Morgunblaðið - 10.09.2005, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frá síðustu alþingis-kosningum hafasex alþingismenn
hætt á Alþingi og sex nýir
komið í staðinn. Þessar
breytingar hafa leitt til
þess að nú sitja á Alþingi
41 karl og 22 konur, en að
loknum alþingiskosning-
um sátu á þingi 44 karlar
og 19 konur.
Mestar breytingar eru
hjá Sjálfstæðisflokknum.
Arnbjörg Sveinsdóttir tók
sæti á Alþingi þegar Tóm-
as Ingi Olrich hætti á
þingi og gerðist sendiherra í
Frakklandi. Kjartan Ólafsson tók
sæti á Alþingi við lát Árna Ragn-
ars Árnasonar fyrir ári. Þá verða
tvær breytingar í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins í haust. Gunnar I.
Birgisson hefur tekið við starfi
bæjarstjóra í Kópavogi og hefur
af þeim sökum ákveðið að hætta
þingmennsku. Hans sæti tekur
Sigurrós Þorgrímsdóttir bæjar-
fulltrúi í Kópavogi. Þá tilkynnti
Davíð Oddsson utanríkisráðherra
í vikunni að hann myndi hætta á
þingi í haust, en við brotthvarf
hans sest Ásta Möller á þing að
nýju.
Breytingar hafa einnig orðið
hjá Samfylkingunni. Bryndís
Hlöðversdóttir hætti þing-
mennsku á síðasta þingi, en henn-
ar sæti tók Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar. Þá hefur Guðmundur
Árni Stefánsson verið skipaður
sendiherra, en hans sæti tekur
Valdimar L. Friðriksson.
Fleiri breytingar verða hjá
þingflokki sjálfstæðismanna á
næstunni. Samkomulag er milli
stjórnarflokkanna um að Sólveig
Pétursdóttir verði kjörin forseti
Alþingis þegar þing kemur saman
í haust, en Halldór Blöndal hefur
gegnt því embætti undanfarin ár.
Þá verður Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra í lok þessa
mánaðar, en hann hefur verið for-
maður þingflokksins. Á næstu
dögum kemur í ljós hver tekur við
því starfi. Sjálfstæðismenn þurfa
einnig að gera umtalsverðar
breytingar á skipan þingmanna í
nefndir. Sólveig hefur verið for-
maður utanríkismálanefndar, en
lætur af því starfi þegar hún verð-
ur forseti þingsins. Flokkurinn
þarf að taka ákvörðun um í hvaða
nefndir nýir varamenn setjast.
Þar að auki barst flokknum liðs-
auki þegar Gunnar Örlygsson
gekk í flokkinn, en hann var áður í
Frjálslynda flokknum.
Forystumenn í stjórnmálum
hætta almennt snemma
Þó Davíð Oddsson hafi verið
lengi í stjórnmálunum er hann
ekki nema 57 ára þegar hann
hættir stjórnmálaafskiptum. Það
er hins vegar alls ekki óvenjulegt
að forystumenn í stjórnmálum
hætti stjórnmálaþátttöku svo
ungir. Raunar hefur það verið
frekar reglan síðustu ár en undan-
tekning, að stjórnmálaforingjar
hætti þingmennsku áður en þeir
hafa náð sextugsaldri. Þetta er
talsverð breyting frá því sem áður
var, en algengast var framan af
síðustu öld að stjórnmálaforingjar
hættu um eða eftir sjötugt.
Ólafur Thors, fyrrverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins, var
kjörinn alþingismaður 34 ára
gamall og hætti á þingi 72 ára. Þó
að hans stjórnmálaferill hafi bæði
verið langur og glæsilegur var
ekki óvenjulegt á árum áður að
menn sætu áratugum saman á
þingi. Eysteinn Jónsson, fyrrver-
andi formaður Framsóknar-
flokksins, var kjörinn á þing 27
ára og hætti þingmennsku 68 ára.
Forveri Eysteins, Hermann Jón-
asson, hætti þingmennsku 71 árs
og eftirmaður Eysteins, Ólafur
Jóhannesson, hætti á þingi jafn-
gamall.
Eftirmaður Ólafs Thors var
Bjarni Benediktsson, en hann féll
frá 63 ára gamall. Við starfi hans
tók Jóhann Hafstein, en hann
hætti þingmennsku 63 ára gamall.
Geir Hallgrímsson, fyrrverandi
formaður Sjálfstæðisflokksins,
hætti þingmennsku árið 1983 að-
eins 58 ára gamall. Þeir tveir
menn sem gegnt hafa formennsku
í Sjálfstæðisflokknum síðan hafa
báðir hætt á miðjum aldri. Þor-
steinn Pálsson hætti þing-
mennsku 52 ára og Davíð Oddsson
hættir 57 ára eins og áður segir.
Seinustu forystumenn annarra
flokka hafa einnig hætt á þingi á
svipuðum aldri og Davíð. Jón
Baldvin Hannibalsson, fyrrver-
andi formaður Alþýðuflokksins,
hætti 59 ára og Svavar Gestsson,
fyrrverandi formaður Alþýðu-
bandalagsins, hætti 55 ára.
Eldri forystumenn þessara
flokka eða forvera þeirra störfuðu
almennt lengur í stjórnmálum.
Einar Olgeirsson, fyrrverandi for-
maður Sósíalistaflokksins, hætti
65 ára. Mörgum þótti Hannibal
Valdimarsson ungur þegar hann
hætti óvænt á þingi 61 árs. Sama
má segja um Gylfa Þ. Gíslason,
fyrrverandi formann Alþýðu-
flokksins, sem hætti á þingi 57
ára.
Á seinni árum er aðeins eitt
dæmi um flokksformann sem hef-
ur starfað í stjórnmálum fram yfir
sextug, en það er Steingrímur
Hermannsson, sem hætti á þingi
66 ára gamall.
Fréttaskýring | Sex nýir þingmenn hafa
tekið sæti á þingi frá kosningum
Breytingar
á Alþingi
Fjórir nýir frá Sjálfstæðisflokki og
tveir frá Samfylkingu taka sæti á þingi
Breytingar hafa orðið á skipan Alþingis.
Nú hætta flestir stjórn-
málaforingjar fyrir sextugt
Fátítt er að forystumenn í
stjórnmálum haldi áfram þing-
mennsku eftir að þeir hafa náð
sextugu. Þetta er breyting frá
því sem áður var því að algeng-
ast var áður að stjórnmálafor-
ingjar hættu þingmennsku um
eða eftir sjötugt. Það má því
kannski segja að Davíð Oddsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
sem hættir á þingi 57 ára gamall,
fylgi þeirri hefð sem hefur skap-
ast á síðustu áratugum.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
HAFIN er bygging á húsi yfir
„Fuglasafn Sigurgeirs“ nærri Ytri-
Neslöndum.
Hér eru þeir að ræða málin Jónas
Gestsson, yfirsmiður frá Norðurvík
og Pétur Bjarni Gíslason, fram-
kvæmdastjóri verkefnisins. Pétur
segist stefna á að gera fokhelt í
haust.
Morgunblaðið/BFH
Byggir yfir fuglasafn Sigurgeirs