Morgunblaðið - 06.08.2005, Page 34

Morgunblaðið - 06.08.2005, Page 34
34 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ GREINARGERÐ Morgunblaðinu hefur borist eft- irfarandi greinargerð frá fram- kvæmdanefnd Garðasóknar: „Inngangur Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum hafa deilur verið uppi innan Garðasóknar síðustu misseri. Hafa deilurnar staðið á milli sr. Hans Markúsar Hafsteinssonar, sóknar- prests, annars vegar og formanns og varaformanns sóknarnefndar, starfsfólks kirkjunnar, sjálfboðaliða, djákna, prests, úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar, áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar, Biskups Íslands og vinnustaðasálfræðings hins vegar. Eftir að úrskurðarnefnd kirkjunnar kvað upp sinn úrskurð sl. vor þar sem kröfum sóknarprestsins sr. Hans Markúsar Hafsteinssonar var hafnað, upphófust ávirðingar nokk- urra einstaklinga, sem flokka má sem stuðningsmenn sr. Hans Mark- úsar, á hendur fjölmörgum öðrum aðilum í sókninni. Þar er sóknar- nefndin, formaður hennar, varafor- maður, djákni og prestur ásakaðir um ólíklegustu hluti, eins og til að mynda um að standa fyrir aðför að sr. Hans Markúsi, að fjármunir sóknarinnar hafi verið misnotaðir, sóknarnefndin hafi tekið fram fyrir hendur þeirra sóknarbarna sem kusu sr. Hans Markús til starfa, að sóknarnefndin starfi ekki í umboði sóknarbarna og að þessir aðilar hafi frá upphafi verið á móti sr. Hans Markúsi svo dæmi séu tekin. Nýj- ustu ávirðingarnar eru síðan að sóknarnefndin haldi ekki aðalsafn- aðarfund eins og lög og reglur gera ráð fyrir. Öllum þessum ásökunum er hér með vísað á bug. Sumar þær greinar sem birtar hafa verið um málið eru því miður byggðar á röngum upplýsingum og endaskipti höfð á staðreyndum. Því er hætt við að lesendur fái einhliða og ranga mynd af málinu á grund- velli slíkra skrifa. Við teljum því rétt að gera hér ýtarlegri grein fyr- ir deilunni og þróun hennar eins og hún blasir við okkur. Þannig ætti hver og einn að geta mótað sér sjálfstæða skoðun á því sem gengið hefur á. Rétt er að undirstrika að samantektin byggist í megin atrið- um á þeim gögnum sem fram hafa komið í greinargerðum úrskurðar- og áfrýjunarnefndar kirkjunnar, en úrskurðir beggja þessara nefnda hafa verið afhentir fjölmiðlum auk þess sem nálgast má þá á vefsíðu Garðasóknar (www.gardasokn.is). Um hvað snýst deilan? Deilan snýst um alvarlegan sam- skiptavanda milli sóknarprestsins sr. Hans Markúsar og djákna, prests, sóknarnefndar, starfsfólks kirkjunnar og sjálfboðaliða. Þetta mál hófst í janúar 2004 á sókn- arnefndarfundi er djákni leitaði ásjár sóknarnefndar vegna langvar- andi samstarfsörðugleika við sr. Hans Markús. Þar hélt djákni því m.a. fram að sóknarprestur gripi með óeðlilegum hætti inn í starf djákna og skortur væri á eðlilegu samstarfi og upplýsingagjöf af hans hálfu. Viðbrögð sóknarnefndar voru að skipa sérstaka sáttanefnd sem vinna skyldi í nánu samráði við sóknarnefnd og prófast að lausn málsins. Í nefndinni störfuðu for- maður, varaformaður og gjaldkeri sóknarinnar. Sáttanefndin ákvað að vísa málinu til prófasts Kjalar- nesprófastsdæmis dr. Gunnars Kristjánssonar sem faglegs yfir- manns sóknarprests og djákna sam- kvæmt starfsreglum kirkjunnar. Þessi uppákoma varð til þess að draga fram í dagsljósið ýmis vanda- mál af áþekkum toga sem til þessa höfðu aðeins verið á fárra vitorði. Fljótlega eftir að sr. Hans Markús hóf störf fór að bera á margvísleg- um samskiptaörðugleikum milli hans og samstarfsmanna. Af