Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 56

Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 56
„Stórfeng- legur söngur“ „ÞAÐ er leitun að söngleikja- uppfærslu hér á landi sem hefur náð eins góðum árangri í heild í jafnviðamikilli sýningu og hér um ræðir,“ segir Sveinn Haraldsson, gagnrýnandi Morgunblaðsins, í leikhúsdómi um söngleikinn Kabar- ett sem frumsýndur var í Íslensku óperunni sl. fimmtudag. Dómurinn er birtur í Lesbókinni í dag og lofar Sveinn uppfærsluna í hástert. Um leik Þórunnar Lárusdóttur í hlutverki Sallyar Bowles segir m.a.: „Söngur hennar er í einu orði sagt stórfenglegur…“ | Lesbók MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Hættir vegna „óheppilegs“ fæðingarorlofs ANDRI Teitsson hefur sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri KEA til þess að geta tekið fæðingarorlof. Stjórn KEA þótti óheppilegt að Andri færi í langt orlof en hann á rétt á níu mánuðum þar sem þau hjónin eiga von á tvíburum um áramót. Fyrir eiga þau fjögur börn, átta ára og yngri. Að sögn Benedikts Sigurðarsonar, stjórnarformanns KEA, er málið flókið þar sem fyrirtækið byggist í raun á þessum eina starfsmanni. „Ef staðgengill væri til staðar hefði þessi hluti málsins snúið allt öðruvísi,“ seg- ir hann og bendir á að Andri hafi sjálf- ur höggvið á hnútinn með því að hverfa frá. Málinu sé nú lokið með samkomulagi aðila. Andri segir að ekki hafi verið deilt um rétt hans en mönnum hafi þótt óþægilegt að hann færi frá þetta lengi og hann hafi fallist á það. Hann hafi hins vegar verið ákveðinn í að taka langt fæðingarorlof fremur en að taka viku og viku, líkt og sumir sem séu í stjórnunarstöðum hafi gert.  Andri | 14 FYRSTU sjö mánuði ársins 2005 voru 847 atvik er varða sjúklinga skráð í rafrænan atvikaskráningar- grunn Landspítala – háskólasjúkra- húss (LSH) samanborið við 482 atvik árið 2004 og 219 atvik árið 2003. Leif- ur Bárðarson, yfirlæknir á deild gæðamála og innri endurskoðunar á LSH, telur að skýringin á fjölgun skráðra atvika sé ekki sú að atvikum hafi fjölgað heldur séu fleiri atvik skráð nú en áður og starfsfólk sjúkra- húsa sé orðið mun betur meðvitað um þetta kerfi. „Meginástæða þess að sjúkrahúsið hefur farið út í þessa rafrænu skrán- ingu er að afla vitneskju um hvers vegna þau eigi sér stað svo koma megi af stað umbótum til að koma í veg fyrir þau.“ Leifur segir það vera alþjóðlegt vandamál að menn veigri sér við því að skrá atvik enda geti þeir átt yfir höfði sér málsóknir og orðspor þeirra geti beðið hnekki. Hér á landi virðist þetta hins vegar ekki vera eins mikið vandamál en að sögn Leifs hafa sjúklingar á Íslandi ekki löngun til þess að finna einhvern sökudólg. „Einasta áhugamál sjúklinganna er að eitthvað sé gert en yfirgnæfandi meirihluti hefur engan áhuga á mál- sóknum og vill einungis tryggja að þetta komi ekki fyrir neinn annan. Það finnst mér yndislegt íslenskt við- horf. Menn eru ekki á eftir neinum heldur vilja þeir fyrst og fremst læra af reynslunni.“ Beinbrot alvarlegur hlutur Að sögn Leifs er fjöldi atvika skráður hér á landi þrátt fyrir að af- leiðingarnar séu engar en afleiðingar af þeim atvikum sem voru skráð á fyrstu sjö mánuðum áranna 2003, 2004 og 2005 voru engar í 72% tilvika. Í þeim tilfellum sem afleiðingar hljótast af atviki eru áverkar, líkt og mar, hrufl, skurðir eða beinbrot sem afleiðing af falli, algengastir. Að sögn Leifs eru beinbrot einna alvarlegustu afleiðingarnar þar sem í flestum til- fellum er um aldrað fólk að ræða sem dettur einhvers staðar á sjúkrahús- inu. „Tíðni falla á sjúkrahúsinu í þess- um aldursflokki er þó alls ekki hærri en gengur og gerist meðal eldra fólks en beinbrot í þessum aldursflokki eru hins vegar alvarlegur hlutur sem hef- ur mikil áhrif á líf og lífsgæði þeirra sem fyrir þeim verða.