Morgunblaðið - 06.08.2005, Page 6
6 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16).
Ver› á mann í tvíb‡li á Holiday Inn Bloomington
11.-14. nóv., 25.-28. nóv. og 6.-9. jan.
Innifali›: Flug, gisting, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
www.icelandair.is/minneapolis
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Nú getur þú notað 10.000 Vildarpunkta
sem 5.500 kr. greiðslu upp í fargjaldið.
Flug og gisting í þrjár nætur
Verð frá 39.990 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
29
01
3
0
8/
20
05
Minneapolis
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
undirritaði í gær kaupsamning f.h.
íslenska ríkisins við Skipti ehf. um
kaup Skipta á 98,8% hlut ríkisins í
Landssíma Íslands. Kaupsamning-
urinn er gerður á grundvelli tilboðs
sem Skipti ehf. gerðu í hlutabréf
ríkisins í Símanum hinn 28. júlí sl.,
en það var hæst þriggja tilboða sem
bárust í eignarhlut ríkisins.
Greiðsla kaupverðsins, 66,7 millj-
arða króna, miðast við gengisskrán-
ingu Seðlabanka Íslands 27. júlí
2005. Fer greiðslan fram innan 5
virkra daga frá því að niðurstaða
Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir
og að því gefnu að stofnunin sam-
þykki kaupin fyrir sitt leyti.
Kaupverðið skiptist í eftirfarandi
gjaldmiðla: Íslenskar krónur:
34.505.550.000, evrur: 310.000.000
og Bandaríkjadali: 125.000.000.
Mikill og merkur áfangi
„Þetta er mikill og merkur
áfangi. Fyrirtækið fær nýja eigend-
ur sem ég treysti fyllilega til að
halda áfram að efla og bæta þá
þjónustu sem það er búið að veita í
u.þ.b. 100 ár. […] Ríkið er núna að
draga sig út úr fjarskiptarekstri eft-
ir heila öld, þar sem það hefur verið
ráðandi aðili í fjarskiptum, og mun
núna framvegis eingöngu hafa eft-
irlitshlutverki að gegna sem er auð-
vitað eðlilegt,“ segir Geir. Sam-
keppniseftirlitið mun nú fara yfir
samninginn og veita umsögn. Geir á
von á því að það gangi vel fyrir sig.
Að því loknu munu eiga sér stað
skipti á hlutabréfum og peninga-
upphæðinni sem reidd verður af
hendi, vonandi innan nokkurra
vikna að sögn Geirs. Hann fullyrðir
að þeim peningum verði ekki kastað
á glæ heldur ráðstafað í þágu þjóð-
arinnar.
Skólabókardæmi um vel
heppnaða einkavæðingu
Lýður Guðmundsson, stjórnarfor-
maður Bakkavarar sem nú verður
kjölfestufjárfestir í Símanum með
45% hlut, segist mjög ánægður með
kaupin á Símanum. „Við berum
fyllsta traust til starfsmanna og
stjórnenda Símans og ætlum að
tryggja að hann verði áfram eft-
irsóknarverður vinnustaður,“ sagði
Lýður.
„Það er ekki vandalaust að ann-
ast sölu á fyrirtæki sem á jafn stór-
an sess í vitund þjóðarinnar. Ég vil
því taka undir með þeim sem segja
að sala Símans sé skólabókardæmi
um vel heppnaða einkavæðingu. Allt
ferlið er þeim sem að því stóðu til
sóma,“ bætti Lýður við.
„Þátttaka lífeyrissjóða tryggir af-
komu stórs hluta landsmanna af
fyrirtækinu og með skráningu fé-
lagsins munu enn fleiri hluthafar
bætast í hópinn. Með nýjum eig-
endum fullyrði ég að tryggt hafi
verið að Síminn eigi áfram öflugan
bakhjarl sem standa mun vörð um
fyrirtækið og viðskiptavini þess,“
sagði Lýður að lokum.
Skrifað var undir kaupsamning vegna Símans í Þjóðmenningarhúsinu í gær
„Mikill og merkur áfangi“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Geir H. Haarde fjármálaráðherra undirritaði samninginn f.h. ríkisins í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Við hlið hans
eru bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir en Exista ehf. er í meirihlutaeigu Bakkabræðra Holding.
