Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 48

Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING www.kringlukrain.is sími 568 0878 Dans á rósum frá Vestmannaeyjum í kvöld Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju 6. ágúst kl. 12.00: Zygmunt Strzep, orgel 7. ágúst kl. 20.00: Pólski orgelsnillingurinn Zygmunt Strzep leikur pólska orgeltónlist og verk eftir Bach og Eben. Í dag kl. 14 örfá sæti laus 6. sýn. sun. 7/8 kl. 14 örfá sæti laus 7. sýn. fim. 11/8 kl. 19 sæti laus Kabarett í Íslensku óperunni Næstu sýningar Laugardaginn 6. ágúst kl. 20.00 Föstudaginn 12. ágúst kl. 20.00 Laugardaginn 13. ágúst kl. 20.00 Sunnudaginn 14. ágúst kl. 20.00 Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON Fréttir á SMS KIRKJULISTAHÁTÍÐ verður haldin í tí- unda skipti í Hallgrímskirkju dagana 20.–28. ágúst. Fjölbreytt dagskrá verður frá morgni til kvölds í kirkjunni alla dagana, með þátt- töku yfir 300 listamanna. Margir þekktir listamenn, íslenskir sem erlendir, taka þátt í hátíðinni í ár. „Þetta er mjög stór og umfangsmikil hátíð sem við höfum stofnað til núna, einmitt vegna þess að við eigum tíu ára afmæli,“ sagði Inga Rós Ingólfsdóttir, framkvæmda- stjóri Kirkjulistahátíðar, á blaðamannafundi sem haldinn var í gær. Hátíðin er í fyrsta sinn haldin á þessum tíma árs, en hingað til hefur hún verið haldin síðla vors. „Allt frá vígslu Hallgrímskirkju hefur Kirkjulistahátíð verið haldin annað hvert ár, árið sem Listahátíð í Reykjavík var ekki haldin. En þar sem Listahátíð er nú haldin árlega var ákveðið að færa hátíðina fram í ágúst,“ sagði Inga Rós. „Þetta er því tilraun núna, og sú ákvörðun var tekin að hafa setn- ingardag hátíðarinnar sama dag og Menning- arnótt er haldin í Reykjavík.“ Salt jarðar Yfirskrift hátíðarinnar í ár er „Þér eruð salt jarðar“, og er þar vísað í Fjallræðuna úr Matteusarguðspjalli, en guðspjallið verður leiðarljós í dagskrá hátíðarinnar í ár og kem- ur þar við sögu með margvíslegum hætti. „Við höfum gjarnan lagt áherslu á að það væri einhver rauður þráður sem gengi í gegnum þessa hátíð,“ sagði Hörður Áskels- son, sem er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. „Síðast voru orðin „Ég ætla að gefa regn á jörð“ yfirskriftin, og nú höfum við „Þér eruð salt jarðar“, sem er myndlíking úr Fjallræð- unni í Matteusarguðspjalli.“ Stærstu atriðin á Kirkjulistahátíð í ár tengjast þessum orðum og guðspjallinu með beinum hætti, en það er flutningur tveggja Matteusarpassía frá ólíkum tímum, eftir Jo- hann Sebastian Bach og norska tónskáldið Trond Kverno. Hörður benti á að í raun væru passíurnar fluttar á röngum tíma kirkjuársins – þær ætti með réttu að flytja á föstunni. „Hins vegar hefur komist á sú hefð víða um heim að flytja stórvirki Bachs utan hins litúrgískt rétta tíma. En með því að setja þær í samhengi við Matteusarguðspjall, sem gengur eins og rauður þráður gegnum dagskrá hátíðarinnar, fannst okkur þetta vera réttlætanlegt. Auk þess erum við í kirkju Passíusálmaskáldsins og höfum gjarn- an lagt áherslu á flutning passíutónlistar hér í kirkjunni,“ sagði hann. Við