Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
SJÖ umsækjendur eru um tvö
prestsembætti í Akureyrarpresta-
kalli sem auglýst voru nýlega. Um-
sóknarfrestur rann út 2. ágúst.
Umsækjendur eru: Aðalsteinn
Þorvaldsson guðfræðingur, séra
Arna Ýrr Sigurðardóttir, Hildur Eir
Bolladóttir guðfræðingur, séra Hild-
ur Sigurðardóttir, séra Óskar Haf-
steinn Óskarsson, Sólveig Halla
Kristjánsdóttir guðfræðingur og
Þórður Guðmundsson guðfræðing-
ur.
Annars vegar er um að ræða emb-
ætti prests þar sem tekið er fram að
viðkomandi þurfi að vera tilbúinn til
að leiða fjölbreytt helgihald og tak-
ast á við erfið sálgæsluverkefni. Lip-
urð í mannlegum samskiptum og
samvinnu er skilyrði.
Hitt embættið er með sérstaka
áherslu á barna- og unglingastarf.
Lipurð í mannlegum samskiptum og
samvinnu er skilyrði. Embættið er
greitt af Akureyrarsókn.
Biskup Íslands skipar í embættin
til fimm ára að fenginni niðurstöðu
valnefndar. Í valnefnd sitja fimm
fulltrúar úr prestakallinu, auk
vígslubiskups á Hólum.
Sjö sóttu um
Akureyr-
arprestakall
Kertafleyting | Friðarathöfn verð-
ur við tjörnina við Minjasafnið á Ak-
ureyri þriðjudagskvöldið 9. ágúst
nk. til að minnast fórnarlamba
kjarnorkusprengnanna sem varp-
að var á Japan fyrir 60 árum. Þetta
er áttunda árið sem atburðanna er
minnst með þessum hætti á Ak-
ureyri. Athöfnin hefst kl. 22:30 með
ljóðalestri Valgarðs Stefánssonar og
stuttu ávarpi Valgerðar Gunn-
arsdóttur og verður kertum síðan
fleytt á tjörnina.
Kerti verða til sölu á staðnum.
Dalvík | „Strákarnir voru lengi fram
eftir í gær,“ sagði Gísli Bjarnason, að-
stoðarskólameistari grunnskólans á
Dalvík, en í vikunni var tekinn í notk-
un nýr sparkvöllur á Dalvík. Ungir
sem gamlir Dalvíkingar hafa tekið
honum fagnandi. Gísli sagðist eiga
von á að spilaður yrði fótbolti á vell-
inum fram á rauða nótt um helgina,
en von er á þúsundum gesta til Dal-
víkur um helgina í tengslum við fiski-
daginn mikla.
Það var Sparisjóður Svarfdæla
sem gaf Dalvíkurbyggð völlinn en um
er að ræða fullbúinn sparkvöll sem er
hluti af sparkvallarátaki KSÍ.
Framkvæmdir við völlinn, sem er
staðsettur við skólann, hófust í júní.
Völlurinn er upphitaður og flóðlýstur.
Gísli sagði að völlinn afar kærkominn.
Gott verði að stunda þar knattspyrnu
í vetur þar sem völlurinn sé upphit-
aður.
„Við þurfum bara að huga að vall-
arskipulaginu,“ sagði Gísli, en áhug-
inn á að spila á vellinum er slíkur að
nauðsynlegt er að skrá niður hverjir
megi nota hann og á hvaða tíma.
Bæjarsjóður treysti sér
ekki í framkvæmdir
Dalvíkurbyggð hefur þurft að gæta
aðhalds í útgjöldum og taldi sig ekki
geta farið út framkvæmdir við spark-
völlinn á þessu ári, en búið var að
óska eftir því við KSÍ að sambandið
styrkti völlinn.
