Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 19
MINNSTAÐUR
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Kárastíg 1, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Mjólkurþistill
Styrkir og hreinsar lifrina
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Fellsmúli | „Húsnæðið okkar var
löngu sprungið niðri í Hátúni, en
þetta hefur gengið allt upp hjá
okkur síðan við fluttum hingað í
Fellsmúlann fyrir um ári,“ segir
Anna K. Jakobsdóttir, versl-
unarstjóri Góða hirðisins – nytja-
markaðs SORPU, Hjálparstofn-
unar kirkjunnar, Mæðra-
styrksnefndar, Hjálpræðishersins
og Rauða krossins, sem fluttist í
nýtt húsnæði í Fellsmúla 28
(gamla húsnæði World Class) fyr-
ir um ári. „Þetta er mjög þægileg
stærð og ég held að við séum
komin til að vera hér. Við ætlum
að reyna að halda þessum
dampi.“
Í Góða hirðinum er mikið líf
þegar blaðamann og ljósmyndara
ber að garði laust upp úr hádegi,
en að sögn Önnu eru viðskipta-
vinirnir afar tryggir og margir
bíða eftir að markaðurinn verði
opnaður kl. 12. „Þeir kalla sig
Húnavinafélagið,“ segir Anna og
bætir við að kúnnahópurinn sé
ekki eingöngu tryggur heldur af-
ar fjölbreyttur. „Hingað kemur
alls konar fólk, t.d. útlendingar
til að leita sér að gömlum og
nýtilegum húsgögnum, fólk með
hagsýnina að leiðarljósi og síðan
líka ungt fólk sem er hrifið af sjö-
unda og áttunda áratugnum,
svona gamaldags dóti og hús-
gögnum.“
Bíða ólmir eftir nýjum hlutum
Í setustofu Góða hirðisins sitja
nokkrir eldri menn, lesa bækur
og drekka kaffi. „Þetta er hálf-
gerð félagsmiðstöð hér fyrir
suma og oft mikið líf hér,“ segir
Anna. Veltan á munum er líka
gríðarlega hröð og er ekkert
öruggt að munur sem kemur inn í
dag verði til sölu á morgun.
„Margir bíða hreinlega eftir að
við trillum út nýjum hlutum af
lagernum og eru fljótir að næla
sér í flotta hluti.“
Að sögn Önnu fara nú rúm
fimmtíu tonn af munum í gegnum
markaðinn á mánuði, veltan á
þessu ári er komin upp í 337
tonn. „Þú getur ímyndað þér
hvað þetta væri mikið rusl,“ segir
Anna. „Þetta er mjög þýðing-
armikið bæði hvað varðar sparn-
aðinn sem af þessu hlýst fyrir
fólk og líka það að það þarf ekki
að urða þetta. Þetta er endurnýt-
ing í sinni hreinustu mynd. Við
erum líka að bjarga vissum menn-
ingarverðmætum, hlutum sem eru
hættir að sjást. Við tökum þá
stundum frá og seljum ekki, held-
ur höfum hér í búðinni til sýnis.“
Góði hirðirinn hefur nú þegar
skilað yfir átta milljónum til góð-
gerðarmála og hefur þannig að
sögn Önnu staðið vel undir þeim
væntingum sem gerðar eru til
hans. „Þetta hefur legið jafnt og
þétt upp á við og framlög okkar
til líknarfélaganna aukist mjög
undanfarin ár.“
Eins rusl er annars fjársjóður
Í Góða hirðinum starfa átta
fastráðnir starfsmenn og hafa
þeir nóg að gera frá átta á
morgnana þegar þeir taka til nýj-
ustu nytjamunina, allt til lokunar
markaðarins upp úr kl. fimm.
Myrra Rós Þrastardóttir, sum-
arstarfsmaður í Góða hirðinum,
segir markaðinn afar góðan
vinnustað. „Það er mjög skemmti-
legur og góður starfsandi hér,
samstarfsfólkið er afar gott og ég
er mikill grúskari sjálf, svo ég
missi aldrei áhugann,“ segir
Myrra. Tíminn líður mjög hratt,
maður veit ekki af sér fyrr en um
hádegið og svo er dagurinn allt í
einu búinn. Það er líka fullt af
frægu fólki sem kemur hingað og
leitar sér að áhugaverðum hlut-
um. Eins manns rusl er annars
fjársjóður. Það er líka svo mikið
af furðulegu gömlu dóti sem kem-
ur hér í gegn. Til dæmis komu
hér um daginn tveir uppstoppaðir
selir og líka gamall stóll með
hreindýralöppum.“
Miðaldra maður sem á leið hjá
tekur undir orð Myrru um fjár-
sjóðinn. „Það er frábært að sjá
alla þessa gömlu muni hérna,“
segir kúnninn. „Það er viss róm-
antík í þessu. Þegar dóttir mín
fór að búa keypti hún allt sitt
hafurtask hér. Ég hef líka keypt
ýmislegt hér og kem hingað
reglulega, enda er alltaf hægt að
finna eitthvað spennandi hérna.“
Góði hirðirinn hefur komið sér vel fyrir í nýju húsnæði í Fellsmúla
Hreinasta form
endurnýtingar
Verslunarstjórinn Anna K. Jak-
obsdóttir segir rekstur Góða hirð-
isins bæði samfélagslega og um-
hverfislega hagkvæman.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Sígild snilld Myrra Rós heilsar upp á vin sinn, drenginn með tárið, sem er
klassískt minni á íslenskum heimilum, sannkallaður minningavaki.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
Lestrarhestur Ólafur Friðriksson
rithöfundur skoðar áhugaverða
titla á bókum sem annars hefðu
ratað á Álfsnesið.
