Morgunblaðið - 23.05.2005, Side 25

Morgunblaðið - 23.05.2005, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 25 FRÉTTIR Atvinnuauglýsingar Blikksmíði ehf. Blikksmíði ehf. óskar eftir að ráða blikksmiði eða menn vana blikksmíðavinnu. Einnig vantar okkur menn í sumarvinnu. Upplýsingar gefur Jón í síma 893 4640. Raðauglýsingar 569 1111 Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings verður haldinn í Víkinni þriðjudaginn 31. maí kl. 20. Dagsrká: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Stjórnin. Styrkir Styrkir Samgönguráðuneytið óskar eftir umsóknum um styrki af fjárlagaliðnum Vetrarsamgöngur og vöruflutningar 10 - 190 - 1.12. Vetrarsamgöngur og vöruflutningar eru sérstak- ur liður á fjárlögum sem ætlaður er til stuðnings við sveitarfélög þar sem sveitarfélagið eða hluti þess býr við erfiðar og kostnaðarsamar sam- göngur og ekki er veitt fullnægjandi sam- gönguþjónusta af hálfu stofnana ríkisins. Styrkir verða einungis veittir þeim sveitarfélög- um sem senda inn vel rökstuddar umsóknir. Umsóknir skulu berast samgönguráðuneytinu fyrir 15. júní nk. Styrkir verða hvorki veittir til reksturs sérleyfa á landi, sjó eða í lofti né til stofnkostnaðar vegna kaupa á tækjum og búnaði. Umsóknir berist samgönguráðuneytinu, merktar Rúnari Guðjónssyni. Veiði Laxveiðileyfi Til sölu laxveiðileyfi í Álftá á Mýrum og Brennu, ármót Þverár og Hvítár í Borgarfirði. Upplýsingar gefur Dagur Garðarsson í símum 893 5337 og 568 1200 alla virka daga frá kl. 8.00—18.00. 31 barn var í fram- sæti bíls með loftpúða Einar Magnús Magnússon, upp- lýsingafulltrúi Umferðarstofu, segir að þrátt fyrir góðan árangur virðist sem fjöldi foreldra og forráðamanna barna gæti ekki öryggis barna sinna nógu vel. Þannig hefði t.d. 31 barn í könnuninni verið í hreinni lífshættu þar sem þau sátu í framsæti gegnt öryggispúða, þar af voru 10 alveg laus. Þess má geta að í 71. gr. um- ferðarlaga segir að barn lægra en 150 cm á hæð megi ekki vera farþegi í framsæti bifreiðar sem búin er uppblásanlegum öryggispúða fyrir framan sætið. Ef öryggi barna er skoðað eftir sveitarfélögum á landsvísu kemur í ljós að einungis í Neskaupstað reyndust öll börn nota réttan örygg- isbúnað í bílum. Útkoman var áber- andi verst á Bíldudal þar sem yfir 40% barna voru laus í bifreið og án öryggisbúnaðar. Á höfuðborg- arsvæðinu voru um og yfir 80% barna með réttan öryggisbúnað í bíl- TÆPUR fimmtungur barna, 6 ára og yngri, reyndist ekki vera með réttan öryggisbúnað í bílum sam- kvæmt könnun Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Lýðheilsustöðvar og Umferðarstofu, á notkun öryggis- og verndarbúnaðar í bílum. Könnunin var gerð fyrir utan 86 leikskóla víðs- vegar um landið en þátttakendur voru tæplega þrjú þúsund. Skv. könnuninni reyndust 84,1% barna vera með réttan öryggisbúnað í bíl á leið til leikskóla. 10,6% leik- skólabarna reyndust hins vegar vera í hefðbundnum bílbeltum og 5,3% barnanna voru ekki með neinn ör- yggisbúnað. Tíu ár eru frá því beltanotkun barna var fyrst könnuð af sömu að- ilum og hefur notkun öryggisbún- aðar fyrir börn aukist mjög. Þess má geta að árið 1996 reyndust 28% barna vera með engan öryggisbúnað í bílum, 32% árið 1997 en hlutfallið var rétt rúm 5% nú, sem fyrr segir. um, hæst var hlutfallið í Reykjavík, 86%. Austurland var sá landsfjórð- ungur þar sem flest börn voru með réttan öryggisbúnað, 87%, en