Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 23
MINN
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
LANDIÐ
Neskaupstaður | Hið hefðbundna
Barðsneshlaup er ómissandi þáttur
í Neistaflugshátíðarhöldum í Nes-
kaupstað. Hlaupið sjálft hefst á
eyðibýlinu Barðsnesi sem stendur á
samnefndu nesi sunnan við Norð-
fjarðarflóa og lýkur í Neskaupstað.
Hlaupa þarf um þrjá firði m.a. eftir
kindastígum og í brattri fjallshlíð.
Þá þarf að vaða þrjár ár áður en
komið er á leiðarenda en vegalengd-
in sem hlaupin er er um 27 km.
Í ár voru keppendur í hlaupinu
um tuttugu og voru þeir venju sam-
kvæmt ferjaðir í hópnum á bát frá
Neskaupstað yfir að Barðsnesi.
Helga Björnsdóttir sigraði í
kvennaflokki á 3 klukkustundum, 1
mínútu og 58 sekúndum. Þorbergur
Ingi Jónsson sigraði í karlaflokki,
en hann hljóp á tveimur tímum og
29 sekúndum og var þannig 29 sek-
úndum frá því að ná markmiði sínu.
Er þetta í fimmta sinn sem Þor-
bergur Ingi sigrar í Barðsneshlaup-
inu, en gaman er að geta þess að
kappinn er ættaður frá bænum
Barðsnesi sem hlaupið er kennt við.
Þá hefur frændi hans frá Barðsnesi,
Ingólfur Sveinsson geðlæknir,
hlaupið í öllum Barðsneshlaupum
frá upphafi.
Mikil framför hefur orðið í tíma
frá því hlaupið var fyrst árið 1997,
en þá hljóp Stefán Hallgrímsson
leiðina á um 3 klukkustundum og 20
mínútum.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Sterk hefð Þátttakendur eru ætíð
ferjaðir yfir Norðfjarðarflóann.
Þorbergur Ingi Jónsson frá Barðs-
nesi sigraði í hlaupinu í 5. sinn.
Barðsnes-
hlaupið
hefst á
bátsferð
Dýrafjörður | Áhöfn varðskipsins
Týs hélt við þekkingu sinni og
hæfileikum á sviði björgunar þeg-
ar haldin var björgunarstólsæfing
við Sveinseyri á Dýrafirði á dög-
unum.
Að sögn Thorbens J. Lund yf-
irstýrimanns tókst æfingin mjög
vel og björguðust allir í land nema
skipherrann, Sigurður Steinar
Ketilsson, sem yfirgefur að sjálf-
sögðu aldrei skip sitt enda trygg-
ur gæslumaður.
Þrátt fyrir að þyrla sé aðal-
björgunartæki Landhelgisgæsl-
unnar við skipströnd geta þær að-
stæður komið upp að þyrla geti
ekki athafnað sig og því er nauð-
synlegt að viðhalda þekkingu á
notkun björgunarstólsins.
Varðskipsmenn æfa
björgunarhandtökin
Tekið á því Áhöfn varðskipsins Týs æfir notkun björgunarstóls.
Eyrarbakki | 10 ár voru liðin 3.
ágúst sl., frá því Byggðasafn Ár-
nesinga opnaði sýningar sínar í
Húsinu á Eyrarbakka. Í tilefni
þessara tímamóta og einnig þess
að Húsið er um þessar mundir 240
ára gamalt, var efnt til afmæl-
isfagnaðar í vistarverum Hússins.
Sett var upp sýning á ljósmyndum
frá gamalli tíð og ný sýning upp-
stoppaðra fugla í Eggjaskúrnum,
ásamt myndasýningu.
Margt manna var samankomið
er Lýður Pálsson safnstjóri bauð
gesti velkomna og færði síðan
ábyrgð dagskrárinnar í hendur
Guðrúnu Ásmundsdóttur leik-
konu.
Guðrún, ásamt Karli Guðmunds-
syni leikara, flutti brot úr minn-
ingum Hans Thorgrímsen sem var
sonur Guðmundar Thorgrímsen
faktors og konu hans Sylvíu.
Hans var prestur meðal Vestur-
Íslendinga og var meðal annarra
hvatamaður þess að nokkrir Eyr-
bekkingar og fólk úr nærsveitum
flutti til Ameríku. Þess var m.a.
minnst með póstferðinni til Kan-
ada, sem lauk fyrir skemmstu.
