Morgunblaðið - 23.05.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 29
Miðasalan er opin: frá kl 10:00 alla virka daga. Netfang: midasala@borgarleikhus.is
Miðasala í síma 568 8000 -
og á netinu: www.borgarleikhus.is KODDAMAÐURINN
MIÐVIKUDAGS- OG FIMMTUDAGSKVÖLD!I I - I
Stóra sviðið kl. 20:00
DÍNAMÍT – Birgir Sigurðsson
8. sýn. fim. 26/5 nokkur sæti laus, 9. sýn. fös. 3/6, 10. sýn. lau. 11/6, 11. sýn. sun. 12/6.
ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason/leikgerð Baltasar Kormáku
Fös. 27/5 nokkur sæti laus, lau. 28/5, lau. 4/6 nokkur sæti laus, fim. 9/6, fös. 10/6.
Aðeins örfáar sýningar vegna fjölda áskorana.
KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR – H.C Andersen
Lau. 28/5 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 5/6 kl. 14:00. Síðustu sýningar í vor.
MÝRARLJÓS – Marina Carr
Sun. 29/5. Allra síðasta sýning
Litla sviðið kl. 20:00
KODDAMAÐURINN – Martin McDonagh
Mið. 25/5 nokkur sæti laus, fim. 26/5 örfá sæti laus. Síðustu sýningar í vor.
Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin.
Smíðaverkstæðið kl. 20:00
RAMBÓ 7 – Jón Atli Jónasson
Fös. 27/5, lau. 28/5, fös. 3/6.
Valaskjálf Egilsstöðum:
EDITH PIAF Á AUSTURLANDI – söngdagskrá
Mið. 1/6 kl. 20:00, fim. 2/6 kl. 20:00. Miðasala á Bókasafni Héraðsbúa.
Opið alla virka daga frá kl. 14-19. Sími 471 1546
EKKI er oft sem maður fær að heyra
steina syngja. Tækifæri til þess gafst
í Skálholtskirkju á laugardaginn var,
en þá spilaði japanski slagverkssnill-
ingurinn Stomu Yamash’ta á steina-
hörpu. Það var í tónsmíð Ragnhildar
Gísladóttur, Bergmáli, sem er við ljóð
eftir Sjón.
Mikil eftirvænting ríkti rétt fyrir
tónleikana, a.m.k. var grafarþögn
meðal áheyrenda og þegar Yamash’ta
gekk inn í kirkjuna, hneigði sig fyrir
hnullungunum og hreyfði hendur sín-
ar á einkennilegan hátt yfir bjöllun-
um fyrir aftan þá, fannst manni eins
og framandi trúarathöfn væri að fara
að hefjast.
Von bráðar heyrðust djúpir tónar
úr steinahörpunni, greinilega magn-
aðir upp með einhverskonar hljóm-
botni og einnig með rafmagni. Það
var svo seiðandi að auðvelt var að
ímynda sér að jörðin sjálf væri að
syngja. Tónmálið var algerlega
frjálst; engar tóntegundir voru
merkjanlegar og var ógerningur að
átta sig á hvað myndi gerast næst. En
er Yamash’ta sneri sér að bjöllunum
fyrir aftan sig og hefðbundnir þrí-
hljómar tóku að berast um kirkjuna
fór mann að gruna að Ragnhildur,
sem er sennilega þekktust fyrir starf
sitt með Stuðmönnum, væri kannski
ekki svo langt frá heimaslóðunum. Og
þegar hvítklæddur barnakór gekk inn
í kirkjuna og söng tiltölulega einfalda,
dægurkennda laglínu, þá styrktist sá
grunur ennþá meir.
Já, þrátt fyrir óvenjulega umgjörð
þá á Bergmál rætur sínar að rekja til
dægurtónlistargeirans. Úrvinnsla
tónefnisins er stundum dálítið tak-
mörkuð; myrkrið í ljóði Sjóns, þar
sem m.a. er fjallað er um misnotkun
og ofbeldi á börnum, verður t.d. aldrei
eins hryllilegt og það gæti verið.
