Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 33

Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 33 MINNINGAR átti fulla skúffu af slæðum sem fyrir litla stúlku var afskaplega gaman að komast í, slæður og sjöl sem skörtuðu öllum regnbogans litum þó svo að bleikur væri ríkjandi sem var jú hennar uppá- haldslitur. Hún átti það til að ota að mér sætindum þegar ég kom í heim- sókn þrátt fyrir mótmæli móður minnar, enda sætindi einungis til brúks á laugardögum. Hún komst þó stundum upp með það mér til ómældrar ánægju. Pönnukökur fékk ég líka oft hjá henni sem mér þóttu góðar en skemmtilegast var þó að sykra þær því sykurstaukurinn var mér þá mjög framandi. Ég hef alltaf viljað eignast slíkan stauk, læt kannski verða af því eða reyni að hafa uppi á hennar. Elsku amma, höfum að leiðar- ljósi eftirfarandi orð Hannesar Péturssonar: Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. Þín sonardóttir, Elín Ósk Helgadóttir. Elsku besta frænka mín. Nú ert þú farin frá okkur og komin til Bibba mannsins þíns og foreldra þinna og systkina. Þar sem minni þitt var farið að bregðast þér und- ir það síðasta, mundir þú lengst af eftir Ólínu systur þinni, mömmu minni, en þið voruð ákaflega sam- rýmdar og góðar vinkonur og allt- af saknaðir þú hennar, en hún dó langt um aldur fram. Margar fjölskyldur eiga sína uppáhaldsfrænku og þú varst allt- af uppáhaldsfrænka okkar systk- inanna og reyndar margra ann- arra. Þú varst alltaf svo ljúf og góð, alltaf í góðu skapi og stutt í hláturinn. Ég minnist þess þegar þú komst í heimsókn til okkar systkinanna þá kysstir þú okkur alltaf á augun og kallaðir okkur gælunöfnum, en það var eitthvað sem enginn komst upp með nema þú. Elsku frænka mín, ég vil þakka þér fyrir allar ánægjulegu stund- irnar, sem ég átti með þér og Bibba þínum, þegar ég var lítil. Ég var svo oft hjá ykkur og þú hafðir svo gaman af að láta fólk halda að ég væri dóttir þín, því ég þótti allt- af líkari þér en mömmu minni. Hvíl þú í friði og blessuð sé minning þín. Hilda Hilmarsdóttir. stakk ég upp á því að við hittumst næsta laugardagsmorgun úti í skóla og gengjum í málið. Þar mundi eng- inn trufla okkur. Og allt gekk það eftir. Þegar ég kom heim voru dætur mínar undrandi á fjarvist minni. Enginn vissi hvar ég var og síminn hafði glumið allan morguninn. Ég átti nefnilega að vera á leið upp í Þórsmörk með vinkonum mínum og hafði steingleymt því í „skipulagn- ingunni“. Fyrir átta árum fluttu Bugga og Bjössi til Reykjavíkur, vestast í vest- urbæinn og gerðust sannir KR-ing- ar. Hún fór að kenna í Mýrarhúsa- skóla og líkaði vel. Síðast áttum við ljúfa kvöldstund í janúar sl. Fyrr um daginn höfðum við kvatt kæran vin sem farinn var yfir móðuna miklu. Þá var Bugga glaðbeitt og einörð og sagði mér að nú væri baráttan unnin. Henni væri batnað, hún væri farin að vinna svolítið og framtíðin væri björt. En óvinurinn lá í leyni og gerði harða atlögu að henni – atlögu sem hún átti ekki svar við. Það hefur fækkað í vinahópnum. Söknuðurinn er sár. Við sendum Bjössa og fjölskyldu hans allri, foreldrum hennar og systkinum innilegar samúðarkveðj- ur. Guð blessi minningu Guðbjargar Þórðardóttur. Pálína Snorradóttir og fjölskylda. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Í dag kveðjum við í Mýrarhúsa- skóla samstarfskonu okkar Guð- björgu Þórðardóttur sem lést langt um aldur fram hinn 30. júlí. Bugga hóf störf sem umsjónarkennari við skólann í ágúst 1998. Þá voru að hefj- ast miklar breytingar í tæknimálum. Því var það mikill fengur fyrir skól- ann að fá til starfa kennara sem hafði góða þekkingu á því sviði. Það var gott að leita til hennar og hún ávann sér þar strax traust samstarfsmanna sinna. Það kom líka fljótt í ljós að Bugga var góður kennari sem náði vel til nemenda sinna. Hún lagði sig alla fram við að kynnast nemendum sínum og laða fram það besta í hverj- um og einum. Hún var samviskusöm, vann verk sín vel og hafði mikinn metnað í starfi. Þetta leiddi til þess að hún var vinsæll kennari sem nem- endur treystu og báru virðingu fyrir. Hún var einnig vel liðin af samstarfs- fólki sínu, enda var gott að vinna með henni. Á góðum stundum var hún hrókur alls fagnaðar og lét sig sjald- an vanta. Stór hópur frá skólanum fór í ógleymanlega námsferð til Serbíu vorið 2003 og var Bugga með í þeirri ferð og naut sín vel. Hún var fróðleiksfús og drakk í sig sögu þessa fallega lands. Það var okkur öllum mikið áfall þegar Bugga greindist með alvarleg- an sjúkdóm. Hún fór í veikindafrí en var dugleg að koma í heimsókn og leyfa okkur að fylgjast með hvernig gengi. Um síðustu áramót kom hún aftur til starfa og það gladdi okkur mikið að sjá hvað hún leit vel út og virtist vera á góðum batavegi. En það er ekki hægt að sigrast á öllu og í sumar þurfti Bugga okkar að láta undan. Hún hafði sýnt ótrúlegt þrek og mikla bjartsýni. Hún stóð ekki ein því að hún á góða fjölskyldu sem hef- ur staðið við hlið hennar og stutt hana á þessum erfiðu tímum. Við hér í Mýrarhúsaskóla höfum misst góðan samstarfsmann sem við munum minnast með hlýju og þakk- læti. Við sendum fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að vera með þeim. Samstarfsfólk í Mýrarhúsaskóla. Drottinn gefur, Drottinn tekur. Hann deyðir, skapar, endurvekur. Hans voldugt nafn sé vegsamað. Láti’ hann blómin falla að foldu, hann fræið geymir djúpt í moldu uns vorið blíða vekur það. Þótt höfuð hneigi blóm mót haustsins kalda róm, sigur lífsins oss sýndur er þá sumra fer. Ó, lífsins Herra, lof sé þér. (Valdimar V. Snævarr.) Hvíl þú í friði, elsku Bugga okkar, og hafðu þökk fyrir allt. Elsku Bjössi, Eva, Íris, Björn Ívar og fjölskyldur, Imma og Þórður, megi góður guð halda verndarhendi sinni yfir ykkur og styrkja í þessari miklu sorg. Eyrún, Snorri, Sif og fjölskyldur. Elsku Guðbjörg, ég vil skila smá- kveðju til þín á þessari sorgar- stundu. Ég met vel það sem þú hefur gert fyrir mig sem kennarinn minn, ég fann alltaf fyrir hlýju þegar ég var nálægt þér og betri kennara hefði ég ekki getað óskað mér. Megi guð og englarnir á himnum vernda þig. En þú mátt vita að ég mun alltaf hugsa til þín með góðri minningu um góðan kennara og góða manneskju sem ég var svo heppin að fá að kynnast. Englar megi fylgja þér þá miklu sáru braut, ljósin lýsa yfir hér og lina þína þraut. (HK) Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Ég og fjölskylda mín vottum fjöl- skyldu þinni og öðrum aðstandend- um okkar dýpstu samúð. Guð geymi þig Guðbjörg mín. Rakel Ýr, 6-B, Mýró. Bugga, vinkona okkar, er fallin frá, langt um aldur fram, úr erfiðum sjúkdómi sem því miður alltof marg- ir þurfa að glíma við, bæði ungir sem aldnir. Við minnumst Buggu með miklum hlýhug og söknuði þegar við hugsum um dagana sem við skemmtum okk- ur saman. Bugga var einstaklega einlæg