Morgunblaðið - 06.08.2005, Page 11

Morgunblaðið - 06.08.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 11 FRÉTTIR           !"#" $ %& '( )*'  + , - GEIR H. Haarde fjármálaráðherra og Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telja að það beri að endurskoða vaxtabótakerfið en Einar K. Guðfinnsson, þing- flokksformaður Sjálfstæðisflokks- ins, skrifaði grein í Morgunblaðið í gær þar sem hann leggur til að vaxtabótakerfið sé afnumið í þágu atvinnuöryggis. Fram kemur í greininni að kerfið sé ríflega fimm milljarða niðurgreiðslu- og milli- færslukerfi, að hluta frá lands- byggð á höfuðborgarsvæðið. Geir H. Haarde fjármálaráð- herra kveðst þeirrar skoðunar að það þurfi að endurskoða vaxtabóta- kerfið frá grunni. „Einar bendir þarna á annan flöt [atvinnuöryggi og landsbyggðaráhrif] á því máli sem menn hafa kannski ekki hug- leitt sérstaklega. Ég tel að það sé mjög til góðs að vekja umræðu um málið. Menn verða að fara yfir þetta með opnum huga hvort kerfið í núverandi mynd eigi rétt á sér, líka með tilliti til að vextir hafa ver- ið að lækka á íbúðalánum. Og það er enginn gerður greiði með því að vilja ekki fara í gegnum það hvern- ig þessi breytta staða hefur áhrif á þetta kerfi,“ segir Geir. Má ekki vera heilög kýr „Ég held að það hljóti að koma til álita að endurskoða þetta kerfi [vaxtabótakerfið]. Það má ekki vera nein heilög kýr,“ segir Ari Ed- wald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA). Hann telur þau skilaboð sem felast í fyrirkomulagi vaxtabóta varasöm, þ.e. stuðningur við íbúðarkaup sé háður skuldsetn- ingu. „Fólk er hvatt til þess að skulda sem mest. Ég held að það sé nú kannski ekki það sem við þurf- um á Íslandi. Ég tel að uppeld- ismarkmið lagasetningar á þessu sviði ættu að vera alveg þveröfug,“ segir Ari en undirstrikar að SA séu ekki með þessu að leggja til að horfið sé frá stuðningi við þá sem höllustum fæti standa á íbúðamark- aði. Heldur sé verið að taka undir það að menn geti velt fyrir sér hvernig eigi að standa að því. „Það má alveg færa rök fyrir því að þetta vaxtabótakerfi sé óskilvirk aðferð við að aðstoða þá sem þurfa á því að halda,“ segir Ari og bætir því við að skuldsetning sé afar óheppileg. Skýringa á þenslu að leita annars staðar Grétar Þorsteinsson, forseti Al- þýðusambands Íslands (ASÍ), telur það afar langsótt að meginorsökina fyrir þenslunni og vandanum í efnahagskerfinu í dag sé að finna í vaxtabótakerfinu. „Mér finnst líka athyglisverðar hugmyndir um að leggja vaxtabótakerfið nánast nið- ur, þótt það sé nú kannski aðeins fyrirvari í lok greinarinnar hjá hon- um [Einari], á sama tíma og stjórn- völd eru búin að lækka sérstaklega skatta á hátekjufólki. Það er nokk- uð ljóst að þeir sem njóta vaxta- bótakerfisins umfram aðra eru lág- tekjufólk og að hluta milli- tekjufólk,“ segir Grétar. Varðandi ástandið í efnahagskerfinu bendir Grétar á að ASÍ hafi varað við því að það væri mjög mikilvægt að stjórnvöld sýndu verulegt aðhald í ríkisfjármálum, alveg frá þeim tíma að ákvörðun lá fyrir með fram- kvæmdir á Austurlandi. Sá fyrir- vari var þó settur á að aðhaldið mætti ekki bitna á velferðarkerfinu og tekjulægstu einstaklingunum. „Síðan gagnrýndum við mjög tíma- setningu á skattalækkunum, hvað sem nú má segja um þær að öðru leyti,“ segir Grétar og bætir því við að það sama hafi verið upp á ten- ingnum varðandi þær breytingar sem hafi átt sér stað í húsnæð- islánakerfinu. „Þarna eru að okkar viti meginskýringarnar,“ segir Grétar varðandi vandann í efna- hagskerfinu. Aðhald í opinberum fjármálum „Við viðurkennum það og sjáum að þarna er tillaga um aðhald í op- inberum fjármálum. Við höfum margsinnis talað um nauðsyn þess og hvatt til þess. Hins vegar erum við ekki í þeirri stöðu að taka tillit til einstakra tillagna,“ segir Jón Sigurðsson seðlabankastjóri. Hann segir að það sé nauðsynlegt fyrir Seðlabankann að horfa á heildar- myndina, þ.e. hvort peningarnir séu notaðir í eitthvað annað eða það verði til þess að efla aðhald í ríkisrekstrinum eins og Einar gerir tillögu um. Viðbrögð við grein Einars K. Guðfinnssonar þingmanns Vaxtabóta- kerfið ber að endurskoða Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is „OKKUR hefur ekki gengið vel ennþá,“ sagði Víkingurinn Valdís, sem ásamt stöllum sínum í félaginu tekur þátt í Pæjumótinu sem nú stendur yfir á Siglufirði. Tveir leik- ir höfðu tapast, 1:0 fyrir Breiðabliki og 2:0 fyrir Fylki, „en ég vona að okkur eigi eftir að ganga vel á mótinu.