Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 18
Ólafsvík | Í sjávarþorpum
landsins eru fiskveiðar uppi-
staða atvinnulífsins og ungir
menn stefna gjarnan að því að
gerast sjómenn. Þessir ungu
drengir, Finn Arnar Ástgeirs-
son og Jakob Alfonsson, voru
við fiskveiðar á höfninni í Ólafs-
vík á dögunum.
Veiddu þeir nokkra fiska en
ekki voru þeir af stærri gerð-
inni eins og drengirnir höfðu
vonast eftir. Sáu þeir því aum-
ur á fiskunum og slepptu þeim
aftur í sjóinn svo þeir megi
dafna og stækka áður en þeir
lenda í höndum sjómanna síðar
meir.
Morgunblaðið/Alfons
Fiskveiðar á bryggjunni
Sjórinn
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Húnaþing | Húnaþing vestra býður nú um
helgina til Grettishátíðar í níunda sinn. Í
ár verður hátíðin í samstarfi við ferða-
þjónustuna í héraðinu. Fjölmörg tilboð
verða um gistingu, veitingar og ýmsa af-
þreyingu, s.s. sjóferð á selaskoðunarbát,
ratleikur, gönguferð í sérstakt heið-
arumhverfi o.fl.
Á laugardagskvöldið verður skemmtun í
Grettisbóli á Laugarbakka, kór syngur,
harmonikkusveit og unglingahljómsveit
leika fyrir gesti, sögumaður segir frá
áhugaverðum mönnum og minningum og
myndasýning verður frá Víkingaskipinu
Íslendingi.
Á sunnudag verður síðan fjölskylduhá-
tíð á Bjargi í Miðfirði, þar sem m.a. verð-
ur sungið við undirleik húnvetnskra tón-
listarmanna og hópur frá Glímusamtökum
Íslands kynnir glímu með þátttöku gesta.
Þá munu leiðbeinendur frá Vinnuskóla
Húnaþings vestra stjórna leikjum fyrir
yngstu gestina allan daginn auk þess sem
boðið verður upp á gönguferðir um sögu-
staðinn Bjarg og kvenfélagið Iðja sér um
veitingar. Þá verður aflraunakeppni um
Grettisbikara undir stjórn Andrésar Guð-
mundssonar kraftajötuns.
Nánari upplýsingar um Grettishátíðina
má nálgast í upplýsingamiðstöðinni í Stað-
arskála, á vef Forsvars.is og www.north-
west.is.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Í safnaðarheimilið | Bæjarráð Dalvík-
urbyggðar hefur samþykkt að taka efri hæð
safnaðarheimilis Dalvíkurkirkju á leigu og
nýta undir rekstur á nýrri leikskóladeild við
Krílakot. Um er að ræða deild fyrir fimm
ára gömul börn. Stjórnendur Krílakots hafa
samþykkt þessa ráðstöfun en líta svo á að
um bráðabirgðalausn sé að ræða. Tekið er
fram í bókun bæjarráðs að í þessari sam-
þykkt felist ekki að hafist verði handa við
stækkun leikskólans.
Vegagerð | Fyrirhugað er að bjóða út veg
á Strandavegi, frá Illaholti að Eyjum nú í ár
að því er fram kemur í
Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar.
Ekki kemur fram hvenær verkið verður
auglýst eða hversu langur vegarkaflinn er.
Einnig er verkefni á Djúpvegi meðal fyr-
irhugaðra útboða nú, vegurinn um Svans-
vík.
hjá Icelandair sá þetta
viðtal og brást skjótt við
og bauð honum að koma
og kynnast landinu. Það
var Arthur Björgvin
Bollason sem tók að sér
kynninguna og gerði
það svo rækilega sagði
Henryk að Ísland ásamt
Ítalíu og Ísrael eru
óskalöndin hans. Hen-
ryk segir íbúa þessara
landa eiga mikið sam-
Ást í mótun.“ Þettaer fallegur titillá skrifum Hen-
ryk Broder frá viku-
blaðinu Der Spiegel.
Hann er hér á landi
ásamt ljósmyndaranum
Ashkan Sahihi. Ferð
þeirra félaga til Íslands
er tileinkuð tveimur út-
vörðum. Nefnilega
Grímsey í norðri og
Vestmannaeyjum í
suðri. Henryk hefur
komið ótal sinnum til
landsins og segist al-
gjörlega heillaður.