og góð vinkona, alltaf með góða skapið meðferðis. Það var nota- legt og hlýlegt að vera með henni. Bugga var óspör á hlýju faðmlögin og dillandi hláturinn. Við vinkonurnar hittumst reglu- lega í 13 ár í Hveragerði og spiluðum þá saman bridge. Þá ríkti jafnan mikil gleði og oftast var spaugað meira en spilað. Við fórum árlega með eiginmönn- um okkar í lúxusferðir til Reykjavík- ur. Við færðum þeim þá jafnan sér- stakar tækifærisgjafir og þáðum skemmtilegar vísur að launum, sem Bjössi átti heiðurinn af. Bugga hafði sterkan persónuleika sem einkenndist af virðuleika, ein- lægni og öryggi í framkomu, hún var heiðarleg, stolt og trú sínum vinum. Við minnumst góðrar vinkonu með söknuði, og þökkum af alhug allar samverustundir okkar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Kæri Bjössi, Eva, Íris, Björn Ívar, foreldrar Buggu, systkini og fjöl- skyldur ykkar allra, við vottum ykk- ur okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Buggu. Ingibjörg, Júlíana og Kristín. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Minningar- greinar Elsku Þórður. Á stundu sem þess- ari er hugur okkar hjá þér. Við vilj- um þakka þér fyrir þá miklu aðstoð og alla þá fyrirhyggju og umhyggju sem þú hefur veitt okkur í gegnum árin. Þér verður aldrei fullþakkað fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir okkur. Þú varst yndislegt barn og sonur sem allir foreldrar geta verið stoltir af. Við vitum að góður Guð tekur á móti þér með opnum örmum og heldur yfir þér verndarhendi. Það hefur verið okkur erfiður tími að sjá á eftir þér í blóma lífsins en allar minningarnar um þig, verkin þín og hjálpfýsi ylja okkur um hjartarætur. Við biðjum góðan Guð að varðveita þig og geyma. Megi hann einnig styðja Diddu, Gunna, Guðlaug og Helga og fjölskyldur þeirra og bræð- ur þína og fjölskyldur í gegnum sorg- ina. ÞÓRÐUR JÓN GUÐLAUGSSON ✝ Þórður Jón Guðlaugsson fæddist í Hafnar- firði 13. maí 1953. Hann lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 23. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 3. ágúst. Vertu í faðmi frelsarans, falinn allar stundir. Vængjaskóli væru hans, vaktu og sofðu undir. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Höndin þín, Drottinn, hlífi mér, þá heims ég aðstoð missi, en nær sem þú mig hirtir hér, hönd þína eg glaður kyssi. Dauðans stríð af þín heilög hönd hjálpi mér vel að þreyja, meðtak þá, faðir, mína önd, mun ég svo glaður deyja. Minn Jesús, andlátsorðið þitt í mínu hjarta eg geymi, sé það og líka síðast mitt, þá sofna eg burt úr heimi. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson.) Guð geymi þig, elsku drengurinn okkar. Mamma og pabbi. LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞORGERÐAR SVEINSDÓTTUR kennara frá Kolsstöðum í Miðdölum, síðast til heimilis á Droplaugarstöðum. Helga Sveinsdóttir, Valdimar Guðnason, Jón R. Sveinsson, Guðrún Óskarsdóttir, Sigríður Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELSU SIGURÐARDÓTTUR, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík. Björgvin Þórðarson, Svanfríður Jakobsdóttir, Helga Þórðardóttir, Ófeigur Sigurðsson, ömmu- og langömmubörn. Lokað í dag milli kl. 12 og 14 vegna jarðarfarar GUÐBJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR. Misty nærföt, sími 551 3366 Misty skór, sími 551 2070, Laugavegi 178, 105 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.