Morgunblaðið - 05.08.2005, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GH
AN
05
08
00
1
Fjarðargata 13-15 Hafnarfirði
565 7100
Sumar vörur á frábæru verði
HVANNADALSHNÚKUR, hæsti
tindur Íslands, hefur lækkað lítillega
og mælist nú 2.110 metrar en upp-
gefin hæð tindsins undanfarna ára-
tugi hefur verið 2.119 metrar. Land-
mælingar Íslands sáu um mælingar
á tindinum en samkvæmt upplýs-
ingum stofnunarinnar eru þær það
ítarlegar að nákvæm hæð tindsins er
nú 2109,6 metrar.
Verður áfram tignarlegastur
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra kynnti niðurstöður mæling-
anna á blaðamannafundi í gær. Hall-
dór sló á létta strengi og sagði
hugsanlegt að tindurinn kynni að
hækka að nýju þegar snjóaði í vetur
en það gæti orðið erfitt að venjast
hinum nýju niðurstöðum. Þannig
væri hæð tindsins ein af fyrstu töl-
um sem menn lærðu.
„Hann verður áfram tignarleg-
astur allra tinda á Íslandi og hæst-
ur,“ sagði Sigríður Anna Þórð-
ardóttir umhverfisráðherra, sem
kynnti niðurstöðuna ásamt Halldóri,
en hún telur að einhverjir metrar til
eða frá skipti ekki öllu máli í því
sambandi.
Mælingarnar fóru fram dagana
27.–29. júlí í samvinnu við Jarðvís-
indastofnun Háskóla Íslands og
Landhelgisgæslu Íslands, sem sá
um að flytja fólk og tæki meðan á
mælingunum stóð.
Mældur á tíu ára fresti
Fram kemur í tilkynningu frá
Landmælingum Íslands að stefnt sé
að því að mæla hæð Hvannadals-
hnúks reglulega í framtíðinni þar
sem ljóst sé að tindurinn fari lækk-
andi. Áætlað er að það verði gert á
tíu ára fresti.
Forsætis- og umhverfisráðherra kynntu nýjar mælingar
sem sýna að hæsti tindur Íslands fer lækkandi
Hvanna-
dalshnúkur
2.110 metrar
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Sigríður Anna
Þórðardóttir umhverfisráðherra kynntu niðurstöður mæl-
inganna á tröppum Stjórnarráðsins.
Morgunblaðið/RAX
HINN 1. ágúst tók Sveinn Ingi-
berg Magnússon við sem formaður
Landssambands lögreglumanna af
Óskari Bjartmarz sem lét af for-
mennsku eftir að hann var skip-
aður yfirlögregluþjónn á Seyð-
isfirði.
Sveinn Ingiberg er 35 ára gam-
all og hóf störf hjá lögreglu árið
1991. Hann starfar nú sem lög-
reglufulltrúi við embætti ríkislög-
reglustjóra.
Frá árinu 1997 hefur Sveinn
verið í stjórn Lögreglufélags
Reykjavíkur og verið formaður
frá 2002. Þá hefur hann setið í
stjórn Landssambands lögreglu-
manna frá árinu 1998, átt sæti í
framkvæmdastjórn sambandsins
frá 2002 og gegnt margvíslegum
trúnaðarstörfum fyrir það, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
Landssambandi lögreglumanna.
Nýr formaður
lögreglumanna
UPP úr miðnætti í fyrrinótt var
björgunarsveit kölluð út vegna til-
kynningar um mann sem hafði siglt
út á sjó á litlum báti frá Seltjarn-
arnesi snemma í fyrrakvöld. Björg-
unarsveit var byrjuð að leita að
manninum á sjónum en bíllinn hans
var á bakkanum. Um klukkan
hálftvö um nóttina fannst maðurinn
heill á húfi og var hann þá kominn
heim til sín. Hann hafði farið í land,
látið sækja sig á sendibíl en ekki
sótt bílinn sinn sem enn stóð á
bakkanum.
Leitað að manni
sem var sofandi
heima hjá sér
JÚLÍUS Vífill Ingvarsson lögmaður
hefur ákveðið að gefa kost á sér í
forystusæti á framboðslista sjálf-
stæðismanna fyrir komandi borg-
arstjórnarkosningar. Júlíus telur
ekki tímabært að lýsa yfir hvaða
sæti hann vilji taka enda ársfjórð-
ungur þar til prófkjör sjálfstæð-
ismanna fer fram, eða um mán-
aðamótin október/nóvember. „Sviðið
er ennþá nokkuð opið og maður læt-
ur það bíða síns tíma,“ segir hann.
