Morgunblaðið - 06.08.2005, Side 2

Morgunblaðið - 06.08.2005, Side 2
2 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HERT HRYÐJUVERKALÖG Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, kynnti í gær drög að nýj- um hryðjuverkalögum en hann von- ast til að þingið samþykki þau fyrir árslok. Í þeim segir að reka megi þá úr landi sem ýta á einhvern hátt undir ofbeldi og hatur. Þá munu tvenn samtök öfgafullra múslíma verða bönnuð og lögreglu verður heimilað að loka moskum sjái hún ástæðu til. Róttækir múslímar og nokkrir fulltrúar mannréttinda- samtaka hafa fordæmt lagadrögin en talsmenn tvennra samtaka hóf- samra múslíma hafa fagnað þeim. Samningur um Símann Skrifað var undir kaupsamning vegna sölu Símans í Þjóðmenning- arhúsinu í gær. Fjármálaráðherra undirritaði samninginn og segir hann merkan áfanga. Samkeppn- isstofnun á eftir að samþykkja kaup- in en þá fer greiðslan fram. Peningamenn í paradís Ríkisskattstjóri hefur áhyggjur af því að íslenskir aðilar stofni í vax- andi mæli erlend eignarhaldsfélög í svokölluðum skattaparadísum. Skemmdarverk í Skriðdal Skemmdarverk var unnið á jarð- streng RARIK í Skriðdal nálægt Egilsstöðum. Forstjórinn segir um mikið tjón að ræða. Ekki er vitað hver vann verkið. Y f i r l i t Í dag Úr verinu 10 Umræðan 30/33 Viðskipti 14 Bréf 33 Erlent 18/19 Minningar 35/39 Höfuðborgin 21 Messur 40 Akureyri 22 Kirkjustarf 40 Suðurnes 22 Dagbók 44 Árborg 23 Víkverji 44 Landið 24 Velvakandi 45 Ferðalög 24/25 Staður og stund 46 Daglegt líf 26/ Menning 50/53 Listir 27 Ljósvakamiðlar 54 Forystugrein 28 Veður 55 Úr vesturheimi 30 Staksteinar 55 * * * Kynningar – Kynningarrit frá Terra Nova fylgir blaðinu í dag. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %         &         '() * +,,,                     KJARTAN Hauksson ræðari, sem rær í kringum landið til styrktar hjálparliðasjóði Sjálfsbjargar, var staddur á Vík í Mýrdal í gærkvöldi. Hann hafði þá lagt að baki tæplega hundrað kílómetra á 28 klukku- stundum en hann lagði upp frá Ing- ólfshöfða og reri að Kötlutanga. Kjartan reri hins vegar ekki alla leiðina að Vík eins og hann ætlaði sér í fyrstu þar sem festingar fyrir sleðann undir sætinu í bátnum gáfu sig. „Ég var ekki í neinni hættu vegna þessa en þetta truflaði mig mikið og því þurfti ég að fara í land fyrr en ég ætlaði mér,“ sagði Kjartan en hann rær nú erfiðasta hluta leiðar sinnar. Búið var að lagfæra skemmdirnar á bátnum í gærkvöldi en Kjartan vonaðist til þess að geta haldið af stað í dag. Þá ætlaði hann að róa eins langt og hann mögulega gæti – enda stutt eftir. „Maður er eiginlega farinn að sjá Reykjavík,“ sagði Kjartan í léttum tón en hann telur það mögulegt að ná á leiðarenda um aðra helgi verði veður honum hagstætt. Kjartan ræðari segist eigin- lega farinn að sjá Reykjavík Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Haukur Kjartansson og Kjartan Hauksson við farkosti sína. TALSMENN ís- lensku flugfélag- anna, Icelandair og Iceland Ex- press, segjast fagna hinni vænt- anlegu sam- keppni frá British Airways, en segj- ast ekki ætla að bregðast sér- staklega við henni. Guðjón Arn- grímsson, upplýs- ingafulltrúi Ice- landair, segir að markaðurinn hafi farið vaxandi. „Það hefur mikið markaðsstarf verið unnið í London og í Bret- landi almennt þannig að farþegum hefur fjölgað verulega á þessum leiðum.“ Birgir Jónsson hjá Iceland Ex- press segir fyrirtækið hafa sannað að markaðurinn stækkar þegar flug- ferðum fjölgar. „Þannig að ég held að þetta verði bara öllum til góða.“ Birgir Jónsson Guðjón Arngrímsson Borgarnes | Lögreglan í Borgarnesi var við umferðareftirlit í Norðurárdal í fyrrakvöld og mældi þá ökumann sem var að koma að norðan á 118 km hraða. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, stansaði ekki, þrátt fyrir stöðvunarmerki lögreglu, heldur jók hraðann og ók fram úr fjölda bifreiða og sumstaðar við háskalegar aðstæð- ur. Kallaður var út annar lögreglubíll sem kom á móti og náðist að stöðva ökumanninn eftir töluverða eftirför. Brjóta varð rúðu í bílnum til að ná ökumanninum út. Ökumaðurinn reyndist vera 17 ára stúlka sem ný- lega hafði fengið útgefin ökuréttindi. Stúlkan var talin vera í mjög annar- legu ástandi og fundust fíkniefni á henni og við leit í bifreiðinni fundust einnig fíkniefni og neyslutól. Eftir læknisrannsókn og skýrslutöku var stúlkunni ekið til síns heima. 