þess- um sökum hvarf margt hæft fólk frá störfum við sóknina. Prestar hafa horfið af vettvangi, aðstoðar- kirkjuverðir, sóknarnefndarmenn, formaður listanefndar og síðar listanefndin í heild sinni. Fráhvarf þessara einstaklinga má að veru- legu leyti rekja til samstarfsörð- ugleika við sr. Hans Markús. Þá hafa fulltrúar sóknarnefndar þurft að koma að sáttaumleitunum milli núverandi presta og milli sr. Hans Markúsar og starfsmanna sem og listamanna sem listanefndin hafði fengið til samstarfs. Hverjir hafa hagsmuna að gæta? Áþekk samskiptavandamál hafa komið upp áður. Þau voru hins veg- ar öll afgreidd í samræmi við kröfur sr. Hans Markúsar um að viðkom- andi aðilar hættu störfum, með eða án vitundar núverandi og fyrrver- andi sóknarnefnda. Hér verður hver og einn að dæma fyrir sig hvort líklegra sé að allur sá fjöldi fólks sem hefur átt í samskiptaörð- ugleikum við sr. Hans Markús hafi borið alla sök, eða hvort verið gæti að eini fasti punkturinn í öllum þessum deilum, sr. Hans Markús, beri hér nokkra sök. Það sem verð- ur þess valdandi að þetta mál þróast með öðrum hætti er að okk- ar mati mikil óbilgirni og algjör af- neitun sr. Hans Markúsar á vanda- málum sem upp hafa komið á öllum stigum málsins. Málið hefst sem af- ar einfaldur ágreiningur milli tveggja starfsmanna. Slík vandamál geta komið upp á hvaða vinnustað sem er og slíkan vanda á að vera unnt að leysa með viðræðum með eða án hjálpar utanaðkomandi aðila. Formaður sóknarnefndar var kosningastjóri sr. Hans Markúsar og persónulegur vinur sem átti án efa stóran þátt í því að sr. Hans Markús var kosinn sóknarprestur í Garðasókn. Engu að síður þarf for- maður og ekki síður sóknarnefndin í heild, að gæta hlutleysis í öllu og gat ekki frekar í þessu máli en öðr- um einblínt á hagsmuni sr. Hans Markúsar þar sem nefndin ber ábyrgð gagnvart öllum starfsmönn- um sóknarinnar. Þegar fulltrúar í sáttanefndinni, sem áður var getið, gátu ekki fallist á einhliða og ófrá- víkjanlegar kröfur sr. Hans Mark- úsar um brottvikningu djákna úr starfi, umbreytast þeir, að mati sóknarprestsins og stuðningsmanna hans, í andstæðinga og persónulega óvini. Viðkomandi fulltrúar álíta sig hins vegar hvorki vera óvini né óvildarmenn sr. Hans Markúsar. Þeir telja sig hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til að reyna að ná fram raunhæfum sáttum. Mik- ilvægt er að gera sér grein fyrir að vandinn sem við er að etja hverfur ekki þó svo að sóknarnefndin segi af sér. Ef leysa hefði mátt málið með þeim hætti hefði sóknarnefndin sagt af sér fyrir löngu. Fleira kem- ur því til. Hvað með hagsmuni djákna, prests og annarra starfs- manna sóknarinnar? Starfsmenn í Garðasókn kvarta undan samstarfs- erfiðleikum við sr. Hans Markús. Sóknarnefndin hefur staðið vörð um eðlilega hagsmuni starfsmanna eins og henni ber skylda til og tekur fulla ábyrgð á velferð safnaðarins í þessu máli. Safnaðarstarfið og hagsmunir sóknarinnar vega lang- þyngst í þessu máli. Margt bendir hins vegar til þess að sr. Hans Markús telji eðlilegt að hagsmunir sóknar og safnaðarstarfs víki fyrir persónulegum hagsmunum sínum. Þessi deila hefur einnig dregið skýrt fram í dagsljósið hversu van- máttugt og seinvirkt stjórnkerfi kirkjunnar er ef taka þarf á alvar- legum mannlegum vandamálum sem upp koma innan hennar vé- banda. Sóknin, kirkjan og allir þeir einstaklingar sem tengjast málinu, sem og fjölskyldur þeirra hafa liðið fyrir það. Aðkoma prófasts Dr. Gunnar Kristjánsson prófast- ur Kjalarnesprófastsdæmis