Morgunblaðið - 06.08.2005, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 45
DAGBÓK
SAMTÖK sveitarfélaga á Vesturlandi(SSV-ráðgjöf) og Intra nýsköp-unarmiðstöð eru þátttakendur í evr-ópsku verkefni um frumkvöðlafræðslu
sem heitir Ungir frumkvöðlar og var Ágúst
beðinn að skipuleggja námskeið fyrir ungt fólk
á landsbyggðinni. Þegar hafa verið haldin fjög-
ur slík námskeið; á Akureyri, í Laugagerð-
isskóla á Snæfellsnesi, á Sauðárkróki og í Búð-
ardal. Dagana 8. til 10. ágúst verður síðan
haldið námskeið á Blönduósi, þar sem krakk-
arnir í Vinnuskólanum á svæðinu munu eyða
þremur dögum í frumkvöðlafræðslu. Krakk-
arnir, sem eru á aldrinum 14 til 18 ára, fá nám-
skeiðið frítt og verða á launum í Vinnuskól-
anum á námskeiðinu. Það hefur ekki verið gert
áður. Á námskeiðinu verða á bilinu 15 til 25
þátttakendur.
Á frumkvöðlanámskeiðunum eiga þátttak-
endur að leita að viðskiptatækifærum í sinni
heimabyggð og vinna með þau. Krakkarnir
vinna í hópum og gera viðskiptaáætlanir út frá
hugmyndum sínum. Í lok námskeiðs er for-
eldrum, bæjarstjórnarfulltrúum og fleirum boð-
ið á kynningu á verkefnunum, sem krakkarnir
annast sjálfir. Ágúst segir að þær séu jafnan
mjög vel unnar og standist allan samanburð.
„Þau eru svo fljót að ná þessu og verða alveg
heltekin þessa þrjá daga,“ segir Ágúst og tekur
fram að jafnvel sé unnið frá klukkan tíu á
morgnana og fram undir morgun. „Þau gera
ýmsar uppgötvanir, bæði á sjálfum sér og um-
hverfi sínu. Þau uppgötva að þau geta meira en
þau héldu og sjá hvað það eru í raun mörg
tækifæri í kringum þau.“
Ágúst segir námskeiðin hafa heppnast vel og
krakkarnir séu ánægðir. KB-banki muni veita
30.000 króna verðlaun fyrir bestu hugmyndina í
Búðardal, svo krakkarnir hafi eitthvað að keppa
að. Ágúst veit ekki til þess að hugmyndum af
námskeiðunum hafi verið hrint í framkvæmd,
en veit að sumir þátttakenda hafa haft fullan
hug á því. „Sem dæmi má nefna verslun þar
sem fólk getur hannað eigin boli, Hollt og gott-
matarbakkar í fyrirtækin á svæðinu, alhliða
þjónusta fyrir eigendur gæludýra, netkaffi í
Búðardal og svona mætti lengi telja. Þessi
verkefni hafa lent í fyrsta sæti hjá okkur,“ seg-
ir Ágúst. „Markmiðið með þessum námskeiðum
er að hvetja krakkana til þess að fara í skap-
andi gír og virkja hjá þeim sköpunarkraftinn.
Við gerum líka mikið úr því að þar sem eru
vandamál, eru líka tækifæri. Ég hef séð að
krakkarnir fá sjálfstraust við þetta og það er
aðalávinningurinn af þessu. Við erum ekki að
búa til viðskiptamenn, eins og sumir gætu hald-
ið. Öll frumkvöðlafræðsla hjá unglingum hefur
raunar að markmiði að styrkja einstaklinginn.“
Námskeið | Frumkvöðlanámskeið fyrir ungt fólk á landsbyggðinni
Leita tækifæra í heimabyggð
G. Ágúst Pétursson
fæddist í Reykjavík árið
1953 og hefur búið þar
síðan, utan 11 ára bú-
setu í Berlín, þar sem
hann nam félagsvísindi.
Hann er kvæntur og
tveggja barna faðir.
Ágúst hefur lengstum
starfað sem við-
skiptaráðgjafi hjá fyr-
irtækjum og opinberum
aðilum. Hann hefur líka
haldið ýmiss konar námskeið, meðal annars
frumkvöðlanámskeið. Hann starfar nú sem
stjórnarformaður í Frumkvöðlafræðslunni.
Morgunstund gefur gull í
mund með ljósmyndum RAX
ÞAÐ verður að segja Mogganum til
hróss að hann birtir stundum af-
spyrnugóðar ljósmyndir og þá gjarn-
an á forsíð-
unni eða
baksíðunni.
Yfirleitt eru
þær eftir ljós-
myndarann
RAX.
Þessar
myndir í
Mogganum gleðja mann jafnmikið í
morgunsárið og hinir frábæru
greinahöfundar á baksíðu Frétta-
blaðsins. Eini munurinn er sá að
þessar ánægjulegu ljósmyndir fanga
augað algjörlega fyrirhafnarlaust
þannig að orðatiltækið fornkveðna
„Morgunstund gefur gull í mund“ á
hér sannarlega við. Maður þarf hins
vegar að leggja meira á sig til að lesa
hina mergjuðu baksíðupistla eftir
þau Þráin, Súsönnu eða Jón Gnarr
og þau svíkja aldrei.
