Morgunblaðið - 06.08.2005, Page 26

Morgunblaðið - 06.08.2005, Page 26
AF hverju líkar fólki svona vel við fugla? Er það vegna þess að þeir eru svo aðlaðandi dýrahópur eða kannski af því að aðgengi að þeim er til- tölulega auðvelt? Gunnar Þór Hall- grímsson, fuglaskoðari með meiru, liggur ekki á svörum og hann er eng- inn nýgræðingur hvað varðar fugla- skoðun. Gunnar hefur „stúderað“ fugla frá því hann var 10 ára og það leið ekki á löngu þar til hann var far- inn að aðstoða við líffræðikennsluna í Hlíðaskóla, rétt um 12 ára gamall. Þá lá strax í augum uppi hvað hann ætl- aði að verða þegar hann yrði stór. „Ég ákvað eiginlega strax og áhug- inn vaknaði að ég myndi verða fugla- fræðingur, án þess að þekkja leiðina sem liggur í gegnum líffræðina fyrst. Það var einhvern veginn aldrei neitt annað í stöðunni,“ segir Gunnar sem er í doktorsnámi við Háskóla Ís- lands. Getur refurinn aukið flugöryggi? Gunnar vinnur nú að doktorsverk- efni við Náttúrustofu Reykjaness sem tengist að sjálfsögðu fuglum og miðar að því að kanna áhrif refa á út- breiðslu og stofnstærð sílamávs. Og hvernig gengur verkefnið? „Það gengur vel. Við höfum þegar niðurstöður sem sýna að refurinn virðist hafa áhrif á varpið en það gæti verið gagnlegt því mávurinn veldur hættu á flugöryggi við Kefla- víkurflugvöll. Tvisvar hafa mávar valdið bilun í búnaði og nú hefur mávum fjölgað svo mjög að hættan hefur aukist,“ útskýrir Gunnar. Hann heldur áfram: „Hingað til hef- ur verið mikil andstaða við refinn svo erfitt gæti reynst að friða hann tíma- bundið á svæðinu fyrir athugunina. En þarna er neikvætt viðhorf gagn- vart báðum tegundum, og sílamáv- urinn er hataðasti fugl á Íslandi svo það gæti hjálpað til,“ segir Gunnar. Hollt fyrir líkama og sál En aftur að fuglaskoðuninni. Gunnar segir fuglaskoðun vera ákaf- lega hollt og gott áhugamál fyrir krakka á öllum aldri. „Það þarf ekkert að hafa fyrir krökkunum, þau eru úti allan tímann og hægt er að sjá mikið meira en bara fuglana og upplifa umhverfið í kringum sig, sem er hollt bæði fyrir líkama og sál,“ segir Gunnar sposk- ur. Það er líka svo margt að sjá fyrir borgarbörnin sem hafa fjörurnar og náttúruperlur rétt í útjaðri borg- arinnar. Fuglafræðin og nátt- úrufræðin tengjast mikið og Gunnar segir áhuga sinn hafa aukist jafnt og þétt á líffræði út frá fuglaáhuganum. Hins vegar séu margir fuglaskoðarar sem hafi einungis áhuga á fuglum sem er líka allt í lagi. Tóku flugvél til að sjá barrþröst Tækni fuglaskoðarans getur verið fjölbreytt og á stundum gífurlega spennandi. „Flækingsfuglar heilla mig rosalega en það eru sjaldséðir fuglar sem flækjast hingað til lands,“ segir Gunnar. Flækingsfuglaleit er töluvert frábrugðin hefðbundinni fuglaskoðun sem gengur út á að fylgjast með fuglinum í rólegheitum og fylgjast með atferli hans. Þegar um flækingsfugla er að ræða verður þetta meira eins og leikur. „Leitin að fuglinum getur orðið æsispennandi. Ég man eftir einu tilviki vorið 2004 þar sem hafði sést til sjaldgæfs barr- þrastar frá vesturströnd Bandaríkj- anna fyrir austan. Þetta var í annað skipti sem þessi tegund sást í Evr- ópu og ég og félagar mínir pöntuðum flug í einum grænum, fórum tuttugu mínútum síðar í loftið, pöntuðum bílaleigubíl á leiðinni sem beið eftir okkur við lendingu og brunuðum að Unaósi þar sem við sáum fuglinn,“ segir Gunnar með miklum tilþrifum og finnst blaðamanni frásögnin líkj- ast einna helst söguþræði úr Holly- wood-kvikmynd. Ekki