Endurvekja Reykjavík
Júlíus sat í borgarstjórn á síðasta
kjörtímabili en ákvað að gera hlé á
störfum sínum sem borgarfulltrúi til
þess að sinna umfangsmiklu starfi
sem framkvæmdastjóri og stjórn-
arformaður í fjölskyldufyrirtæki,
sem hefur nú verið selt. „Ég er lög-
maður í dag á Lögfræðistofu
Reykjavíkur þannig að ég á auðveld-
ara með að stjórna mínum tíma og
gefa mig í það að starfa að málefnum
borgarinnar eftir því sem þörf kref-
ur,“ segir Júlíus og bætir því við að
hann hlakki til að taka þátt í kom-
andi prófkjöri. „Ég þarf örugglega
að kynna sjálfan mig upp á nýtt;
hlutirnir gleymast fljótt. Þannig að
ég mun nýta tímann á næstunni til
þess að gera það.“
mér fyrir því að Reykjavíkurborg
verði fyrirmynd annarra sveitarfé-
laga og hafi forystu um að leita
nýrra leiða á öllum sviðum. Það þarf
að nútímavæða reksturinn og koma
böndunum yfir slóðaskap og gegnd-
arlausa skuldaaukningu,“ segir Júl-
íus og bætir því við að margt hafi
verið látið reka á reiðanum. Ákvarð-
anir ekki teknar og mikilvægum
málum stungið ofan í skúffu. Hann
segir að þess háttar vinnubrögð
myndu ekki viðgangast í atvinnulíf-
inu.
Júlíus segir ljóst að borgarstjórn-
arflokkur Sjálfstæðisflokksins hafi
staðið sig afar vel á núverandi kjör-
tímabili. Árangur hafi verið góður og
flokkurinn verið afar virkur á öllum
sviðum. „Hann hefur notað kjör-
tímabilið vel til þess að kynnast at-
vinnulífi borgarinnar og kynna þær
leiðir sem hann sjálfur myndi helst
vilja fara.“
Aðspurður um komandi borg-
arstjórnarkosningar á næsta ári
segir Júlíus að það þurfi að end-
urvekja Reykjavík. „Ég vil beita
Júlíus Vífill gefur
kost á sér í forystusæti
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur
skipað Ívar J. Arndal aðstoðarfor-
stjóra í embætti forstjóra ÁTVR frá
1. september nk.
Ívar hefur gegnt starfi aðstoð-
arforstjóra ÁTVR frá árinu 2000 og
var settur forstjóri í eitt ár, 2003–
2004. Hann er vélaverkfræðingur
að mennt en hefur einnig meistara-
gráðu í opinberri stjórnsýslu, auk
náms í viðskipta- og rekstrarfræði.
Ívar J. Arndal
skipaður forstjóri
ÁTVR
HEILDARTEKJUR landsmanna
árið 2004 jukust um 9,9% frá fyrra
ári og námu rúmlega 600 milljörðum
króna, að því er bent er á í nýjasta
vefriti fjármálaráðuneytisins. Eign-
irnar námu 1.927 milljörðum króna
en eignarskattstofninn rúmum 1.000
milljörðum.
Á þessar tekjur og eignir einstak-
linga voru lagðir samtals 140,5 millj-
arðar króna í skatta. Skattarnir juk-
ust um 13,5% í heild frá fyrra ári.
Vefritið bendir einnig á að ráðstöf-
unartekjur á mann hafi aukist um
3,3% árið 2004. Það hafi verið tíunda
árið í röð sem ráðstöfunartekjur á
mann hafi vaxið. Skattarnir hækk-
uðu skv. vefritinu um 1,1% á mann að
raungildi á árinu 2004, „en það er
eðli skattkerfisins að í uppsveiflu
fara skattar hækkandi sem hlutfall
af tekjum þótt ráðstöfunartekjurnar
hækki meira.“
Ráðstöfunar-
tekjur aukast
BJÖRGUNARSVEITIN Víkverji í
Vík í Mýrdal sótti í gær slasaðan sjó-
mann í báti, sem staddur var um
fjórar sjómílur utan við Vík. Sjómað-
urinn fékk vír í andlitið og kallaði
skipstjórinn eftir aðstoð um klukkan
hálftólf í gær. Björgunarsveitar-
menn fóru ásamt lækni með hjóla-
báti til móts við bátinn.
Að sögn Jóns Gunnarssonar hjá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg er
ekki talið að sjómaðurinn sé alvar-
lega slasaður.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Slasaði sjómaðurinn var fluttur í
land í hjólabát Dyrhólaeyjaferða.
Björgunarsveitarmenn úr Víkverja
í Vík aðstoðu við björgunina.
Slasaður sjó-
maður sóttur
á hjólabáti