Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 47
Feneyjum. Þetta hefði í raun ver- ið eins og ferðalag þótt vinnan hefði verið mikil. Lasse Hallström sagði að vel hefði gengið að fá öll leyfi sem þurfti til að taka upp á ýmsum sögufrægum stöðum og að hópnum hefði verið vel tekið í hvívetna. „Heath, mig langar að beina spurningu minni til þín,“ sagði ung kona í sínu fínasta pússi. „Persónan þín í myndinni er mik- ill elskhugi og virðist vita hvað konur hugsa, að hve miklu leyti ert þú líkur eða ólíkur sjálfum Casanova?“ Ledger virtist ekki alveg vita hvernig hann ætti að svara en bjargaði sér fyrir horn með því að segjast elska en bara ekki svona margar konur. „Cas- anova var maður sem varð ást- fanginn af öllum konum sem hann hitti,“ útskýrði Ledger. Karlmaður á besta aldri spurði Siennu Miller hvernig henni lík- aði í Feneyjum og hvort hún hefði áhuga á að koma þangað aftur og gifta sig jafnvel. Miller sagðist hrifin af þessari falleg- ustu og rómantískustu borg heims. „Ég væri alveg til í að koma hingað aftur en ég veit ekki með giftingu,“ sagði hún vandræðalega. Eftir lokaspurninguna spratt fjöldi blaðamanna á fætur og hljóp að stjörnunum. „Þau eru að reyna að fá eiginhandaráritanir,“ útskýrði sessunautur minn en innst inni vonaði ég að þau væru að reyna að fá svör við fleiri spurningum þótt í hópnum væru miklu fleiri en báðu um orðið á fundinum. Stjörnurnar stóðu hins vegar upp og voru flestar flúnar áður en hópurinn nálgaðist þær. „Ég er ótrúlega feginn. Ég var orðinn stressaður að fá ekkert en hún sagði það sem ég þurfti,“ sagði breskur blaðamaður við fé- laga sinn þegar við gengum út úr salnum og vísaði til ummæla Lenu Olin um að hún elskaði eig- inmanninn sinn. Aðrir blaðamenn flýttu sér út til að koma „frétt- unum“ sem fyrst á framfæri. halla@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 47 Sýnd kl. 3 og 6 ísl talkl. 3, 8 og 10.20 B.i 10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 Sýnd kl. 2 og 4 ísl tal   O.H.H. / DV. . . / H.J. / Mbl.. . / l. ☎553 2075 Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i 16 ára Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 ára ÞEGAR EKKI ER MEIRA PLÁSS Í HELVÍTI MUNU HINIR DAUÐU RÁFA UM JÖRÐINA MEISTARI HROLLVEKJUNNAR SNÝR AFTUR TIL AÐ HRÆÐA ÚR OKKUR LÍFTÓRUNA Sýnd kl. 10.30 Sýnd kl. 8 * TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR. ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU400 KR. Í BÍÓ!* 400 KR. Í BÍÓ!* ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! Sýnd kl. 3, 6, 8.30 og 10.30 b.i. 14 ára Miðasala opnar kl. 14.15 Sími 551 9000 kl. 3 og 6 Í þrívídd  TOPPFIMM.IS  DV  KVIKMYNDIR.IS Verðið á karlhórum hefur lækkað töluvert fyrir evrópskar konur! Verðið á karlhórum hefur lækkað töluvert fyrir evrópskar konur! Sprenghlægileg gamanmynd! Sprenghlægileg gamanmynd! 3 bíó - 400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar meðrauðu Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 KVIKMYNDIR.COM  RÁS 2 Ó.H.T  S.K. DV  KVIKMYNDIR.IS  VINCE VAUGHN OWEN WILSON kl. 2 og 4 BESTA GRÍNMYND SUMARSINS „FGG“ FBL.   