Morgunblaðið - 06.08.2005, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.08.2005, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMM tyrkneskir hermenn biðu bana í gær í sprengjuárás sem talin er hafa verið gerð af uppreisn- armönnum úr röðum Kúrda. Að minnsta kosti sex til viðbótar eru særðir. Árásin átti sér stað í bænum Semdinli, sem liggur við landamæri Tyrklands að Íran og Írak. Síðastliðna mánuði hafa kúr- dískir uppreisnarmenn farið mik- inn í árásum sínum á bæði óbreytta borgara og hermenn, en sex her- menn biðu bana í sprengingu í byrj- un júlí. Kúrdíski verkamannaflokkurinn (PKK) tók upp vopnaða baráttu fyr- ir sjálfstæði árið 1984. Síðan hafa 37.000 manns hið minnsta látið lífið í baráttunni, flestir Kúrdar. Árið 1999 lýsti flokkurinn yfir einhliða vopnahléi en greip aftur til vopna árið 2004, þar sem tyrknesk stjórn- völd þóttu ekki ganga nógu langt í að tryggja réttindamál Kúrda. Danir vilja hert eftirlit 72% Dana vilja fleiri eftirlitsmynda- vélar á opinberum stöðum í því skyni að koma í veg fyrir hryðju- verkaárásir, að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun Greens- stofnunarinnar. Rúmlega helmingur vill auka fjárframlög til lögreglunnar til að gera hana betur í stakk búna til að taka á hryðjuverkum. 58% segjast vilja rýmka reglugerðir er leyfa símahleranir lögreglu. Þá sögðust 53% telja að lögreglu ætti að vera heimilt að fylgjast með tölvupósts- endingum. Verkamenn barðir fyrir að tjá sig KÍNVERSK stjórnvöld kanna nú réttmæti ásakana um að allt að 30 manns hafi í vikunni ráðist að hópi farandverkamanna og barið þá með stálpípum. Verkamennirnir höfðu allir unnið hjá byggingafyr- irtæki sem lagði upp laupana í nóv- ember og áttu inni laun hjá fyr- irtækinu. Efndu þeir til blaðamannafundar í vikunni til að vekja athygli á máli sínu. Í kjölfar þess að verkamennirnir ræddu við blaðamenn leitaði hópur óþekktra manna þá uppi og barði þá illa. Þykir þetta til marks um að lögum, sem eiga að vernda farandverka- menn, sé sjaldan framfylgt. Skæruliðar myrða 14 í Írak FJÓRTÁN manns féllu í árásum skæruliða í Írak í gær. Fjórir her- menn féllu er árás var gerð á bif- reið þeirra nálægt borginni Sam- arra. Kona og nýfæddur sonur hennar féllu í sprengingu nálægt borginni Al-Dawr. Báðar eru þess- ar borgir í norðurhluta landsins. Þá var læknir skotinn á þjóðvegi milli Bagdad og Samarra. Byssumenn myrtu einnig mann á bensínstöð í borginni Dora er þeir hófu þar skothríð á fólk sem beið eftir því að taka bensín. Auk þeirra sem féllu í árásum í gær fundust lík fimm myrtra manna í borginni Mosul í norður- hluta landsins. Kúrdar drepa tyrkneska hermenn BRETAR geta vísað úr landi hverjum þeim sem þykir ógna öryggi borgaranna. Kom þetta fram hjá Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í gær er hann kynnti drög að nýjum hryðjuverkalögum. Sagði hann, að fólki yrði vísað úr landi æli það á hatri og boðaði ofbeldi. Samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu er bannað að vísa fólki úr landi sem búast má við að muni líða pyntingar eða dauða í heimalandi sínu. Sagði Blair ríkisstjórn sína þó reiðubúna að breyta lögum um mannréttindi ef á þyrfti að halda, yrði lagalegt réttmæti nýju aðgerðanna vefengt. Sagði hann breska gestrisni hafa verið misnot- aða. „Þessir menn koma hingað og hljóta að þurfa að fara eftir okkar reglum. Nú skulu menn hafa það á hreinu að reglur leiksins eru að breytast.