Þau lásu einnig úr viðtali Guð-
mundar Danielssonar við Þórunni
Gestsdóttur sem var vinnukona
hjá Peter Nilsen faktor og hans
konu Eugeniu. Þar lýsir Þórunn
veru sinni í Húsinu og heim-
ilisháttum. Þau lásu úr minningum
dönsku skáldkonunnar Tit Jensen
sem dvaldi nokkrum sinnum í Hús-
inu sem gestur, svo og minningum
Göggu Lund söngkonu, sem dvaldi
þar sem barn. Fléttað var inn í
frásögnina söng Guðríðar Júl-
íusdóttur, við undirleik Gróu
Hreinsdóttur. Voru gestirnir
ánægðir vel með dagskrána.
Að lokum var boðið upp á kaffi
og afmælishnallþóru.
Afmælishátíð í Húsinu
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Krían fær
nýjan
fjaðurham
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
Krían eftir viðgerðina.
Eyrarbakki | Gert hefur verið við
listaverkið Kríuna, sem stendur
skammt austur af Litla-Hrauni, við
vegamót Eyrarbakkavegar og
Stokkseyrarvegar. Krían var orðin
illa farin, búin að tapa mörgum
fjöðrum og að hruni komin. Starfs-
menn Selfossveitna sáu um viðgerð-
ina.
Krían er eftir Eyrbekkinginn
Sigurjón Ólafsson myndhöggvara
frá Einarshöfn.
Alþýðusamband Íslands reisti
verkið til heiðurs Ragnari í Smára,
en hann er ættaður frá Mundakoti
á Eyrarbakka. Ragnar gaf Alþýðu-
sambandinu listaverkagjöf, sem var
stofninn að listasafni ASÍ, og vildi
sambandið sýna þakklæti sitt með
þessu. Krían var vígð árið 1981 í
skógræktarreitnum Hraunprýði í
landi Gamla-Hrauns, sem var gjöf
móður Ragnars, Guðrúnar Jóns-
dóttur, til Eyrarbakkahrepps og
skyldi hreppurinn koma upp lysti-
garði í reitnum. Óvíða er Þjórs-
árhraunið jafn sýnilegt og á þessum
stað og hentar hann vel til sín
brúks. Þjórsárhraunið rann fyrir
um 8.000 árum og er mesta hraun
sem runnið hefur á jörðinni eftir ís-
öld. Hraunið er undirstaða Flóans
og Skeiðanna.
SKIPULAGSSTOFNUN hefur
fallist á lagningu svonefnds Norð-
austurvegar um Hólaheiði að upp-
fylltum tilteknum skilyrðum. Veg-
inum er ætlað að liggja skammt
norðan vegarins yfir Öxarfjarðar-
heiði milli Öxarfjarðar og Þistil-
fjarðar með tengingu til Raufar-
hafnar. Miðað hefur verið við að
framkvæmdin gæti hafist í haust.
Þau skilyrði, sem Skipulagsstofn-
un setur, eru m.a. þau að Vegagerð-
in skuli standa að endurheimt vot-
lendis af sömu stærð og það
votlendi sem skerðist vegna fram-
kvæmdanna. Fiskgengt ræsi verði
sett í Hólsá þar sem hún verður
þveruð.
Þá skal Vegagerðin merkja forn-
leifar og þegar nánari upplýsingar
um staðsetningu vegar við bæjar-
stæðin á Hóli liggja fyrir ber að
greina Fornleifavernd ríkisins frá
þeirri ákvörðun sem meti rann-
sóknarþörf áður en framkvæmdir
hefjast.
Kæra má úrskurð Skipulags-
stofnunar til umhverfisráðherra og
er kærufrestur til 9. september
2005.
+
8 "
$! &
;$"
/4"&'
%5""
$3& $3& $3& $3& $3& $3&
/&'."" #
Fallist á lagningu
Norðausturvegar
Hólar | Ráðstefna um fornleifar og
rannsóknir þeim tengdar hefst í dag
kl. 10 á Hólum í Hjaltadal, en um 90
fornleifafræðingar eru komnir til að
taka þátt í ráðstefnunni.
Meðal fræðimanna sem flytja er-
indi eru Orri Vésteinsson, John
Steinberg, Jörgen Dencker, Jesse
Byock, Thomas H. McGovern, Bjarni
Einarsson, Steinunn Kristjánsdóttir,
Ragnar Eðvarðsson og Joanna Agni-
eszka Skórzewska.
Ráðstefnan stendur til kl. 18 á
morgun, sunnudag. Hún er öllum
opin en dagskrá má finna á slóðinni
www.holar.is/fornleifar.
90 fornleifa-
fræðingar
á ráðstefnu