„Bæjaryfirvöld voru búin að panta
völl í fyrra, en síðan töldu þau sig ekki
geta leyst hann út, a.m.k. ekki á þeim
tíma sem um hafði verið rætt. Við
sáum fram á að ekkert yrði að fram-
kvæmdum. Við slógum því til og
borguðum völlinn,“ sagði Friðrik
Friðriksson, sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Svarfdæla.
„Þetta er gert í ljósi þess að við
höfum lengi styrkt íþrótta- og æsku-
lýðsmál og menningarmál. Við erum
langstærsti aðilinn á þessu sviði á
svæðinu. Sparisjóðurinn fagnaði 120
ára afmæli á síðasta ári og afkoman á
því ári var fjarskalega góð.“
Kostnaður sparisjóðsins við völlinn
nam um 10 milljónum, en framlag
KSÍ nam 3,5 milljónum. Friðrik sagði
að ákveðið hefði verið að panta völl af
„dýrari gerðinni“. Þetta væri því einn
af best búnu sparkvöllum á landinu.
Hagnaður sparisjóðsins nam tæp-
lega 190 milljónum í fyrra. Friðrik
sagði að afkoma sjóðsins á þessu ári
væri einnig góð og hann myndi
styrkja verkefni á sviði íþrótta- eða
menningarmála með myndarlegum
hætti á næsta ári.
Sparisjóður Svarfdæla gaf Dalvíkurbyggð nýjan upphitaðan sparkvöll
Takk fyrir völlinn Friðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Svarf-
dæla, (fyrir miðju) afhendir Valdimar Bragasyni, bæjarstjóra Dalvíkur-
byggðar, völlinn. Með þeim er Halldór B. Jónasson varaformaður KSÍ.
Í markið Menn voru fljótir að senda knöttinn í netið eftir að völlurinn hafði formlega verið tekinn í notkun.
„Strákarnir voru lengi fram eftir í gær“
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Reykjanesbær | Hópur nemenda og
kennara frá leikskólanum Gimli í
Reykjanesbæ fór á dögunum í vett-
vangsferð að skoða víkingaskipið Ís-
lending sem stendur við Stekkjarkot
þar í bæ.
Veðrið lék við börn og kennara
þennan dag og gleðin skein úr
hverju andliti að sögn Guðrúnar Sig-
urðardóttur, leikskólakennara á
Gimli. Var hópurinn fljótur að setja
sig inn í heim víkinganna og sigla í
huganum um öll heimsins höf.
„Krakkarnir máluðu allir vík-
ingaskipið Íslending þegar þeir
komu til baka,“ segir Guðrún. „Ým-
iss konar smáatriði komu skemmti-
lega í ljós þegar myndirnar fóru að
lifna við á pappírnum hjá þeim. Þau
fundu meira að segja út hvar þau
svæfu. Það voru vissulega engin rúm
eins og við þekkjum, en krakkarnir
hugsuðu sér að þeir þyrftu vissulega
að sofa í þessum ferðum og veltu því
mikið fyrir sér. Þá stungu þau upp á
hinum ýmsu svefnstöðum.“
Víkingaþema í ýmsum leikjum
Guðrún segir ekki laust við að
kennararnir hafi gleymt sér í vík-
ingaleiknum með krökkunum. „Þau
fundu snæri og spotta og vildu
skreyta okkur með því, enda glys-
gjarnir krakkar,“ segir Guðrún.
„Þetta er mjög skemmtilegt því
maður dettur ofan í heiminn með
þeim. Í leik á útisvæði leikskólans
eftir ferðina var klifrukastalinn not-
aður sem víkingaskipið og innan-
dyra notuðu þeir einingakubbana til
að byggja víkingaskip. Við hefðum
getað verið þarna allan daginn, því
þetta var ekkert smá mikil gleði og
gaman og enn verið að tala um
þetta.“
Ferðin var liður í verkefni sem
nemendurnir eru að vinna þessa
dagana, en það felst í fjölmörgum
vettvangsferðum sem vekja áhuga
nemendanna á listsköpun og frá-
sögnum hvers konar. Verkefninu
lýkur með listasýningu á bókasafni
Reykjanesbæjar 16.–29. ágúst.
