Morgunblaðið - 06.08.2005, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 06.08.2005, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þorsteinn ÓskarGuðlaugsson, bóndi og bifreiða- stjóri, fæddist í Borgarnesi 20. mars 1952. Hann lést á heimili sínu 28. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans eru Jó- hanna Birna Þor- steinsdóttir frá Jafnaskarði og Guð- laugur Bjarni Guð- mundsson frá Veiði- læk, nú búsett í Borgarnesi. Bræður hans eru Guðjón húsasmiður í Borgarnesi, kvæntur Guðríði Hlíf Sigfúsdóttur, og Halldór Guðni mjólkurfræðingur á Ísafirði, kvæntur Guðrúnu Birgisdóttur. Þorsteinn trúlofaðist 1973 eftir- lifandi konu sinni Guðrúnu Fjeld- sted frá Ferjukoti og hófu þau búskap 1980 á Ölvaldsstöð- um IV. Börn þeirra eru Sigurður Ingi, f. 23. febrúar 1980, Guðlaugur, f. 20. febrúar 1985 og Þór- dís, f. 23. apríl 1993. Dóttir Þorsteins og Grétu Hafsteinsdótt- ur er Ólína Björg, f. 28. maí 1973. Þorsteinn lauk prófi í bifreiðasmíði 1976 en vann lengst af við akstur hópferðabifreiða og við skólaakstur sl. 14 ár, fyrst við Varmalandsskóla og svo við Grunnskólann í Borgarnesi. Útför Þorsteins fer fram frá Borgarneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Með örfáum orðum langar mig að kveðja svila minn og góðan vin, Þorstein Guðlaugsson, Við Þor- steinn komum nokkuð samtíma inn í fjölskylduna í Ferjukoti, er hann og Guðrún, heimasætan á bænum og við Þorkell vorum að hefja bú- skap, og deildum þá um tíma efri hæðinni í gamla húsinu. Hann kom í hlaðið á glæstum hesti, enda mik- ill hestamaður, og átti löngum góða hesta sem hann var óspar á að lána mér, ef svo bar undir. Þær voru líka ófáar og ógleymanlegar hesta- ferðirnar sem við fórum í saman. Hjálpsemi og greiðvikni var Steina í blóð borin, og eigum við hér í Ferjukoti honum margt gott upp að unna, og þá ekki síst fyrir hjálpina sem hann veitti okkur við heyskapinn á árum áður. Mest og best minnist ég Steina fyrir hve góður hann var börnum, og þá sér- staklega eldri drengjunum okkar. Fyrir það verð ég honum eilíflega þakklát. Mikill sjónarsviptir er af Steina, og eigum við hér í Ferjukoti eftir að sakna hans sárt, en mest og stærst er sorgin hjá elsku mágkonu minni, börnum þeirra og foreldrum Steina, þeim Hönnu og Gulla. Ég bið góðan Guð að gefa þeim styrk og kraft í sorg þeirra. Hvíl í friði kæri vinur. Heba. Látinn er langt um aldur fram Þorsteinn Guðlaugsson, Steini Gulla eins og hann var alltaf kall- aður, og verður hann borinn til grafar í dag. Með þessum orðum langar mig að minnast hans og hans starfa fyrir Grunnskólann í Borgarnesi. Þegar ég kom til starfa við skólann sem skólastjóri sá hann um allan skólaakstur innanbæjar og æ síðan. Þessu starfi sinnti hann með mikilli prýði svo eftir var tekið og ávallt var hann tilbúinn að fara aukaferðir þótt ekki væri fyrirvari alltaf mikill. Með hressilegu við- móti sínu og léttleika ávann hann sér virðingu og vinsældir sam- starfsmanna og allra þeirra sem hann umgekkst. Starfsfólk og nem- endur skólans sakna nú vinar í stað og senda honum hugheilar þakkir fyrir það sem hann var okkur um leið og fjölskyldu hans eru sendar samúðarkveðjur á erfiðum tímum. Samskipti okkar Steina voru ekki einvörðungu á vettvangi skólans heldur voru samskipti okkar og vinátta ekki hvað síst í tengslum við hross en á Ölvaldsstöðum IV er rekinn vinsæll reiðskóli og