Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 39
MENNING
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa-
vinna kl. 9–12, púttvöllur kl. 10–16.30,
bingó byrjar aftur næsta föstudag,
12. ágúst.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, fóta-
aðgerð, frjálst að spila í sal. Enginn
leiðbeinandi verður í handavinnustof-
unni frá 25. júlí til 8. ágúst.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 11.15–12.15 matur.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í kvöld í Gjá-
bakka kl. 20.30.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi – spjall –
dagblöðin, kl. 9 baðþjónusta, kl. 10
pútt, kl. 12 hádegismatur, kl. 13 bóka-
bíll, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Hádegisverður.
Blöðin liggja frammi til aflestrar.
Fótaaðgerðir, s. 588–2320. Hár-
greiðsla, s. 517–3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Betri stofa og Listasmiðja
9–16. Gönguhópurinn Gönuhlaup
9.30. Bridge 13.30. Dagblöðin liggja
frammi. Hádegisverður og síðdeg-
iskaffi. Veitingar framreiddar í Listi-
garði í góðviðri. Skráning á haust-
námskeið. Uppl. í s. 568–3132.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30
handavinna. Kl. 11.45–12.45 hádegis-
verður. Kl. 13.30–14.30 sungið v/
flygilinn. Kl. 14.30–14.45 kaffiveiting-
ar. Kl. 14.30–16 dansað í aðalsal við
lagaval Sigvalda. Pönnukökur með
rjóma í kaffitímanum.
Kirkjustarf
Íþróttahúsið Digranes | Árlegt
landsmót Votta Jehóva-safnaðarins
hefst í dag í Íþróttahúsinu Digranesi í
Kópavogi. Mótið sendur til sunnu-
dags. Dagskrá hefst kl. 9.30 alla dag-
ana. Aðalfyrirlestur mótsins, „Hverj-
um ber okkur að hlýða“, verður
fluttur kl. 13.40 á sunnudag. Fyrir-
lesturinn verður túlkaður á táknmál
heyrnarlausra.
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á
síðustu sætunum til Portúgals 17. og 24.
ágúst. Njóttu lífsins á þessum vinsæla
sumarleyfisstað. Þú bókar sæti og fjórum
dögum fyrir brottför færðu að vita hvar
þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Portúgals
17. eða 24. ágúst
frá kr. 29.990
Síðustu sætin
Verð kr. 29.990 í viku
Verð kr. 39.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
í íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn.
Stökktu tilboð 17. og 24. ágúst. Verð kr. 39.990 í viku
Verð kr. 49.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í
2 vikur. Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn. Stökktu tilboð 17. og 24. ágúst.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
GUÐMUNDUR Karl
Ásbjörnsson opnar í
dag kl. 17 sýningu á
verkum sínum í
Safnahúsinu á
Húsavík.
Undanfarin ár
hefur Guðmundur
haldið einkasýn-
ingar í borgum víða
um Þýskaland og
Belgíu. Sýningin á
Húsavík er fyrsta
sýning Guðmundar
Karls á Íslandi í 11 ár en á Húsavík á hann
sínar æskuslóðir og þar hófst listamanns-
ferill hans, að því er segir í tilkynningu.
Sýningin stendur til loka ágústmánaðar
en um þessa helgi standa jafnframt yfir
Mærudagar Húsvíkinga með margvís-
legum menningarviðburðum.
Guðmundur Karl Ás-
björnsson í Safnahúsinu
„… ertu að hringja frá Reykjavík?
Pabbi söng þar einu sinni … hlýtur
að hafa verið á sjötta eða sjöunda ára-
tugnum, – með sinfóníuhljómsveit-
inni ykkar. Annars hef ég engar hug-
myndir um Ísland, veit ekki einu
sinni hvernig það lítur út.“ Bobby
McFerrin talar og rifjar upp þegar
faðir hans, Robert McFerrin eldri,
óperusöngvari söng fyrir þessa litlu
þjóð langt í burtu fyrir hartnær hálfri
öld.
Bobby McFerrin yngri þekkja allir
af sígilda smellinum hans Don’t
Worry, Be Happy. Færri vita senni-
lega að hamingjusöngvarinn frá New
York er fjarri því að vera nokkurt
„eins smells undur“ því ferill hans var
á fljúgandi ferð áður en smellurinn
góði greip heimsbyggðina undir lok
níunda áratugarins, og hefur verið á
fljúgandi ferð æ síðan. Bobby
McFerrin á tíu Grammy-verðlaun í
handraðanum og hefur unnið og er
enn einn eftirsóttasti tónlistarmaður
heims. Foreldrar hans voru báðir óp-
erusöngvarar, og faðir hann komst á
spjöld sögunnar sem fyrsti blakki óp-
erusöngvarinn sem ráðinn var í sól-
istalið Metropolitan-óperunnar. Fjöl-
skyldan fluttist til
vesturstrandarinnar þegar faðir hans
var valinn til að syngja fyrir stórleik-
arann Sidney Poitier í Holly-
woodmyndinni eftir söngleiknum
Porgy og Bess.