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra sagði við undirritun á sölu
Símans í gær að löngu og ströngu
ferli væri lokið, nú þegar búið væri
að undirrita kaupsamning um þetta
mikilvæga mál. „Það hefur einkar
vel tekist til og á ríkisstjórnarfundi
rétt áðan lýsti ríkisstjórnin öll sér-
stakri ánægju með þetta mál og
þakkar öllum þeim fjölmörgu að-
ilum sem að því hafa komið,“ sagði
Halldór.
„Síminn er afar mikilvægt fyr-
irtæki fyrir fámenna þjóð eins og
okkar. Samfélagslegt hlutverk
þessa fyrirtækis er mjög brýnt og
það er mikilvægt að fyrirtækið njóti
áfram trausts þjóðarinnar og ég er
sannfærður um að það muni gerast.
Við gerum miklar væntingar til
nýrra eigenda og við treystum þeim
jafnframt fyllilega fyrir því að
byggja það enn frekar upp og efla
það og bjóða betri þjónustu en
nokkru sinni fyrr,“ sagði Halldór.
Ríkið fékk sanngjarnt verð
„Ríkisvaldið hefur nú alfarið
dregið sig út úr samkeppnisrekstri
á fjarskiptamarkaði og ég er sann-
færður um að ríkið hafi fengið
sanngjarnt verð með þessari sölu
Ég vænti þess að kaupendur hafi
jafnframt greitt fyrir það sann-
gjarnt verð og mikilvægt að báðir
aðilar séu ánægðir með þennan
samning,“ sagði Halldór enn-
fremur.
„Ég vil fyrir hönd ríkisstjórn-
arinnar óska kaupendum og þjóð-
inni innilega til hamingju með
þennan merka áfanga og ég óska
nýjum eigendum velfarnaðar í
rekstrinum í framtíðinni og er
sannfærður um að bæði starfsfólkið
og þjóðin öll eigi eftir að njóta
krafta þeirra,“ sagði Halldór að
lokum.
Löngu og ströngu ferli lokið
„STRENGURINN var sagaður
sundur, líklegast með járnsög,“ segir
Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri
RARIK, en uppgötvast hefur að jarð-
strengur, sem fyrirtækið vinnur að
því að leggja frá Hryggstekk í Skrið-
dal og niður að Stuðlum í Reyðarfirði,
hefur verið tekinn í sundur.
Tryggvi segir um milljónatjón fyrir
RARIK að ræða. Tæpt hefur verið á
þeirri staðreynd að skemmdarverkið
hafi verið unnið nálægt tjaldbúðum
mótmælenda vegna Kárahnjúka-
virkjunar og álvers í Reyðarfirði. „Við
höfum ekkert með rafmagn fyrir
bændur og búalið að gera,“ segir
fulltrúi mótmælendanna hins vegar.
Tengimenn frá Þýskalandi og
Tyrklandi eru nú að störfum við
strenginn. „Það var búið að leggja
strenginn niður og sanda yfir en ekki
búið að ganga frá endanlega. Svo
virðist sem sandurinn hafi verið mok-
aður ofan af, skorið á einn strenginn
og annar skaddaður og mokað svo yf-
ir aftur,“ segir Tryggvi. Hann segir
strenginn ekki kominn alla leið en að
hann sé reglulega prófaður á leiðinni
meðan verið sé að setja hann saman.
„Við mælingar kom í ljós að eitthvað
var að. Þegar bilunin fannst kom
þetta í ljós. Þetta getur hafa gerst frá
síðasta laugardegi og þangað til í
fyrradag. Við vitum svo sem ekki
hver gerði þetta og viljum ekki hafa
skoðun á því. En þetta er óþægilega
nálægt mótmælendum á Vaði.“
Lögregla kom á staðinn, tók mynd-
ir og skýrslur og vinnur að rannsókn
málsins en RARIK hefur kært verkn-
aðinn. „Þetta er eins og hvert annað
skemmdarverk sem við viljum auðvit-
að sækja,“ segir forstjóri RARIK.
