunnar. „Við viljum einungis líf- rænar, kaldhreinsaðar olíur – extra virgin, óunnar fjölómettaðar fitusýr- ur, sérlega omega 3-fitusýrur úr fiski, lýsi og hörfræsolíu, og mettaða dýrafitu úr villtum dýrum, en allt í hófi,“ segja þau og bæta við að við eigum að vera „sérstaklega á varð- bergi gagnvart unnum jurtaolíum í plastflöskum, því plast inniheldur efnið „phataler“ sem leysist upp í ol- íu/fitu. Einnig unnum olíum í öllum tilbúnum afurðum, s.s. salötum, pakkamat, kornvörum og ruslfæði. Og ekki síst margendurnotuðum ol- íum einsog þeirri sem franskar kart- öflur eru steiktar upp úr.“ Grillaðar sítrónugulrætur Fínar gulrætur með grilluðu kjöti eða fiski. Takið eftir að olíunni er bætt við eftir á, og skemmist því ekki við grillunina. ½ kg gulrætur, hreinsaðar og skorn- ar í fernt á langveginn ferskur safi úr ½ sítrónu 1 tsk kóríanderfræ ½ tsk kanill sjávar- eða steinasalt nýmalaður svartur pipar extra virgin olía, ólífu-, canola eða sesamolía Marínerið gulræturnar í sítrónu- safa, kóríanderfræjum, kanil, salti og pipar í minnst 30 mín., helst yfir nótt, í ísskáp. Látið renna af gulrótunum og grillið í nokkrar mín. á hvorri hlið á pönnukökupönnu. Hellið maríner- ingunni og extra virgin olíunni yfir gulrætunar og berið fram. Flysjaðar gulrætur og agúrkur Afhýðið grænmetið og sneiðið það niður í langar þunnar sneiðar með skrælararnum. Þær sjúga í sig bragðið úr öllu sem þú marínerar þær í. Grænmetissneiðarnar eru góð- ar með grilluðum fiski eða lamba- kjöti. Einnig má bæta við þær sal- atblöðum og þá er komið salat. 4–5 stórar gulrætur, skornar í þunnar sneiðar með skrælara 1 agúrka, skorin eins fínraspað sítrónuhýði og ferskur safi úr einni lífrænni sítrónu ½ lífræn appelsína 1 msk extra virgin ólífu- eða sesamolía 5 g fersk engiferrót í fínum þráðum ½ tsk kanill hnefi fersk, fínsöxuð mynta (ef vill) smáskvetta af vanilludufti sjávar- eða steinasalt nýmalaður svartur pipar Láttu gulrætur og agúrku mar- ínera í safa og kryddi minnst 1 klst. en helst 2 sólarhringa í ísskáp. Appelsínu-, pipar- og negulnaglaólífuolía Notaðu þessa olíu til að marínera grænmeti áður en það er gufusoðið eða grillað, til að marínera fisk og kjöt sem á að grilla eða steikja í ofni (broil) eða settu brauð í stað smjörs. Einnig má borða appelsínusneið- arnar. Uppskriftin má líka gera með öðru kryddi og sítrusávöxtum. Prófið t.d. lífrænar sítrónur með rósmarín, kanil og chili. Og hvað með lífrænar súraldin-sneiðar með basilíku, sítrónugrasi og kóríanderfræjum? 1 lífræn appelsína í fínum sneiðum 10–15 heil svört piparkorn 15–20 heilir negulnaglar 3–4 dl extra virgin ólífuolía Setjið allt í glerkrukku og gefið appelsínunum og kryddinu minnst sjö daga til að ljá olíunni bragð. Ekki forðast fitu en borðið góða fitu Morgunblaðið/Kristinn Þorbjörg Hafsteinsdóttir og Oscar Cadogan segja fitu nauðsynlega. 14 MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF | HEILSA línuskautar fullorðins. Margar gerðir. H ön nu n: G un na r S te in þ ór ss on / M ar ki ð / 04 .2 00 4 Línuskautar hlífarog hjálmar Varahlutir og viðgerðaþjónusta ORLANDO stækkanlegir barna línuskautar. Skautinn stækkar með barninu. Mjúk dekk og APEC legur. Stærðir 25-29, 30-35 og 36-40 fyrirtæki í forystu í þróun betri og þægilegri línuskauta  mettaðar fitur: dýrafitu úr villtum dýrum (t.d. íslenskt lambakjöt, villigæs, endur, hreindýr o.s.frv.) kókosfitu (kjörin til að steikja og baka) hreint íslenskt smjör (í litlu magni)  einómettaða og fjölómett- aða fitu: aðeins kaldhreins- aðar olíur – extra virgin, óunnar, non hydrogenated og lífrænar: ólífuolíu (þolir hita í ein- hverju magni) hörfræsolíu (omega 3), repjuolíu, sólblómaolíu, ses- amolíu, þistilolíu, graskers- olíu (þolir ekki hita og er því ekki hægt að steikja upp úr henni eða setja í ofn) hnetur, möndlur, fræ og kjarna (ósaltað) lárperur (avocado) Notið  allar unnar jurtaolíur sem ekki eru merktar extra virgin, cold pressed eða non hydrogenated, t.d. mat- arolíu, maísolíu og jurtaolíu  smjörlíki og majones  smjör m/viðbættum unnum olíum  palmín og unna kókósolíu  sojaolíu  CLA (conjugated linolic acid)  unnar olíur í hylkjum  vörur sem innihalda „tví- sýnar“ jurtaolíur  allt djúpsteikt í olíu  tilbúin salöt, t.d. rækju- og túnfisksalat  þráar, gamlar olíur Forðist  FITA Eftir Hildi Loftsdóttur hilo@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.