hélt 12 fundi með málsaðilum þar sem reynt var að ná fram sáttum. Þar fór hann m.a. fram á að djákni bæði sr. Hans Markús afsökunar á því hversu hörð gagnrýni hennar hefði verið. Var það samþykkt en jafn- framt sagðist djákni ekki geta tekið aftur þá efnislegu gagnrýni sem sett hefði verið fram. Sr. Hans Markús sætti sig ekki við þetta og gekk af fundi áður en honum lauk og áður en sættir höfðu náðst. Hann sagðist ætla að fá lögfræði- lega aðstoð til þess að segja djákna upp störfum ef sóknarnefndin vildi ekki skrifa henni uppsagnarbréf. Prófastur benti sr. Hans Markúsi á að hann væri að fara af sáttafundi áður en honum væri slitið og áminnti hann um að hegðun hans samræmdist ekki þeirri framkomu sem presti bæri að sýna við að- stæður sem þessar. Nokkru síðar óskaði sr. Hans Markús eftir því að ganga til sátta við djákna og um skamma hríð virtist sem sættir hefðu tekist eða þar til sr. Hans Markús fór fram á það við sókn- arnefnd að hún sendi djáknanum áminningarbréf vegna umkvartana sinna. Hér virtist því sem sr. Hans Markús væri að leika tveimur skjöldum þ.e. annars vegar höfðu sættir verið handsalaðar og hins vegar leitaði hann leiða til að áminna eða reka djáknann. Því var óskað eftir því við sr. Hans Markús að hann annaðhvort tæki handsal- aða sáttargjörð gilda og að sókn- arnefndin beitti sér fyrir vinnu- staðaþjálfun undir handleiðslu vinnustaðasálfræðings sem starfa átti í samvinnu við prófast eða mál- inu yrði ella vísað til biskups til ákvörðunar. Sr. Hans Markús valdi að fá vinnustaðasálfræðing en taldi djákna hins vegar skömmu síðar hafa rofið sáttargjörðina vegna þess að djákninn gerði athugasemd við notkun á húsnæði sóknarinnar fyrir erfidrykkju á sama tíma og reglu- bundið starf ætti sér stað með eldri borgurum, sem djákninn hefur al- farið umsjón með. Sr. Hans Markús upplýsti ekki yfirmann sinn, pró- fastinn, um þessa afstöðu sína fyrr en síðar eftir að hann hafði leitað til lögmanna og hafið aðgerðir er mið- uðu að því að ná fram kröfum sín- um sem hann ítrekaði nú að nýju, þ.e. að djáknanum yrði sagt upp störfum. Sr. Hans Markús hefur allt frá þessum tíma verið með lög- menn í starfi til að fá kröfum sínum framgengt. Prófastur reyndi enn að ná fram sáttum með skriflegri yf- irlýsingu þar sem handsal virtist ekki hafa dugað til. Sr. Hans Mark- ús var ófáanlegur til að undirrita slíkt skjal. Prófastur átti síðan fund með sóknarnefndarmönnum þar sem farið var yfir málið. Einn sóknar- nefndarmanna bauðst þá til að gera nýja tilraun til að fá sr. Hans Mark- ús til sátta. Prófastur var því fylgj- andi en skýrði jafnframt frá því að hann myndi ekki gera frekari til- raunir til sátta heldur vísa málinu til biskups þar sem hann sæi enga aðra lausn. Ný tilraun til sátta Einn sóknarnefndarmanna reyndi nú að ná fram sáttum með nýrri yfirlýsingu sem bæði sókn- arprestur og djákni áttu að und- irrita. Áður en til undirritunar kom valdi sr. Hans Markús, án vitundar þeirra sem voru að vinna að lausn málsins, að hafa samband við vígslubiskupinn í Skálholti. Á fundi þar sem mættir voru allir aðilar málsins kvaðst vígslubiskup telja óþarfa að undirrita slíka yfirlýsingu ef sr. Hans Markús og djákni lýstu því yfir í hans viðurvist að málinu væri lokið og báðir aðilar myndu starfa af heilindum að kirkjulegu starfi í samræmi við þá sátt sem áð- ur hafði verið handsöluð. Báðir málsaðilar samþykktu þessi mála- lok. Jafnframt var ákveðið að leita til vinnustaðasálfræðings til að að- stoða við það að bæta vinnuandann og var það samþykkt af öllum. Þess má geta að sr. Hans Markús kynnti sér sérstaklega starfsferil vinnu- staðasálfræðingsins og lýsti síðan yfir ánægju með ráðingu hans til starfans. Mætti því halda að með þessu sæi fyrir endann á málinu. Sættir höfðu verið handsalaðar og vinnustaðasálfræðingur væntanleg- ur til starfa sem sr. Hans Markús hafði kynnt sér sérstaklega og lýst ánægju með. Aðkoma vinnustaða- sálfræðings Eftir fjölda viðtala við alla starfs- menn sóknarinnar taldi vinnustaða- sálfræðingurinn að vandinn fælist ekki í óljósum starfslýsingum eða ófullkomnu skipulagi. Hann taldi ófært að koma með tillögu til úr- bóta þar sem sr. Hans Markús reyndist ófáanlegur til að ræða þau vandamál sem að honum sneru. Niðurstaða vinnustaðasálfræðings- ins var sú að samskiptavandinn væri ekki tengdur öðrum orsaka- þáttum en óásættanlegri hegðun og viðbrögðum sr. Hans Markúsar í samskiptum hans við samstarfs- menn. Orsök vandamálanna í Garðasókn væri því fyrst og fremst samskiptavandi sr. Hans Markúsar við aðra aðila. Þegar þessi niðurstaða lá fyrir ákvað sr. Hans Markús að kæra vinnustaðasálfræðinginn til land- læknis til að fá niðurstöðu hans hnekkt. Deilur voru nú einnig komnar upp milli hans og vinnu- staðasálfræðingsins. Landlæknir tók ekki afstöðu til þeirrar nið- urstöðu sem vinnustaðasálfræðing- urinn komst að, eins og skýrt kem- ur fram í úrskurði úrskurðar- nefndar. Bréf sóknarnefndar til biskups Í ljósi þeirrar niðurstöðu sem nú lá fyrir og með vísun til þess sem á undan hafði gengið áttu fulltrúar sóknarnefndar fund með biskupi og í framhaldi af því var skrifað bréf til biskups hinn 23. maí 2004 þar sem farið var fram á að breytingar yrðu gerðar á starfi sóknarprests. Í bréfi sóknarnefndar til biskups seg- ir m.a. „… virðist niðurstaðan því miður sú, að breyting verði að eiga sér stað á ráðningu sóknarprests. Það er því einlæg ósk eftirtalinna full- trúa í sóknarnefnd Garðasóknar til yðar, hr. biskup, að þér veitið þessu máli algeran forgang og leitið allra leiða til þess að ásættanleg lausn finnist sem allra fyrst svo störf safnaðarins komist sem fyrst í lag og starfsfólk hans geti unnið verk sín í þeim anda sem þau eru kölluð til.“ Undir bréfið rita allir sóknar- nefndarmenn, aðal- og varamenn. Af hálfu sr. Hans Markúsar var síð- ar látið að því liggja að einstakir sóknarnefndarmenn hefðu verið þvingaðir til að undirrita þetta bréf. Það er rangt. Sr. Hans Markús reyndi aftur á móti að fá einstaka sóknarnefndarmenn til þess að falla frá undirskrift sinni eftir að bréfið hafði verið sent til biskups. Á þessu stigi málsins lá fyrir að sr. Hans Markús hafði dreift trún- aðargögnum varðandi málið til sóknarbarna, skjólstæðinga sinna, með það að leiðarljósi að vinna þá á sitt band og skapa tortryggni á vinnubrögð sóknarnefndar og allra þeirra sem afskipti höfðu haft af málinu. Þess má geta að allir sókn- arnefndarmenn undirrituðu yfirlýs- ingu um trúnað um þetta mál en sr. Hans Markús valdi hins vegar að gera málið opinbert. Svar biskups við bréfi sóknarnefndar Biskup svaraði erindi sóknar- nefndar frá 23. maí 2004 með bréfi dags. 14. júlí sama ár. Hann komst að þeirri niðurstöðu að vegna laga um ráðningu opinberra starfs- manna væri ekki hægt að gera breytingu á starfi sr. Hans Mark- úsar og sagði svo: „Hitt er ljóst að hinn langvarandi samskiptavandi, sem lýst er í gögn- um málsins, stendur safnaðarstarf- inu fyrir þrifum. Því er biskup reiðubúinn til að bjóða prestum og djákna upp á reglubundna starfs- handleiðslu í þeirri von að starfs- friður verði tryggður í framtíðinni.