Morgunblaðið - 06.08.2005, Page 52
52 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
THE ISLAND kl. 5.45 - 8.30 - 10 og 11.20 B.i. 16 ára
DARK WATER kl. 5.50 - 8 og 10.15 B.i. 12 ára
Madagascar m/ensku.tali kl. 6 - 8 og 11.20
Batman Begins kl. 6 og 8.30 B.i. 12 ára
KRINGLAN
HVAÐ MYNDIR ÞÚ GERA EF ÞÚ KÆMIST AÐ ÞVÍ AÐ
ÞÚ VÆRIR AFRIT AF EINHVERJUM ÖÐRUM?
Magnaður framtíðartryllir þar sem hraðinn og spennan ræður ríkjum.
Frá hinum eina sanna Michael Bay (“Armageddon”, “The Rock”).
-S.V. Mbl.
-Steinunn/
Blaðið
SUMAR RÁÐGÁTUR
BORGAR SIG
EKKI AÐ UPPLÝSA
með ensku tali
EWAN McGREGOR SCARLETT JOHANSSON
Kvikmyndir.is
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. RÁS 2
THE ISLAND kl. 12 - 3 - 5.30 - 8.30 - 11.15 B.i. 16 ára
THE PERFECT MAN kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10
MADAGASCAR m/ísl.tali kl. 12 - 2.30 - 4.30 - 6.30
BATMAN BEGINS kl. 8.30 - 11.15 B.i. 12 ára
-Steinunn/
Blaðið
-S.V. Mbl.
-KVIKMYNDIR.IS
Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.
HÁDEGISBÍÓ 400 KR MIÐAVERÐ Á ALLA
Tveir kviðdómendur í réttarhöld-unum yfir Michael Jackson
hyggjast skrifa bók þar sem þeir
rökstyðja fullyrðingar sínar um að
illa hafi verið staðið að málum varð-
andi réttarhöldin yfir söngvar-
anum.
Kviðdómendurnir Eleanor Cook
og Ray Hultman, sem segjast hafa
verið tveir þriggja kviðdómenda
sem vildu sakfella söngvarann,
halda því m.a. fram að einn kvið-
dómendanna hafi smyglað upptöku
af sjónvarpsútsendingu inn í kvið-
dómendaherbergið en kviðdómend-
urnir voru í fjölmiðlabanni á meðan
á réttarhöldunum stóð.
Fleiri potta segir Cook hafa ver-
ið brotna, s.s. að meðal kviðdóm-
enda mátti finna einlæga aðdá-
endur söngvarans.
Fólk folk@mbl.is
ÞAÐ er ekki ofsögum sagt að
Adam Pierce er heilmikið krútt.
Útitekinn með sakleysislegt og
bjart augnaráð, Aragorn-skegg og
hlýlega framkomu. Hann er for-
sprakki hljómsveitarinnar Mice
Parade og eflaust leitun að krútt-
legra hljómsveitarnafni. Til að
auka á krútt-áhrifin er „Mice Par-
ade“ í raun bara stafaruglingur á
nafni Adams. Gerist það öllu krútt-
legra?
Það er samt ekki bara þess
vegna sem hann og hljómsveit
hans eru aðalnúmerið á listahátíð-
inni Krútt á Lýsuhóli á Snæfells-
nesi nú um helgina.
Varð til fyrir slysni
„Þetta er 7 manna hljómsveit,
fjórir frá New York, einn frá Chi-
cago, einn frá Englandi og einn ís-
lendingur,“ segir Adam um bandið.
„Reyndar getur hljómborðsleik-
arinn okkar ekki komið í þetta
skipti svo við höfum nýjan, íslensk-
an, Davíð.“
Þessi hópur hefur tínst saman
héðan og þaðan en bandið hefur
verið í stöðugri mótun: „Ætli það
hafi ekki verið í heildina 30 manns
í hljómsveitinni frá upphafi,“ segir
Adam, en segja má að bandið hafi
orðið til í kringum hann þegar
hann byrjaði á að púsla saman
upptökum sem hann hafði gert
með ólíkum hljómsveitum. „Þetta
var fyrir hálfgerða slysni. Skyndi-
lega varð til plata og síðan önnur.
Eftir þriðju plötuna afréðum við að
fara í tónleikaferð og þá má segja
að fyrst hafi orðið til heildstæð
hljómsveit.“
Íslandsvinur
Kynni Adams af Íslandi og Ís-
lendingum bar að með þeim hætti
að Mice Parade hafnaði hjá sama
útgáfufyrirtæki og íslenska bandið
Múm: „Við fórum saman í tónleika-
ferð um Evrópu. Þetta var fyrir
löngu síðan, kannski 98-99 (ég er
ekki með gott tímaminni). Þar
hófst vinskapurinn og ég fór að
fylla í skarðið sem íhlaupatromm-
ari í þeirra bandi. Ég kom fyrst til
íslands til að spila á trommur með
þeim í Þjóðleikhúsinu þar sem ég
fékk að hitta foreta Íslands. Það
var gaman,“ bætir Adam við með
krúttlegum hlátri.
Þetta er fjórða heimsókn Adams
til landsins en hann er orðinn mik-
ill Íslandsvinur: „Ég kom hingað
síðast til að fagna áramótum. Vin-
irnir sem ég hef eignast hérna eru
ótrúlegir. Það er mjög góð tilfinn-
ing að vera í þessu landi. Mjög
ávanabindandi. Bara það að lenda
á flugvellinum yljar mér. Þetta er
uppáhaldsstaðurinn minn!“
Brögðótt tónlist
Adam segir erfitt að skilgreina
tónlistina sem Mice Parade spilar:
„Það er alltaf erfitt fyrir tónlistar-
mann að svara svona spurningu.
Þetta er mjög rytmað hjá okkur.
Tónlistin er kannski bæði dans- og
stemmningartónlist. Það koma
skeið þar sem trommurnar taka
völdin og svo eru önnur sem hljóð-
áhrifin taka yfir. Tónlistin er orku-
rík og það er alveg hægt að dansa
við tónlistina, en hún byrjar ekki
alltaf á þeim nótunum. Vonandi er
þetta líka viðkunnanleg tónlist til
að hlusta á: kannski svolítið brögð-
ótt, hljómar ekki „fríkí“ en hefur
margt til að hlusta á.“
Mice Parade-liðar eru um þessar
mundir, auk Adams sem leikur á
trommur og gítar: Doug Scharin
trommuleikari, Dylan Cristy á
víbrafón, Kristín Anna Valtýsdóttir
harmonikkuleikari og söngvari,
Dan Lippel á klassískan gítar, Josh
McKay á rafmagnsgítar, Brandon
Knights hljóðmaður og íhlaupa-
maðurinn Davíð á hljómborði.
Mice Parade mun troða upp á
Krútt-hátíðinni í kvöld, laug-
ardagskvöld, en hátíðin stendur
fram á sunnudag.
Það verður ekki skafið af Adam Pierce að hann er heilmikið krútt.
Músaskrúðgangan
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is