Morgunblaðið - 23.05.2005, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 27
DAGBÓK
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Til mín hefur leitað traustur og fjársterkur
byggingaverktaki sem óskar eftir að kaupa
lóðir fyrir íbúðar eða atvinnuhúsnæði. Eignir
sem þarfnast niðurrifs koma einnig til greina.
Staðgreiðsla í boði, Áhugasamir vinsamlega
hafið samband og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
KYNNING HVAÐ ER HUGLJÓMUN SJÁLFSÞEKKINGAR?
Verið velkomin á fyrirlestur og umræður um hvernig Hugljómun sjálfsþekkingar gengur fyrir
sig og hvaða gildi milliliðalaus meðvituð upplifun hefur.
Kynningin fer fram í sal Maður Lifandi í Borgartúni 24
mánudaginn 23. maí kl. 17.30.
Allir velkomnir - Ókeypis aðgangur.
HUGLJÓMUN SJÁLFSÞEKKINGAR 26.-29. MAÍ
(ENLIGHTENMENT INTENSIVE)
í Bláfjöllum með Osha Reader, ND og PhD og Guðfinnu St. Svavarsdóttur.
3ja daga áhrifamikið ferli umbreytinga og vöknunar.
Guðfinna St.
Svavarsdóttir
Osha Reader,
ND & PhD
Kíktu á heimasíðu Oshu, www.highsierra.org
Upplýsingar og skráning í símum 562 0037 og 869 9293.
Lokadagur til að ganga frá skráningu er 24. maí.
Vélhjólaslys eru nokkuð tíð og margireiga um sárt að binda vegna þeirra.Eva Dögg Þórsdóttir, fjölmiðlafulltrúií stjórn bifhjólasamtaka Sniglanna,
slasaðist fyrir tæpri viku og er nú á Landspít-
alanum í Fossvogi.
„Ég var ásamt eiginmanni mínum að aka
Ánanaustin í átt að JL-húsinu og á leið út frá
hringtorginu þar þegar skutbíll kom og ók á
okkur.
Við köstuðumst bæði af hjólinu og mér
fannst mjög fljótt komið fólk á vettvang og bú-
ið að hringja á sjúkrabíl. Hann kom um hæl og
áður en við var litið vorum við komin undir
læknishendur,“ segir Eva Dögg um slysið og
aðdraganda þess.
En hvernig fór með eiginmanninn?
„Hann viðbeinsbrotnaði og marðist á hné en
ég slasaðist meira, ég er fótbrotin um hné,
meidd í baki og marin,“ segir Eva Dögg.
En hvernig á að varast svona slys?
„Með því að taka ekki óþarfa áhættu, hægt
hefði verið að komast hjá þessu slysi hefði öku-
maður biðfreiðarinar verið vakandi við akst-
urinn og kunnað umferðarreglurnar. Við vor-
um í fullum rétti og uggðum ekki að okkur.“
Eru bifhjólaslys af þessu tagi algeng?
„Já, það eru yfirleitt ökumenn bifreiða sem
gleyma sér að því er ég best veit. Við bif-
hjólafólk höfum af þessum sökum verið að
reyna að koma á umferðarátaki til þess að
kynna hætturnar sem svona sofandaháttur or-
sakar. Sniglarnir eru hagsmunasamtök og við
þurfum á styrkjum að halda til þess að geta
haldið úti umferðaráróðri sem miðast að því að
varast slys.
Við höfum nýlega fengið 150 þúsund króna
styrk frá Opnum kerfum til þess að nota í um-
rætt umferðarátak og þurfum mun meira fé
eigi þetta átak að skila árangri.“
En hvernig er þessum málum háttað erlend-
is?
„Bifhjólaslys eru nokkuð algeng víða erlend-
is og stundum mun alvarlegri því þar er ekki
skylda að vera með hjálma við aksturinn. Það
eru reyndar engin tengsl á milli bifhjóla-
samtaka Sniglanna og erlendra bifhjóla-
samtaka.
Þess má geta að mikill munur er á klæða-
burði bifhjólafólks hér og erlendis. Ég er sjálf
dæmi um það hve miklu getur varðað að vera í
góðum öryggisfatnaði og með hjálm, hefði ég
ekki verið svona vel búin sem raun bar vitni
hefði ég slasast mun meira. Maðurinn minn var
líka í mjög góðum galla með afar góðan hjálm
og það bjargaði honum, hann er nú kominn
heim en ég verð nokkra daga í viðbót á sjúkra-
húsi áður en ég fer heim og ég á langt í land
með að stíga í brotna fótinn.“ Afmælishátíð bif-
hjólasamtaka Sniglanna verður á Sauðárkróki
16. til 18. júní – í tilefni af 100 ára afmæli bif-
hjólsins á Íslandi.
