Morgunblaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Reyndu að finna tíma til þess að fá útrás fyrir sköpunargleðina í dag. Þú ert handlagnasta merki dýrahringsins og elskar að uppgötva nýjar vinnuaðferðir. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið sér leiðir til þess að hagnast á fasteignum eða einhverju sem viðkemur heimilinu. Það er fullt bjartsýni að þessu leyti. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú hugsar eins og sigurvegari í dag og býst við að hafa betur. Það er lykillinn að velgengni þinni. Til hamingju. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn fær frábærar hugmyndir til aukinnar tekjuöflunar í dag. Líka á morgun. Annað hvort er um að ræða hugmyndir tengdar fasteignum eða heimilinu á einhvern hátt. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið á frábæran dag í vændum. Það er hresst í bragði, jákvætt og bjartsýnt á lífið og tilveruna. Þannig viðhorf laðar að fólk og tækifæri. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan ber hag þeirra sem eru ekki jafn lánsamir og hún raunverulega fyrir brjósti. Þig langar til þess að leggja eitt- hvað af mörkum, ef þú getur. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú nýtur tímans sem þú verð með vinum eða í góðum hópi. Fólk virðist almennt vel upplagt og samskipti ganga prýði- lega. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Fólk dáist að sporðdrekanum og ber virðingu fyrir honum. Hann virðist eiga svör við öllu. Hugsanlega veit hann hvað hann er að gera og hvert hann stefnir, eða lætur a.m.k. þannig. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Nýjar uppgötvanir á heimspekilegum, trúarlegum eða pólitískum vettvangi vekja áhuga bogmannsins. Það er eins og hann hafi fengið nýja sýn á lífið. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin fær góðar hugmyndir um það hvernig aðrir geta fengið sem mest út úr auðlindum sínum. Fólk ætti að hlusta á ráð hennar, hún veit hvað hún syngur. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Notaðu daginn til þess að útkljá mikil- væg mál við maka, nána vini eða aðra. Ákefð vatnsberans hrífur aðra. Fólk er til í að hlusta á hann og taka undir skoð- anir hans. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fisknum veitist auðvelt að fá vinnufélag- ana til liðs við sig. Hann má búast við því að fá þær fjárreiður, birgðir eða liðsinni sem hann þarf á að halda. Stjörnuspá Frances Drake Ljón Afmælisbarn dagsins: Þú nýtur sviðsljóssins og hefur gaman af því að lyfta þér upp, fara í frí og njóta lífs- ins. Frelsi er þér mikilvægt og þú eyðir peningum eins og þér sýnist, ekki síst ef um afþreyingu er að ræða. Þú vilt að öðr- um líki við þig og þannig er það oftast. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Tónlist Cafe Catalina | Trúbadorinn Garðar Garð- arsson spilar og syngur á Catalinu. Café Rosenberg | Hinn sænski Andreas Öberg leikur djass í samstarfi við Hrafna- spark og DjangoJazz. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og er selt inn við innganginn á 1.500 kr. Gallerí Humar eða frægð! | Steintryggur (Sigtryggur Baldursson og Steingrímur Guðmundsson) í tónleikaröð Grapevine og Smekkleysu. Kringlukráin | Hljómsveitin Dans á rósum frá Vestmannaeyjum skemmtir. Hefst kl. 23. Nasa | Stórtónleikar Heru á NASA kl 21.30 Einnig koma fram sérstakir gestir Mega- sukk. Miðasala í verslunum Skífunnar. For- sala á nýrri plötu Heru – Don’t play this fyrir tónleikagesti. Nánari upplýsingar á: www.herasings.com. Ráðhúskaffi Þorlákshöfn | Tónleikar með KK og Magnúsi Eiríkssyni á Hafnardögum í Þorlákshöfn. Vélsmiðjan, Akureyri | Hljómsveitin Sér- sveitin leikur föstudags- og laugardags- kvöld. Húsið opnað kl. 22, frítt inn til mið- nættis. Þorlákshöfn | Fjölskyldutónleikar með hljómsveitinni Á móti sól á Hafnardögum í Þorlákshöfn. Sjá dagskrá á vefnum hafnar- dagar.is. Myndlist 101 gallery | Þórdís Aðalsteinsdóttir til 9. sept. Opið fim.–lau. 14–17. Árbæjarsafn | Anna Gunnarsdóttir opnar sýninguna Ljóshaf – lýsandi form úr þæfðri ull í Listmunahorninu á Árbæjarsafni, 6. ágúst. Sýningin er opin 10–17 alla daga og stendur til 18. ágúst. Café Karólína | Eiríkur Arnar Magnússon í Listagilinu á Akureyri. Eiríkur Arnar er fæddur á Akureyri 1975 og stundaði nám á listasviði FB og við Myndlistaskólann á Akureyri og stundar nú nam í Listaháskóla Íslands. Sýningin stendur til 26. ágúst. Deiglan | Sigurður Pétur Högnason (Siggi P). Olíumálverk. Til 21. ágúst. þri.–sun. frá 13 til 17. Eden, Hveragerði | Jón Ingi Sigurmunds- son sýnir olíu-, pastel- og vatnslitamyndir til 7. ágúst. www.joningi.com. Ferðaþjónustan í Heydal | Helga Krist- mundsdóttir hefur haldið margar einka- og samsýningar víða í Evrópu, nú síðast í Hafnarborg 2005. Hún var kjörinn lita- maður ársins í Ebeltoft 1998 og litagrafíu- maður ársins 2000 í Árósum. Gallerí Humar eða frægð! | Myndasögur í sprengjubyrgi. Sýnd verk eftir Ólaf J. Engilbertsson, Bjarna Hinriksson, Jóhann L. Torfason, Halldór Baldursson, Þórarin Leifsson, Braga Halldórsson og fleiri sem kenndir eru við GISP! Einnig myndir úr Grapevine. Til 31. ágúst. Gallerí Terpentine | Gunnar Örn til 13. ágúst. Grunnskólinn Þykkvabæ | Listaveisla. Verk 5 listamanna: Elías Hjörleifsson, Ómar Smári Kristinsson, Hekla Björk Guð- mundsdóttir, Hallgerður Haraldsdóttir og Árni Johnsen. Opið 4. til 7. og 11. til 14. ágúst frá kl. 18–22 og kl. 14–18 um helgar. Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn Benediktsson. Fiskisagan flýgur, ljós- myndir. Til 31. ágúst. Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarcevic, Elke Krystufek og On Kawara til 21. ágúst. Handverk og hönnun | Sýningin „Sögur af landi“ stendur nú yfir í sýningarsal Hand- verks og hönnunar. Til sýnis er bæði hefð- bundinn íslenskur listiðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni. Á sýning- unni eru hlutir frá 33 aðilum m.a. úr leir, gleri, pappír, hrosshári, roði, ull og silfri. Sýningunni lýkur 4. sept. Hótel Geysir, Haukadal | Árni Björn Guð- jónsson sýnir olíumyndir af íslensku lands- lagi. Til 14. ágúst frá kl 8 til 23. Hrafnista, Hafnarfirði | Trausti Magnús- son sýnir í menningarsal til 23. ágúst. Jöklasýningin á Höfn | Farandsýningin Í hlutanna eðli til 7. ágúst. Opið alla daga frá 10 til 22. Laxársstöð | Sýning Aðalheiðar S. Ey- steinsdóttur, Hreindýr og dvergar í göng- um Laxárstöðvar. Listasafn ASÍ | Sumarsýning Listasafns ASÍ 2005. Sýning á verkum úr eigu safns- ins til 7. ágúst. Aðgangur er ókeypis. Listasafnið á Akureyri | Skrýmsl – óvættir og afskræmingar til 21. ágúst. Listasafn Ísafjarðar | Katrín Elvarsdóttir sýnir nýja ljósmyndaseríu sem kallast „Heimþrá“. Sýningin stendur fram í byrjun október og er opin mánudaga til föstu- daga frá kl. 13–19 og laugardaga frá kl. 13 til 16. Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21. ágúst. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabriel Kuri, Jennifer Allora, Guilliermo Calzadilla, Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir, John Latham, Kristján Guðmundsson til 21. ágúst. Listasafn Reykjanesbæjar | Á sumarsýn- ingu má nú sjá sænskt listagler. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið. Sýning á úrvali verka úr safneign. Til 2006. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Lest. Dieter Roth til 21. ágúst. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Úrval verka frá 20. öld til 25. september. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sumar- sýning. Aðföng, gjafir og lykilverk eftir Sig- urjón Ólafsson. Opið frá 14 til 17. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | 28. maí 28. ágúst 2005. „Rótleysi“ markar þau tíma- mót að tíu ár eru liðin frá stofnun lýðræðis í Suður-Afríku. Opið 12–19 virka daga, 13–17 um helgar. Norræna húsið | Grús – Ásdís Sif Gunnars- dóttir, Helgi Þórsson, Magnús Logi Krist- insson. Terra Borealis – Andy Horner. Til 28. ágúst. Safnahús Borgarfjarðar | Pétur Pét- ursson sýnir 15 málverk í Safnahúsi Borg- arfjarðar. Opið virka daga kl. 13 til 18. Sýn- ingin stendur til 19. ágúst. Safnahúsið á Húsavík | Guðmundur Karl Ásbjörnsson sýnir verk sín í fyrsta skipti á Íslandi eftir 11 ára hlé. Sýningin stendur til 28. ágúst. Skaftfell | Myndbreytingar – Inga Jóns- dóttir sýnir til 13. ágúst. Skriðuklaustur | Ítalski listamaðurinn Gu- iseppe Venturini sýnir teikningar úr Fljóts- dal til 14. ágúst. Thorvaldsen Bar | Ljósmyndir Maríu Kjartansdóttur, teknar af íslenskum ung- lingum á aldrinum 16–20ára á mennta- skólaböllum. Þær sýna sveitta strákinn í stelpuleit, kossana, afbrýðisemina, ból- urnar, sjálfsmeðvitundina og allt það sem einkennir hormónasamfélagið í heild sinni. Vínbarinn | Rósa Matthíasdóttir sýnir mósaíkspegla. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Mynd á þili er afrakstur rannsókna Þóru Kristjáns- dóttur á listgripum Þjóðminjasafns Íslands frá 16., 17. og 18. öld. Markmið sýningar- innar er að kynna til sögunnar listamenn sem hægt er að eigna ákveðin listaverk í eigu safnsins. Einnig er komin út bók um sama efni. Kristinn Ingvarsson hefur hefur lagt rækt við svarthvítt portrett og hefur lag á að finna samhljóm milli persóna og umhverfis. Margir þekkja stakar ljós- myndir Kristins en með því að safna úrvali af þeim saman birtist ný og óvænt mynd. Þrastalundur, Grímsnesi | Listakonan María K. Einarsdóttir sýnir 20 myndverk til 26. ágúst. Leiklist Iðnó | On the Way to Heaven (Gullna hlið- ið), nýtt gamanleikrit í flutningi Ferðaleik- hússins. Öll mánudags og föstudagskvöld kl. 20.30. 551 9181. Listasýning Kvennaskólinn á Blönduósi | Sögusýning Kvennaskólans á Blönduósi verður opin 6.–7. ágúst, kl. 14–17. Söfn Bókasafn Kópavogs | Dagar villtra blóma. Á Bókasafni Kópavogs stendur yfir sýning á ljóðum um þjóðarblómið holtasóley og önnur villt blóm. Sýningin var sett upp í til- efni af Degi villtra blóma og stendur yfir út ágúst. Falleg ljóð og sumarlegt efni. Bæk- urnar sem innihalda ljóðin eru allar til út- láns á safninu. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga í sumar frá kl. 9– 17. Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, sænsku og þýsku um húsið. Margmiðl- unarsýning og skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu. Nánar á www.gljufrasteinn.is. Minjasafnið á Akureyri | Eyjafjörður frá öndverðu, saga fjarðarins frá landnámi fram yfir siðaskipti. Akureyri bærinn við Pollinn, þættir úr sögu Akureyrar frá upp- hafi til nútímans. Myndir úr mínu lífi… Ljós- myndir Gunnlaugs P. Kristinssonar frá Akureyri 1955–1985. Skriðuklaustur | Sýning um miðalda- klaustrið að Skriðu og fornleifarannsókn á því. Sýndir munir úr uppgreftri síðustu ára og leiðsögn um klausturrústirnar. Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til menn- ing og samfélag í 1.200 ár, á að veita inn- sýn í sögu íslensku þjóðarinnar frá land- námi til nútíma. Á henni getur að líta um 2.000 muni allt frá landnámstíð til nútíma auk um 1.000 ljósmynda frá 20. öld. Sýn- ingin er hugsuð sem ferð í gegnum tímann. Mannfagnaður Súðavík | Listasumar í Súðavík til 7. ágúst. Hátíðin er haldin í sjöunda sinn. Málverkasýning Sigríðar Rannveigar Jóns- dóttur, kvikmyndasýning, brenna og brekkusöngur o.m.fl. Íþróttir ICC | Bikarsyrpa Eddu útgáfu og Tafl- félagsins Hellis verður haldin 7. ágúst og hefst kl. 20. Verðlaun eru í boði Eddu út- gáfu. Nánari upplýsingar um syrpuna og mótið má nálgast á www.hellir.com. Staður og stund http://www.mbl.is/sos 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 veglynd, 8 súld, 9 málmur, 10 ask, 11 víð- an, 13 galdrakerlinga, 15 sorgmædd, 18 safna saman, 21 stormur, 22 gleðjist yfir, 23 peningum, 24 valdagræðgi. Lóðrétt | 2 bárum, 3 eydd- ur, 4 höndin, 5 kaldur, 6 guðir, 7 þrjóska, 12 óhljóð, 14 slöngu, 15 sjó, 16 ekki eins gamalt, 17 rist, 18 fugl, 19 mikill sigur, 20 sárt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 nepja, 4 segja, 7 grófa, 8 opinn, 9 lap, 11 iðan, 13 saur, 14 okans, 15 holt, 17 skel, 20 man, 22 niðja, 23 ýlfur, 24 agnar, 25 trimm. Lóðrétt | 1 negri, 2 prófa, 3 aðal, 4 skop, 5 geiga, 6 annar, 10 apana, 12 not, 13 sss, 15 henta, 16 liðin, 18 kefli, 19 lær- um, 20 maur, 21 nýtt. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is 50 ÁRA afmæli. Laufey Elsa Sól-veigardóttir, Sigtúni 21, Reykjavík, er fimmtug í dag, föstudag- inn 5. ágúst. Hún og eiginmaður henn- ar, Friðrik Friðriksson, eru stödd á Mallorca á afmælisdaginn. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Útsala Opið virka daga kl. 10-18 laugardaga kl. 10-16 Nýbýlavegi 12, Kópavogi sími 554 4433 Í NORSKA húsinu í Stykkishólmi verður opnuð á laugardag sýningin Mannlíf í myndum. Um er að ræða sýningu á myndum úr Ljósmyndasafni Stykkishólms og gefur að líta á ljósmyndunum hús og fólk í Stykkishólmi og nágrenni frá síðustu öld. Safn mynda Jóhanns Rafnssonar myndar grunninn að Ljósmyndasafni Stykkishólms en myndirnar voru afhentar Stykkishólmsbæ árið 1996. Árni Helgason, fyrrum stöðvar- stjóri Pósts og síma og fréttaritari Morgunblaðsins, gaf safninu einnig veglegt mynda- safninu árið 2001. Eru nú í safninu um 14–15 þúsund myndir en á vef safnsins eru geymdar 6.400 myndir. Sýningin í Norska húsinu stendur til 4. september og er opin daglega frá 11 til 17. Ein mynda Ljósmyndasafns Stykkishólms. Myndir frá gamla Stykkishólmi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.