Sömu sögu má segja um
Ashkan ljósmyndara,
hann er sannur aðdá-
andi líka. Fyrir mörgum
árum var Henryk í
þýskum sjónvarps-
viðtalsþætti og var
spurður að því hvað
hann langaði mest til að
gera. Hann sagðist hafa
verið fljótur til svars –
Íslandsferð væri efst á
óskalistanum. Fulltrúi
eiginlegt. Fólkið er dug-
mikið og hávaðasamt,
stútfullt af fjöri og góð-
um hugmyndum, sem
það er óhrætt við að
framkvæma. Erindið til
landsins í þetta sinn
segir hann spennandi,
skrif um lífið í Grímsey
og lífið um versl-
unarmannahelgi í Vest-
mannaeyjum fyrir les-
endur Der Spiegel.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Henryk Broder blaðamaður, til vinstri, og Ashkan
Sahihi ljósmyndari á góðri stundu í Grímsey.
Ást í mótun
Forsætisnefnd Al-þingis er á ferða-lagi um N-
Þingeyjarsýslu og heldur
fund á Raufarhöfn. Þing-
menn fóru að gantast og
þá orti Halldór Blöndal:
Á Raufarhöfn ég nöfnin engin
nefni,
en stundum verður flekkótt flík
fólks sem er í pólitík.
DV sagði frá stymp-
ingum Árna Johnsen við
dægurlagasöngvara í
Eyjum. Friðrik Stein-
grímsson orti:
Í orðum jafnan er hann ber
það allir heyra er vilja,
og táknmálið hans Árna er
enginn vandi að skilja.
Hermann Jóhannesson
orti sígilda vísu eftir Árni
Johnsen sparkaði í bak-
hlutann á Össuri Skarp-
héðinssyni í þinghúsinu.
Árni hafði nokkru áður
framleitt sjónvarpsþætti
um ferðalög sín.
Lyftist upp í leiksins hita
léttur fótur Eyjamanns.
Sannast enn, sem vel menn
vita,
að víða liggja sporin hans.
Af pólitík
pebl@mbl.is
Sandgerði | Nú um helgina verður mikið
um dýrðir í Sandgerðisbæ, en þá blása bæj-
arbúar til Sandgerðisdaga, þar sem vinir og
velunnarar bæjarfélagsins eru hvattir til að
koma og gleðjast með Sandgerðingum alla
helgina. Þannig verður stanslaus fjöl-
skylduskemmtun frá föstudagskvöldi til
sunnudagskvölds. Vill Hattavinafélagið
minna gesti hátíðarinnar á að allir föstu-
dagar eru hattadagar í Sandgerði og því er
mikilvægt að mæta með rétt höfuðföt á
setningu hátíðarinnar í samkomuhúsi bæj-
arins kl. 20.
Meðal þess sem í boði verður eru afar
fjölbreytt tónlistaratriði, m.a. frá Ragnari
Bjarnasyni, South River band, Heru Hjart-
ardóttur, Árna Johnsen og Brain Police. Þá
verða listamennirnir Hlynur Pálsson,
Björn Kristinsson og Reynir Katrínar með
sýningar á verkum sínum. Trúðar munu
tralla og töframenn galdra. Þá verður m.a.
farið í lyftararallí og dorgveiðikeppni.
Fjölbreytt
skemmtan
framundan
Sandgerðisbær blæs til fjöl-
skylduhátíðar um helgina
Húsavík | Þingeyingar láta ljós sitt skína
um þessar mundir, en nú standa Mæru-
dagar yfir á Húsavík. Markmið þeirra er
að veita þingeysku listafólki tækifæri til að
kynna verk sín, að höfða til breiðs hóps og
að vera eftirtektarvert innlegg í menning-
arviðburði á Húsavík.
Meðal þess sem í boði verður í dag,
föstudag, er skemmtisigling á Skjálfanda á
einu skonnortu landsins. Síðdegis verður
Garðhornshátíð í endurhæfingargarði HÞ
og Hvamms þar sem garðurinn verður
formlega afhentur, en að því loknu verður
firmakeppni í pútti á nýjum 18 holu pútt-
velli garðsins. Konur í ITC-Flugu lesa
hvalasögur í Hvalasafni og um kvöldið
frumsýnir leikhópurinn Kláus Ritu í Sam-
komuhúsinu. Brenna og flugeldasýning
verður í Suðurfjöru kl. 22.30.
Um helgina verður einnig fjölbreytt
dagskrá í boði, stangveiðimót hefst strax í
bítið í fyrramálið, laugardag, þá verður
sameiginlegur hjólatúr og að honum lokn-
um hjólakeppni. Hrútasýning verður síð-
degis, miðnætursigling um Skjálfanda og
dansleikir. Dorgveiðikeppni verður á
sunnudag og eins verður þá boðið upp á
sögugöngu um Húsavík.
Mærudagar
♦♦♦
www.flugger.com
Notaðu rakamælir og
fáðu svarið
Verð aðeins 998 kr.
10
28
61
Er tréverkið þurrt?
Viðarvörn
Stórhöfða 44
110 Reykjavik
Sími 567 4400