Engu að síður er tónlistin ákaflega
falleg þrátt fyrir annmarkana; margt,
eins og vögguvísan og englasöngur-
inn í upphafi, er verulega áhrifaríkt
og söngur steinahörpunnar á milli
mismunandi þátta er einstaklega
heillandi. Uppbygging verksins er
líka prýðileg; líflegur, en þó ábúð-
arfullur slagverksleikur Yamash’ta
og Sigtryggs Baldurssonar, alvöru-
gefinn orgelleikur Hilmars Arnar
Agnarssonar og einlægur söngurinn
passa ágætlega saman og skapa
sterka heildarmynd. Rödd Ragnhild-
ar við hliðina á tærum barnakórnum
virkar auk þess „lifuð“ og er athygl-
isverð andstæða við tæran sönginn.
Hljóðfæraleikurinn var frábær á
tónleikunum, bæði agaður og kraft-
mikill; sömuleiðis var söngur barna-
kórsins oftast pottþéttur. Og ljóðið
eftir Sjón, um hamingusöm börn og
um hættuna sem vofir yfir þeim, var í
senn hrífandi og átakanlegt. Eins og
fram kemur í tónleikaskránni þá er
markmið verksins að vekja athygli á
því að misnotkun á börnum á sér stað
út um allan heim; ég get ekki betur
séð en að það takist. Greinilegt er að
Ragnhildur er vaxandi tónskáld – ég
hlakka til að heyra meira eftir hana.
Börn og steinar sungu
Ljósmynd/Lára Martin
Stomu Yamash’ta, Sjón, Ragnhildur Gísladóttir og aðrir flytjendur á tröppum Skálholtskirkju eftir tónleikana.
Jónas Sen
TÓNLIST
Listahátíð í Reykjavík
Skálholtskirkja
Frumflutningur á Bergmáli eftir Ragnhildi
Gísladóttur við texta eftir Sjón. Flytj-
endur: Stomu Yamash’ta, Sigtryggur
Baldursson, Hilmar Örn Agnarsson,
Ragnhildur Gísladóttir og kór sem sam-
anstóð af Barna- og kammerkór Bisk-
upstungna og Skólakór Kársness undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Laug-
ardagur 21. maí.
Kór og hljóðfæraleikur
Í BORGARLEIKHÚSINU voru í
vikunni leiklesin fjögur verk jafn-
margra þýskra leikskálda. Hafist var
handa við þessa kynningu á nýjum
erlendum leikverkum fyrir ári og
urðu þá fyrir valinu verk franskra og
belgískra samtímahöfunda. Fram-
takið er hugsað sem menningar-
samskipti og hafa íslensk leikskáld
notið góðs af því.
Ástæðan fyrir því að fjallað er um
þessi tvö verk sérstaklega er þáttur
Egils Heiðars Antons Pálssonar en
hann leikstýrði flutningi þeirra. Hlut-
ur hans, sérstaklega hvað fyrra verk-
ið áhrærir, var svo viðamikill að í
raun er hægt að telja að um sviðsetn-
ingu hafi verið að ræða. Íslenskt leik-
húsáhugafólk man e.t.v.
eftir sýningum hans á
Diskópakki og Hr.
Manni i Vesturporti og
Skýfalli í Nemendaleik-
húsinu en hann hefur á
undanförnum árum
gert garðinn frægan á
hinum Norðurlönd-
unum og vakið tölu-
verða athygli sem leik-
stjóri.
Falk Richter hefur
orðið fyrir miklum
áhrifum stefnu í þýsku
nútímaleikhúsi sem
kennir að kominn sé
tími til að losa sig undan
viðjum þeirrar kvaðar
að skapa karakter í leiktexta og á
sviði. Í staðinn eykst vægi leiktextans
og merkingar hans og leikstjóranum
gefst tækifæri til að miðla honum
beint til áhorfenda án milligöngu
tilbúinna leikpersóna. Slík verk krefj-
ast nýrrar nálgunaraðferðar frá
hendi leikarans og um leið setja per-
sónueiginleikar leikarans sjálfs meiri
svip á textann. Í umræðum á vegum
Leikskáldafélags Íslands á þriðju-
daginn kom fram að í verki Richters,
Electronic City, sem er hluti af sama
þríleik og Undir ís, gangi höfund-
urinn enn lengra í þessa átt en Egill
Heiðar Anton Pálsson hefur þegar
tekist á við það verk í sýningu sem
hann setti upp í Hels-
inki. Niemand (Eng-
inn) sem segir frá í
Undir ís var leikinn af
Þór Tulinius sem fór
með meginhluta text-
ans sem fluttur var hér,
enda þurfti tímatak-
markana vegna að
stytta aðra hluta verks-
ins. Í flutningnum
skiptist á frásögn hans
og eintöl tveggja skrif-
stofumanna sem í með-
förum leikstjórans
blönduðu geði við
áhorfendur og leikur
drengs að kubbum
fremst á sviðinu.
