Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 30

Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VESTURHEIMI CURTIS Olafson, formaður Íslend- ingafélagsins í Mountain í Norður Dakóta, upplýsti á hátíðinni um liðna helgi að félagið væri að vinna í því í samvinnu við önnur félög á staðnum að reisa nýtt félagsheimili. Markmið félagsins er að verða fjöl- mennasta deild Þjóðræknisfélagsins og sagði Curtis að núverandi aðstaða nægði ekki lengur. ,,Það er alveg ljóst að þessi árlega hátíð okkar dregur stöðugt fleiri að og núverandi húsa- kynni eru ekki nógu stór til að taka á móti öllum þessum gestum,“ sagði hann. Curtis bætti við að núverandi aðstaða félagsins kæmi í veg fyrir nauðsynlegan vöxt og öflugri starf- semi. Eins setti veður stundum strik í reikninginn eins og á hátíðinni í fyrra en þá rigndi mikið á tímabili og ekki í nein hús að venda. „Við þurfum nýtt félagsheimili en til að svo geti orðið verða allir að leggjast á eitt,“ sagði Curtis. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Þuríður Magnúsdóttir og Björn Ágústsson voru á meðal um fimmhundruð Íslendinga á hátíðinni í Mountain í Norður Dakóta um liðna helgi en talið er að um 5.000 manns hafi sótt hátíðina þetta árið. Nýtt félagsheimili byggt í Mountain Í FYRRADAG var dagatalið „Eilíf fegurð“ kynnt í Winnipeg og þremur tímum seinna voru 20% útgáfunnar seld. „Við höfum aldrei heyrt um svona góðar viðtökur nema í fyrir- myndinni, kvikmyndinni Calendar Girls,“ segir fyrirsætan Guðrún Viola Bjarnason Hilton, en hún er sjötug, um 10 árum yngri en elsta fyrirsætan og um 10 árum eldri en sú yngsta. Fyrir nokkrum árum var nafnið Hilton á allra vörum eftir að mynd- bandi sem sýndi Paris Hilton í ást- arleikjum var dreift á Netinu. Nú hefur hin vestur-íslenska Hilton vak- ið athygli á nafninu og nektinni en með öðrum hætti. „Þegar ég verð spurð hvað ég gerði merkilegt þegar ég var sjötug get ég hróðug sagt að ég hafi setið fyrir nakin vegna mynd- ar á dagatali,“ segir hún. Hilton er meðlimur í samtökum kvenna á ellilífeyrisaldri í Winnipeg, The St. James Assinboia Senior Centre Inc., sem safna peningum til góðgerðarmála. „Eftir að formaður söfnunarnefndarinnar hafði séð myndina Calendar Girls stakk hún upp á því að við færum eins að vegna næsta árs,“ segir Hilton. „24 konur voru á fundinum og hún bað þær að bíða sem vildu taka þátt í verkefninu. 19 urðu eftir og við prýðum dagatalið fatalausar Elsta fyrirsætan er 81 árs en flest- ar eru í kringum sjötugt. „Þetta er spurning um hvernig þér líður og það er ekkert dónalegt við þetta, aðeins fegurð,“ segir Hilton. Hilton prýðir júní með annarri konu á svipuðum aldri. Myndin er tekin í stofunni heima hjá Hilton og sýnir þær fatalausar við kaffi- drykkju. „Þetta er svona dæmigerð heimilismynd því ég fæ mér gjarnan kaffi við þetta borð en venjulega er ég klædd í meira en hatt,“ segir hún hlæjandi. Guðrún Viola Bjarnason Hilton er dóttir Bjarna Bjarnasonar og Guð- rúnar Kristjánson frá Churchbridge í Saskatchewan. Móðurforeldrar hennar, Petrún og Kristján Krist- jánsson, fluttu frá Vatnsleysuströnd til Kanada árið 1900. Afi hennar í föð- urætt, Sigurður Bjarnason, fæddist í Kanada. Björg, amma hennar, og kona hans, fæddist á Íslandi en ólst upp í Árnesi, Manitoba. „Það er ekki algengt að konur á mínum aldri sitji fyrir naktar en vonandi verður okkur fyrirgefið því málstaðurinn er góð- ur,“ segir Hilton. Prentuð voru 2000 eintök af daga- talinu og hefur allur kostnaður verið greiddur með auglýsingum og styrkj- um. Dagatalið kostar