á Suð- urlandi var hlutfallið lægst, tæp 80%. Í könnuninni var beltanotkun öku- manna sömuleiðis könnuð og voru 21,2% ökumanna án bílbelta, eilítið hærra hlutfall en árið á undan (20,4%) og mun hærra en árið 2003 þegar 16,2% ökumanna voru ekki með bílbelti. Fram kom á blaðmannafundi fyrir skemmstu þar sem könnunin var kynnt að á hverju ári slasast 35–40 börn, 6 ára og yngri, sem farþegar í bílum. Könnunin var framkvæmd af sjálfboðaliðum og leikskólakenn- aranemum við Kennaraháskóla Ís- lands. Fimmtungur barna ekki með réttan öryggisbúnað í bílum Morgunblaðið/Eyþór Sigurður Helgason, verkefnastjóri hjá Umferðarstofu, og Einar Magnús Magnússon upplýsingafulltrúi (fjær) kynna niðurstöður könnunar um notkun öryggisbúnaðar barna í bílum. Fjær sitja frá vinstri: Herdís Stor- gaard frá Árvekni, Kristín Björg Þorsteinsdóttir, fræðslufulltrúi Umferð- arstofu, og Sigurveig Pétursdóttir barnabæklunarlæknir. Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is NÝLEGA samþykkti stjórn Lána- sjóðs íslenskra námsmanna nýjar út- hlutunarreglur fyrir skólaárið 2005- 2006 en Morgunblaðið hefur á síð- ustu dögum fjallað nokkuð um breytingarnar. Samband ungra Framsóknarmanna fagnar niður- stöðu endurskoðunarnefndar LÍN. Í fréttatilkynningu segir að ljóst sé að þær breytingar sem hafa verið kynntar muni koma stæstum hópi lánþega til góða. „Afnám frítekju- marksins og lækkun skerðingarhlut- fallsins er skref í rétta átt, en þó vill SUF ítreka þá skoðun samtakanna að þessi fyrirbæri ættu ekki að fyr- irfinnast í kerfinu.“ SUF segir þær breytingar sem nú er verið að taka upp heimila lánþega að afla sér aukinna tekna til þess að ná endum saman í heimilisrekstrin- um. Þær séu einnig afar jákvæðar fyrir þá sem eru að snúa aftur af vinnumarkaðnum til náms. „Þetta eru jákvæð skref en áfram þarf að vinna að bótum á námslánakerfinu, hækka framfærslu og afnema tekju- skerðingu.“ SUF fagnar nýjum út- hlutunar- reglum LÍN MIKILL fjöldi Kringlugesta kynnti sér sýninguna Heilsa og forvarnir sem fram fór í verslunarkjarnanum dagana 17.–20. maí. Meðal þess sem boðið var upp á voru ókeypis mælingar á kólesteróli, blóð- sykri, blóðþrýstingi ásamt öndunarmælingum, auk þess sem gestum sýningarinnar var boðið upp á þrekpróf og axlanudd, sem mæltist afar vel fyrir. Að sögn Alexand- ers Óðinssonar sýning- arstjóra voru viðtökur al- mennings mjög góðar og fóru samtals um 800 manns í fyrrgreindar mælingar. Aðspurður segir Alexand- er áhugamannafélagið Heilsa og forvarnir hafa staðið að sýningunni. „Félag- ið var stofnað nú í vetur með það að markmiði að hjálpa landanum að öðlast betri heilsu með því að taka í gegn mataræðið og bæta lífsstíl sinn,“ segir Alexander. Að félaginu stendur kristinn hópur áhugafólks um heilsu og er allt starfið unnið í sjálf- boðavinnu. „Menn líta á þetta starf sem þjónustu við samfélagið, en hér er um af- ar brýnt verkefni að ræða. Við verðum að horfast í augu við það að heilsufari Íslend- inga fer hrakandi, en hins vegar er ennþá tími til snúa þróuninni við með markviss- um aðgerðum.