Frásögnin og tengslaleysið milli
persónanna var í leikslok brotið upp á
áhrifamikinn hátt með því að Þór Tul-
inius tók sér í hönd byssu og skaut
ítrekað af henni á meðan hann lýsti
fjöldamorði sem Niemand framdi.
Þór beindi loks byssunni að áhorf-
endum áður en hann afhenti einum
þeirra hana. Þetta var áhrifamikil
stund, eftir að hafa hlustað á atburð-
um lýst um langa hríð, að fá næstum
því að taka þátt í þeim. Með þessu
tókst leikstjóra að brjóta flutninginn
upp á mjög eftirminnilegan hátt.
Brjósklos eftir Ingrid Lausund
gerist á skrifstofu og tengist fyrr-
greindum vangaveltum að því leyti að
persónurnar lýsa hér gjarnan tilfinn-
ingum sínum og athöfnum í bland við
að leikararnir leika þær. Þetta féll vel
að leiklestursforminu þó að ekki sé
hægt að segja að leikurunum hafi
verið uppálagt að sitja lengi kyrrir í
sætum sínum. Þarna fékk húmorinn í
textanum að njóta sín og hin þröngu
tímatakmörk voru túlkuð með allt að
því manískum leikmáta: Leikararnir
lástu handritið á handahlaupum og
þeyttu lesnum síðum frá sér, það fór
ekki á milli mála þegar hlaupið var yf-
ir kafla þegar síðurnar lentu sem
skæðadrífa á sviðinu. Áhorfendum og
leikurum var greinilega skemmt en
höfundurinn virtist aftur á móti eilítið
miður sín er hún tók á móti uppklappi
í endann.
Bæði voru verkin áhugaverð en á
mjög ólíkan máta. Bæði snerta veru-
leikann í vinnunni þar sem flest okkar
eyða stórum hluta vökustunda okkar
en sem afar sjaldan er fjallað um á
leiksviði. Tónninn í þessum tveimur
verkum var í algjörri andstöðu hvor
við annan enda tók leikstjórinn á
þeim á gjörólíkan hátt. Það er athygl-
isvert hve mikil umhugsun, og kraft-
ur voru lögð í þennan flutning og hve
vel leikararnir brugðust við áskorun
leikstjórans. Það er mikils að vænta
af þeim sem búa að slíkri hug-
myndaauðgi, atorku og vinnugleði.
LEIKLIST
Leikfélag Reykjavíkur
í Borgarleikhúsinu
Undir ís: Höfundur: Falk Richter. Þýðandi:
Hafliði Arngrímsson. Leikstjóri: Egill
Heiðar Anton Pálsson. Leikendur: Atli
Þór Albertsson, Halldór Gylfason, Orri
Huginn Ágústsson, Halldór Gylfason og
Þór Tulinius. Þriðjudagur 17. maí.
Brjósklos, leikrit fyrir fólk með stoðkerf-
isvanda: Höfundur: Ingrid Lausund. Þýð-
andi: Jórunn Sigurðardóttir. Leikstjóri:
Egill Heiðar Anton Pálsson. Leikendur:
Bjarni Snæbjörnsson, Björn Ingi Hilm-
arsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Hall-
grímur Ólafsson og Sara Dögg Ásgeirs-
dóttir. Miðvikudagur 18. maí.
Autobahn
Sveinn Haraldsson
Egill Heiðar Anton
Pálsson
Hraðbraut möguleikanna
DAGURINN 21. maí markar viss
tímamót fyrir tónlistarmenn og tón-
listarfáhugafólk á Akureyri og jafnvel
í landinu. Tilkoma nýs flygils í Ketil-
húsið er að mínu mati virði margra
verðlauna í Eurovision. Ég vonast til
að vera ekki einn um þá skoðun. Þetta
sögulega Ketilhús getur nú fyrst farið
að gegna hlutverki fjöllistahúss í þágu
Músu, tónlistargyðjunnar, og að
þjóna flutningi þeirra aragrúa tón-
verka frá klassískum tíma til okkar
dags, þar sem píanóið gegnir svo
veigamiklu hlutverki.