Bobby McFerrin er hámenntaður í
tónlist og er sjálfur öflugur tals-
maður almennrar tónlistarmennt-
unar. Eftir stóra smellinn þótti ýms-
um það sérkennilegt, að hann lét sig
hverfa af sjónarsviðinu til þess að
læra hljómsveitarstjórn. Á þeim vett-
vangi hefur hann ekki síður látið til
sín taka en í söng og hljóðfæraleik.
Plötur hans með eigin tónlist hafa
selst í meir en 20 milljón eintökum,
og hann vinnur með jafn ólíkum tón-
listarmönnum og sellóleikaranum
Yo-Yo Ma, Chick Corea, Fílharm-
óníusveitinni í Vínarborg og Herbie
Hancock; leikaranum Jack Nichol-
son, dansaranum Savion Glover,
grínistunum Robin Williams og Billy
Crystal, og áheyrendum sínum um
allan heim.
„Jú, áheyrendurnir eru mik-
ilvægir, þeir eru náttúrulega þarna –
alltaf, og ég hef þörf fyrir að hafa þá
með og virkja þá í prógramminu. Það
er ekki þannig að ég láti þá syngja
með, trallala … ég kenni þeim ákveð-
in stef – set þá í hlutverk hljóm-
sveitar, eða gera eitthvað skemmti-
legt með mér. Samt er þetta að mestu
spunnið á staðnum. Ég gríp augna-
blikið og læt þetta gerast eðlilega. Ég
er auðvitað alltaf með tilbúið pró-
gramm, en það ræðst á staðnum
hvernig úr því vinnst.“
McFerrin segir áheyrendur mis-
munandi, og stundum geti þurft að
hrista svolítið upp í þeim til að fá þá
til að slaka á og njóta þess að vera
með. „Svo kemur það líka fyrir að ég
verð hreinlega að hafa hemil á saln-
um ef áheyrendur eru of fúsir. En
niðurstaðan er alltaf sú sama – áheyr-
endur eru þátttakendur í tónleik-
unum á einhvern hátt.“
Hann hlær þegar hann er spurður
hvað hann ætli að gera með íslensk-
um áheryendum á tónleikunum í Há-
skólabíói. „Hef ekki hugmynd, – ekki
nokkra einustu hugmynd.“
Með McFerrin á tónleikunum
syngur Kammerkór Langholts-
kirkju, og kveðst McFerrin hlakka til
að hitta kórinn. „Við verðum kannski
með nokkur lög tilbúin, en svo er að
sjá hvort ég geti ekki spunnið eitt-
hvað með þeim, eða þau með mér.“
Bobby McFerrin er á tónleikaferð
um Evrópu, og kveðst ekkert semja á
meðan. Tónleikaferðirnar taki á, en
eftir þessa ferð taki við ár í skapandi
vinnu og tónsmíðar. „Ég sæki mér
hugmyndir og innblástur í hvað sem
er. Ég tek mér alltaf góðan tíma í
hugmyndavinnu; – hugmyndirnar
geta sprottið af lagstúf sem ég raula,
eða þegar ég sit við hljómborðið. Ég
tek mér líka tíma í að vinna vel úr
hugmyndunum. Tónlistin getur svo
verið hvernig sem er og flokkast í
hvaða tegund sem er. Það skiptir mig
minna máli. Í lok sjöunda áratugarins
var ég í tónsmíðanámi, og þá voru
uppi alls konar hugmyndir um sam-
runa tónlistartegundanna og mikill
áhugi fyrir slíku. Rokkararnir unnu
með klassíkerunum og klassíkerarnir
með djassistunum. Miles Davis setti
saman hljómsveit sem spilaði bæði
rokk og djass; Mahavishnu var vin-
sæl hljómsveit, líka Weather Report,
– rokkarar innbyrtu áhrif frá Asíu og
Afríku, – líka úr klassíkinni, eins og
Moody Blues. Það var mikið farið yfir
alls konar landamæri í þá daga og í
þannig músíkumhverfi var ég alinn
upp. Fyrir mig er þetta því allt eðli-
legt og ekkert eitt öðru æðra.“
Tónlist | Bobby McFerrin með Kammerkór Langholts-
kirkju og áheyrendum í Háskólabíói á þriðjudagskvöld
Ég hef þörf fyrir að
virkja áheyrendur
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„Hef ekki hugmynd – ekki nokkra einustu hugmynd,“ segir Bobby McFerr-
in um prógrammið sem hann ætlar að spinna með Kammerkórnum og
áheyrendum á tónleikunum í Háskólabíói.
„MEÐAN ég var enn-
þá í starfi sem prófess-
or við Háskólann í
Reykjavík var ég byrj-
aður að skrifa um mál-
skot í einkamálum,“
segir Jón Steinar
Gunnlaugsson hæsta-
réttardómari en hann
hefur gefið út bókina
Um málskot í einka-
málum.
„Ég tók mig síðan
til í vetur og lauk við
ritun bókarinnar sem
fjallar um Hæstarétt
og málskot þangað í einkamálum en
ekki í sakamálum.“
Jón segir að bókin skiptist í þrjá
hluta þar sem í fyrsta hluta er
fjallað um Hæstarétt, skipan hans
og starfssvið. „Einnig nokkur atriði
sem varða skipun dómara, yf-
irstjórn réttarins, vanhæfi dómara
til meðferðar einstakra mála og
einnig almennt um önnur verkefni
dómstólsins en dómsúrlausnir. Síð-
an er í bókinni fjallað um tvenns
konar málskot til Hæstaréttar, þ.e.
annars vegar áfrýjun og hins vegar
kæru, og farið er yfir réttar-
farsreglur sem gilda fyrir réttinum.
Það hefur verið vöntun á skrifum
um þetta efni þar sem ekki hefur
verið skrifað um það á Íslandi í nær
40 ár. Það var orðið tímabært þar
sem gerðar voru mjög miklar breyt-
ingar á lögunum um málskot upp úr
1990.“
Tíu heilræði um
munnlegan málflutning
Í bókinni eru nefndir til sögunnar
á þriðja hundrað dómar sem flestir
eru frá seinustu árum og farið yfir
allt sviðið sem varðar málskots-
reglur og réttarfar í Hæstarétti.
„Bókin ber öðrum þræði einkenni
þess að ég hef verið málflutnings-
maður og sérstaklega er vikið að
munnlegum málflutningi. Ég birti
t.d. tíu heilræði um
munnlegan málflutning
sem ég samdi fyrir all-
mörgum árum fyrir þá
sem ég var að kenna á
námskeiðum um mál-
flutning og þessi heil-
ræði eru byggð á minni
reynslu til nokkurra
áratuga.
Þessi bók er auðvit-
að ætluð öllum sem
vilja fræðast um
Hæstarétt og starfsemi
hans og þær reglur
sem gilda um rekstur
dómsmála við réttinn.
Hún ætti þó að hafa
mest notagildi fyrir
hæstaréttarlögmenn og laganema.“
Jón Steinar segir það mjög
ánægjulega þróun að meðferð mála
taki núorðið skemmri tíma en áður.
„Fresturinn sem líður frá því mál er
tilbúið og þar til það er tekið fyrir
hefur styst til mikilla muna frá því
sem áður var. Það eru mjög ánægju-
leg tíðindi og ástandið í því er orðið
mjög vel viðunandi og jafnvel betra
en í nágrannalöndunum.“
Áfrýjun og kæra
Hann segir grundvallarmun á
áfrýjun máls til Hæstaréttar og
kæru. „Með áfrýjun leita menn end-
urskoðunar á endanlegri dóms-
úrlausn í héraði í tilteknu máli. Með
kæru er verið að skjóta til Hæsta-
réttar úrskurðum héraðsdómara um
formsatriði sem snerta rekstur
dómsmálanna. Meðferð kærumál-
anna er miklu einfaldari en áfrýj-
unarmálanna. Kæran er skrifleg en
áfrýjunin er rekin munnlega fyrir
réttinum. Annar flokkur kærumál-
anna er mál á sviði fullnusturétt-
arfars þar sem t.d. er verið að leita
eftir fullnustu á fjárkröfu með aðför
eða gjaldþrotaskiptum og ef upp
kemur ágreiningur þá er honum
skotið til héraðsdóms og ef menn
sætta sig ekki við niðurstöðu hans
er hægt að skjóta henni til Hæsta-
réttar með kæru.“
Bækur| Jón Steinar Gunnlaugsson
hefur gefið út bók um málskotsrétt í
einkamálum
Ekki verið
skrifað um
efnið í 40 ár
Eftir Hávar Sigurjónsson
havar@mbl.is
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Guðmundur Karl
Ásbjörnsson