Morgunblaðið - 06.08.2005, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 06.08.2005, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 29 EINS og ég hef vakið athygli á í greinum mínum í Morg- unblaðinu að undanförnu um EES-samninginn og samgöngu- málin þá eru flug- mál mjög fyrirferð- armikil. Eitt af þeim mál- um, sem unnið er að um þessar mundir að taka upp í samningnum um Evrópska- efnahagssvæðið (EES) og heyra undir samgöngu- ráðuneytið, er allt það sem lýtur að þátttöku Íslands í hinu sameiginlega evrópska loftrými, SEL (the Single European Sky). Mikill vöxtur í flugumferð Á síðustu tíu ár- um hefur flug- umferð um loftrými Evrópuríkja vaxið um 50% og á einu ári fara nú nærri níu milljónir flug- véla um evrópska lofthelgi og allt að 28.000 flugvélar á annasömustu dög- unum. Og flug- umferð vex enn hröðum skrefum, jafnvel svo að gert er ráð fyrir tvöföldun á þeirri umferð sem er í dag fram til ársins 2020. Því er fyrir nokkru orðið ljóst að hið flókna skipulag flugumferðarþjónustu og sérstaks loftrýmis hvers rík- is fyrir sig yrði á einhvern hátt að einfalda og gera skilvirkara því að óbreyttu þykir víst að núverandi kerfi ráði ekki við þennan viðvarandi umferð- arvöxt mikið lengur en til árs- ins 2015. Draumurinn um sameiginlegt evrópskt loftrými hefur blund- að með mönnum um nokkuð langa hríð. Eurocontrol var sett á stofn árið 1960. Eurocontrol er stofnun er sinnir málefnum flugumferðarþjónustu í Evrópu. Strax með stofnun Eurocontrol var farið að huga að því að ein- falda og hagræða í flugumferð- arþjónustu í álfunni. Í apríl 2004 tóku gildi á vettvangi ESB reglugerðir er leggja grunninn að SEL og er nú unnið að því að koma þeim í framkvæmd. Um er að ræða viðamikið og flókið verkefni en markmiðið er ein- faldari, hagkvæmari og skilvirkari stjórn- un flugumferðar í Evrópu. Ísland og SEL Þrátt fyrir SEL mun hvert ríki fyrir sig að sjálfsögðu hafa sína lofthelgi eftir sem áður. Það gefur augaleið að landamæri þjóðríkj- anna eru ekki sér- staklega heppileg til þess að skipta upp loftrýminu og hafa þar með áhrif á flug- leiðir. Eins og fyrr segir er nú unnið að því að taka reglu- gerðirnar um sam- eiginlegt evrópskt loftrými upp í EES- samninginn og við íslenskum stjórn- völdum blasir að taka ákvörðun um hvernig þátttöku okkar verður háttað. Flugumferðarþjón- usta á Íslandi er stór atvinnugrein er skapar þjóðinni miklar tekjur. Um íslenska flugumferð- arsvæðið fer mikill fjöldi flug- véla ár hvert og mikilvægt að sú þjónusta, sem við veitum er- lendum flugfélögum, sé sem lík- ust því sem annars staðar þekk- ist. Flugfélögin eru viðskiptavinir okkar og gera eðlilega þá kröfu, fyrir hönd sinna viðskiptavina, farþeg- anna, að þjónustan sé skilvirk, örugg og hagkvæm. Þess vegna ber okkur, sem förum með sam- göngumál þjóðarinnar, að fylgj- ast gaumgæfilega með þeirri þróun sem á sér stað á þessum vettvangi og tryggja þannig sem frekast er unnt að þessi mikilvæga atvinnugrein, sem flugumferðarþjónustan er, geti vaxið og dafnað hér á landi. EES og sam- göngumál – sameiginlegt evrópskt loftrými Eftir Sturlu Böðvarsson Sturla Böðvarsson ’Um er aðræða viðamik- ið og flókið verkefni en markmiðið er einfaldari, hagkvæmari og skilvirkari stjórnun flug- umferðar í Evrópu.‘ Höfundur er samgönguráðherra. ling í land- bótum í ið að m sem eiga til langs t lækkun rirtækjum rfestingar la. Unnið öf og tekið ndinu. Um mönnum fum, ann- ir hafa orð- a vanhæfni leitast við m.a. í því ni einka- umsvif í gar bætur l mæðra í nhæft að reytingar geti átt sér stað á einni nóttu, en fólk bindur miklar vonir við breyting- arnar.“ Tekjur af fyrirtækjasköttum jukust um 47% Hefur halli á fjárlögum ekki aukist fyrst félagslegar bætur hafa verið auknar? „Tekjur ríkissjóðs hafa aukist mikið eftir stjórnarskiptin. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs jukust tekjurnar um 32% á meðan útgjöld ríkissjóðs um jukust um 26,3%. Skatttekjur frá fyrirtækjum juk- ust um 47,2%. Skýringin á þessu er að mörg fyrirtæki hafa komist upp með að skila ekki sköttum í sam- ræmi við lög og reglur. Þetta eru t.d. fyrirtæki í ríkiseigu sem hefur verið stýrt af spilltum embættismönnum. Þessi fyrirtæki hafa ekki skilað sköttum og ekki greitt lögbundin gjöld. Nýja ríkisstjórnin hefur tekið á þessu.“ Á næsta ári fara fram þingkosn- ingar í Úkraínu. Iryna segir skipta miklu máli fyrir núverandi stjórn- völd að ná góðum árangri í þeim því það muni styrkja þær breytingar sem unnið er að. Mikill fjöldi Úkraínumanna starf- ar erlendis. Áreiðanlegar tölur um fjöldann liggja ekki fyrir en áætlað er að um 8–9 milljónir starfi erlend- is, en það er um 20% af vinnuaflinu. Þetta fólk starfar í Bretlandi, Kan- ada, Spáni, Portúgal, Brasilíu, Rúss- landi og víðar. „Þetta fólk sendir mánaðarlega hluta af launum sínum til ættingja í Úkraínu. Þetta gerir fólki kleift að eignast hús yfir höfuðið, mennta börn sín eða komast af eftir að það fer á eftirlaun. Þetta hefur sína kosti og galla. Engu að síður skipta þess- ar tekjur miklu máli fyrir efnahag Úkraínu, en talið er að árlega sendi fólk sem starfar erlendis um 18 milljarða dollara heim til landsins.“ Byltingin góð auglýsing fyrir Úkraínu Sjást merki um aukinn áhuga er- lendra fjárfesta á Úkraínu? „Já, tvímælalaust. Fjármálalífið hefur líka tekið miklum framförum. Bankarnir starfa orðið á alþjóð- legum markaði og það er búið að gera endurbætur á hlutabréfamark- aðinum. Það má kannski segja að byltingin í Úkraínu hafi verið mjög góð aug- lýsing fyrir landið. Fyrir byltingu höfðu margir varla heyrt minnst á Úkraínu. Nýkjörinn forseti landsins, Viktor Jústsjenkó, er fyrrverandi banka- stjóri seðlabanka Úkraínu og hefur því mikla þekkingu á efnahags- málum. Andstæðingur hans í kosn- ingunum er að mínu mati glæpa- maður.“ Það fór ekki dult í forsetakosning- unum á síðasta ári að stjórnvöld í Rússlandi höfðu illan bifur á Jústsj- enko. Iryna var spurð hvort stefna rússneskra stjórnvalda gerði nýju ríkisstjórninni í Úkraínu erfitt fyrir. „Úkraína er mjög háð Rússlandi hvað varðar innflutning á olíu og gasi. Um 80% af olíu sem notuð er í Úkraínu koma frá Rússlandi. Rúss- land er líka mikilvægasta viðskipta- land okkar, en um 18% af útflutn- ingnum fer til Rússlands. En þó að við séum háð Rússum má ekki gleyma því að Rússland er líka háð Úkraínu. Meira en helmingur af olíu og gasi sem Rússar selja til Evrópu- landa fer í gegnum Úkraínu og mik- ið af iðnvarningi, sem Rússar þurfa á að halda, er framleitt í Úkraínu.“ Iryna segir að þrátt fyrir viss átök milli Úkraínu og Rússlands séu samskipti landanna í sæmilegu horfi. Hún bendir þó á að erfitt sé fyrir stjórnvöld í Úkraínu að komast út úr þeirri stöðu sem landið er í hvað varðar orkuöflun. Það mætti hugsa sér að það keypti meira gas frá Túrkmenistan en samningar milli Rússlands og Túrkmenistans séu með þeim hætti að Túrkmen- istan geti ekki aukið úrflutning til Úkraínu nema með samþykki Rússa. Bjartsýn á framtíðina Iryna er sannfærð um að Úkraína eigi sér bjarta framtíð. „Ég er mjög bjartsýn á framtíðina. Í Úkraínu er stór markaður, en í landinu búa 48 milljónir manna. Ef Víktor Janúkovítsj hefði sigr- að í forsetakosningunum hefði ég yf- irgefið landið. Ég hefði ekki viljað búa í landi sem væri undir forystu glæpamanns. Jústsjenkó og hans lið hafa náð að vekja vonir hjá þjóðinni. Fyrst eftir að ég lauk námi í Bandaríkjunum var ég ekki viss um að ég vildi snúa aftur til Úkraínu, en núna, eftir að hafa verið við nám í Bandaríkjunum á ný í sjö mánuði, get ég ekki hugsað mér að starfa annars staðar en í heimalandi mínu. Ég veit að ég get fengið betur laun- uð störf erlendis og ég hef fengið til- boð um vinnu í Bandaríkjunum, en ég vil starfa í Úkraínu.