Morgunblaðið - 23.05.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.05.2005, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Farðu sérstaklega varlega í um- ferðinni í dag, hvort sem þú ert akandi, gangandi, hjólandi eða skokkandi. Í dag er fullt tungl sem eykur á slysahættu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið er ráðvillt í peningamálum í dag. Það er ekki visst um hvað það á að láta mikið af hendi og hversu miklu það á að halda eftir. Haltu að þér höndum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Fullt tungl er beint á móti tvíbura- merkinu. Það þýðir að tvíburinn þarf að vera einstaklega þol- inmóður í samskiptum við aðra. Það er ekkert mál. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Tunglið stýrir krabbanum og því fer hann sjaldnast varhluta af fullu tungli. Huggaðu þig við það að vandamál þín virðast minni eftir að tunglið nær hámarki. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið veit ekki fyllilega í hvorn fótinn það á að stíga í dag. Það langar til þess að lyfta sér upp, en áttar sig á sama tíma á skyldum sínum við aðra. Er ekki hægt að fara bil beggja? Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan er föst í hinni klassísku togstreitu milli heimilis og starfs- vettvangs í dag. Að þessu sinni virðist sem starfið verði ofan á. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin verður hugsanlega eilítið ýt- in á fullu tungli. Fólk þarf ekki að vera sammála þér. Þú þarft ekki að vera sammála öðrum. Slakaðu á. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sporðdrekinn er ekki alveg viss um hversu mikinn rausnarskap hann á að sýna einhverjum og hversu langt hann á að ganga í því að gæta hagsmuna sinna. Ekki sniðganga þarfir annarra. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Samskipti við maka og nána vini eru dálítið tvísýn í dag. Það er vegna þess að fullt tungl er í dag og þar að auki í bogmanninum. Vertu háttvís og brosmildur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Tafir og hindranir gera vart við sig í vinnu steingeitarinnar, orsakanna er að leita hjá hinu opinbera eða stórum stofnunum. Haltu bara áfram að strita. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vinur finnur til afbrýðisemi vegna velgengni þinnar í ástarmálum eða getu til þess að skemmta þér og njóta lífsins. Slakaðu á. Þú getur ekki gert öllum til hæfis. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Kröfurnar í vinnunni standa í vegi fyrir því að þú getir sinnt heim- ilinu sem skyldi. Reyndu að leysa verkefnin heima fyrir og vertu þol- inmóður við fjölskylduna. Stjörnuspá Frances Drake Tvíburar Afmælisbarn dagsins: Þú ert aðlaðandi og heillandi manneskja og átt gott með að miðla hugmyndum þínum og tilfinningum til annarra. Margir sem fæddir eru þennan dag gegna þýðingarmiklu hlutverki í lífi barna. Hugsun þín er vísindaleg og þú ert líklega handlagin(n). Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 íþróttagreinar, 4 aga, 7 skóflar, 8 sáum, 9 kvendýr, 11 sterk, 13 lítill, 14 logið, 15 skeiðahníf, 17 huguð, 20 brodd, 22 rýr, 23 mannlaus, 24 dans, 25 stó. Lóðrétt | 1 gervitann- garður, 2 náum, 3 svert- ingja, 4 þýðanda, 5 þræt- um, 6 sár, 10 afturhald, 12 dá, 13 eldstæði, 15 úr- skurður, 16 förgum, 18 kaðall, 19 varkár, 20 grenja, 21 rudda. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 rytjulegt, 8 lýkur, 9 tafla, 10 nær, 11 skans, 13 augun, 15 hossa, 18 ágætt, 21 not, 22 stöng, 23 teigs, 24 rummungur. Lóðrétt | 2 yrkja, 3 járns, 4 lötra, 5 göfug, 6 glás, 7 garn, 12 nes, 14 ugg, 15 hýsi, 16 skötu, 17 angum, 18 áttan, 19 æð- inu, 20 Tass. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Tónabúðin Rauðarárstíg | Rokkblúsdúett- inn Hot Damn!, sem skipaður er þeim Smára Tarfi og Jenna úr Brain Police, leikur kl. 16.00. Myndlist Café Karólína | Hugleikur Dagsson – „I see a dark sail“. Dagsbrún, undir Eyjafjöllum | Ragnar Kjartansson. Eden, Hveragerði | Karl Theódór Sæ- mundsson. Elliheimilið Grund | Jeremy Deller. Gallerí Kambur | Þorsteinn Eggertsson. Gallerí Sævars Karls | Jón Sæmundur er með myndlistarsýningu. Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn- ara II er opin virka daga frá kl. 11–17 og um helgar frá kl. 13–17. Sjá www.gerdu- berg.is. Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal. Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarcevic, Elke Krystufek, On Kawara. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | Auð- ur Vésteinsdóttir. Listasafn Íslands | Dieter Roth. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Diet- er Roth, Peter Fischli, David Weiss, Har- aldur Jónsson, Urs Fischer. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Útskriftarsýning nemenda við Listahá- skóla Íslands. Mokka-Kaffi | Multimania – Helgi Sig. Sjá: www.hugverka.is. Norræna húsið | Norski málarinn Örnulf Opdahl. Skriðuklaustur | Sýning 8 listamanna af Snæfelli, þ.á m. eru verk eftir Kjarval, Finn Jónsson og Guðmund frá Miðdal. Einnig er sýning á svarthvítum ljós- myndum af fólki eftir Sigurð Blöndal í gallerí Klaustri. Sýningarnar eru opnar kl. 12–17 alla daga. Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finn- bogi Pétursson. Vestmannaeyjar | Micol Assael. Við Fjöruborðið | Inga Hlöðvers. Ný og eldri verk. Listasýning Bæjarbókasafn Ölfuss | Rannveig Tryggvadóttir, leirlistakona sýnir verk sín í galleríinu Undir stiganum, Ráðhúsi Þor- lákshafnar í maí. Iða | Útskriftarnemar í ljósmyndun við Iðnskóla Reykjavíkur sýna lokaverkefni sín í Iðu, Lækjargötu. Listhús Ófeigs | Halla Ásgeirsdóttir opn- ar sýningu á raku-brenndum leirverkum 7. maí kl. 14, í Listhúsi Ófeigs, Skóla- vörðustíg 5. Söfn Þjóðmenningarhúsið | Fyrirheitna landið er heiti sýningar sem segir frá ferðum fyrstu Vestur-Íslendinganna; mormón- anna sem settust að í Utah. Fundir Indlandsvinafélagið | Aðalfundurinn verð- ur haldinn í Bólstaðarhlíð 44, 1. hæð mánudaginn 23. maí kl. 20. Venjuleg að- alfundarstörf. Amin sýnir myndir frá ný- legri Indlandsferð. Félagsstarf Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13, kaffitár með ívafi kl. 13.30, línudanskennsla byrjendur kl. 18, samkvæmisdans framhald kl. 19, byrjendur kl. 20. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, kl. 10.og 11. Garðaberg er opið frá kl. 12.30 til 16.30. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9– 16.30 vinnustofur opnar, kl.10.30 sund og leikfimiæfingar í Breiðholts- laug, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 14.30 kóræfing. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu- stofa hjá Sigrúnu kl. 9–16 glermálun o.fl., jóga kl. 9–11, frjáls spila- mennska kl. 13–16, böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 | Vorsýningin er opin út vikuna. Notendaráðsfundur kl. 10. Banki kl. 10. Félagsvist kl. 13.30. Hárgreiðslustofa s. 568-3132. Fótaaðgerðarstofa s. 897-9801. Upplýsingar í síma 568-3132. Norðurbrún 1, | Handverksýning, sýning á munum sem unnir hafa verið í félagsstarfinu í vetur verður sunnudaginn 22. og mánudaginn 23. maí kl. 14–17 komið með gesti skoðið fallegt handverk og kynnið ykkur þá þjónustu sem í boði er, allir velkomnir. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9–10 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl 11.45–12.45 hádeg- isverður, kl. 13–16 kóræfing, kl 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Í dag er handavinnusýning. Sýndir eru munir gerðir af notendum. Þessir munir hafa verið unnir í vinnustofunum. S.s. bútasaumur, bókband, gler- bræðsla, glerskurður , myndlist, leir- mótun, smíðar og almenn handa- vinna. Kaffi, söngur og harmónikkuleikur. Kirkjustarf KFUM og KFUK | Samkoma í húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28 í kvöld kl. 20. Ræðumaður er Leon- ard Sweet frá Bandaríkjunum. Mikil lofgörð. Laugarneskirkja | Kl. 18:00 Opinn 12 sporafundur í safnaðarheimilinu. Vinir í bata. Skortur á innkomum. Norður ♠ÁDG103 ♥42 S/Allir ♦864 ♣G106 Vestur Austur ♠K952 ♠874 ♥KG ♥85 ♦ÁKD7 ♦10953 ♣954 ♣K872 Suður ♠6 ♥ÁD109763 ♦G2 ♣ÁD3 Suður spilar fjögur hjörtu eftir þessar sagnir: Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 hjarta Dobl 1 spaði Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Allir pass Vestur tekur tvo slagi á ÁK í tígli og spilar svo drottningunni, sem suð- ur trompar. Hvernig er nú best að spila? Þetta er erfitt. Blindur á aðeins eina innkomu (á spaðaás) og það er opin spurning hvort nota eigi hana til að svína í trompi eða laufi. Opn- unardobl vesturs bendir til að hann sé með laufkóng frekar en hjarta- kóng, en það vantar hjartagosann líka, svo hjartað þarf að vera 2-2 til að það heppnist að svína drottning- unni. Sennilega er því betra að gera út á laufsvíninguna. Segjum að sagnhafi ákveði það og leggi niður hjartaás. Ef hann fær gos- ann í slaginn, mun hann spila hjarta áfram og svína svo í laufinu með ágætum árangri. En segjum að vestur láti sér detta í hug að henda hjartakóngum undir ás- inn! Hvaða áhrif hefur það á sagn- hafa? Jú, hann mun nota innkomuna á spaðaás til að svína hjartatíu, en vestur á þann slag og síðan fær vörn- in annan á laufkóng. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 Re7 7. Dg4 Da5 8. Bd2 0–0 9. Bd3 Rbc6 10. Rf3 f5 11. exf6 Hxf6 12. Dh5 Rf5 13. g4 c4 14. gxf5 cxd3 15. Hg1 Bd7 16. Dg5 Hf7 17. f6 Dd8 18. Re5 Rxe5 19. dxe5 dxc2 20. Be3 d4 21. Bxd4 Bc6 22. De3 Dd5 23. Kd2 Ba4 24. Dh6 Dd7 25. Hg4 Kh8 26. fxg7+ Kg8 27. Hag1 Hxf2+ 28. Kc1 De7 Staðan kom upp á pólska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Poznan. Piotr Bobras (2.501) hafði hvítt gegn Marcin Szelag (2.497). 29. Bc5!! Glæsilegur leikur sem hefur það að markmiði að verja a3 peð hvíts og hins vegar að lokka svörtu drottn- inguna frá því að valda h4-reitinn. 29. … Dd8 svartur yrði mát eins og í skákinni ef hann hefði tekið biskupinn. 30. Dxh7+! Kxh7 31. g8=D+ Dxg8 32. Hh4#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Fréttir í tölvupósti KÓR Hjallakirkju verður með sína árlegu vortónleika í Hjallakirkju annað kvöld kl. 20.00. Í kórnum eru um 35 félagar og eru þetta fjórðu tónleikar kórsins á þessu starfsári. Kórinn er nýkominn úr tónleikaferð til Noregs og ber efnisskráin nokkurn keim af því. Með kórnum syngja einsöng þau Kristín R. Sigurðardóttir, sópran, Erla Björg Kára- dóttir, sópran, Þóra I. Sigurjónsdóttir, sópran og Árni Jón Eggertsson, tenór. Öll eru þau félagar í kórnum. Erla Björg stundar nú framhaldsnám í Salzburg og dvelur stutt heima að þessu sinni. Fyrri hluti tónleikanna er með veraldlegri efnisskrá sem lýkur með því að karla- kvartett syngur kunn lög. Síðari hlutinn samanstendur af kirkjutónlist. Mikið af efnis- skránni er eftir íslensk núlifandi tónskáld svo sem, Jón Ásgeirsson, Jón Þórarinsson, Jórunni Viðar og Þorkel Sigurbjörnsson, einnig eftir Árna Thorsteinsson, Gylfa Þ. Gísla- son og Jón Leifs. Þar á meðal er Te Deum eftir Jón Þórarinsson. Af erlendum tón- skáldum má t.d. nefna Beethoven, Dvorák, Gounod, Grieg og Mozart. Lenka Máteová leikur á orgel og píanó. Söngstjóri er Jón Ólafur Sigurðsson organisti Hjallakirkju. Morgunblaðið/Sverrir Kristín R. Sigurðardóttir sópran og Jón Ólafur Sigurðsson söngstjóri. Vortónleikar Kórs Hjallakirkju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.