Morgunblaðið - 06.08.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 39
MINNINGAR
þeirra manna sem mest áhrif höfðu
á tónlistarlífið á Austurlandi og
munu störf hans á því sviði lengi
verða í minnum höfð.
Það var móðir Höskuldar sem
hóf að kenna honum á harmonium.
Fljótlega kom í ljós að drengurinn
ungi bjó yfir miklum hæfileikum á
tónlistarsviðinu og framfarir hans
urðu örar. Fyrir utan hæfileikana
naut Höskuldur þess dugnaðar sem
ávallt einkenndi hann og nánast
hver stund sem gafst var notuð til
æfinga.
Þegar Höskuldur hafði náð nokk-
urri leikni í harmoniumleik eign-
aðist hann harmonikku og ekki
minnkaði áhuginn fyrir tónlistinni
við það. Harmonikkan var vinsælt
og meðfærilegt hljóðfæri og gerði
hún Höskuldi kleift að æfa sig enn
meira en áður. Ekki var óalgengt
að hann hefði hljóðfærið með sér í
beitningaskúr föður síns, þar sem
hann hóf snemma að starfa, og í
hléum og kaffitímum mátti heyra
dunandi harmonikkutónlist úr
skúrnum.
Norðfirðingar skynjuðu fljótt að
þarna væri byggðarlaginu að
áskotnast óvenju góður harmon-
ikkuleikari og ekki leið á löngu þar
til Höskuldur var orðinn vinsælasti
harmonikkuleikarinn á dansleikjum
þar.
Að því kom að Höskuldur hleypti
heimdraganum og hélt hann þá til
náms í Samvinnuskólanum. Á með-
an hann dvaldi að heiman hélt hann
áfram að þroskast sem tónlistar-
maður og hóf að leika með góðum
tónlistarmönnum bæði í Reykjavík
og síðar um tíma í Vestmannaeyj-
um. Í Vestmannaeyjum kynntist
Höskuldur Haraldi Guðmundssyni
en þeir áttu síðar eftir að starfa
mikið saman á tónlistarsviðinu.
Að því kom að Höskuldur leitaði
á heimaslóðir á ný en þá hóf hann
að starfa sem skrifstofumaður hjá
Dráttarbrautinni hf. Og ekki lét
hann sitt eftir liggja á tónlistarsvið-
inu; brátt stofnaði hann danshljóm-
sveit sem við hann var kennd og
eins átti hann stóran hlut að máli
þegar Lúðrasveit Neskaupstaðar
var stofnuð árið 1954. Til að byrja
með var Höskuldur stjórnandi
lúðrasveitarinnar og helsti leiðbein-
andi blásaranna en árið 1955 stóð
hann ásamt fleirum fyrir því að fá
Harald Guðmundsson til að flytja
til Neskaupstaðar og varð Haraldur
þá stjórnandi sveitarinnar. Strax
við stofnun lúðrasveitarinnar hóf
Höskuldur að blása í básúnu af
krafti og náði góðri leikni á það
hljóðfæri.
Samstarf þeirra Höskuldar og
Haraldar er mörgum eftirminni-
legt; þeir voru kjölfestan í dans-
hljómsveitum Norðfirðinga um
langt skeið þar sem Haraldur blés í
trompet og Höskuldur lék á píanó,
þá var samstarf þeirra mikið á vett-
vangi lúðrasveitarinnar og síðast en
ekki síst muna margir töfrandi
samleik þeirra á harmonikku og
mandolin. Danshljómsveit á borð
við H.G.-sextettinn, sem þeir Har-
aldur og Höskuldur áttu stærstan
þátt í að móta, gaf ekkert eftir
bestu hljómsveitum annars staðar á
landinu og þótti mörgum athygl-
isvert að slík hljómsveit kæmi frá
byggðarlagi sem ekki var fjölmenn-
ara en Neskaupstaður var. Auk áð-
urnefndra tónlistarstarfa var Hösk-
uldur kirkjuorganisti í
Norðfjarðarkirkju um árabil og
hafði þá meðal annars frumkvæði
að því að pípuorgel var keypt í
kirkjuna.