Leikskólabörn frá Gimli skoða víkingaskipið Íslending
Mikill inn-
blástur til
listsköp-
unar og
tjáningar
Víkingar Krakkar frá Leikskólanum Gimli í vettvangsferð í Íslending.
Reykjanesbær | Huginn Þór Ara-
son opnar sína þriðju einkasýningu
„Yfirhafnir“ í listagalleríinu Suðs-
uðvestur í Keflavík, í dag kl. 16.
Huginn mun sýna ný verk sérstak-
lega unnin fyrir Suðsuðvestur og
verður gjörningur framinn í húsa-
kynnum Suðsuðvestur í dag.
„Sem unglingur var ég alltaf
hrifinn af abstrakt málverkum,“
segir Huginn Þór. „Það fannst mér
vera myndlist. Þoldi t.d. ekki Andy
Warhol, skildi aldrei hvað hann var
að gera eða vildi ekki skilja það.
Mér fannst fáránlegt að geta gert
sjálfan sig algjörlega að myndlist-
arverki. Seinna komst ég að því að
það vildi ég alltaf gera sjálfur. Það
er oft þannig með hluti sem maður
þolir ekki, maður þráir þá.“
Huginn sem fæddur er 1976 í
Reykjavík, hlaut úthlutun úr
styrktarsjóði Guðmundu Andrés-
dóttur á síðasta ári. Hann hefur
tekið þátt í fjölda samsýninga hér
heima sem og erlendis. Ennfremur
er hann einn þriggja meðlima list-
hópsins Signals in the heavens sem
nýverið hélt þrjár sýningar í New
York og nú seinast í Nýlistasafninu
í maí. Þess má geta að Huginn tek-
ur einnig þátt í samsýningunni Tí-
volí sem verður opnuð sömu helgi í
Listasafni Árnesinga í Hveragerði.
Suðsuðvestur er staðsett á Hafn-
argötu 22 í Reykjanesbæ. Þar er
opið á fimmtudögum og föstudög-
um frá 16–18 og um helgar frá 14–
17. Sýningin stendur til 28. ágúst.
Nánari upplýsingar um sýningu
Hugins má finna á www.sudsud-
vestur.is
Kappklæddur Huginn Þór Arason mátar yfirhöfn í fylgd fjölskyldunnar.
Huginn Þór opnar „Yf-
irhafnir“ í Suðsuðvestur
Reykjanesbær | Fræðsluskrifstofa
Reykjanesbæjar heldur námskeið
fyrir grunnskólakennara 9. ágúst
nk. undir yfirskriftinni „Læsi til
framtíðar.“
Umsjónarmaður námskeiðsins er
Rósa Eggertsdóttir sérfræðingur
við skólaþróunarsvið Háskólans á
Akureyri. Markmið þess er að fjalla
um lesskilning og rifja upp tvær
skilvirkar leiðir sem gagnast nem-
endum við að skilja betur lesinn
texta.
Á fyrri hluta námskeiðsins verður
aðferðunum gagnvirkum lestri og
gerð hugtakakorta gerð skil. Þessar
aðferðir beinast að því að auka
gagnvirkni milli námsefnis og nem-
enda og hjálpa nemendum að nálg-
ast námsefnið á skipulegan hátt og
vinna markvisst úr því. Á seinni
hluta námskeiðsins verður rætt um
hvernig unnt er að fella þessar að-
ferðir að einstökum námsgreinum
og ýmsum verkefnum sem unnin
eru í skólunum.
Námskeiðið verður haldið í
Kjarna, Hafnargötu 57. Hægt er að
skrá sig á netfangið fraedsluskrif-
stofa@reykjanesbaer.is
Kennarar fræðast um læsi barna
SUÐURNES