“ Rafrænum skráningum á atvikum sem varða sjúklinga hefur fjölgað til muna Atvik eru skráð þrátt fyrir að afleiðingar séu engar # 0     :.<           * ! - - * * * ! - - * * * ! - - * *    Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is  Veitir mikilvægt | 8 EMILÍANA Torrini verður í hópi dómara á kvikmyndahátíð- inni í Feneyjum sem hefst í lok mánaðarins. Keppt er um Gullljónið en meðal þátttak- enda að þessu sinni eru George Clooney og Terry Gilliam. Meðal mynda á hátíðinni verður Drawing Restraint í leikstjórn Matthews Barneys en Björk Guðmundsdóttir samdi tónlistina við myndina. | 51 Emilíana dæmir í Feneyjum ♦♦♦ „STEMNINGIN er ótrúlega góð, allir í góðu skapi og svo jákvæðir,“ sagði Júlíus Júlíusson, fram- kvæmdastjóri Fiskidagsins mikla, sem haldinn verður á Dalvík í dag, laugardag, en í gærkvöldi opnuðu Dalvíkingar heimili sín og buðu gestum og gangandi upp á fiski- súpu. Þar sem logaði á tveimur kyndlum utandyra var fólki vel- komið að líta í bæinn og þiggja súpu og brauð. Fjölmargir voru á ferðinni, hvarvetna fólk á rölti milli húsa og iðaði bærinn af lífi. „Þetta er bara stórkostlegt, eig- inlega alveg ótrúlegt, einstakt framtak hjá Dalvíkingum, þeir eru virkilega gestrisnir, maður á ekki orð til yfir þetta,“ sögðu þau Jón Zophaníasson, Kolbrún Hilm- isdóttir, Sveinn Heiðar Jónsson og Erla Oddsdóttir sem voru að gæða sér á fiskisúpu í garðinum við Vegamót, en á heimili þeirra Að- alheiðar Símonardóttur og Bjarna Gunnarssonar sem þar búa fékk Júlíus hugmyndina að Fiskisúpu- kvöldinu fyrir einu ári. „Þetta er alveg æðislega gaman, ég renndi alveg blint í sjóinn með hvað kæmu margir en hér hefur verið stöðugur straumur af alls konar fólki,“ sagði Herborg Harð- ardóttir sem var að skenkja stór- söngvaranum Matthíasi Matthías- syni og syni hans, Arnari Páli, súpu á disk í gærkvöldi. Hún bauð upp á tvenns konar súpu, „aðra eftir upp- skrift, en hin er bara svona a la Herborg,“ sagði hún og kvaðst aldrei hafa verið í vafa um ágæti þeirrar hugmyndar að opna hús sitt fyrir þeim sem vildu og bjóða súpu, – það hefði ekkert með það að gera að hún væri stórfrænka Júlla, fram- kvæmdastjóra hátíðarinnar! Við Hólaveg var líka líf og fjör og um 100 manns höfðu þegar heim- sótt þau Guðmund St. Jónsson og Guðnýju Jónu Þorsteinsdóttur í húsinu númer 17 þegar klukku- stund var liðin frá því þau tendruðu ljós á kyndlunum í garði sínum. „Ég er bjartsýnn og veit að Íslendingar eru ekki feimnir, þeir bara koma í heimsókn þótt þeir þekki okkur ekki neitt,“ sagði Guðmundur. Þau hjónin buðu upp á súpu „a la Selma“, eins og Guðný orðaði það, uppskrift frá vinkonu hennar Selmu. Viðar Jónsson frá Akureyri sat úti í garði og sötraði súpuna, hann sagði þetta fimmta húsið sem hann hefði heimsótt um kvöldið, „og þá eru ekki nema svona 25 eft- ir,“ sagði hann og ætlaði ekki að gefa neitt eftir. „Þetta eru allt gríð- arlega góðar súpur sem ég hef smakkað, og tel ég mig mikinn smekkmann, hef gott vit á súpum,“ sagði hann. „Þetta er alveg frá- bært, engu líkt.“ Ótrúleg stemning Morgunblaðið/Margrét Þóra Matthías Matthíasson, söngvari Papanna, fær fiskisúpu hjá Herborgu Harðardóttur og sonur hans, Arnar Páll, fékk líka smáslettu á disk. Fiskisúpukvöldið mikla á Dalvík. Aðalheiður Símonardóttir og Bjarni Gunnarsson tóku á móti fjölda gesta í garðinum við hús sitt, Vegamót. Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is Fjöldi fólks á ferðinni á Fiskisúpukvöldinu mikla á Dalvík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.