gengur alltaf jafn vel að finna fuglana sem verið er að leita að en samkvæmt Gunnari víla menn ekki fyrir sér að fara langa leið þó að árangurinn geti verið ótryggður. Helsti gallinn við þetta áhugamál er að ekki er hægt að stjórna ferðinni. „Stundum þarf að stökkva af stað þó að veðrið sé vont, eða búið sé að plana eitthvað annað, maður verður bara að velja og hafna,“ segir Gunnar. Hann segist alltaf hafa fuglaskoðunina í huga, í rauninni fer hann ekki á milli staða án þess að greina alla fugla sem á vegi hans verða. „Það getur verið nóg að heyra eitt tíst og þá er maður búinn að greina fuglinn og getur haldið áfram,“ segir Gunnar glað- beittur og heldur út í veðurblíðuna.  ÁHUGAMÁLIÐ | Hefur stundað fuglaskoðun frá tíu ára aldri Ljósmynd/Skarphéðinn G. Þórisson Til að sjá þennan sjaldgæfa barrþröst flugu Gunnar og félagar hans í skyndi austur á land. Morgunblaðið/Jim Smart Gunnar lætur helst engan fugl fram hjá sér fara sem verður á vegi hans. Leit að flækingsfugli get- ur orðið æsispennandi Ljósmynd/Eva Pier Gunnar vinnur að doktorsverkefni sínu og merkir unga sílamávsins. Eftir Söru M. Kolka sara@mbl.is 26 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ Eykur orku, flrek og vellí›an Bryndís Magnúsdóttir www.sagamedica.is Íslenskt náttúruafl Rannsóknir dr. Sigmundar Gu›bjarnasonar sta›festa a› Angelica jurtaveig inniheldur mjög virk heilsubótarefni. „Ég hef nota› Angelicu me› rá›lög›um hvíldum í tvö ár og finn mikinn mun á flreki og úthaldi. Ég flarf á hvoru tveggja a› halda í áhugamáli mínu, langhlaupum, og mæli ég hiklaust me› vörunni fyrir hlaupara og a›ra sem hug hafa á a› auka kraft og flol.“ NÝJASTA æðið í heilsuræktinni er pilates og hefur verið í nokkur ár. Það hefur tekið við af bólum eins og tai-bo boxinu og Krav Maga, sem var vinsæl ísraelsk bar- dagaíþrótt. En er þessi tískubóla líklegri til að halda velli en hinar íþróttirnar? Samkvæmt því sem kemur fram í sumarriti The Eco- nomist er það talið ólíklegt þó að pilates hafi náð að heilla áhrifa- miklar stjörnur eins og Tiger Wo- ods, Juliu Roberts, Opruh og Mad- onnu. Það eru ófáar stjörnurnar sem hafa verið duglegar við að auglýsa tæknina, en einnig hafa fjölmargir Íslendingar heillast af tækninni eins og kom fram í Tímariti Morgunblaðsins í nóv- ember sl. Pilates er tækni sem sameinar hug og líkama og áhersl- an er lögð á að styrkja kviðinn og bakið. Munurinn á jóga og pilates er helst að jóga á ættir að rekja til hugleiðslu úr austri en pilates byggir fyrst og fremst á því að bæta líkamlegt atgervi og er að- eins um 80 ára gömul vestræn tækni. Ástæður sem taldar eru fyrir því að pilates eigi aðeins tíma- bundnum vinsældum að fagna eru þær að það reynist erfitt að stunda tæknina á eigin vegum. Til að ná sem bestum árangri þarf að hafa þjálfara sem stýrir hreyf- ingum og velur bestu hjálp- artækin, auk þess að þjálfa tvisvar eða þrisvar í viku, klukkutíma í senn. Vinsældirnar eru hins vegar taldar stafa af því að við iðkun pilates þarf ekki mikil átök eða neinn hamagang. Æfingarnar eru gerðar í rólegheitum, sem einnig kemur í veg fyrir hnémeiðsli eða slit. Tæknin virðist sérstaklega vin- sæl hjá konum, enda stuðlar hún að því að öðlast stæltan líkama án þess að púla og svitna.  HREYFING | Pilates er tækni sem sameinar hug og líkama Tímabundið æði? Í Pilates er lögð áhersla á að styrkja kviðinn og bakið. DAGLEGT LÍF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.