um 1.000 kr. og verður því hagnaðurinn um tvær milljónir króna. Eilíf fegurð án fata á dagatali í Winnipeg Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Guðrún Viola Bjarnason Hilton með dagatalið sem hefur selst mjög vel. HALLDÓR Ásgrímsson, forsætisráðherra, skoðaði ásamt föruneyti sínu listasýningu Tryggva Thorleif Larum, tréskurðarmeistara, í Gimli um liðna helgi og við það tækifæri tók hann við skúlptúr að gjöf frá lista- manninum fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Tryggvi fæddist í Hafnarfirði 1956 en flutti með for- eldrum sínum til Kaliforníu tveggja ára gamall. Hann er sonur Láru Gunnarsdóttur Salómonssonar og Bandaríkjamannsins Kenneth Larum, sem ættaður er frá Noregi og Skotlandi. Tryggvi Thorleif býr ásamt Amy konu sinni í Loleta í Kaliforníu og vinnur þar að list sinni. Hann sækir hug- myndir sínar fyrst og fremst til víkingatímabilsins með verk brons- og járnaldar að fyrirmynd en segir að móð- ir sín hafi lagt mikla áherslu á að gleyma ekki hvaðan hann væri ættaður. Verkið Endalaus barátta eða Infin- ite Struggle, sem hann skar út í valhnotutré, hafi hann gert í minningu hennar og það fari vel á því að því verði fundinn staður á Íslandi. Gjöf til Íslands Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Forsætisráðherrahjónin Sigurjóna Sigurðardóttir og Halldór Ásgrímsson með listamannahjónunum Tryggva T. Larum og Amy við verkið Endalaus barátta. UMRÆÐAN NÝTT leiðakerfi Strætó tók gildi fyrir skemmstu hér á höf- uðborgarsvæðinu. Talsverð um- ræða hefur orðið um hið nýja leiðakerfi og margir orðið til að segja á því kost og löst. Það er eðlilegt því al- menningssamgöngur skipta marga miklu máli. Rétt er að rifja upp að leiðakerfið sem lagt var af var í grunninum frá árinu 1968 og á því höfðu einungis verið gerðar minni háttar breyt- ingar. Það var því augljóst að kerfið var komið mjög til ára sinna og höfuðborg- arsvæðið breyst mikið á þeim tæplega 40 ár- um sem kerfið var við lýði. Þá var einnig tekin sú ákvörðun af hálfu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu að sameina rekstur almennings- samgangna á svæðinu öllu í eitt fyrirtæki. Markmiðið var m.a. að efla almenningssamgöngur og skipuleggja þær sem eina heild, enda er höfuðborgarsvæðið löngu orðið eitt atvinnu- og búsetusvæði. Undirbúningur nýja kerfisins stóð yfir í um tvö ár og voru bæði inn- lendir og erlendir sérfræðingar í skipulagi almenningssamgangna fengnir til liðs við Strætó bs. Þá var ennfremur stuðst við ítarlega ferðavenjukönnun sem gerð var fyrir höfuðborgarsvæðið til að greina hvernig fólk ferðaðist til og frá vinnu, skóla, afþreyingu o.s.frv. Það er því góður grunnur sem nýja kerfið byggist á. Ein af for- sendum hins nýja kerfis er að al- menningssamgöngurnar verði skil- virkur kostur, fólk verði fljótara í förum, tíðar ferðir verði á háanna- tíma og að þær nýtist öllum al- menningi. Þetta hefur að mínu mati tekist í öllum aðalatriðum. Meðal þeirra atriða sem mest hefur verið kvartað yfir er að vagnarnir (aðrir en á stofnleiðum) hætta nú að ganga um kl. 23 í stað miðnættis áður. Þá hefur einnig verið kvartað yfir því að göngu- vegalengdir séu meiri í nýja kerf- inu en því gamla og að það vanti tilfinnanlega ákveðnar tengingar, s.s. úr Breiðholti í Laugardal o.fl. Eins og við er að búast eiga sumar af þessum athugasemdum fyllilega rétt á sér, aðrar síður, eins og gengur. Það er eðlilegt að í nýju kerfi komi upp ýmsir annmarkar sem ráða þarf bót á. Í sumum til- vikum er nauðsynlegt að bregðast strax við, í öðrum getur