“ Boðar nýja löggjöf Blair stefnir að því að fyrir árslok muni þingið samþykkja lög sem banna „óbeinan undirróður“ hryðjuverkamanna. Sé þeim sérstaklega beint gegn klerkum sem vegsami hryðjuverk og tæli hrifnæm múslímsk ungmenni til ódæðisverka. Eigi þau að hindra fólk í því að boða ofbeldi til að koma trúarsannfæringu á framfæri, réttlæta slíkt ofbeldi, samþykkja það eða ala á hatri. Lögin eiga að banna mönnum að sækja þjálfun í aðferðum hryðjuverkamanna, hvort sem er í Bret- landi eða annars staðar. Einnig sé það lögbrot að skipuleggja árásir og sækja upplýsingar um sprengjugerð á netið. Þá verði samtök heittrúar- múslíma á borð við Hizb ut-Tahrir og al-Muhaj- iroun og arftakar þeirra bönnuð. „Ennfremur munum við kanna hvaða grundvöll við höfum fyrir útlegðardómum og leggja fram frumvarp um slík lög,“ sagði hann. Blair boðar einnig hert eftirlit með því hverjum sé hleypt inn í landið. Nú verði fólki neitað um hæli í Bretlandi hafi það áður verið viðriðið hryðjuverk. Sagði hann Breta þolinmóða þjóð en „það [væru] takmörk fyrir því hversu öfgasinnaður minnihluti [gæti] misnotað þessa þolinmæði“. Á fimmtudag hótaði næstæðsti maður al-Qaeda- samtakanna að fleiri hryðjuverkaárásir yrðu gerð- ar á London og kenndi Blair um árásirnar 7. júlí, sem urðu 56 manns að bana. Blair var yfirvegaður er hann svaraði þessum ásökunum: „Þeir sem voru með þessar yfirlýsingar eru sömu mennirnir og eru að drepa saklausa borgara í Írak, í Afganistan, saklaust fólk víðs vegar um heiminn sem vill búa í lýðræðissamfélagi. Það að þeir skuli svo reyna að nota Írak eða Afganistan eða málstað Palestínu- manna til að réttlæta gjörðir sínar er fullkominn ruddaskapur.“ Segir hann leiðtoga breskra músl- íma standa heilshugar að baki þessari viðleitni til að brjóta hryðjuverkamenn á bak aftur og að þeir vilji sjálfir útrýma öfgamönnum úr sínum hópi. Miðstöð herskárra múslíma London hefur af mörgum verið uppnefnd „Londonistan“ upp á síðkastið og segja menn að Bretar hafi hingað til verið of frjálslyndir gagn- vart róttækum múslímaklerkum, London sé nú orðin miðstöð fyrir herskáa múslíma. Ian Blair, lögreglustjóri í London, fagnaði að- gerðunum en benti á að þó hefði verið betra að grípa til þeirra fyrr. „Þetta er England, Bretland, og við kærum okkur ekki um að hryðjuverkaá- róður eigi sér stað hér.“ Blair heitir hertum að- gerðum gegn öfgasinnum Vill vísa úr landi þeim sem ógna öryggi borgara, ala á hatri og boða ofbeldi AP Tony Blair á fundi með fréttamönnum í gær. Eftir Jóhönnu Sesselju Erludóttur jse@mbl.is GRÍÐARLEGIR hitar og þurrkar geisa nú um Suður-Evrópu og á Spáni og í Portúgal hafa aðrir eins þurrkar ekki verið í 60 ár. Miklir skógareldar hafa logað undanfarna daga af þessum sökum, einkum í Portúgal. Um 3.000 slökkviliðsmenn börðust í gær við skógarelda í Portúgal og voru 400 hermenn auk þess kallaðir út til að aðstoða slökkvilið við vinnu sína. Um er