Morgunblaðið - 23.05.2005, Side 16
16 MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
OPNUNARTÍMI
MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA.......
LAUGARDAGA.....................................
SUNNUDAGA.......................................
11 - 18
11 - 16
13 - 16
SETT EHF • HLÍ‹ASMÁRA 14 • 201 KÓPAVOGUR
SÍMI 534 1400 • SETT@SETT.IS
Svefngalsi
- draumaverð í boði
Calypso svefnsófi
• Dýnustærð 190 x 138 sm
• Springdýna
• Stór rúmfatageymsla
• Hentar vel fyrir lítið rými
Ver› kr. 49.900
25%
kynningar-
afsláttur
Max svefnsófi
• Dýnustærð 190 x 110 sm
• Springdýna
• Stór rúmfatageymsla
• Hentar vel í unglingaherbergið
Ver› kr. 29.900
25%
kynningar-
afsláttur
NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN
Technology so advanced, it´s
TURN-FREE
TILBOÐ
Amerískar lúxus
heilsudýnur
TURN-FREE
Queen 153x203 cm
Verð frá 72.000.-
Skipholt 35
Sími 588 1955
www.rekkjan.is
!"#$%&'()* +++,-.$-/-,%
Skemmuvegi 48 • Kópavogi • S: 557 6677
www.steinsmidjan.is
Granít borðplötur og flísar
Ég gekk í samtökin því ég átti rauðanhatt sem mig langaði að nota og síð-an er ég búin að kaupa mér tvo í við-bót, það verður að eiga sumar- og
vetrarhatt og svo á ég einn til vara. En ég á erf-
itt með að blanda saman fjólubláu og rauðu, ef-
laust er það Íslendingurinn í mér og ég kemst
upp með það. Ef ég er spurð afhverju ég gangi
ekki í fjólubláum fötum við rauða hattinn segi
ég að svo gömul finnist mér ég ekki vera,“ segir
Elín Káradóttir. Hún er einn félagsmanna í
Rauðu hattasamtökunum sem fara eins og eld-
ur í sinu um Bandaríkin og hafa þann eina til-
gang að konur skemmti sér saman, hafi gaman
af lífinu, gangi með rauða hatta og klæðist ein-
hverju fjólubláu.
„Rauðu hattasamtökin voru stofnuð af konu
sem heitir Sue Ellen Copper. Hún átti rauðan
hatt en fann aldrei tækifæri til að setja hann
upp. Vinkona hennar átti svo 55 ára afmæli og
þá gaf hún henni rauðan hatt og innrammað
kvæði eftir Jenny Joseph. Innihald kvæðisins
gengur út á það að vegna aldurs þá komist mað-
ur upp með ýmislegt eins og að klæðast fjólu-
bláu við rauðan hatt og týna blóm í annarra
manna görðum, eða með öðrum orðum að taka
sjálfan sig ekki of hátíðlega. Sue Ellen fór að
gefa öllum vinkonum sínum rauða hatta og
þetta ljóð innrammað og svo fóru þær að hittast
með hattana og gera ýmislegt saman. Árið 2000
birtist viðtal við þær í tímariti, út frá því fóru
konur að hafa samband við þær og vildu stofna
sína eigin klúbba. Það er upphaf samtakana.“
Óskipulögð samtök
Elín hefur búið í Virginíu-fylki í Bandaríkj-
unum ásamt manni sínum, Hilmari Braga Jóns-
syni matreiðslumeistara, seinustu fimm ár.
Fyrir rúmu ári ákváðu Elín og nágrannakon-
ur hennar í hverfinu Villages of Westminster að
stofna Rauðu hattaklúbb.
„Við köllum okkur The Westminster Dames.
Það er miðað við að ekki séu fleiri en 20 til 30
konur í hverjum klúbbi, þannig að það geta ver-
ið margir klúbbar á hverjum stað. Það eina sem
við þurftum að gera var að skrá okkur hjá að-
alsamtökunum. Svo þarf að borga fáeina dollara
fyrir skírteini sem staðfestir að maður sé með-
limur í þeim. Þetta eru óskipulögð samtök með
engar reglur en þó þarf að vera ein í forsvari
fyrir hverjum klúbbi sem ber titilinn Queen
Mother og önnur til vara sem kallast Vice
queen. Konurnar í klúbbnum skiptast á að
stinga upp á eitthverju að gera og við fram-
kvæmum það þegar tími gefst til.“
Elín segir þær hafa gert mikið saman á þessu
ári sem klúbburinn hefur starfað. „Við höfum til
dæmis farið í siglingu, í leikhús, á matreiðslu-
námskeið, út að borða og skroppið til Wash-
ington til að skoða tré í blóma. Það sem stendur
samt upp úr er þegar við fórum til Colonial
Downs á veðreiðar. Þá leigðum við okkur stúku
og makarnir fengu að koma með. Eitt hlaupið
var tileinkað okkur og í lok þess var tekin mynd
af okkur með hestinum sem vann það. Þetta
vakti mikla athygli.“
Lífið byrjar eftir fimmtugt
Rauðu hattasamtökin eru mjög þekkt í
Bandaríkjunum og hafa klúbbar sprottið upp
um allt land. Deildir hafa einnig verið stofnaðar
í Kanada og Ástralíu.
Elín segir að samtökin séu svo vinsæl að farið
sé að framleiða vörur sem stíli inn á þau. „Það
eru rekkar út í búð sem eru bara með vörur fyr-
ir Rauðu hattasamtökin, eins og nælur, penna,
hatta, armbönd, fatnað og allt mögulegt. Þegar
við hittumst er skylda að vera með rauðan hatt
og flestar mæta í fjólublárri dragt við hann, ég
reyni að hafa eitthvað fjólublátt á mér hvort
sem það er klútur eða næla. Við erum mjög
áberandi þegar við strunsum saman eftir göt-
unum hérna með rauðu hattana. Mottó samtak-
anna er að lífið byrji um fimmtugt og því er að-
alatriðið að skemmta sér saman og gera eitt-
hvað klikkað. Nú í lok maí förum við, The
Westminster Dames, á línudansnámskeið, í
byrjun júní er ferðinni heitið til New York í leik-
hús og sú hugmynd hefur komið fram að heim-
sækja vatnagarð, sem er hér skammt frá, svo
við getum spókað okkur um í sundbol með
rauðu hattana. Þetta gengur allt út á að halda
við barninu í sjálfum sér,“ segir Elín að lokum.
FÉLAGSSTARF | Óskipuleg samtök fyrir konur á besta aldri
Snýst um að skemmta sér og
taka sig ekki of hátíðlega
Elín uppábúin og tilbúin fyrir næstu uppá-
komu með Rauðu hattasamtökunum.
Rauðu hattasamtökin voru stofnuð í Bandaríkjunum 1997 og
eru vinsæl þar sem annars staðar. Elín Káradóttir er í sam-
tökunum og hefur gaman af lífinu í faðmi stallsystra sinna.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Nánari upplýsingar um samtökin:
www.theredhatsociety.com
Rauðu hattasamtökin eru fyrir konur sem
eru fimmtugar og eldri. Í Bandaríkjunum
verður fólk heldri borgarar 55 ára og var það
upphaflega aldurstakmarkið í samtökin.
Bleiku hattasamtökin eru líka til og eru þau
fyrir konur sem eru yngri en fimmtíu ára, þá
eru þær með bleika hatta og í lillabláum
dressum.
Árið 2002 var haldin fyrsta alþjóðlega ráð-
stefna samtakanna og hefur hún verið haldin
einu sinni á ári síðan í mismunandi borgum í
Bandaríkjunum.