þurft að fá lengri reynslu af kerfinu áður en teknar eru ákvarðanir um við- brögð. Það hefur lengi verið áherslumál VG að almenningssamgöngur verði efldar og teljum við að í tengslum við hið nýja leiðakerfi og eflingu Strætó hafi þurft að leggja enn meira fjármagn til verkefnisins en raun varð á. Í því sambandi verður að hafa í huga að Reykjavík á í samstarfi við hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um rekstur fyrirtæk- isins og samstaða þarf að vera milli þeirra um aukin útgjöld til mála- flokksins. Má minna á, að það var eitt af fyrstu verkum Sjálf- stæðisflokksins í upp- hafi þessa kjörtímabils að leggja til að fram- lög til Strætó yrðu skorin niður um 100 milljónir króna þótt sumir talsmenn flokks- ins láti nú eins og þeir séu sérstakir stuðn- ingsmenn Strætó. Raunar er helsta von- arstjarna flokksins á öðru máli, hann telur augljóslega að strætó sé helst til óþurftar og nú þurfi frekar að rýma fyrir einkabíln- um í gatnakerfi höfuðborgarinnar og hann segir fullum fetum að um- hverfissjónarmið skipti engu máli. En það er einmitt ein af meg- inástæðunum fyrir nauðsyn þess að efla almenningssamgöngur – að bæta umhverfi, draga úr mengun og sóun fjármuna, fækka umferð- arslysum o.s.frv. Það hlýtur nú að vera viðfangs- efni stjórnenda Strætó og stjórn- málamanna á höfuðborgarsvæðinu að safna saman reynslu af nýja leiðakerfinu, taka við ábendingum og athugasemdum um það sem betur má fara og taka síðan af- stöðu til þess hverju þarf að breyta til að efla kerfið enn frekar. Reykjavíkurborg hefur verið reiðubúin að leggja meira fé til málaflokksins en nágrannasveit- arfélögin ekki, og vel kemur til greina að mínu mati að Reykjavík- urborg bæti sérstaklega við leiðum eða auki tíðni innan borgarmark- anna, reynist hin sveitarfélögin ekki vilja leggja meira af mörkum. Það er til dæmis unnt að nýta fjár- magn til samgöngumála á höf- uðborgarsvæðinu í auknum mæli í almenningssamgöngurnar og enn fremur mætti nýta tekjur sem borgin hefur af sölu eigna, eins og Vélamiðstöðvarinnar, til að efla al- menningssamgöngur. Niðurstaða mín er sú að hið nýja leiðakerfi lofi góðu, bjóði upp á möguleika á því að stórefla al- menningssamgöngur á höfuðborg- arsvæðinu og að nauðsynlegt sé að standa vörð um Strætó. Hins vegar verðum við líka að vera fólk til að sjá þá annmarka sem upp kunna að koma og að vinda bráðan bug að því að lagfæra þá. Því fyrr því betra. Stöndum með Strætó – en betur má ef duga skal! Árni Þór Sigurðsson fjallar um nýtt leiðakerfi Strætó bs. Árni Þór Sigurðsson ’Það er eðlilegtað í nýju kerfi komi upp ýmsir annmarkar sem ráða þarf bót á.‘ Höfundur er oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn Reykjavíkur. Sturla Kristjánsson: Bráðger börn í búrum eða á afgirtu svæði munu naumast sýna getu sína í verki; þeim er það fyrirmunað og þau munu trúlega aldrei ná þeim greindarþroska sem líf- fræðileg hönnun þeirra gaf fyr- irheit um. Kristján Guðmundsson: Því miður eru umræddar reglur nr. 122/2004 sundurtættar af óskýru orðalagi og í sumum tilvikum óskiljanlegar. Sigurjón Bjarnason gerir grein fyrir og metur stöðu og áhrif þeirra opinberu stofnana, sem heyra undir samkeppnislög, hvern vanda þær eiga við að glíma og leitar lausna á honum. Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsynlegt er að ræða þessi mál með heildaryfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi mál- efni sátt og með hagsmuni allra að leiðarljósi, bæði núverandi bænda og fyrrverandi. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.