Allt frá fyrsta tóni til hins síðasta í
Fís-dúr prelúdíu Chopin sannfærði
Daníel mín eyru um að þarna er um
úrvals hljóðfæri að ræða.
Bjartur, ljóðrænn og tær tónn með
mjúkum og kraftmiklum bassa, þar
sem gott samræmi er innbyrðis í tón-
list, jafnt í hæð sem dýpt.
Eins og eðlilegt má kalla var píanó-
leikarinn í aðalhlutverki og það fór
Daníel einkar vel úr hendi. Hann hef-
ur einstakt næmi á mismunandi tón-
listarhætti til að bera og hvort sem
hann leikur píanóstykki eftir Anton
Webern eða píanóútskrift af hljóm-
sveitarhluta í óperum Mozarts, þá eru
það tónverkin og höfundar, sem alltaf
skipa fyrsta sæti og Daníel freistast
aldrei til að beita sinni frábæru tækni
til að varpa ljósi á sig umfram það
sem verkið krefst hverju sinni.
Hann flutti einnig góðar skýringar
á vali tónverka, en það val miðaðist
við tímann frá því píanóið var fullmót-
að og sýndi sem mesta breidd í notk-
un þess jafnt í einleik sem samleik.
Hann hvatti fólk til að sýna nýrri tón-
list það umburðarlyndi að hlusta á
hana og vísaði til þess að með hlustun
einni gæti fólk skorið úr því hvað verk
eigi að „lifa“ og hver ekki, því góð og
slæm verk hafi verið samin á öllum
tímum. Útskýringar hans á píanó-
verkum Sveins Lúðvíks, Webern og
Schostakovich hefur ásamt innsæi í
verkin og miklu næmi aukið á áhrifa-
mátt túlkunar hans.
Sigríður Aðalsteinsdóttir hefur fal-
lega og þjála altrödd. Hún leggur
mikla rækt við túlkun texta og góða
framsögn. Rödd hennar nýtur sín
best í mjúkum söng á lág- og miðsviði,
en nær ekki alltaf nægri „slökun“ í
hærri raddlegu. Túlkun hennar á
Betlikerlingu Sigvalda var einstak-
lega grípandi og í túlkun sinni á aríu
Sextusar úr óperu Mozarts, Clem-
enzo di Tito naut hún sín svo um mun-
aði, vel studd af Daníel.
Ülla sellóleikari er eins og hin tvö
kennarar við Tónlistarskólann á Ak-
ureyri. Hún valdi til flutnings einhver
tvö vinsælustu verk sellóbókmennt-
anna, eða Sicilíuna og Elegíuna.
Vandinn við slíkt val er að maður ger-
ir ómeðvitað hærri kröfur. Mér fannst
í þeim íðilfagra Sikileyjarsöng skorti
safaríkari tón, sem ekki verður sagt
um Elegíuna, sem söng sig hjá mér
inn í merg og bein.
Mikið hlýtur að vera gaman fyrir
bæjaryfirvöld á Akureyri að hafa náð
þessum mikla áfanga í að búa Ketil-
húsið sem skyldi.
Ég trúi ekki öðru en þessi áfangi
geri Akureyri ennþá eftirsóknarverð-
ari fyrir tónleika með tónlist þar sem
þörf er góðs flygils.
Nú er Ketilhúsið búið sínum flygli
og enn stærri flygill bíður nýs tónlist-
arhúss.
TÓNLIST
Tónlistarfélag Akureyrar
í Ketilhúsinu á Akureyri
Tónlist eftir Anton Webern, Chopin,
Fauré, Mozart, Shostakovich, Sigfús
Einarsson, Sigvalda Kaldalóns og Svein
Lúðvík Björnsson. Flytjendur: Daníel
Þorsteinsson píanóleikari, Sigríður Aðal-
steinsdóttir söngkona og Ülle Hahndorf
sellóleikari.
Laugardaginn 21. apríl kl. 14:00.
Nýr Kawai flygill tekinn í notkun.
Söngvar og hljóðfæratónlist
Jón Hlöðver Áskelsson