“ Úrskurðarnefndin leit svo á, að í þessu tilboði biskups hafi í raun fal- ist fyrirmæli hans um að þessir að- ilar skyldu þiggja starfshandleiðslu. Bréf biskups var lagt fram á fundi sóknarnefndar og þar sam- þykktu allir, að sr. Hans Markúsi einum undanskildum, að þiggja boð biskups og var biskupi kynnt sú niðurstaða. Sr. Hans Markús fór þannig einn gegn tilmælum biskups hvað starfshandleiðslu varðar. Krafa sr. Hans Markúsar um skriflega skýrslu frá vinnustaðasálfræðingi Í upphafi var gert ráð fyrir að vinnustaðasálfræðingurinn skilaði niðurstöðum um vinnu sína munn- lega. Í framhaldi af kæru sr. Hans Markúsar til landlæknis á hendur vinnustaðasálfræðingnum kröfðust lögmenn sr. Hans Markúsar þess að landlæknir kallaði eftir skriflegri skýrslu. Í framhaldi af því óskaði vinnustaðasálfræðingurinn í sam- ráði við prófast eftir því að nokkrir málsaðilar staðfestu skriflega upp- lifun sína á samskiptum við sr. Hans Markús. Þessar greinargerðir voru sendar til prófasts og biskups og fékk vinnustaðasálfræðingurinn afrit af þeim. Í framhaldi af því skil- aði vinnustaðasálfræðingurinn ýtar- legri skriflegri skýrslu. Aðkoma biskups Fulltrúar í sóknarnefnd, prófast- ur og vinnustaðasálfræðingur áttu fundi með biskupi. Einnig átti bisk- up fundi með sr. Hans Markúsi, sr. Friðriki Hjartar og Nönnu Guð- rúnu Zöega djákna svo og öðrum starfsmönnum sóknarinnar án þess að nokkur lausn fengist í málinu. Fyrir ári reyndi biskup að leysa málið með því að bjóða sr. Hans Markúsi tvívegis önnur störf. Sr. Hans Markús hafnaði þessum til- boðum biskups. Úrskurðarnefnd Það næsta í málinu var að sr. Hans Markús vísar málinu til úr- skurðarnefndar kirkjunnar og tek- ur málið þar með úr höndum bisk- ups. Í nefndinni áttu sæti þau Dögg Pálsdóttir hrl., formaður, Arnfríður Einarsdóttir lögfræðingur og sr. Þorbjörn Hlynur Árnason prófast- ur. Sr. Hans Markús gerði kröfu um að samstarfsfólk hans sr. Friðrik Hjartar og Nanna Guðrún djákni yrðu flutt til í starfi. Einnig gerði hann kröfu um að formanni sókn- arnefndar Matthíasi G. Péturssyni og varaformanni Arthuri Farestveit yrði veitt áminning. Formaður og varaformaður sóknarnefndar lýstu því þá þegar yfir að þeir myndu hlíta úrskurðinum hver sem hann yrði. Úrskurðarnefndin hafnaði kröf- um sr. Hans Markúsar en lagði þess í stað til við biskup að sr. Hans Markús yrði fluttur til í starfi. Nefndin nefnir m.a. eftirfarandi í röksemdum sínum fyrir niðurstöð- unni: „Í gögnum málsins liggur fyrir að í Garðasókn er alvarlegur sam- skiptavandi á ferð. Að virtum gögn- um málsins ber málshefjandi [sr. Hans Markús Hafsteinsson] mesta ábyrgð á því hvernig málum er komið í Garðasókn. Eins og að framan er rakið hefur hann gerst ber að margvíslegum aga- og sið- ferðisbrotum. Vægasta úrræði sem úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar get- ur lagt til vegna slíkra brota er áminning. Á liðlega einu ári er búið að reyna til þrautar öll þau úrræði sem unnt er að grípa til til að leysa vandann. Í ljósi þess telur úrskurð- arnefndin að áminning nægi ekki til að leysa þann vanda sem uppi er. Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar tel- ur því að ekki verði hjá því komist að leggja til við biskup Íslands að málshefjandi [sr. Hans Markús Hafsteinsson] verði fluttur til í starfi skv. b-lið 4. mgr. 12. gr. laga nr. 78/1997.“ Staðreyndir um deilur í Garðasókn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.