Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR ég var táningur lék ég mér stundum að því að setja alls- konar drasl á strengina á píanóinu mínu – þvottaklemmur, spil, glös, skrúfur og annað þess háttar. Svo spilaði ég ABBA-lög á píanóið. Eins og gefur að skilja var þetta afskræming á ABBA, en það var einmitt svo gaman! Þetta rifjaðist upp fyrir mér á tónleikum í Listasafni Íslands á miðvikudagskvöldið, en svona dóti hafði verið komið fyrir í flyglinum þar. Engin ABBA-lög voru spiluð; í staðinn voru fluttar nokkrar tón- smíðar eftir eitt helsta brautryðj- andatónskáld tuttugustu aldar- innar, John Cage. Margaret Leng Tan spilaði á píanóið, en hún var nemandi og samstarfsmaður tón- skáldsins. Eins og gefur að skilja hljómaði flygillinn undarlega. Neðri nót- urnar voru sérkennilega mattar en ýmis önnur, skrýtnari hljóð mátti heyra á efra tónsviðinu. Upphafs- atriði tónleikanna, Bacchanale, sem er fyrsta tónsmíð Cage fyrir svona breytt píanó, var þó at- hyglisverð en var því miður dálítið stirðbusalega flutt. Hraðar nótur voru ekki nægilega liprar og túlkunin var heldur fálmkennd á köflum. Svipaða sögu er að segja um Árstíðirnar, sem eru fyrir „óbreytt píanó“. Leikur Tan var þar vissulega vandaður en skorti flæði og komst tónlistin því aldrei almennilega á flug. Enn verra var samt verk sem Tan vann upp úr málverki eftir Cage; það var eins og hvert annað glamur og hefði vel mátt sleppa því að flytja það. Ófelía, nokkurs konar tónræn mynd af brjálsemi, hljómaði líka óþægilega en átti sennilega að gera það; áslátturinn var harður, nánast stingandi og manni datt í hug brjálæðingur að berja píanó í mikilli angist. Þetta varð fljótt þreytandi; tónmyndun píanóleik- arans var óþarflega einhæf og ég er viss um að hún hefði getað skapað sterkari áhrif með fleiri litbrigðum og hnitmiðaðri stígandi í túlkuninni. Meira varið var í Draum, en þar lék Tan eigin útsetningu á tón- smíðinni, hér fyrir píanó og leik- fangapíanó. Þetta var falleg músík sem minnti að nokkru á „ambi- ent“-tónlist Brians Eno, en hún var gríðarlega vinsæl fyrir einum þrjátíu árum síðan. Píanóleikurinn hefði þó mátt vera blæbrigðaríkari til að skapa draumkenndari stemningu. Sem betur fer var annað á tón- leikunum prýðilegt; svíta fyrir leikfangapíanó var merkilega til- þrifamikil og Water Music/Vatns- tónlist fyrir píanó, útvarp, gæsa- blístru og fleira var skemmtilega kaldhæðnisleg, enda flutt af ör- yggi og húmor. Gerningurinn 0’ 00’’olli líka tals- verðri kátínu meðal áheyrenda, en þar vakti Tan athygli á því hvern- ig tónlist getur leynst í hversdags- legum athöfnum á borð við að krota á pappír og stimpla af alefli. In the Name of the Holocaust og stutt stykki úr flokknum Etudes Australes var jafnframt glæsilega spilað og frægasta verk Cage, 4 mínútur og 33 sekúndur, sem sam- anstendur af þögn og engu öðru, var óneitanlega kærkomin kyrrðarstund eftir erilsaman dag. Brjálaða Ófelía TÓNLIST Listasafn Íslands Margaret Leng Tan flutti tónsmíðar eftir John Cage. Miðvikudagur 7. september. Píanótónleikar Morgunblaðið/Kristinn „Leikur Tan var þar vissulega vand- aður en skorti flæði og komst tónlist- in því aldrei almennilega á flug.“ Jónas Sen Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn www.kringlukrain.is sími 568 0878 Geirmundur Valtýsson og hljómsveit í kvöld Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA HAFIN Nýja svið / Litla svið KYNNING LEIKÁRSINS Leikur, söngur, dans og léttar veigar Su 11/9 kl 20 Opið hús og allir velkomnir HÖRÐUR TORFA LENGI LIFI Ýmsir listamenn leika lög eftir Hörð í tilefni 60 ára afmælis listamannsins Í kvöld kl. 21 KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Su 11/9 kl 14, Su 18/9 kl 14, Su 25/9 kl. 