að ræða um tuttugu skógivaxin svæði í landinu og hafa eldarnir valdið skemmdum á húsum, bílum og landbúnaðartækjum. Þá varð að loka stærstu hraðbraut landsins í gær vegna eldanna, annan daginn í röð. Verst er ástandið í miðju landinu og í norðurhluta þess. Þar er hitinn víðast um 40 gráður og samkvæmt veðurspá verður hann það áfram næstu daga. Þar af leið- andi er varað við því að ástandið með tilliti til eldanna gæti jafnvel versn- að. Þurrkarnir hafa einnig valdið vatnsskorti á svæðum og þurfa nú um 53 þúsund manns í sveitahéruð- um að fá vatn sent til sín með flutn- ingabílum. Á Spáni hafa skógareldar einnig logað á tveimur svæðum undanfarna daga, en alls hafa 17 stórir skógar- eldar orðið í landinu í sumar. Þar hefur hiti einnig verið um 40 gráður og samkvæmt langtímaveðurspá verður hann það áfram út mánuðinn. Hömlur á vatnsnotkun í tveim- ur þriðju hlutum Frakklands Miklir þurrkar hafa einnig geisað í Frakklandi að undanförnu og eru hömlur nú settar á vatnsnotkun fólks í tveimur þriðju hlutum landsins. Í sumum héruðum hefur verið bannað að fylla sundlaugar í görðum, að vökva grasfleti við heimili, þvo bíla og götur. Lögregla fylgist með því að reglum þar um sé framfylgt og eru sektir við brotum allt að 1.500 evr- um, eða sem nemur 120 þúsund krónum. Þúsundir manna berj- ast við skógarelda Reuters Íbúar í útjaðri Leiria í Portúgal reyna að slökkva elda sem nálgast heimili þeirra úr nærliggjandi skógum. Mestu þurrkar í Portúgal og á Spáni í 60 ár NÝLEGAR rannsóknir gefa til kynna að það að taka inn vítamín í pilluformi hafi engin áhrif á það hvort fólk veikist af ýmsum sjúk- dómum, öfugt við það sem talið hef- ur verið. Í niðurstöðum þriggja rannsókna sem birtar hafa verið í lækna- tímaritum á undanförnum vikum er dregið í efa að stórir skammtar af vítamínum komi í veg fyrir að fólk veikist af alvarlegum sjúkdómum. Linda Van Horn, næringarfræð- ingur við Northwestern-háskóla í Chicago, sem vann að einni rann- sóknanna, segir í samtali við dag- blaðið Herald Tribune að næring- arefni sem keypt séu í glasi eða flösku geti ekki jafnast á við nær- ingarefnin sem finnast í mat. Ekki er fyllilega vitað hvers vegna lík- aminn vinnur á annan hátt úr vít- amínum sem berast honum í töflu- formi en þeim sem hann fær úr matvælum, en talið er að samspil efna í matnum eigi þátt í því hvern- ig líkaminn sogar til sín næring- arefnin úr honum. Ekki þykir sannað að stórir skammtar af vítamínum, það er að segja töflur sem innihalda marg- faldan ráðlagðan dagskammt, séu skaðlegir eins og haldið hefur verið fram. Meir Stampfer, prófessor í faralds- og nærningarfræði við Harvard-háskóla, segir í samtali við Herald Tribune, að sumar fullyrð- ingar í þá átt hafi gengið „aðeins of langt í að hræða fólk“, eins og hann orðar það, og bendir á að fjöldi fólks taki vítamín í risastórum skömmtum án þess að heilsa þess bíði skaða af. Stærsta hættan við að taka slíkar töflur, að hans mati, er sálfræðilegs eðlis. Að fólk hugsi kæruleysislega: „Ég tek vítamín. Ég þarf ekki að hreyfa mig og ég get borðað eintóma óhollustu.“ Efast um gagnsemi vítamín- pillna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.