Vélhjól | Sniglana vantar fé til þarfs og aukins umferðarátaks
Öryggisfatnaður mikilvægur
Eva Dögg Þórsdóttir
á sæti í stjórn bif-
hjólastamtaka Snigl-
anna. Hún er 28 ára
gömul, fædd í Reykja-
vík, og starfar sem
heimavinnandi hús-
móðir. Hún lauk al-
mennri grunnskóla-
menntun og starfaði í
nokkur ár sem dag-
móðir. Hún er gift
Kristjáni Hafliðasyni sjómanni og eiga þau
tvö börn.
Ríkisstjórnin
HVERNIG stendur á því að stjórnin
í þessu annars indæla landi íss og
elda ásamt kynngimögnuðum krafti
hafs og lands gerir ekki neitt í mál-
um öryrkja? Við lifum ekki af fegurð
landsins. Það er nú aldeilis kominn
tími á að hækka örorkubæturnar um
þessar 40.000 krónur. Það ætti nú
ekki að vera svo slæmt og það þyrfti
einnig að verðtryggja bæturnar, líkt
og útgjöldin. Því miður er allt of
miklu lofað og svikið í okkar nútíma
þjóðfélagi af sumum sem stjórna
landinu. Allt snýst um auð og völd og
þeir sem minnst mega sín gleymast í
amstri hversdagslífsins. Ég veit
ekki, en mér finnst eins og verið sé
að ýta okkur út í opinn dauðann. Oft
erum við svo svöng að garnirnar
gaula, þegar við leggjumst til svefns.
Og kvíðinn sem fylgir því að borga
reikningana er mikill. Maður á u.þ.b.
5.000 krónur eftir fyrir lyfjum og
mat, sem kallast Nupo létt, tvíbökur,
hrísmjólk, brauð og þetta allra nauð-
synlegasta; kjöt, fisk, bjúgu og pyls-
ur lætur maður sig dreyma um. Nú,
ellilífeyrisþegar berjast líka fyrir
sínu og ekki heyrist mér að lág-
launafólkið sé sérlega ánægt með
sitt kaup. Allt hækkar frá einum
mánuði til hins næsta og á meðan
rýrna peningarnir hjá Trygg-
ingastofnun. Guði sé lof að til eru
Bónus og Krónan ásamt fleiri lág-
vöruverðsverslunum, en þrátt fyrir
það nær maður ekki endum saman.
Ég er ekki hissa þegar maður heyrir
um þessi sjálfsvíg.
Fólk getur ekki lifað svona öm-
urlega endalaust. Nei og aftur nei.
Hvers vegna hækkar tala ungra ör-
yrkja? Það er meiri harka og kröfur
gerðar á vinnustöðum og álag, sem
líkaminn og sálin getur ekki enda-
laus búið við. Ég er 60 ára núna
næsta vetur og man svo vel hvernig
við höfðum það áður fyrr. Níu ára
byrjaði ég að vinna og hef alltaf unn-
ið erfiðisvinnu. 31 árs varð ég 65%
öryrki og vann alltaf hálfan daginn
og stundum tvöfalda vinnu á meðan
heilsan leyfði. Síðustu níu ár hef ég
verið á 75% örorku.
Monika Pálsdóttir,
Torfufelli 27, Rvík.
Takk, Smári skóari
FÖSTUDAGINN 13. maí síðastlið-
inn fór ég til Smára skóara í Smára-
lind en ég þurfti að láta lita skó. Tók
ég fram að mér lægi ekki á að fá
skóna og mundi ég vitja þeirra í vik-
unni á eftir.
Svo gerðist það á laugardeginum
um hádegi að ég hafði samband við
Smára skóara til að athuga hvort
einhver möguleiki væri á að ég fengi
skóna þann daginn en aðstæður
höfðu breyst hjá mér og því vildi ég
freista þess að fá skóna.
Þá kom í ljós sú afbragðsþjónusta
sem þar er boðið upp á, en í stuttu
máli hringdi Smári skóari í mig rétt
uppúr 7 um kvöldið og sagði að ég
gæti sótt skóna. Smári lokaði kl. 5 og
vann svo við skóna mína til 7 og klár-
aði málið – og tók ekki krónu auka-
lega.
Þetta verður að teljast þjónusta til
fyrirmyndar og sendi ég Smára og
hans fólki bestu þakkir fyrir þetta.
Það er ljóst að ef ég eða mín fjöl-
skylda þurfum á skósmið að halda í
framtíðinni þá kemur bara eitt til
greina og það er Smári skóari.
Skóvinur.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
LEIKFÉLAG Seyðisfjarðar hefur
sinnt börnum byggðarlagsins vel
gegnum árin, bæði með því að
sýna fyrir þau og með því að leyfa
þeim að taka þátt í uppfærslum.