Það var Höskuldi mikið metn-
aðarmál að efla tónlistarfræðslu í
heimabyggðinni og átti hann stóran
hlut að máli þegar Tónskóli Nes-
kaupstaðar var stofnaður árið 1955
en kennsla hófst við skólann 1.
október 1956.
Þegar Höskuldur hætti störfum
hjá Dráttarbrautinni hf. sneri hann
sér alfarið að rekstri húsgagna-
verslunar sem hann hafði komið á
fót. Að því kom síðan að Höskuldur
ásamt fjölskyldu sinni flutti búferl-
um á Reyðarfjörð og kom þar á fót
glæsilegri húsgagnaverslun. Þegar
Höskuldur flutti stóð fyrir dyrum
að reisa orkufrekt iðjuver á Reyð-
arfirði og taldi hann skynsamlegt
að koma á fót húsgagnaverslun þar
enda mikil uppbygging í augsýn.
Löng bið varð eftir því að iðjuverið
risi en engu að síður blómstraði
verslunin í höndum þeirra Hösk-
uldar og Höllu Völu. Höskuldur átti
þó eftir að lifa það að ákvörðun yrði
tekin um uppbyggingu orkufreks
iðnaðar á Reyðarfirði og fáir fögn-
uðu þeirri ákvörðun meira en hann.
Síðustu árin bjuggu þau Höskuldur
og Halla Vala á Egilsstöðum og ný-
verið seldu þau húsgagnaverslunina
á Reyðarfirði.
Við sem þetta ritum áttum þess
kost að starfa með Höskuldi á vett-
vangi tónlistarinnar. Sérstaklega er
eftirminnilegt þegar við, 16 og 17
ára gamlir, lékum í hljómsveit með
honum. Veran í þeirri hljómsveit
var mikill skóli og þar var Hösk-
uldur lærifaðirinn. Í þessari hljóm-
sveit skynjuðum við best hvernig
tónlistarmaður Höskuldur var;
hann æfði sig skipulega og af
þrautseigju, ávallt tilbúinn að ræða
nýjungar sem voru að koma fram í
tónlist og mikill leiðtogi þegar
þurfti á að halda. Þarna áttuðum
við okkur líka á því að þrátt fyrir
að Höskuldur léki danstónlist af
eldmóði var það klassísk tónlist og
djass sem áttu hug hans helst. Sér-
staklega var unun að hlýða á Hösk-
uld leika djass en leitun var að
manni sem átti jafn auðvelt með að
leika af fingrum fram. Eins höfðum
við góð kynni af Höskuldi þegar
hann veitti félagsheimilinu Egilsbúð
forstöðu en á þeim árum voru
tengsl hans við hljómsveitarstráka
einkar eftirminnileg.
Á seinni árum lék Höskuldur
undir hjá Stefáni syni sínum og
veitti það honum ómælda ánægju.
Tónleikar þeirra feðga voru í
reyndinni ógleymanlegir og enn sjá
margir Höskuld fyrir sér við píanó-
ið leika af miklu næmi undir flautu-
leikinn.
Alla tíð fylgdist Höskuldur af
áhuga með tónlistarlífi í Neskaup-
stað og síðar í Fjarðabyggð. Hann
sótti tónleika hvenær sem færi
gafst og ávallt var hann hvetjandi
og gefandi þegar tónlistin var ann-
ars vegar. Allir sem komið hafa ná-
lægt tónlistarmálum í byggðarlag-
inu munu sakna Höskuldar sárt en
á móti kemur að um hann eiga
menn einnig ljúfar og fagrar minn-
ingar bæði í dúr og moll.
Undirritaðir vilja þakka Höskuldi
giftusamlegt starf í þágu norðfirsks
og austfirsks tónlistarlífs. Störf
hans á því sviði munu lengi verða í
minnum höfð. Eiginkonu hans,
Höllu Völu, skulu hér sendar inni-
legar samúðarkveðjur svo og börn-
um þeirra hjóna, fjölskyldum þeirra
og öðrum aðstandendum.