Markaður | Fatamarkaður Hjálp-
ræðishersins á Akureyri verður opn-
aður á ný í dag, föstudaginn 5. ágúst,
eftir endurbætur á húsnæði. Á
markaðnum er í boði notaður fatn-
aður og munir á mjög vægu verði.
Vinsældir markaðarins hafa vaxið
jafnt og þétt og sjá margir sér hag í
því að versla á hagkvæman hátt og
um leið styrkja gott málefni. Allur
ágóði markaðarins rennur til starf-
semi Hjálpræðishersins á Akureyri,
sem er meðal annars með öflugt
starf fyrir börn og unglinga. Í tilefni
af opnuninni verður kaffi á könnunni
í boði hússins. Opið er frá 10 til 18.
HAFIÐ er þema handverkshátíð-
arinnar Handverks sem sett var á
Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit síðdeg-
is í gær. Árni Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra opnaði sýninguna
og sagði sýnendur koma alls staðar
að af landinu og það skapaði mikla
fjölbreytni þar sem siðir og venjur
milli landshluta væru með mismun-
andi hætti. Sýnendur endurspegluðu
því sérkenni þeirra staða eða byggð-
arlaga sem þeir kæmu frá, hvort sem
væri í efnisvali eða efnisnotkun,
menningu eða hefðum viðkomandi
staða.
„Þótt í Eyjafirði hafi löngum verið
blómlegur búskapur þá hefur sjávar-
útvegur ekki síður verið mikilvægur
fyrir þetta byggðarlag og hefur hann
verið rekinn af miklum myndarskap
í gegnum tíðina. Það er því ánægju-
legt fyrir mig sem sjávarútvegs-
ráðherra að fá tækifæri til að vera
með ykkur hér í dag þar sem hafið er
þema handverkshátíðarinnar í ár,“
sagði Árni. Hann nefndi að sýningin
væri liður í að varveita handbragð
fyrri tíma auk þess sem sjá mætti
nýja strauma og nýtt handbragð hjá
þeim fjölmörgu sem þar sýndu muni
sína. Sagði hann framtakið lofsvert
og lýsti sérstakri ánægju með þema
hátíðarinnar í ár.
Sýningarsvæðið er í íþróttahúsi
Hrafnagilsskóla, á útisvæði og í
kennsluhúsnæði auk þess sem mark-
aður er við útitorg þar sem seldur er
margvíslegur varningur.
Í tengslum við sýninguna verða
haldin fjögur handverksnámskeið,
kennarar eru þrír norrænir lista-
menn og einn íslenskur. Þannig býð-
ur Therese Johanson upp á tvö eld-
námskeið, annað fyrir byrjendur og
hitt fyrir lengra komna. Jan-Erik
Svenson verður með námskeið þar
sem nemendur gera skálar m.a. úr
kopar. Sune Oskarsson leiðbeinir á
námskeiði þar sem nemendum verð-
ur kennt að gera fuglaskálar og
Sigga frá Grund verður með nám-
skeið í að skreyta í spón og heil horn,
en um er að ræða gamalt þjóð-
arhandverk sem er að falla í
gleymsku.
Sýningin verður opin fram á
sunnudag, 7. ágúst.
Sjávarútvegsráðherra setti handverkshátíð á Hrafnagili
Sýnendur endurspegla
hefðir byggðarlaganna
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Skartgripagerð Jan Jansen, forstjóri Creata í Hollandi, var mættur í
fyrsta sinn á sýninguna og rétt gaf sér tíma til að líta upp úr verkinu, en
hann verður eflaust iðinn við að búa til skartgripi alla helgina.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Kópnum klappað. Stöllurnar á
myndinni voru hrifnar af þessum
fallega selkóp sem er til sýnis á
handverkshátíðinni.