Guðjón Sigvaldason hefur áður
unnið með Seyðfirðingum og hefur
auk þess mikla reynslu af mann-
mörgum sýningum þar sem börn
og unglingar leika og syngja. Guð-
jóni ferst vel úr hendi nú sem oft
áður að stýra þeim fimmtán börn-
um og tíu fullorðnu sem flytja
söngleikinn Í Tívolí ásamt fjög-
urra manna hljómsveit.
Söngleikurinn er saminn utan
um hin skemmtilegu lög af Tívolí-
plötu Stuðmanna og á uppruna
sinn á Akranesi þar sem Guðjón
leikstýrði honum einnig. Búnar
eru til litlar sögur af fólki sem
rekur Tívolíið í Reykjavík um
1960 og um fólkið sem sækir stað-
inn. Þetta er ljómandi vel gert þó
að á köflum hefði mátt stytta sen-
ur án þess að söguþráðinn og per-
sónusköpunina sakaði. Að-
alpersónan er drengurinn
Frímann, sonur Tívolístjórans, en
hann tengir saman persónur og
atburði með forvitni sinni og
áhuga. Það er skemmtilegt hvern-
ig Frímann litli lætur sig dreyma
um fullorðinslífið og er þar leikinn
fullorðinn af öðrum leikara. Það
kom einnig mjög vel út að láta þá
vera saman á sviðinu. Einnig lék
söngtríóið Dúfurnar stórt hlutverk
í persónusköpun og söng og
tengdi saman verkið.
Tónlistin var vel flutt og útsett
og margir flinkir söngvarar á
Seyðisfirði. Allar staðsetningar í
flóknum senum þar sem margar
sögur fóru fram í einu voru vel
gerðar og margar hópsenur afar
skemmtilegar. Flottust og best út-
færð var bíósenan sem var eins og
lítið dansleikhúsverk í sjálfu sér
en senan í draugahúsinu var líka
afar góð sem og hópsenan þegar
karlarnir syngja saman. Lýsingin
var skemmtileg og vel unnin með
marglitu stóru ljósaperunum á
sviði og í sal og flott að hafa
hljómsveitina fyrir miðju sviðinu.
Búningarnir voru mjög vel unnir
og trúir tímanum sem verkið ger-
ist á og hárgreiðslan með túper-
ingum listaverk út af fyrir sig.
Þó að nokkurs stirðleika gætti
stöku sinnum og sumar senur
væru greinilega seigari en þær
áttu að vera var heildarsvipur
sýningarinnar það sem stóð upp
úr ásamt þeim gleðibrag sem ríkti
á sviðinu. Það er aldrei fullþakkað
þegar leikfélög, skólar og tónlist-
arskólar eða tónlistarkennarar
taka sig saman í litlum plássum og
setja upp glæsilegar sýningar þar
sem kynslóðirnar vinna saman að
því að bæta mannlífið.
Fimmtíu manns vinna að sýn-
ingunni en það er stórt hlutfall í
sjö hundruð manna bæ.
Kynslóðir
vinna saman
LEIKLIST
Leikfélag Seyðisfjarðar
Höfundar: Guðjón Sigvaldason, Stein-
grímur Guðjónsson, Skagaleikhópurinn
og NFFA. Tónlist: Stuðmenn. Leikstjóri:
Guðjón Sigvaldason. Tónlistarstjóri:
Maria Gaskell.
Sýning í Herðubreið, 13. maí 2005
Í Tívolí
Hrund Ólafsdóttir
36. Skáldaspírukvöldið og um leið
það síðasta áður en Skáldaspíran
tekur sumarleyfi er tileinkað lithá-
ensku skáldkonunni, Birute Mar.
Dagskráin hefst annað kvöld kl.
20.00 í Bókabúð Iðu, Lækjargötu 2a.
Mar les upp texta sinn á ensku en
einnig verður lesið úr íslenskri þýð-
ingu á ljóðum hennar eftir Völu
Bjarnadóttur.
„Birute Mar er 36 ára að aldri en
hefur getið sér alþjóðlega við-
urkenningu fyrir bæði ljóð sín og
flutning á þeim og túlkun og leik-
uppfærslu m.a verkum Becketts.
Hún hefur hlotið margvísleg verð-
laun, m.a. alþjóðleg verðlaun: Int-
ernational Jury Award, fyrir túlkun
sína á Beckett og mörg önnur verð-
laun,“ segir Benedikt S. Lafleur,
umsjónarmaður dagskrárinnar.
Birute Mar er frá Vilnius í Lithá-
en og fékk sérstakan styrk til að lesa
upp á Skáldaspírukvöldi. „Þetta er
auðvitað mikill heiður fyrir okkur,
en um leið fengur fyrir alla unn-
endur ljóðlistar, þar sem Birute les
einkar vel upp. Til marks um það
hefur hún hlotið verðlaun fyrri ljóða-
upplestur sinn,“ segir Benedikt.
Dagskrá um Birute Mar