„Þetta er ekki okkar deild,“ segir
Ólafur Páll Sigurðsson, einn mótmæl-
enda sem nú hafast við á Vaði í Skrið-
dal. „Mér finnst þetta svolítið grugg-
ugt,“ segir hann og bætir við að svo
virðist sem reynt sé að klína verkn-
aðinum á mótmælendurna. „Ég lýsi
því yfir sem mótmælandi gegn stór-
iðjuvæðingu og virkjanabrjálæði á Ís-
landi að við höfum engan áhuga á að
standa í skemmdarverkum á raf-
magni til heimila í landinu.“ Þess utan
benti Ólafur á að „þeir sem standa
fyrir skemmdarverkum í landinu eru
Landsvirkjun, Impregilo og Alcoa.“
Skemmdarverk unnið á
jarðstreng í Skriðdal
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
Mótmælendur „engan áhuga á rafmagni til heimila“
MYNDBANDALEIGA, þátta-
sölusjónvarp og beinar útsending-
ar allan sólarhringinn eru nokkrir
þeirra möguleika sem VefTV, ný
þjónusta á Vísi.is, býður notend-
um upp á. Um er að ræða gagn-
virkt sjónvarpsefni í stafrænum
gæðum sem allir með ADSL-
tengingu geta nýtt sér. Ekki er
þörf á að gerast áskrifandi að sér-
stakri ADSL-þjónustu til þess að
eiga þess kost að horfa á VefTV.
Hluti sjónvarpsefnisins verður í
boði endurgjaldslaust en einnig
verður hægt að kaupa áskrifta-
leiðir að þáttum, kvikmyndum og
íþróttaefni gegn vægu gjaldi. Nú
þegar er hægt að panta sér kvik-
myndir og þætti og í vetur bætast
beinar útsendingar af ýmsum við-
burðum við þjónustuna.
Pálmi Guðmundsson, markaðs-
stjóri 365, segir VefTV vera bylt-
ingarkennda nýjung fyrir áhorf-
endur. „Það hefur lengi verið
markmið okkar að koma upp þjón-
ustu sem þessari og loksins núna
er það orðið tæknilega mögulegt.“
Myndbandaleiga á VefTV
Erlendir mótmælendur
virkjunar og álvers
Athugað
með brott-
vísun úr
landi
Í DAG verður athugað hvort efni
standa til að vísa erlendum mót-
mælendum vegna Kárahnjúka-
virkjunar og álvers í Reyðarfirði úr
landi. Þetta segir sýslumaðurinn á
Eskifirði, Inger L. Jónsdóttir. Hún
segir að unnið verði í málinu með
Ríkislögreglustjóra og Útlendinga-
eftirlitinu.
„Við vorum með inngrip í gær
[fyrradag] og þrettán voru hand-
teknir. Enn er verið að vinna í mál-
inu og ekki hefur verið tekin af-
staða til framhaldsins. Fyrir liggur
að Alcoa ætlar ekki að kæra og því
er verið að meta ýmsar hliðar.“
Aðspurð segir Inger það binda
hendur yfirvalda töluvert hvað
verktakinn eða Alcoa gerir, en
engu að síður séu nokkrar aðrar
hliðar á málinu. „Afstaða verður
tekin þegar rannsóknargögn liggja
fyrir.“
Útlendingastofnun
láti sig málið varða
„Útlendingastofnun hlýtur að
taka þetta til skoðunar,“ segir Þór-
ir Oddsson aðstoðarríkislögreglu-
stjóri. Hann segir að embættið
komi m.a. að málinu með því að
senda menn til að styrkja löggæsl-
una en Morgunblaðið greindi frá
því í gær að sérsveitarmenn hefðu
náð í mótmælendur upp í krana á
byggingarsvæði Alcoa.
„Það er auðvitað eðlilegt þegar
svona gerist og lögregla þarf að
blanda sér í það, að skoða hvaða
lagaákvæði taka til þessa og hvort
lög hafa verið brotin.“
Þórir segir jafnframt að eins og
alltaf þegar útlendingar eigi í hlut
og þeirra háttsemi gefi tilefni til
afskipta yfirvalda sé eðlilegt að Út-
lendingastofnun láti sig málið
varða og meti hvort efni séu til að-
gerða.
aps@mbl.is