17 ára stúlka í ann- arlegu ástandi reyndi að stinga lögreglu af Urðu að brjóta rúðu til að ná öku- manninum út BRESKA flugfélagið British Air- ways hyggst hefja áætlunarflug milli Íslands og Englands næsta vetur og er fyrsta ferðin ráðgerð sunnudag- inn 26. mars. Fljúga á fimm sinnum í viku árið um kring milli Keflavíkur og Gatwick-flugvallar ekki langt frá London. Becky Thornton, sem stýrir upp- lýsingadeild Evrópuflugs félagsins, segir fleiri áfangastöðum verða bætt við leiðakerfi BA á næstunni, t.d. Tirana í Albaníu, Izmir í Tyrklandi og Varna í Búlgaríu. „Við teljum að þessar nýju leiðir muni laða að ferða- menn sem leita nýrra og spennandi áfangastaða en gerum einnig ráð fyrir að þeir sem eiga viðskipta- erindi eða eru að heimsækja ætt- ingja og vini muni notfæra sér þess- ar nýju leiðir.“ Hún segir félagið sífellt endur- skoða leiðakerfi sitt um allan heim og bæta við nýjum áfangastöðum þegar tækifæri gefast. Leiðanet BA nær til 151 áfangastaðar í 72 löndum. Flogið verður á mánudögum, mið- vikudögum, föstudögum, laug- ardögum og sunnudögum. Fargjald er auglýst frá 22.900. Brottför frá Gatwick er kl. 7.30 að staðartíma og frá Keflavík er ráðgert að fljúga kl. 10.30. Komutími til Gatwick er 14.35. Flogið verður á B737-400 vélum en félagið er með 18 slíkar í rekstri. Alls telur flugvélaflotinn 287 vélar. Munu fljúga fimm ferðir í viku frá vordögum Reuters Flugfélagið British Airways tekur upp flug milli Íslands og Englands í vetur bragðsáætlun, því ákveðið að rýma ekki flugstöðina meðan sprengjunnar var leitað. Allir tiltækir starfsmenn sýslumannsins tóku þátt í leitinni sem stóð í um klukkustund. Engin sprengja fannst. Flug tafðist ekki vegna hótunarinnar en einhverjar tafir urðu við innritunarborð og vopnaeftirlit. Tinna segir hótunina hafa verið þess eðlis að yfirvöld hafi talið líklegt að um gabb væri að ræða en þegar slík mál komi upp sé ekki hægt annað en að taka þau alvarlega. Þar sem konan hringdi úr farsíma sem var skráður á hana reyndist auð- velt að staðsetja símann á Akureyri en hins vegar fór nokkur tími í að finna konuna. Tinna segir lögregluna í Reykjavík og fjarskiptamiðstöð rík- islögreglustjóra hafa lagt sitt lóð á vogarskálarnar við rannsókn málsins líkt og lögreglan á Akureyri. „Sprengjuhótanir eru gríðarlega alvarlegt mál, ekki síst í ljósi atburða úti í heimi síðustu misserin, og ef ein- hverjir halda að þetta sé sniðugt þá er það mikill misskilningur. Þannig get- ur þetta haft mikinn kostnað í för með sér – ekki einungis fyrir lögreglu og yfirvöld heldur einnig fyrir þá far- þega sem eiga leið um flugstöðina,“ segir Tinna en sprengjuhótunin sem barst í gærmorgun er sú fyrsta á árinu hvað varðar flugstöðvarbygg- inguna og flugvélar sem eiga leið um Keflavíkurflugvöll. Grundvöllur fyrir saksókn? Að sögn Tinnu er þetta ekki í fyrsta sinn sem sjálfræðissviptur einstak- lingur kemur slíkri hótun á framfæri en nokkuð sé um liðið síðan það gerð- ist síðast. Tinna segir að þrátt fyrir að svipuð mál hafi verið látin niður falla verði látið reyna á það hvort grund- völlur sé fyrir því að sækja konuna til saka en sú staðreynd að hún er sjálf- ræðissvipt kunni þó að flækja málið. „Samráð verður haft við ríkissak- sóknara varðandi framhald málsins. Það þarf að fara yfir það hvaða mögu- leikar eru í stöðunni en þrátt fyrir að konan sé sjálfræðissvipt er ekki sjálf- gefið að hún sé ósakhæf. Ef það er einhver möguleiki á að sækja hana til saka er það einlægur vilji okkar að gera það. Okkur finnst þetta alvarlegt mál og viljum að á þessu sé tekið. Ef við komumst hins vegar að þeirri nið- urstöðu að ekki sé hægt að sækja konuna til saka er spurning hvort að í framtíðinni þurfi að endurskoða lög- gjöfina hvað þetta varðar.“ KONA á miðjum aldri var færð til yf- irheyrslu hjá lögreglunni á Akureyri um kvöldmatarleytið í gær en hún var grunuð um að hafa staðið fyrir inni- haldslausri sprengjuhótun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar snemma í gær- morgun. Konan sem um ræðir hefur áður komið við sögu lögreglu og er sjálfræðissvipt. Hún var samvinnu- þýð við lögreglu og telst málið upp- lýst. Þetta staðfesti Ellisif Tinna Víð- isdóttir, staðgengill sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Farsíminn skráður á konuna Tilkynning um sprengju barst fjar- skiptamiðstöð lögreglunnar um neyð- arnúmerið 112 um klukkan hálffimm í gærmorgun. Að sögn Tinnu var hót- unin óljós og var, í samræmi við við- Sjálfræðissvipt kona handtekin Innihaldslaus sprengjuhótun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærmorgun Fagna sam- keppninni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.