Tilefni þess að ég sting loksins
niður penna er að eitt hið besta sem
maður fær þegar heim er komið frá
útlöndum eru fallegar íslenskar ljós-
myndir þegar flett er í gegnum him-
inháan dagblaðabunkann sem bíður
manns.
Á eintaki Morgunblaðsins frá
föstudeginum 15. júlí síðastliðnum
var forsíðan undirlögð af söndunum
við Hólsá, sem var snilld – Kjarval
hefði ekki gert þetta betur. Má ég
frekar biðja um svona stórar myndir
en endalausar steingeldar við-
skiptafréttir.
Niðurstaða: Það er bara svo lítill
tími frá hinu daglegu amstri að
stærri, fallegri íslenskar myndir og
beinskeyttir pistlar eru það sem
maður leyfir sér að njóta með mikilli
ánægju – þetta einfaldlega sker sig
úr öllu annars samhljóða fjölmiðla-
flóði.
Erna Margrét Ottósdóttir
GSM 867-5808.
Rétt skal farið
með tímgun dýra
Í SJÓNVARPSFRÉTTUM þ. 4.
ágúst var talað um klónun á hund-
um. Mér heyrðist talað um að tík-
urnar hefðu orðið þungaðar. Okkur
fannst það svolítið spaugilegt, því ég
hef alltaf heyrt að tíkur væru hvolpa-
fullar, læður kettlingafullar og kýr
kálffullar. Þekking á orðum í þessu
samhengi fer þverrandi. Allir krakk-
ar hér áður fyrr þekktu vísuna:
Gekk ég upp á Hamarsbrú
Sá þar sitja unga frú
Hún var eins og kálffull kú
Kannski það hafi verið þú.
Konur eru þungaðar og fæða,
kettir og tíkur gjóta, hryssur kasta
og kýr bera.
H. G.
Reykingabann
HVENÆR á eiginlega að banna
reykingar á veitingahúsum og
skemmtistöðum hér á landi? Það
virðist hafa tekist ágætlega í ná-
grannalöndum og margir bíða eftir
að þetta verði tekið upp á Íslandi.
Reyklaus.
Mozart og Gabríel eru týndir
TVEIR persneskir kettir týndust
frá Þorlákshöfn aðfaranótt miðviku-
dags. Þeir eru gull-silfurlitir feðgar,
þriggja ára og fimm ára. Ef fólk sér
til ferða þeirra í Þorlákshöfn eða
nærsveitum er það vinsamlegast
beðið um að hringja í s. 692-1370 eða
699-7779.
Nanna.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
80 ÁRA afmæli. Í dag, laugardag-inn 6. ágúst, er áttræð frú Mar-
grét Einarsdóttir. Eiginmaður hennar
til 62 ára er Oddur Geirsson pípulagn-
ingameistari, Holtagerði 64, Kópa-
vogi, en þar hafa þau búið í 40 ár. Sí-
ung mun Margrét verja deginum með
nánustu fjölskyldu.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
70ÁRA afmæli. Sjötugur er í dagAxel Aspelund, fv. form. SVFR
og seinna starfsmaður General Elect-
ric í Decatur AL., nú búsettur í Hunts-
ville, Alabama, USA. Axel og eiginkona
hans Linda L. Dean verða ásamt vinum
og fjölskyldum gestir hjá frú Sigríði og
Robert Head ofursta, í Columbus,
Missisippi, á afmælisdaginn.
Rúbínbrúðkaup | Á morgun, sunnu-
daginn 7. ágúst, eiga 40 ára hjúskap-
arafmæli Úlfar Sveinbjörnsson (Úlli)
og Kristín Steingrímsdóttir (Kibba).
Þau verða í sumarbústað sínum að Iðu.
Vinir og vandamenn eru hvattir til að
renna við og fá sér kaffi.
Áttu réttu græjurnar
fyrir skólann?
Láttu áhugasama vita!
Glæsilegur blaðauki um skóla og námskeið á Íslandi
fylgir Morgunblaðinu fimmtudaginn 18. ágúst.
Meðal efnis er háskólanám,
framhaldsskólanám, skólavörur,
tónlistarnám, símenntun og
endurmenntunog margt fleira.
Auglýsendur, pantið fyrir kl. 16.00
mánudaginn 15. ágúst.
Allar upplýsingar veitir
Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105
eða kata@mbl.is
Afmælisþakkir
Kærum vinum, ættingjum og ekki síst börnum
mínum og þeirra fjölskyldum, vil ég þakka ein-
staklega gleðilegan 70 ára afmælisdag.
Lifið heil!
Dagný Sigurgeirsdóttir.
Í ÁGÚSTMÁNUÐI verða haldnir
upplestrar alla laugardaga á
Gljúfrasteini. Lesið verður í laut-
inni í garði húss skáldsins og hefst
lesturinn í dag kl. 14 með lestri
Ingibjargar Haraldsdóttur og Hall-
dóru Thoroddsen.
13. ágúst lesa Einar Már Guð-
mundsson og Birgir D. Sveinsson.
20. ágúst eru það Jón Kalman Stef-
ánsson og Bjarki Bjarnason sem
lesa og loks 27. ágúst að Þórarinn
Eldjárn og Ilmur Kristjánsdóttir
annast lesturinn.
Lesin verða ýmis verk, bæði ljóð
og smásögur eftir lesarana sjálfa,
eftir Halldór Laxness og aðra höf-
unda.
Ókeypis er á upplestrana.
Upplestrar á
Gljúfrasteini