“ Að sögn Alexanders gafst sýningargestum kostur á að skrá sig á ókeypis námskeið félagsins. Um er að ræða svonefnda heilsuklúbba sem haldnir verða vikulega, en meðal þess sem tekið verður fyrir í klúbbunum er mat- reiðsla, slökun, þrek og hvernig hætta á að reykja svo eitthvað sé nefnt. Fyrir áhugasama má benda á að félagið er um þessar mundir að koma sér upp vef á slóð- inni: www.heilsaogforvarn- ir.is og verður vefurinn kom- inn í gagnið síðar í vikunni. Góð aðsókn að sýningunni Heilsa og forvarnir í Kringlunni Ekki of seint að snúa þróuninni við Alls nýttu um 800 manns tækifærið til þess að fara í ókeypis þrekpróf eða mælingar á kólesteróli, blóðsykri og blóðþrýst- ingi á sýningunni Heilsa og forvarnir sem fram fór í Kringl- unni fyrir skömmu. „ALLAR upplýsingar og tíminn vinnur með þessu máli,“ segir Árni Johnsen, sem ásamt fé- laginu Ægisdyrum stóð nýverið fyrir kynning- arfundi um jarðgangagerð á Norðurlöndum í íþróttahöllinni í Vestmannaeyjum. Á fundinum hafði framsögu Svein Erik Kristiansen, verk- fræðingur og verkefnastjóri hjá NCC í Noregi og Svíþjóð, og kynnti jarðgangaframkvæmdir sem fyrirtækið hefur komið að í Noregi og Fær- eyjum. Alls mættu hátt á annað hundrað manns á fundinn og voru viðtökur viðstaddra, að sögn Árna, afar góðar. Að sögn Árna var Svein Erik á fundinum að fjalla um reynslu, þekkingu og verklag hjá NCC, jarðgöng fyrirtækisins í Færeyjum, þró- un jarðganga almennt í heiminum, ekki síst á Norðurlöndunum og hvaða blikur eru á lofti í þeirri þróun, m.a. hvað tæknimál varðar. „Á fundinum lagði Svein Erik áherslu á að tækni- lega séð væru engin vandamál við að grafa jarð- göng til Eyja og með þeim rannsóknum, sem verið er að gera núna, þá geta menn gert nokkuð örugga kostnaðaráætlun,“ segir Árni og vísar þar m.a. til rannsókna á vegum Vegagerðarinn- ar sem ÍSOR (Íslenskar orkurannsóknir) vinnur að um þessar mundir, en áætlað er að niðurstöð- ur þeirrar rannsóknar liggi fyrir síðar í sumar. Þegar niðurstöðurnar liggja fyrir er, að sögn Árna, komið að því að taka ákvörðun um þær þrjár hugmyndir sem eru í gangi varðandi sam- göngur milli lands og Eyja, en það er í höndum úttektarnefndar á vegum samgönguráðherra. Göng ódýrari en skip þegar til lengri tíma er litið Fram hefur komið að hugsanleg jarðgöng milli lands og Eyja, sem yrðu um 18 km að lengd, myndu kosta fullbúin kringum 15 millj- arða. Í samtali við Morgunblaðið leggur Árni áherslu á að þessir fjármunir séu nú þegar fyrir hendi. „Herjólfur hefur verið inni á kostnaðar- áætlun ríkissjóðs í 50 ár, en árlega renna 500 milljónir króna til Herjólfs í gegnum vegaáætl- un. Með því að færa peningana úr skipi yfir í göng kostar í raun minna að gera göngin en að endurnýja Herjólf. Ef við tökum tveggja skipa tímabil, sem eru 30 ár, þá kostar núverandi Herjólfur 15 milljarða á þessum 30 árum. Nýtt skip myndi hins vegar kosta 21 milljarð á 30 ára tímabili. Þannig er ljóst að hægt er að afskrifa göng á 30 árum, en skip þarf hins vegar stöðugt að endurnýja,“ segir Árni að lokum. Engin tæknileg vand- kvæði við göng til Eyja SÆNSKUR dómstóll hefur hnekkt lögbanni sem ferðaskrifstofan Atl- antöar fékk á risasamn- ing ferðarskrifstofunnar Vulkan Travel Group í eigu Benedikts Kristins- sonar, við sveitarfélagið Vara um að flytja hingað til lands 1.400 starfs- menn. Frá þessu greinir á vef sænska ríkisút- varpsins. Um er að ræða starfsmenntaferð sem ferðaskrifstofur keppast um að bjóða í og telur Atlantöar sig hafa boðið lægra en Vulkan og þar með að Vara hafi valið vitlaust. Atlantöar hefur möguleika á að skjóta niðurstöðu dómstólsins til æðra dómstigs. Lögbanni á samn- ing Vulk- an hnekkt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.