“ Forsætisráðherra Úkraínu er Júlía Tímosjenkó. Iryna segir það sitt mat að hún sé mjög hæfur stjórnandi og hún og Jústsjenkó myndi góða forystu fyrir Úkraínu. Ótrúlegar breytingar urðu á and- liti Jústsjenkós fyrir forsetakosn- ingarnar og síðar kom í ljós að hann hafði orðið fyrir díoxíneitrun. Iryna segist ekki í nokkrum vafa um að reynt hafi verið að myrða Jústsj- enkó, en rannsókn á því er ekki lok- ið. Talsvert hefur verið rætt um það í fjölmiðlum að hætta væri á því að Úkraína klofnaði í tvennt eftir kosn- ingarnar, en vesturhluti landsins er vestrænn og vill tengjast V-Evrópu fastari böndum á meðan rússnesk áhrif eru sterk meðal íbúa í austur- hlutanum. Iryna segist ekki hafa áhyggjur af þessu og eftir kosningar hafi komið í ljós að þrátt fyrir ágreining sé mun meira sem sam- einar þjóðina en sundrar. Hún kann- ast þó vel við að tortryggni gæti meðal íbúa. Með auknum sam- skiptum milli vesturs og austurs verði hægt að vinna á þessari tor- tryggni. rfa í Úkraínu“ Morgunblaðið/Sigurður Jökull a gömul og er ein af þeim ungu vel menntuðu íbú- r að taka þátt í uppbygginu landsins. egol@mbl.is telur að hann sé að komast úr þeim erfiðleikum núna. Þegar slíkt komi upp fari ávallt tals- verður tími í að styrkja bergið. Unnið hefur verið að því að und- anförnu að snúa þriðja bornum við og er þeirri vinnu nú senn lokið. „Það er áætlað að hver bor bori um 25 metra á dag og stund- um hafa þeir borað miklu meira. Metið er rúmir 80 metrar á dag fyrir einn bor,“ segir Sigurður. Um 1600 starfsmenn á svæðinu Alls vinna um 1600 starfsmenn á Kárahnjúkum um þessar mundir. Þar af eru um 1200 hjá Imp- regilo, 130 hjá Fosskraft, 150 hjá Suðurverki og 75 hjá Arnarfelli auk þess sem um 50 manns starfa við eftirlit á svæðinu. Af 1200 starfsmönnum Imp- regilo búa um 800 þeirra í vinnu- búðum fyrirtækisins við virkj- unina. Búðirnar eru á stærð við meðalstóran bæ hér á landi en þar sækja tíu börn skóla í einum af vinnuskúrunum og skammt frá skólanum er kjörbúð þar sem íbúarnir geta keypt matvörur og aðrar nauðsynjar. Á staðnum er einnig rekið mötuneyti og heilsu- gæsla á vegum Heilbrigðisstofu Austurlands. Búið er í skúrum og hafa þar flestir verkamannanna einstaklingsherbergi en deila baðaðstöðu með öðrum. Yfirmenn á svæðinu búa hins vegar í eigin húsum og eru sumir þeirra með fjölskyldu sína með sér. Kalt á veturna Um 100 Íslendingar vinna hjá Impregilo en aðrir starfsmenn eru af ýmsum þjóðernum og má nefna að alls vinna nú um 300 Kínverjar við Kárahnjúka á veg- um fyrirtækisins. Margir þeirra hafa unnið fyrir fyrirtækið við framkvæmdir í Kína og víðar í heiminum og komu svo hingað. Kínverjinn Huohong er að sögn kunnugra einn af fáum ensku- mælandi Kínverjum á svæðinu en Huohong vinnur við stífluna og féllst á að veita stutt viðtal. Hann sagðist kunna vel við sig á Kára- hnjúkum þrátt fyrir að vera langt frá heimahögunum en hann hefur unnið hér á landi í eitt og hálft ár og segist taka sér frí á hálfs árs fresti til þess að heimsækja fjöl- skyldu sína í Kína. Flestir Kín- verjarnir á svæðinu hafa svip- aðan hátt á þótt fjölskyldur sumra þeirra hafi komið með til Íslands, að sögn Huohong sem segir Kínverjana á svæðinu halda ágætlega saman, sérstaklega þá sem komi frá sömu svæðum í Kína. Hann sagðist fá mun betur borgað í þessu starfi heldur en hann fengi heima fyrir og líka starfið vel þótt aðstæður til vinnu geti verið erfiðar á veturna vegna kulda. Sumrin hér á landi séu hins vegar mun betri. rahnjúka rúmlega hálfnuð Morgunblaðið/Árni Torfason í að keyra efni að stíflunni. Í bakgrunni má sjá Fremri-Kárahnjúk og stíflusvæðið. arnihelgason@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.