setningu hátíðarinnar, sem fer fram laugardaginn 20. ágúst kl. 16, verður fjöl- breytt dagskrá tengd yfirskriftinni „Þér eruð salt jarðar“, í flutningi ólíkra listamanna. Þar koma fram kórarnir í Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar, Alþjóðlega bar- okksveitin í Den Haag, organistarnir David Sanger og Kári Þormar, Sverrir Guðjónsson kontratenór og Lára Stefánsdóttir listdans- ari. Tvær Matteusarpassíur Á upphafstónleikum hátíðarinnar, sunnu- daginn 21. ágúst kl. 17, verður Matteus- arpassía eftir Johann Sebastian Bach flutt af þremur kórum Hallgrímskirkju; Mót- ettukórnum, Drengjakórnum og Unglinga- kórnum, einsöngvurunum Andreas Schmidt, Robin Blaze, Markus Brutscher, Jochen Kupfer, Noémi Kiss, Gunnari Guðbjörnssyni og Benedikt Ingólfssyni, og Alþjóðlegu bar- okksveitinni í Haag, undir stjórn Harðar Ás- kelssonar. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Matteusarpassía er flutt hér á landi með upprunalegum hljóðfærum og verða tónleik- arnir endurteknir mánudaginn 22. ágúst kl. 19. Dómkórinn í Osló flytur síðan Matteus- arpassíu frá árinu 1986 eftir Trond Kverno ásamt tíu einsöngvurum undir stjórn Terjes Kvam. Tónleikarnir fara fram á lokadegi há- tíðarinnar, 28. ágúst, og mun Kverno sjálfur ræða um verk sitt á undan tónleikunum sem hefjast kl. 17. Önnur tónlist Enski organistinn David Sanger mun taka þátt í Kirkjulistahátíð í ár með margvíslegum hætti. Meðal annars heldur hann meist- aranámskeið í Hallgrímskirkju og Langholts- kirkju, og kemur fram á tónleikum í Hall- grímskirkju fimmtudaginn 25. ágúst, þar sem flutt verður tónlist allt frá barokki til nú- tímans. Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur flytur verk eftir Arvo Pärt, Þorkel Sigurbjörnsson, Atla Heimi Sveins- son, Hafliða Hallgrímsson og fleiri tónskáld. Tónleikar kórsins verða laugardaginn 27. ágúst kl. 18. Ungverska sópransöngkonan Noémi Kiss kemur fram ásamt tónlistarhópnum En- semble L’Ais á tónleikum þriðjudaginn 23. ágúst kl. 18 undir yfirskriftinni „Yfir landa- mæri, tónlist barokktímans“. Þá syngja Voces Thules og Björn Steinar Sólbergsson organisti leikur við hátíðarmessu sunnudaginn 21. ágúst.Lokadag hátíðarinnar, 28. ágúst, verður hátíðarmessa kl. 11 þar sem biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, prédikar og leggur út af Fjallræðunni. Í messunni verður frumflutt nýtt tónverk eftir John A. Speight, „Drottinn er styrkur minn“, fyrir einsöngvara, kór, tólf málmblás- ara, pákur og orgel. Sérstakur hátíðarkór Kirkjulistahátíðar syngur í verkinu ásamt El- ínu Ósk Óskarsdóttur sópransöngkonu. Myndlist og kvikmyndir Myndlistarmaður Kirkjulistahátíðar árið 2005 er Rúrí, en hún mun sýna í kirkjuskipi og forkirkju Hallgrímskirkju undir yfirskrift- inni „Salt jarðar og ljós heimsins“. Laug- ardagskvöldið 27. ágúst mun Rúrí fremja gjörning ásamt Herði Áskelssyni í kirkjunni. Sýndar verða tvær kvikmyndir rússneska kvikmyndaskáldsins Andreis Tarkovskís á Kirkjulistahátíð í ár, Æska Ívans og Fórnin, í Bæjarbíói þriðjudagskvöldið 24. ágúst. Á málþingi, sem haldið verður í Hallgríms- kirkju