hesta- leiga á sumrin. Ógleymanleg er hestaferð sem ég fór með þeim hjónum, ásamt fleira fólki fyrir nokkrum árum. Fyrir tilstilli Steina og Guðrúnar Fjeldsteð, konu hans, fékk ég leigt land fyrir hross á Öl- valdsstöðum II síðasta haust og hafði þar hross á útigangi í vetur. Var Steini, ásamt Guðrúnu, betri en enginn við að aðstoða mig við gjafir og eftirlit með þeim. Vegna þessa urðu mikil samskipti okkar í millum, oft daglega. Núna í vetur fór Steini svo í hjartaþræðingu og varð að fara varlega eftir það, enda duldist fáum að hann hafði ekki þann þrótt sem hann hafði áður en því miður gaf hann sér ekki tíma til að fara í nauðsynlega endurhæf- ingu að aðgerð lokinni. Að leið- arlokum eru honum þökkuð góð og skemmtileg kynni sem hefðu átt að vara svo miklu lengur. Okkar miss- ir er mikill en mestur er þó missir fjölskyldu hans, aldraðra foreldra, konu, barna og bræðra. Biðjum við hjónin góðan Guð að styrkja þau á þessum erfiðu tímum um leið og við sendum þeim okkar innilegustu samúðarkveðjur en atvikin haga því þannig til að við erum erlendis jarðarfaradaginn en hugurinn er hjá þeim. Kristján Gíslason. Á mannsævinni eru flestir dagar hvunndags, líða hjá og hverfa í gleymsku. Minningar okkar geyma gleðistundir og eftirminnileg atvik þar sem skemmtilegt fólk kemur við sögu, bernskuminningar frá því við erum að mótast og hver andrá felur í sér nýjar uppgötvanir um mannlífið og veröldina. Í því felst einhvers staðar tilgangur lífsins. Enginn lifir þó svo heila mannsævi að ekki sverfi að í sálartetrinu, augnablik sem við óskum þess að geta lifað að nýju og breytt gangi lífsins. Sem aldrei verður. Það varð gæfa æskufólks í Borg- arnesi og á Mýrum að kynnast Þor- steini Guðlaugssyni sem undanfarin ár hefur ekið fróðleiksþyrstum ungmennum til og frá skóla hér í Borgarnesi. Þorsteinn hafði ljúfa lund og lag á því að leysa úr flest- um vanda sem upp vill koma hjá þreyttum börnum að afloknum erf- iðum skóladegi eða að morgni dags eftir of lítinn nætursvefn eða hverju því sem kann að raska ró barns. Hann var það sem heitir á kjarnyrtri íslensku góður maður. Fræðslunefnd Borgarbyggðar vottar aðstandendum Þorsteins innilega samúð sína um leið og við þökkum vel unnin störf í þágu Grunnskóla Borgarness. Finnbogi Rögnvaldsson, formaður fræðslu- nefndar Borgarbyggðar. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Það er erfitt að eiga eftir að búa við það alla ævi, að hitta ekki leng- ur eða mæta ekki lengur honum Steina Gulla á rauðu rútunni sinni, brosandi og með höndina á lofti að heilsa okkur að sínum sið. Þessi góði drengur sem var hvers manns hugljúfi var skólabíl- stjóri eins og þeir gerast bestir og var það engu líkt hvernig krakk- arnir dýrkuðu hann. Í ein 3 ár fór ég fyrstu vikurnar á haustin með stelpunum mínum, sem nýbyrjaðar voru í skóla, fyrst á morgnana út á stoppustöð og svo góðan bíltúr þar til næst var stoppað og fór þá út. Steini hafði til að bera alveg sér- stakt lag eða vald á krökkunum í bílnum. Það var alltaf svo góður agi í stóru rútunni. Maður varð svo oft vitni að þessu, og dáðist að. Þegar ég sagði 7 ára dóttur minni frá láti hans, sagði hún: „Ég vildi að þetta væri bara draumur,“ og hin spurði í sinni barnslegu ein- feldni, hvort þetta væri satt. Börn- in sem hann keyrði í áraraðir hafa nú misst góðan vin. Ég minnist mjög margra góðra stunda með Steina og fjölskyldu hans heima hjá þeim á Ölvalds- stöðum. Við fullorðna fólkið höfum líka misst mikið og í litlu samfélagi eins og hér í Borgarnesi og sveitunum í kring, verður þessa manns sárt saknað. Fráfall Steina Gulla – eins og hann var jafnan kallaður – var snöggt, en hann náði aðeins 53 ára aldri. Við vitum svo sem, „að eitt sinn skal hver deyja“, en við vildum bara ekki hafa það svona fljótt. „Ekki tjaldar sorgin til einnar næt- ur,“ eru orð höfð eftir Hannesi Pét- urssyni. Við þekkjum það sem höfum misst, að minningin um góðan vin skýtur alltaf upp kollinum, þótt liðnir séu áratugir. Endurminning- in um hið góða í fari fólks, lifir svo sterkt í hjörtum okkar, eins og sagt er svo meistaralega í Hávamálum. Fjölskyldu Steina, nánum ætt- ingjum og vinum sem eiga nú um sárt að binda, votta ég mína dýpstu samúð. Gunnar G. Gunnarsson. Við sátum saman og spjölluðum um daginn og veginn en það var ekki sami léttleikinn yfir Steina eins og áður er hann kenndi sér lasleika á síðasta vori. Tveimur dögum seinna er Steini allur. Já, svona er lífið margbreytilegt og aldrei fyrirséð hvað á daga okkar drífur. Mannshugurinn er í allri ÞORSTEINN ÓSKAR GUÐLAUGSSON Bróðir okkar, mágur og frændi, VALDIMAR JÓNSSON húsgagnasmíðameistari frá Kringlu í Miðdölum, lést í Seljahlíð, Hjallaseli 55, í Reykjavík, fimmtu- daginn 4. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Stefán Jónsson, Skarphéðinn Jónsson, Fanney Benediktsdóttir, Elísa Jónsdóttir og systkinabörn. Systir okkar, JÓNA BENEDIKTSDÓTTIR, Vöglum, Eyjafjarðarsveit, lést á Seli sunnudaginn 31. júlí. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 9. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Ásrún Benediktsdóttir, Auður Benediktsdóttir. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON fyrrverandi útgerðarmaður frá Árgerði, Árskógsandi, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðju- daginn 2. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Synir, tengdadætur, afa- og langafabörn. Ástkær faðir okkar, afi og fv. eiginmaður, MAGNÚS G. HELGASON frá Lambastöðum, Seltjarnarnesi, lést á hjartadeild Háskólasjúkrahússins í Lundi, Svíþjóð, þriðjudaginn 2. ágúst. Kristín Lára Magnúsdóttir, Helgi Þór Magnússon, Sigríður Ýr Magnúsdóttir, Elín Ebba Helgason Strandmark, Hildur Elín Johnson. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN SÆVAR JÓHANNESSON læknir frá Kleifum í Gilsfirði, lést á heimili sínu mánudaginn 1. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 8. ágúst kl. 15.00. Hlér Guðjónsson, Mi Ran Chang, Eggert Freyr Guðjónsson, Maria Sastre og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐLAUGAR GÍSLADÓTTUR fyrrum húsfreyju á Hnappavöllum í Öræfum. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fyrir góða umönnun. Ingunn Jónsdóttir, Guðrún Jóhanna Jónsdóttir, Gísli Sigurjón Jónsson, Kristbjörg Jónsdóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og bróður, ÞORMÓÐS BIRGISSONAR stýrimanns, Laugavegi 5, Siglufirði. Eyrún Pétursdóttir, Þorsteinn Þormóðsson, Sigríður P. Stefánsdóttir, Halldóra M. Þormóðsdóttir, Valdimar L. Birgisson, Pétur Þormóðsson, Alma Birgisdóttir, Elíngunnur Birgisdóttir, Runólfur Birgisson, Hólmfríður Alexandersdóttir, Björn Birgisson, Álfhildur Þormóðsdóttir, Filippus Birgisson, Þorsteinn Birgisson, Ragnheiður Steinbjörnsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.