Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 44
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
MMMM... LYKTIN
AF SVIÐNU HÁRI
JÓN VAR AÐ
KVEIKJA UPP Í
ARNINUM
ÉG ER SVO
ÁNÆGÐUR AÐ
FÁ AÐ DUSTA
BURSTANA
AFTUR
EN SÁ HEIÐUR! ÆTLI KRÍTARRYKIÐ EIGIEFTIR AÐ SJÁST Í RÖNTGEN?
GERI
ÞAÐ
SAMKVÆMT UPP-
SKRIFTINNI ÆTTU AÐ
VERÐA ÚR ÞESSU 20
PÖNNUKÖKUR
ÞAÐ ER ALLT OF
MIKIL FYRIRHÖFN
VIÐ BÚUM BARA TIL
EINA STÓRA
BÆTTU SVO
VIÐ EGGJUM
ÞEIR ERU EINS OG
SALTHNETUR...
EF MAÐUR BORÐAR SVO
MIKIÐ SEM EINN ÞÁ GETUR
MAÐUR EKKI HÆTT
HVAÐ ÞURFTIR ÞÚ AÐ FARA
TIL MARGRA HUNDAÞJÁLFARA
TIL ÞESS AÐ LÆRA AÐ GANGA
UPPRÉTTUR?
ÉG ER HRÆDD UM
AÐ ÉG VERÐI AÐ
HÆTTA Í MEÐFERÐ
HJÁ ÞÉR. ÉG HEF
EKKI EFNI Á ÞVÍ
MYNDI ÞAÐ
HJÁLPA EF ÉG GÆFI
ÞÉR TÍMABUNDINN
AFSLÁTT?
JÁ, ÞAÐ
VÆRI
FRÁBÆRT
SJÁUMST
VIÐ ÞÁ EKKI Í
NÆSTU VIKU?
NEI, ÞAÐ VERÐUR AÐ BÍÐA
ÞANGAÐ TIL Í ÞAR NÆSTU VIKU.
ÉG ER AÐ FARA TIL MEXÍKÓ
HVERNIG GEKK,
PETER?
HAMARHÖND
ER KOMINN
AFTUR Á BAK
VIÐ LÁS OG SLÁ
EN HVAÐ VARÐ UM
AÐSTOÐARMANNINN ÞINN
HANN SAGÐI UPP...
... EN SKILDI
ÞETTA EFTIR
Dagbók
Í dag er laugardagur 6. ágúst, 218. dagur ársins 2005
Það kann að komasumum lesendum
á óvart en Víkverji er
samkynhneigður.
„Þá er síðasta vígið
fallið og ekkert heilagt
lengur,“ hugsar Vík-
verji með sér og hlær
upphátt að eigin
fyndni.
Það kemur reyndar
flatt upp á marga þeg-
ar þeir komast að kyn-
hneigð Víkverja, enda
ekki beinlínis hægt að
sjá samkynhneigðina
utan á honum. Það á
reyndar við um lang-
flesta homma og lesbíur að þau falla
inn í hópinn. Það eru nefnilega kján-
ar sem halda að hver einn og einasti
hommi og lesbía landsins sé með at-
riði í Gay-pride göngunni: það eru
mikið fleiri sem hverfa inn í hóp
áhorfenda svo enginn tekur eftir.
Víkverja þykir ósköp vænt um
fólkið sem stendur að skrúðgöng-
unni miklu og dáist að framtakssemi
þeirra og dugnaði. Víkverja finnst
samt stundum miður að ekki beri
meira á hversdagslegu hommunum
og lesbíunum á þessum hátíðisdegi.
En eins og einn vinur Víkverja orð-
aði það þá er Víkverji litlaus og leið-
inlegur. Enginn myndi nenna að
fara niður í bæ að
horfa á tvö hundruð
Víkverja í jakkafötum
og með bindi labba
þögula með gáfulegan
svip í halarófu niður
Laugaveginn.
Já, mikið skelfing
þykir Víkverja vænt
um göngufólkið. Raun-
ar kemst Víkverji ekki
hjá því að verða örlítið
klökkur þegar hann
fylgist með göngunni
því fallegt er að sjá
hvað þetta litla sam-
félag, sem íslenskir
hommar og lesbíur
mynda, getur afrekað til að fagna
fjölbreytninni og gleðja samborgara
sína.
Um leið vonast Víkverji til að með
hverri göngunni færist réttindamál í
betra horf. Þó aðstæður séu með
skásta móti á Íslandi þá reka enn
stöku sinnum fram ljótt trýnið mál
um aðkast, mismunun og jafnt dulda
sem augljósa fordóma. Víkverji má
ekki gefa blóð vegna löngu úreltra
verklagsreglna sem Blóðbankinn
heldur til streitu og Víkverji má
heldur ekki ættleiða barn, þó hann
sé efni í fyrirmyndarforeldri. Vík-
verji er samt bjartsýnn á framtíðina.
Til hamingju með daginn.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Ljósmyndasýning | Á Sólon sýnir Guðmundur Heimsberg ljósmyndir sínar.
Sýningin ber yfirskriftina „You Dynamite“ og eiga fyrirsætur Guðmundar
það sameiginlegt að vera karlmenn þekktir í íslensku samfélagi og að auki
sköllóttir. Á myndinni hér að ofan stillir Ragnar Bragason, leikstjóri og
handritshöfundur, sér upp.
Guðmundur er á lokaári við Kvikmyndaskóla Íslands en hann nam stúd-
íótökur hjá Guðmundi Bjartmarssyni.
Sýning Guðmundar stendur til 28. ágúst.
Frægir skallar
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Trúin er fullvissa um það, sem menn vona, sannfæring um þá hluti,
sem eigi er auðið að sjá. (Hebr. 11, 1.)