kvöldið eftir, flytur Astrid Söderbergh Widding, prófessor í kvikmyndafræðum við Stokkhólmsháskóla, fyrirlestur sem nefnist Deus absconditus – á mörkum hins sýnilega og ósýnilega í kvikmyndum Tarkovskís. Deux ex cinema og Kvikmyndasafn Íslands eru samstarfsaðilar á þessum kvikmyndakvöld- um, sem bera yfirskriftina „Trúlega tar- kovskí“. Þá verður kvikmynd Piers Paolo Pasolinis frá 1964, Matteusarguðspjall, sýnd föstudags- kvöldið 26. ágúst. Unglistahátíð Að kvöldi setningardags Kirkjulistahátíðar er boðið til unglistahátíðar í Hallgrímskirkju í samstarfi við Menningarnótt í Reykjavík. Ræður þá ungt fólk ríkjum í kirkjunni og við sögu koma meðal annars ýmsir fyrrum, nú- verandi og verðandi nemendur við Listahá- skóla Íslands, úr ýmsum greinum. Má nefna sem dæmi tónverk eftir Rúnu Esradóttur og Kjartan Sveinsson sem verða flutt, og gjörn- ing í Hallgrímskirkjuturni sem Helgi Örn Pétursson og Guðmundur Vignir Karlsson fremja. Þá flytja ungir tónlistarmenn barokk- tónlist, og lesið verður úr Matteusarguð- spjalli í nýrri óútkominni biblíuþýðingu. Tónlistarandakt Á hverjum degi hátíðarinnar verður tón- listarandakt í hádegi þar sem tækifæri gefst til að heyra fallega tónlist og eiga kyrra stund með bæn í erli dagsins. Þar koma fram félagar úr Alþjóðlegu barokksveitinni í Den Haag, Hulda Björk Garðarsdóttir sópran, Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari, Ein- ar Jóhannesson klarinettuleikari, sem frum- flytur verk eftir John A. Speight, og Douglas A. Brotchie orgelleikari, auk nemenda á org- anistanámskeiði Davids Sangers. Kirkjulistaspjall Föstudagskvöldið 26. ágúst verður sérstök dagskrá í suðursal Hallgrímskirkju, sem kall- ast „Kirkjulistaspjall með kaffihúsastemmn- ingu“. Þá munu guðfræðingar og fræðimenn ýmissa greina ræða tónlist, bókmenntir, myndlist og kvikmyndir við gesti, en um- ræðum stjórna Ævar Kjartansson og dr. Sig- urður Árni Þórðarson. Laugardag og sunnudag helgina 27.–28. ágúst verður síðan markaður á Hallgríms- kirkjutorgi, þar sem meðal annars verða í boði vörur frá Sólheimum í Grímsnesi og ferskt grænmeti. Listahátíðir | Viðamikil Kirkjulistahátíð haldin í Hallgrímskirkju í 10. sinn dagana 20.–28. ágúst Tvær Matteusar- passíur fluttar Kirkjulistahátíð hefst í Hallgrímskirkju 20. ágúst. www.kirkjan.is/kirkjulistahatid Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason SÝNING á verkum Eggerts Péturssonar og Helga Þorgils Friðjónssonar var opnuð í Galerie Der Stadt í Mirabell-garðinum í Salzburg hinn 27. júlí síðastliðinn. Það var sendiherra Íslands í Austurríki, Sveinn Björnsson, sem opnaði sýninguna formlega. Um þessar mundir stendur einnig yfir hin árlega listahátíð borgarinnar, Salzburg Festspiele, sem leggur áherslu á sviðslistir og dregur árlega þús- undir listelskra gesta til borgarinnar. Hefur sýningin þegar vakið nokkra athygli og nokkur málverk verið seld. Verk Eggerts á sýningunni. Helgi Þorgils Friðjónsson og Egg- ert Pétursson sýna í Galerie Der Stadt í Salzburg um þessar mundir. Íslensk málverk í Salzburg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.