Minningin um góðan dreng og
frábæran tónlistarmann mun lifa.
Ágúst Ármann Þorláksson,
Smári Geirsson.
Vinur minn Höskuldur Stefáns-
son hefur kvatt okkur hinstu
kveðju.
Ég vissi raunar að hann var með
illkynja sjúkdóm, en þremur dögum
áður en hann dó frétti ég að hann
væri hér á Fjórðungssjúkrahúsinu
og hefði þá verið það hress að hann
hefði verið að leika þar á sína
harmonikku fyrir starfsfólk og
sjúklinga. En að þetta væru hans
kveðjutónleikar kom mér ekki í
hug.
Höskuldur var fæddur tónlistar-
maður, en var eftir því sem ég best
veit að mestu sjálfmenntaður.
Lærði sem barn að leika á orgel hjá
móður sinni, en þroskaðist svo að
mestu af sjálfsdáðum í það að verða
afburða fjölhæfur og snjall hljóð-
færaleikari. Lék á píanó, orgel,
harmonikku og blásturshljóðfæri.
Ég veit að mörgum eldri Norð-
firðingum mun ríkt í minni sam-
leikur þeirra Haraldar heitins Guð-
mundssonar þar sem Haraldur lék
á banjó en Höskuldur á harmon-
ikku og voru þeir þá ekkert að velja
sér neitt léttmeti heldur erfið klass-
ísk verk sem allir gátu þó notið og
ég veit að leikur þeirra endurómar
ennþá í hugum margra Norðfirð-
inga.
Meðan Höskuldur bjó hér í bæ
kom hann á mörgum sviðum við
sögu tónlistarinnar. Hann var um
árabil orgelleikari og söngstjóri
Norðfjarðarkirkju. Einn af stofn-
endum Lúðrasveitar Neskaupstað-
ar og um tíma stjórnandi hennar.
Og ótaldir eru þeir dansleikir sem
hann lék á með ýmsum hljómsveit-
um. Hljómlistin var fyrst og fremst
hans hugarheimur og lífsfylling og
ég veit að ein mesta gleði hans og
hamingja var að Stefán Ragnar
sonur hans er nú orðinn frægur
tónsnillingur m.a. orðinn meðlimur
í Metropolitan-hljómsveitinni og
tengdadóttirin þekkt sem píanó-
snillingur.
Höskuldi kynntist ég fyrst þegar
hann var 11 ára gamall en hann var
þá í hópi barna sem ég var að
kenna sund. Hann varð svo um
tíma einn af okkar bestu sund-
mönnum og var m.a. fyrsti handhafi
Ægisbikarsins. Hann dáði mikið þá
íþrótt og stundaði hana daglega
þegar aðstæður og heilsa leyfðu.
Höskuldur var hamingjusamur
maður. Hann átti yndislegan lífs-
förunaut, Höllu Valgerði Stefáns-
dóttur, og með henni fimm vel gerð
börn. Er hægt að hugsa sér meiri
lífshamingju?
Að lokum kveð ég vin minn
Höskuld Stefánsson og þakka hon-
um vináttuna og allar þær ánægju-
stundir sem hann hefur veitt mér
og mínum.
Höllu Valgerði og börnum þeirra,
sem og tengdabörnum og öðrum
hans nánustu, sendum við Guðrún
og börn okkar innilegar samúðar-
kveðjur.
Stefán Þorleifsson.
Það fylgir því alltaf tregablandin
tilfinning þegar samferðafólk okkar
á lífsins leið leggur í sína hinztu för.
Með hryggð en einnig þökk í huga
er heiðursmaðurinn Höskuldur
Stefánsson kvaddur, en hann varð
að lúta í lægra haldi fyrir þeim
grimma vágesti sem alltof oft eirir
engu.