“ Pæjumótið er nú haldið í 15. sinn. Það var fyrst haldið árið 1991, en þá var það lítið og nett mót sem ein- ungis var sótt af norðlenskum lið- um, einkum úr Eyjafirði. Nú taka þátt 158 lið frá 31 félagi víðs vegar af landinu og hefur það aldrei verið stærra, að sögn Almars Möller í mótsstjórn. Um er að ræða lið allt frá 4. flokki upp í 6. flokk, stúlkur á aldrinum 4ra til 14 ára og eru kepp- endur um 1.400 talsins. Leikið er á 10 völlum, og alls eru leiknir rúm- lega 600 leikir þá þrjá daga sem mótið stendur. Keppendum fylgja þjálfarar, liðsstjórar, foreldrar, systkini og aðrir áhangendur þann- ig að Almar taldi að um 5-6.000 manns væru saman komin á Siglu- firði nú um helgina. Starfsmenn mótsins eru vel á annað hundraðið, þeirra á meðal eru KS-ingar og brottfluttir Sigl- firðingar sem koma gagngert til að aðstoða. Það þarf að dæma, standa vaktir í eldhúsi og hvaðeina. „Þetta er mikill undirbúningur, en hefst með lagni. Það leggja margir hönd á plóginn, annars væri þetta ekki hægt,“ sagði Almar. Pæjumótið hefur vaxið ört á liðnum árum og sagði Almar að ekki hefðu öll þau lið sem sóttu um að taka þátt kom- ist að, biðlisti hefði myndast. „Helstu vandræðin eru varðandi gistingu, það þarf að koma öllum þessum fjölda fyrir,“ sagði hann en þátttakendur gista í skólum, sölum um allan bæ og húsum, en foreldr- arnir eru flestir á tjaldsvæðum. Mikil læti í sumum stelpunum Víkingsstelpurnar Valdís, Hjör- dís, Hildur, Birna, Katla og Anna voru léttar og kátar á mótssvæðinu í gær þrátt fyrir að lið þeirra hefði tapað tveimur fyrstu leikjum sínum og að kalt væri í veðri, rigning sem þær klæddu af sér með þar til gerð- um regnslám. Þær sögðu að vel hefði gengið á Gullmótinu sem haldið var í liðnum júlímánuði, þar hafi þær lent í 7. sæti, en heppnin var ekki með þeim þegar kastað var upp á milli liða um sæti. „Við hefðum alveg eins getað lent í fyrsta sæti, en heppnin var ekki með okkur,“ sagði Hildur. Stelpurnar voru sammála um að gaman væri að taka þátt í Pæju- mótinu og það væri skemmtilegt að vera á Siglufirði. Þær gista í skóla- húsnæði, „en það er ekki hægt að sofa þar, af því að það eru svo mikil læti í sumum stelpunum,“ sagði Hjördís. Sjálfar kváðust þær vera þægar og góðar á kvöldin, og reyna bara að loka eyrunum og segja há- vaðabjöllunum að þegja. Slæmt að tapa fyrsta leiknum Sandra og Bryndís komu á Pæju- mótið frá Egilsstöðum, þær leika með 5. og 6. flokki Hattar og höfðu áður tekið þátt í mótinu. „Það mætti nú alveg vera sól og blíða eins og síðast,“ sagði Sandra, en bætti við að það þýddi lítið að láta rigningu setja sig út af laginu. Hattarstúlkur höfðu leikið einn leik um hádegi í gærdag, og tapað, 4:0, fyrir Fjölni. „Það var slæmt,“ sögðu þær. „Annars stefnum við bara að því að standa okkur vel og hafa gaman af þessu,“ sagði Sandra. Um 1.400 stelpur taka þátt í Pæjumótinu á Siglufirði Ætla að standa sig vel og hafa gaman af Morgunblaðið/Margrét Þóra Þær eru miklir Víkingar, Valdís, Hjördís, Hildur, Birna, Katla og Anna og létu því kalsann í veðrinu á Sigló ekki á sig fá, smelltu sér bara í regnslár sem keppendum stóð til boða að skrýðast meðan vatnsveðrið gekk yfir. Þær Sandra og Bryndís leika með 5. og 6. flokki Hattar á Egilsstöðum og sögðu aðalmálið að standa sig sem best. Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is Unnur Ólöf er Þróttari af lífi og sál og var alls ófeimin við að skarta merki félagsins á báðum kinnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.