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Í kvöld kl 20, Su 11/9 kl 20, Fi 15/9 kl. 20, Fö 16/9 kl. 20, Lau 17/9 kl. 20, Fi 22/9 kl. 20, Fö 23/9 kl. 20, Lau 24/9 kl. 20 ENDURNÝJUN ÁSKRIFTARKORTA HAFIN! Ef þú gerist áskrifandi fyrir 20. september færðu að auki gjafakort á leiksýningu að eigin vali - Það borgar sig að vera áskrifandi - MANNTAFL Mið 14/9 kl. 20 Forsýning Miðaverð aðeins kr. 1.000- Su 18/9 kl. 20 FRUMSÝNING - UPPSELT Su 25/9 kl. 20, Su 2/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20 HÖRÐUR TORFA Hausttónleikar Fös 16/9 kl. 19:30, Fös 16/9 kl. 22:00 WOYZECK – 5 FORSÝNINGAR Í SEPTEMBER Frumsýnt í London 12. okt og á Íslandi 28. okt Su 18/9 kl. 21 Miðav. aðeins kr. 2.000- Fö 23/9 kl. 20 Miðav. aðeins kr. 2.000- Fi 29/9 kl. 20 - UPPSELT Fö 30/9 kl. 20 Miðav. aðeins kr. 2.000- Lau 1/10 kl. 20 (Sýning á ensku) Miðav. aðeins kr. 2.000- HÍBÝLI VINDANNA Örfáar aukasýningar í haust Lau 24/9 kl. 20, Su 25/9 kl. 20, Su 2/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20, Lau 8/10 kl. 20 www.leikhusid.is Sala á netinu allan sólarhringinn. Afgreiðsla í húsinu frá kl. 12.30 Sími 55 11 200 - opinn frá 10:00 StórA Sviðið SmíðAverkStæðið LitLA Sviðið AÐ EILÍFU Lau. 10/9 örfá sæti laus, sun. 11/9. Aðeins þessar tvær sýningar. VELkomIn Í ÞjóÐLEIkhúsIÐ! Leikárið kynnt með leik, söng og dansi. Fös 16/9, lau. 17/9. Allir velkomnir! kLAUFAR oG kónGsDÆTUR Sun. 18/9 kl. 14 nokkur sæti laus, sun. 25/9 kl. 14, sun. 2/10 kl. 14, sun. EDITh PIAF Sun. 18/9 örfá sæti laus, fim. 22/9, fös. 23/9 nokkur sæti laus. Sýningum lýkur í október. RAmBó 7 Fös. 16/9, lau. 17/9, fim. 22/9. Takmarkaður sýningafjöldi. koDDAmAÐURInn Lau. 10/9 örfá sæti laus, fös. 16/9 Takmarkaður sýningafjöldi. Pakkið á móti Örfáar aukasýningar: Lau. 10. sept kl. 20 Lau. 17. sept kl. 20 Fös. 23. sept kl. 20 Áskriftar- kortasala stendur yfir Kabarett í Íslensku óperunni Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON “Söngur Þórunnar er í einu orði sagt stórfenglegur...” SH, Mbl. Næstu sýningar Laugardaginn 10. september kl. 20 Laugardaginn 17. september kl. 20 Föstudaginn 23. september kl. 20 BENJAMIN BRITTEN the turn of the screw ef t i r 25 ára og yngri: 50% afsláttur af miðaverði í sal Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400 21. okt. kl. 20 - Frumsýning 23. okt. kl. 20 - 2. sýning - 30. okt. kl. 20 - 3. sýning 4. nóv. kl. 20 - 4. sýning - 6. nóv. kl. 20 - 5. sýning 6. nóv. kl. 20 - 6. sýning - Lokasýning www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Kynning fyrir sýningar á Tökin hert , 2. - 6. sýning Kl. 19.15 – Stutt kynning á verkinu og uppsetningu þess í Óperunni. Kynningin fer fram á sviðinu og er innifalin í miðaverði. 14. sýn. sun. 11/9 kl. 14 15. sýn. sun. 18/9 kl. 14 16. sýn. fim. 29/9 kl. 19 SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Í DAG, LAUGARDAG KL. 17.00 Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Einleikari ::: Víkingur Heiðar Ólafsson George Gershwin ::: Girl Crazy, forleikur Maurice Ravel ::: Píanókonsert í G-dúr Dímítríj Sjostakovítsj ::: Djass-svíta nr. 2 Dímítríj Sjostakovítsj ::: Tahiti trot Leonard Bernstein ::: Fancy Free Víkingur gefur tóninn Starfsár Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefst í dag þegar einn glæsilegasti fulltrúi yngri tónlistarmanna okkar, Víkingur Heiðar Ólafsson sest við flygilinn í Háskólabíói. Komdu á tónleika þar sem lífsgleðin og leikandi fjör eru í fyrirrúmi. upphafstónleikar í háskólabíói

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.