Örfá fátækleg þakkarorð skulu
sómamanni miklum færð við leið-
arlok. Um Höskuld á ég margar
myndir minninganna muna kærar,
það var ævinlega gott og gaman að
hitta Höskuld, hann sló gjarnan á
léttari strengi eða þá að þjóðmálin
voru krufin til mergjar, en Hösk-
uldur var með fastmótaða og rót-
tæka lífsskoðun, sem hann lá hvergi
á, opinskár, hreinskiptinn í hví-
vetna, orðheldinn, ákveðinn en
sanngjarn. Hann átti það til að
koma með hnyttnar og beinskeyttar
athugasemdir um lífið og tilveruna,
sem komu manni stundum á óvart
en urðu ríkur gleðigjafi þegar
áfram var rætt og rabbað. Tónlistin
átti alltaf í honum sterk ítök, þar
naut hann sín máske allra bezt.
Fyrstu kynni mín af honum voru á
dansleikjum í Félagslundi heima,
þar sem hann lék svo sannarlega á
als oddi, laðaði fram tindrandi tóna
áreynslulaust með öllu. Höskuldur
var einstakur smekkmaður á hvers
konar tónlist, túlkun hans á hljóð-
færin næm og öguð, en jafnframt
tilfinningarík. Hann hafði töfra tón-
anna virkilega á valdi sínu, jafnt þá
mildu og þýðu sem hina ómstríðari
og fjörugri, öllum tilbrigðum einkar
vel til skila haldið, hljómarnir blæ-
brigðaríkir og fallegir umfram allt.
Verzlunarstörf voru lengst af iðja
hans helzt og þar var sannarlega
réttur maður á réttum stað. Hösk-
uldur var heiðarlegur og hagsýnn
um leið, greiðvikinn við viðskipta-
vini sína svo af bar, vöruval hans
vandað og smekklegt, þar kom fag-
urkerinn fjölhæfi vel í ljós.
Lífslán Höskuldar var fólgið öllu
fremur í ágætri úrvalskonu og efn-
isbörnum góðum, þeirra er nú
söknuðurinn mestur en einnig mikil
þökk fyrir samfylgd kæra á farsælli
ævigöngu góðs drengs. Þeim öllum
sem áttu hann Höskuld nánastan
sendum við Hanna einlægar sam-
úðarkveðjur. Sæmdardrengur og
þekkur þegn er horfinn okkur og
samfylgd skal þökkuð heilum huga.
Ljúfir tónar leika um lendur mun-
ans í mætri minningu Höskuldar
Stefánssonar. Megi vegferð hans á
huldum leiðum verða hlýjum hljóm-
um vafin.
Helgi Seljan.
Elsku afi, nú ertu búinn að
kveðja okkur. Ég get ekki lýst því
hvað ég er þakklát fyrir það að hafa
náð að kveðja þig, afi, áður en þú
fórst, svo kom Guð og náði í þig
stuttu seinna.
Þegar ég horfi til baka man ég
eftir þér raulandi eða spilandi á pí-
anóið, þú kallaðir iðulega í mig þeg-
ar ég var stödd hjá þér og ömmu
og baðst mig um að syngja eða
dansa ballett við fallegan undirleik
þinn.
Þar sem þú varst var alltaf músík
og svo spilaðir þú svo fallega á
nikkuna líka og að hugsa sér að þú
lærðir fyrst að spila algjörlega eftir
eyranu.
Það má nú með sanni segja að
tónlistarhæfileika þína höfum við
mörg erft frá þér, börn, barnabörn
og barnabarnabörn annað hvort
syngjandi eða spilandi á hljóðfæri
af hjartans lyst og ég veit að þér
þótti svo vænt um það, tónlistin var
svo stór partur af því hver þú varst.
Já, afi minn, við eigum margar
góðar minningar um þig og ég veit
að þú átt eftir að fylgjast með okk-
ur um ókomna tíð, núna ertu kom-
inn á stað þar sem þú situr og spil-
ar með englum Guðs og veikindin
þín eru ekki að hrjá þig lengur.
Þú verður í bænum okkar Stef-
áns Arnar og Huga Rafns og við
munum ávallt hugsa með hlýhug til
þín, við kveðjum með söknuði.
