Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 18
Hrunamannahreppi | Garð- yrkjubændur sem eru á Flúðum og nágrenni hér í Hrunamanna- hreppi eru sem óðast að skera kál og taka upp grænmeti. Þeir eru mjög þokkalega ánægðir með uppskeruna, en bændur urðu fyrir nokkru tjóni vegna kuldanna í vor. Uppskeran er því nokkuð misjöfn eftir teg- undum. Sala á afurðunum hefur gengið vel. Eins og í öðrum atvinnu- rekstri hér á landi er erfitt að fá vinnuafl og er því fjöldi útlend- inga að störfum hjá garð- yrkjubændum. Fréttaritari smellti mynd af Svíunum Tob- íasi og Gustaf að skera kínakál á garðyrkjustöðinni Hverabakka II fyrir skömmu. Ljósmynd/Sigurður Sigmundsson Tobías og Gustaf í kálinu Uppskera Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Það er margt sem bendir til þess að sumarið er liðið við Breiðafjörð. Haust- bragð er komið af berjum og lítið sést til ferðamanna. Berjaspretta hefur verið með minna móti og einkum er lítið um aðalbláber. Að sögn berjasérfræðinga voru berin lengi að þroskast og eru það jafnvel ekki enn. Þessu ástandi kenna þeir veðrátt- unni um. Seinni hluti sumars hefur verið úrkomusamur og þungbúinn, lítið sést til sólar. Eru þetta mikil vonbrigði fyrir berjafólk. Veðráttan hefur áhrif á fleira en berin. Hún hefur haft þau áhrif að ferðamannastraumurinn hefur verið mun minni í sumar en vonir stóðu til og eru það mikil vonbrigði fyrir ferðaþjónustuna í Hólminum.    Nú á haustdögum lækkar hitunarkostn- aður húsa í bænum um 35%. Hinn 1. september tók Orkuveita Reykjavíkur við Hitaveitu Stykkishólms og verður verð- skrá færð til samræmis við gjaldskrá Orkuveitunnar. Verð á heitu vatni lækkar úr 101,50 kr. í 65,23 kr. hver rúmmetri vatns. Slík lækkun er að sjálfsögðu mikil búbót fyrir bæjarbúa. Með þessari breyt- ingu og með tilkomu Bónuss fyrr á þessu ári hefur neysluvísitala Hólmara lækkað mikið og gert það að verkum að enn betra er að búa hér en áður.    Víða um land verður kosið um samein- ingu sveitarfélaga 8. október. Á Snæfells- nesi verður íbúum boðið upp á slíkar kosningar. Lagt er til að sameina öll sveitarfélögin á Nesinu sem eru nú fimm að tölu með um rúmlega fjögur þúsund íbúa og allt gott með það. Það er félags- málaráðuneytið sem stendur fyrir átaki að fækka og um leið stækka sveitarfélög- in í landinu. Nú tæpum mánuði til kosninga hafa íbú- arnir lítið heyrt hvernig nýtt sameig- inlegt sveitarfélag á Snæfellsnesi eigi að starfa. Engar tillögur liggja fyrir og því er erfitt að ætlast til þess að kjósendur geti metið kosti og galla sameiningar á skynsemisnótum. Maður skynjar það svo greinilega að enginn vilji er til samein- ingar og því spyr maður sig hvaða til- gang það hefur að boða til kosninga 8. október. Úr bæjarlífinu STYKKISHÓLMUR EFTIR GUNNLAUG ÁRNASON FRÉTTARITARA borða til merkis um að völlurinn væri tekinn í notkun. Eftir að borðinn hafði verið klipptur hófst fyrsti kappleikurinn á vellinum og voru það yngstu börnin sem fengu að byrja. Umhverfi vall- arins hefur verið gert Skagaströnd | Unga kyn- slóðin á Skagaströnd fagnaði vel vígslu nýja sparkvallarins sem byggð- ur hefur verið á skólalóð- inni í sumar. Við vígsluna hvatti Eyjólfur Sverrisson, knattspyrnumaður og fulltrúi KSÍ, krakkana til að nota völlinn mikið og hugsa vel um hann. Sparkvöllurinn er einn af mörgum slíkum sem byggðir hafa verið víðs vegar um landið á und- anförnum misserum með stuðningi KSÍ og fleiri styrktaraðila. Völlurinn er með gervigrasi, upplýstur og hægt er að hafa hann upphitaðan ef þess er þörf. Eyjólfur og Adolf Berndsen, oddviti Höfða- hrepps, klipptu saman á mjög snyrtilegt þannig að þetta nýja mannvirki sóm- ir sér vel þar sem það er staðsett. Að vígslunni lokinni var öllum boðið upp á grill- aðar pylsur og var það hreppsnefndin sem grill- aði ofan í mannskapinn. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Sparkvöllur Krakkarnir hlustuðu með athygli á hvatn- ingarorð Eyjólfs Sverrissonar við vígsluna. Sparkvöllurinn vígður Nýverið var birt vísaundir röngu nafni, sem réttilega er eftir Braga Jónsson frá Hof- görðum í Staðarsveit, sem margir þekkja sem Ref bónda: Eftir kjag inn kirkjugólf klukkan níu fóru að hátta. Vöknuðu klukkan tíu og tólf tvö og fjögur, sex og átta. Rúnar Kristjánsson orti sléttubandavísu undir af- dráttarhætti. Hana má lesa aftur á bak og áfram. Margur hlýtur stungu stáls stælir hrakið lyndi. Argur lýtur tungu táls tælir rakið yndi. Og aftur á bak hljómar vísan svona: Yndi rakið tælir táls tungu lýtur argur. Lyndi hrakið stælir stáls stungu hlýtur margur. Af sléttuböndum pebl@mbl.is Landið | Skipulagsstofnun mun efna til kynningarfunda þar sem fulltrúar stofnun- arinnar kynna breytt lög um mat á um- hverfisáhrifum og skipulags- og bygging- arlögum en þau munu taka gildi 1. október nk. Breytingarnar varða hagsmuni sveitar- félaga, fyrirtækja, stofnana, félagasam- taka og almennings og verða fundirnir opnir öllum sem áhuga hafa á því að kynna sér þennan málaflokk. Eftir kynninguna verða umræður og munu fulltrúar frá Skipulagsstofnun og umhverfisráðuneyt- inu svara fyrirspurnum frá fundargestum. Kynningarfundirnir eru fyrirhugaðir á eftirtöldum stöðum: Á Hótel Selfossi, þriðjudaginn 13. sept- ember kl. 14, Hótel Ísafirði, fimmtudaginn 15. september kl. 13, Hótel KEA, þriðju- daginn 20. september kl. 14, í Félagsheim- ili Kópavogs, Fannborg 2, fimmtudaginn 22. september kl. 14 og á Hótel Héraði, mánudaginn 26. september kl. 14. Kynna ný lög um um- hverfisáhrif Hafnarfjörður | Öldutúnsskóla í Hafnarfirði var í gær afhentur Grænfáninn, en úttekt á starfsemi og rekstri skólans sýnir að þar er öflugt og markvisst starf í þeim tilgangi að vernda umhverfið og efla þekkingu barnanna á náttúru og umhverfi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landvernd. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýt- ur virðingar víða í Evrópu sem tákn um góða fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Fánann fá skólar í kjölfar þess að hafa leyst fjölþætt verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau efla þekkingu nemenda og skóla- fólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar að- gerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri. Fáninn er veittur til tveggja ára í senn. Að baki Grænfánanum stendur Sjálfs- eignarstofnun sem heitir Foundation for Environmental Education (FEE) og var stofnuð árið 1981. Landvernd á aðild að FEE og hefur umsjón með Grænfánanum á Íslandi. Verkefnið nýtur stuðnings bæði menntamálaráðuneytis og umhverfisráðu- neytis. Öldutúns- skóli fær Grænfánann ♦♦♦ Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Tsjekov 8. og 9. september á Stóra sviðinu Að eilífu eftir Árna Ibsen 10. og 11. september á Stóra sviðinu Texti á skjá GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.