TÓNLISTARMAÐURINN og leik- arinn Hörður Torfason varð sextug- ur hinn 4. september síðastliðinn. Af því tilefni verða haldnir tónleikar í Borgarleikhúsinu í kvöld til heið- urs afmælisbarninu og er yfirskrift tónleikanna hvorki meira né minna en: „Hörður Torfa lengi lifi!“ Hörð- ur hefur gefið út fjöldann allan af hljómplötum á ferli sínum en sú fyrsta leit dagsins ljós árið 1970. Síðan þá hefur hann gefið út um 22 hljómplötur og sett upp um 90 sýn- ingar hér á landi sem erlendis sam- hliða tónleikahaldi. Það eru tónlistarmennirnir Halli Reynis, Valgarður Guðjóns úr Fræbbblunum og Hjörtur Howser sem standa að heiðurstónleikunum í kvöld og segir Halli að tilurð tón- leikanna sé einfaldlega að finna í hugmynd sem allt í einu kviknaði og varð svo að veruleika. „Kannski líka vegna þess að Hörður hefur verið sjálfstæður útgefandi og þeir sem þekkja feril Harðar vita að það hefur verið sterkur mótvindur á hans ferli þó að meðvindarnir hafi einnig blásið og hann á þetta ein- faldlega skilið, að við heiðrum hann í tilefni af þessum áfanga.“ Hörður segir að þegar hann hafi fyrst heyrt af þessari hugmynd um tónleika honum til heiðurs hafi hann spurt hvort einhver skilyrði væru. „Ég fékk það svar að það eina sem farið væri fram á væri að ég yrði í salnum ásamt eiginmanni og það þáðum við. Þarna er skammt stórra högga á milli og mikil mark- aðsleg áhætta en annaðhvort er að gera hlutina eða ekki og við ákváðum að láta slag standa. Hvor- ir tveggja þessir tónleikar, heið- urstónleikarnir og hausttónleikarnir mínir um næstu helgi, eru haldnir á frjálsum markaði, það er að segja þeir eru ekki seldir fyrirfram til einhvers stórfyrirtækis líkt og al- gengt er orðið í dag heldur er treyst á áhuga almennings. Þess vegna er mikið í húfi í báðum til- fellum. Um leið og ég kvíði mjög- fyrir að vera viðstaddur hlakka ég líka óstjórnlega mikið til. Það er stórt stökk fyrir einfarann sem ferðast hefur vel á fjórða áratuginn með einn gítar að vopni að vera skyndilega staddur í fjölmenni söngva sinna þar sem aðrir flytja þá. Orðið takk hljómar stutt en inniheldur þakklæti mitt af heilum hug til allra sem þarna koma fram og standa að þessu.“ Þeir sem koma fram á tónleik- unum í kvöld eru meðal annarra: Bergþór Pálsson, Andrea Gylfa- dóttir, Grafík, Fræbbblarnir, Halli Reynis, Fabúla, Laddi, Rúnar Júl, Santiago, Kátir piltar, Sign og margir aðrir. Hörður Torfa verður með sína árlegu hausttónleika í Borgarleik- húsinu hinn 16. september. Tónlist | Tónleikar til heiðurs Herði Torfasyni í Borgarleikhúsinu Morgunblaðið/Rúnar Þór Söngvaskáldið Hörður Torfason. Hann lengi lifi! Eftir Höskuld Ólafsson og Bergþóru Jónsdóttur Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 21 og er aðgangseyrir 2.900 krónur. HEIMILDARSÝNING um ungdóms- ár Ingmars Bergmans verður opnuð í Norræna húsinu í dag. Á sýning- unni er fjallað um árin 1938–1946 í lífi þessa sænska leikstjóra og leið hans til frægðar og frama í hinum alþjóðlega kvik- myndaheimi en það var einmitt árið 1946 sem hann gerði sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd. Á sýningunni er einnig sagt frá síðustu sjónvarpsmynd hans og síðustu leikhúsuppsetningu. Áður en Ingmar varð Bergman Sýningin er opnuð í dag og stend- ur til 16. október. Opið er þriðju- daga til sunnudaga frá 12–17. Ingmar Bergman

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.