Vertu sæll, elsku afi minn.
Þín
Auður Eva.
Góður drengur og merkisberi
sinnar samtíðar er genginn. Glögg-
ur og hæfileikaríkur frumkvöðull,
óþreytandi og fylginn sér og setti
hann sinn eftirminnilega svip á
mannlíf og umhverfi. Tónlistarmað-
ur af Guðs náð, ósínkur á sína náð-
argáfu, að veita öðrum þar hlut-
deild, hvort sem það voru
hljómlistarmenn eða njótendur.
Ávallt reiðubúinn að leggja sitt af
mörkum.
Minnast eflaust margir snilldar
hans og áhuga á að láta hressandi
andblæ og vinda leika um sitt sam-
félag, með röggsemi og þrótti. Dug-
mikill og drífandi sölumaður, er
lagði mikið upp úr góðri þjónustu
við fólk, ekki aðeins í heimahéraði
heldur víðast á Austurlandi. Ávallt
mannbætandi að líta inn hjá honum
í versluninni og taka ásamt honum
sólarhæðina á samfélagi og þjóð-
málum og þá ekki síst á tónlistinni,
stöðu hennar og framtíð. Þar fór
maður sem ekki lá á sínum skoð-
unum og fór oft mikinn, ekki af
neinu skafið og gjarnan lýsingarorð
í hástigi eða frásagnarmátinn og
orðalag með þeim hætti að um
hreint skemmtiefni gat verið að
ræða.
En á meðal þess sem honum var
ákaflega huglægt var að reyna með
öllu móti að komast og draga aðra
með sér, upp úr allri lágkúru og
meðalmennsku. Hugsjónin ydduð til
hins ýtrasta og ævinlega litið til
fyrirmynda þar sem andinn reis
hæst. Gilti þá einu, hvort um var að
ræða athafnaskáld eða andans
menn menningar og lista. Hann átti
afar erfitt með að leyna skoðun
sinni á hugdeyfð og framtaksleysi
og skorti á reisn og virðingu fyrir
því, sem hæst rís í siðuðu sam-
félagi. Kappsmaðurinn, gat aldrei
linnt sinni brýningu. Kröfuharðast-
ur við sjálfan sig og lagði sig allan
fram um að gera sitt besta. Saga
tónlistar hér á Austurlandi verður
aldrei öll sögð án þess að nafn hans
verði þar nefnt og gildir um fleira
sem hann tók sér fyrir hendur.
Umhyggja hans og metnaður aug-
ljós fyrir hönd síns byggðarlags og
fólks á Austurlandi. Framtíð og
hagur borin fyrir brjósti og sú von
að miðmiðin og fyrirmyndirnar
væru lýðum ætíð af þeim toga að
þær efldu djörfung, döngun og
reisn.
Við hlið hans stóð Halla dyggur
förunautur og margan hátt kjöl-
festa í hans lífi og fjölskyldu og
studdi með ráðum og dáð. Lognið
stóð venjulega stutt við á gjöfulli og
litríkri ævi, en slíkt gerist auðvitað
sjaldnar hjá þeim sem mæta hverj-
um degi albúnir að takast á við ögr-
andi og óþrjótandi verkefni. Slík
starfssinfónía getur aldrei orðið
öðru vísi en tilþrifamikil og ómstríð
á köflum og skiptingar hraðar.
Ég átti þess kost að kynnast
Höskuldi m.a. sem organista í
Norðfjarðarkirkju og þeim góða
hug og metnaði, sem hann bar fyrir
kirkju og kristni. Organistahlut-
verkinu gegndi hann af einstakri
aðlúð og samviskusemi.
Höskuldur auðgaði sannarlega
sitt samfélag með gefandi og til-
þrifamikilli nálægð sinni. Ég vil hér
þakka kær og uppbyggileg kynni
og votta Höllu og allri fjölskyldu
hans og vinum mína dýpstu samúð
á erfiðum stundum og bið Guð að
blessa og styrkja þau öll.
Davíð Baldursson.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta