Morgunblaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Vetrarstarf
Árbæjarkirkju
VETRARSTARF Árbæjarkirkju er að fara
af stað þessa dagana. Eins og verið hefur í
starfi kirkjunnar er mikill metnaður og vilji,
bæði hjá prestum og starfsfólki kirkjunn-
ar, að bjóða upp á fjölbreytt og umfram allt
áhugavert og vekjandi starf.
Allt starfið er ókeypis en þó kemur fyrir
að við förum í sund, spilum bingó eða för-
um í ferðir og þá er greitt fyrir það. Tilgang-
urinn með öllu starfinu er að hafa það gott
og gaman saman í kirkjunni sinni með því
að fara í leiki, leysa þrautir, heyra sögur,
syngja, gera hjálparstarfsverkefni og
margt fleira.
Guðsþjónustuhaldið er fjölbreytt þann-
ig að allir ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi. Fyrsta sunnudag hvers mánaðar er
messa kl. 11 og léttmessa um kvöldið, sú
fyrsta þennan veturinn, er sunnudaginn 2.
október. Annan sunnudag er fjölskyldu-
guðsþjónusta. Þriðja sunnudaginn er tón-
listarguðsþjónusta og fjórða/fimmta
sunnudag hvers mánaðar er almenn guðs-
þjónusta. Í vetur verður boðið upp á æðru-
leysismessur einar fjórar fram á vorið
2006. Þær verða á mánudögum kl. 20, sú
fyrsta þennan veturinn 26. september kl.
20.
Starf í Árbæjarkirkju
Sunnudagaskóli – Í safnaðarheimili Ár-
bæjarkirkju sunnudaga kl. 11. 2. sunnu-
dag hvers mánaðar er fjölskyldumessa í
kirkjunni. Kvenfélag kirkjunnar heldur
fundi fyrsta mánudag hvers mánaðar kl.
20. STN-starf fyrir 7–9 ára börn í safn-
aðarheimilinu þriðjudaga kl. 15–15.45.
TTT-starf fyrir 10–12 ára börn í safnaðar-
heimilinu þriðjudaga kl. 16–17. Lúkas-
starf fyrir 8. bekk í safnaðarheimlinu
sunnudaga kl. 17–18.30. Starf fyrir 9.
bekk og eldri sunnudaga kl. 12.30–14.
Starf í Ártúnsskóla
STN-starf fyrir 7–9 ára fimmtudaga kl.
15–15.45. TTT-starf fyrir 10–12 ára
fimmtudaga kl. 16–17.
Starf í Selásskóla
STN-starf fyrir 7–9 ára í tónmenntastof-
unni miðvikudaga kl. 15–15.45. TTT-starf
fyrir 10–12 ára í tónmenntastofunni mið-
vikudaga kl. 16–17.
Starf í Nýja skólanum í Norðlingaholti
STN-starf fyrir 6–9 ára mánudaga kl.
15–15.45.
Kórastarf fyrir börn og unglinga í Árbæj-
arkirkju. Krisztina Kalló Szklenár organisti
Árbæjarkirkju er kórstjórnandinn. kriszt-
ina@simnet.is–Fermingarkór fyrir 8. bekk
mánudaga kl. 15.30–16.30. Foreldra-
morgnar þriðjudaga kl. 10–12. Umsjón
hefur Jóhanna Sigmarsdóttir. Boðið er upp
á notalega samveru, fræðslu, spjall, léttar
veitingar og söngstund í umsjón Margrétar
Ólafar. Kyrrðarstund miðvikudaga kl. 12.
Þetta eru kyrrðar- og bænastundir, með
fyrirbæn, hugleiðingu, tónlist og altaris-
göngu. Hægt er að koma fyrirbænum til
presta safnaðarins. Súpa og brauð á eftir
gegn vægu gjaldi. Opið hús miðvikudaga
kl. 13–16. Opið hús er fyrir heldri borgara í
söfnuðinum. Margt er gert til skemmtunar
og dægrastyttingar. Það er tekið í spil,
saumað, perlað, farið í ferðalög og fleira.
AA fundir eru á mánudögum kl. 21. Mið-
vikudögum (safnaðarheimili) kl. 20.30.
Laugardögum (safnaðarheimili) kl. 10.30.
Al-Anon fundar (safnaðarheimili) á þriðju-
dagskvöldum kl. 21.
Grafarvogs-
dagurinn í dag
Í DAG, laugardaginn 10. september kl.
11, er útimessa við Borgaskóla og verður
Grafarvogsdagurinn haldinn hátíðlegur.
Undanfarin 8 ár hefur byggðin við Grafar-
vog haldið hátíð sem sameinar fólkið sem
býr á því svæði er við nefnum einum nafni
Grafarvogur.
Þegar Grafarvogssókn var stofnuð voru
rúmlega þrjú þúsund sóknarbörn í sókn-
inni, en nú sextán árum síðar eru þau orð-
in um tuttugu þúsund talsins. Hefur fjölg-
að um meira en þrjú sóknarbörn hvern
einasta dag í sextán ár. Starfið í sókninni
hefur því vaxið og dafnað. Prestarnir eru
orðnir fjórir, en þeir munu allir þjóna við
guðsþjónustu á Grafarvogsdaginn, það er
útimessa sem haldin er í þetta sinn við
hinn glæsilega Borgaskóla. Grafarvogs-
dagurinn hefst með göngu sem er sérstak-
lega auglýst. Göngufólkið hefur síðan
komið í messuna. Sæti verða fyrir þá sem
eldri eru.
Fermingarbörn ársins eru sérstaklega
boðin velkomin ásamt foreldrum sínum og
fjölskyldum. Eftir guðsþjónustuna mun
10. bekkur Borgaskóla selja kaffi og klein-
ur.
Mikil þátttaka hefur verið í þessum
messum og uppákomum Grafarvogsdags-
ins. Unglinga og Krakkakór Grafarvog-
kirkju syngur undir stjórn Oddnýjar J. Þor-
steinsdóttur. Kór Grafarvogskirkju syngur
undir stjórn Harðar Bragasonar organista.
Prestar safnaðarins þeir Vigfús Þór Árna-
son, Anna Sigríður Pálsdóttir, Bjarni Þór
Bjarnason, Lena Rós Matthíasdóttir og El-
ínborg Gísladóttir þjóna í guðsþjónust-
unni.
Tökum öll þátt í hátíðarhöldum dagsins.
Grafarvogssöfnuður.
Guðsþjónusta með
íslenskum trúar-
lögum í Seljakirkju
SUNNUDAGINN 11. september kl. 14
(athugið breyttan guðsþjónustutíma) flytja
þær Gerður Bolladóttir og Hlín Erlends-
dóttir íslensk trúarlög við guðsþjónustu í
Seljakirkju. Sr. Bolli Pétur Bollason prédik-
ar og kór Seljakirkju leiðir almennan safn-
aðarsöng undir stjórn Jóns Bjarnasonar
organista. Allir velkomnir.
Fjölskylduhátíð í
Hafnarfjarðarkirkju
ÞÁ er vetrarstarfið að komast á fullan
skrið á ný í Hafnarfjarðarkirkju. Sunnudag-
inn 11. september verður fyrsta fjöl-
skylduhátíð vetrarins haldin, en slíkar há-
tíðir fara fram mánaðarlega yfir vetrar-
tímann.
Hátíðin hefst með fjölskylduguðsþjón-
ustu kl. 11. Þar leikur hljómsveitin „Gleði-
gjafarnir“" undir söng, en gleðigjafarnir
eru leiðtogar í safnaðarstarfi kirkjunnar
sem bregða sér í nýjan búning. Þeim til að-
stoðar verða ungar söngkonur úr unglinga-
kór Hafnarfjarðarkirkju. Sr. Þórhallur fer
með alla kirkjuna í leik og segir glærusögu
og brúður líta við. Allir krakkar fá í hendur
kirkjumöppuna með barnaefni sunnudaga-
skólans.
Eftir fjölskylduguðsþjónustuna verður
boðið upp á góðgæti í safnaðarheimilinu.
Allir eru velkomnir og eru börn í Hafnarfirði
hvött til að taka afa og ömmu og pabba og
mömmu með.
Alfa-námskeið
að hefjast hjá
Biblíuskólanum
NÝTT Alfa-námskeið hefst hjá Biblíu-
skólanum við Holtaveg með kynningar-
kvöldi þriðjudaginn 13. september kl. 20–
21. Síðan verður kennt í 10 vikur og farið í
sólarhringsferð úr bænum er líða tekur á
námskeiðið. Fjallað verður um grundvall-
aratriði kristinnar trúar, áhersla lögð á um-
ræður og gott samfélag og þátttöku án
nokkurrar þvingunar. Kennarar verða sr.
Kjartan Jónsson og sr. Ragnar Gunnars-
son.
Kynningarkvöldið er öllum opið og að-
gangur ókeypis, en það verður í félags-
heimili KFUM og KFUK á horni Sunnuvegar
og Holtavegar, gegnt Langholtsskóla. Til-
högun og efnistök verða kynnt og spurn-
ingum svarað. Tekið verður við skráning-
um á námskeiðið en einnig má tilkynna
þátttöku og fá nánari upplýsingar í síma
588 8899, mánudaga til föstudaga eða
með pósti á bibliuskoli@krist.is.
Vetrarstarf
Íslensku
Kristskirkjunnar
hafið
TVÆR samkomur verða alla sunnudaga
í vetur eins og undanfarna vetur í húsnæði
kirkjunnar að Fossaleyni 14 í Grafarvogi.
Kl. 11 verður lögð áhersla á Biblíulega
fræðslu og þá verður starf fyrir börnin í
þremur aldursskiptum hópum, 2ja ára og
yngri, 3–6 ára og 7–12 ára.
Á kvöldin kl. 20 verða samkomur með
mikilli lofgjörð, fyrirbænum og líflegri pre-
dikun.
Á þriðjudögum verður hið vinsæla Alfa
námskeið kl. 19 og hefst það 20. septem-
ber. Kynningarkvöld 13. sept. kl. 20.
Á miðvikudögum kl. 17 er bænastund,
þar sem fólk getur komið með bænarefni,
eða hringt í kirkjuna.
Á föstudögum er svo líflegt starf fyrir
ungt fólk á aldrinum 13–25 ára kl. 19.30.
Nú stendur yfir átak við að klára efri
hæð hússins til að skapa betri atstöðu fyr-
ir allt starfið. Um mánaðarmótin septem-
ber og október verður svo hið árlega
haustmót kirkjunnar haldið í Vatnaskógi.
Á starfsmiðstöð kirkjunnar á Eyjólfs-
stöðum á Héraði eru haldnar samkomur
annan hvern sunnudag. Allir eru velkomnir
að taka þátt í starfi kirkjunnar.
Haustmarkaður
Kristniboðssam-
bandsins
HINN árlegi haustmarkaður Kristni-
boðssambandsins verður laugardaginn
10. september í húsi KFUM og K, Holta-
vegi 28 í Reykjavík. Markaðurinn hefst kl.
14.
Það eru konur í Kristniboðsfélagi
kvenna sem standa fyrir markaðinum. Til
sölu verður ýmiss konar grænmeti, ávextir
og ber, o.s.frv. eftir því hvað kristniboðs-
vinir og aðrir velunnarar vilja leggja fram af
uppskeru sumarsins. Einnig kökur, blóm
og gjafavara. Þá verður sérstök bókadeild
þar sem fá má gamlar kristilegar bækur á
hlægilegu verði.
Ágóðinn af markaðinum rennur til
kristniboðsstarfsins í Eþíópíu og Kenýa.
Þar eru nú sjö íslenskir kristniboðar að
störfum á vegum Kristniboðssambands-
ins. Sinna þeir fyrst og fremst uppfræðslu
innlendra leiðtoga og kennslu en einnig
frumkvöðlastarfi á afskektum svæðum.
Verkefnin eru enn óþrjótandi. Æ fleiri ein-
staklingar og þjóðflokkar vilja fræðast um
kristna trú og ýmis þróunarverkefni hafa
skilað góðum árangri.
Í ár þarf að safna um 30 milljónum
króna til að standa straum af kostnaði við
starf Kristniboðssambandsins innanlands
og utan.
Sem fyrr segir hefst markaðurinn kl. 14
á laugardag.
Vetrarstarfið
í Fíladelfíu
NÚ er vetrarstarfið að fara á fullt hér í
Fíladelfíu og það verður eitthvað um að
vera öll kvöld.
Hin vinsælu Alfa námskeið eru að hefj-
ast og er enn laust, skráning er í síma
535 4700, Alfa 1 hefst 13. sept og Alfa 2
hefst 12. sept. kl. 19.
Alla miðvikudaga verður hádegisbæna-
stund milli 12 og 13 (á meðan bæna-
stundin er skrifstofan lokuð en það eru all-
ir hjartanlega velkomnir).
Fjölskyldusamveran „súpa og brauð“
hefst miðvikudaginn. 14. sept. (alla mið-
vikudaga) kl. 18–20. Allir velkomnir.
Samvera eldri borgar er 1. og 3. hvern
fimmtudag í mánuði og hefst fim. 15.
sept. kl. 15. „Eldurinn“ samvera fyrir fólk
á öllum aldri er alla fimmtudaga kl. 21.
Kirkja unga fólksins er á föstudögum kl.
20, bænastund kl. 19.30 fyrir samkomu.
Á laugardagskvöldum er bænastund kl.
20 (hefst 17. sept.) Svo minnum við á að
sunnudagssamkomurnar eru í beinni út-
sendingu á Lindinni fm 102,9 og einnig er
hægt að horfa á www.gospel.is
Bessastaðaheimsókn
Neskirkjufólks
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, tekur á móti hópi Neskirkjufólks mið-
vikudaginn 14. september. Eftir móttöku
forseta verður farið í Bessastaðakirkju.
Þessi heimsókn markar upphaf starfs
eldri borgara í Nessókn. Farið í rútu frá
Neskirkju kl. 15. Skráning í síma
511 1560.
Opið hús, en svo nefnast þessar sam-
verur eldri borgara, verður í vetur á mið-
vikudögum milli kl. 15 og 17. Prestar Nes-
kirkju stjórna samverum og helgistundum.
Hikið ekki að bjóða vinum og kunningjum
með. Upplýsingar í kirkjunni og á www.nes-
kirkja.is
Hausthátíð
KFUM og KFUK
VETRARSTARF KFUM og KFUK er að
hefjast. Eins og venjulega er fjölbreytt
starfsemi í boði fyrir stráka og stelpur,
strætódeildir, kór og einnig fjölbreytt starf
fyrir fullorðna.
Til að ýta starfinu úr vör býður félagið ís-
lensku þjóðinni án endurgjalds til hausthá-
tíðar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í
Laugardal sunnudaginn 11. september kl.
10–17. Skipulögð dagskrá verður kl. 14–
17:
Meðal efnis: Ómar Ragnarsson, Brúðu-
bíllinn, Hljómsveitin Darling heroko, Tóti
trúður og vitlausi hestamaðurinn, Afrót-
rommuleikur og -söngur. Einnig verða óvið-
jafnanleg torfærutröll, rallbíll, fornbílar,
prestar á mótorhjólum og veltibíll.
Dagskránni lýkur með skrúðgöngu yfir
að félagsheimili KFUM og KFUK sem er
rétt við garðinn á frábærra fjölskyldusam-
komu með fjölbreyttri dagskrá.
Meðal efnis þar verður: Ávarp: Hestur-
inn Djákni (lifandi hestur), atriði úr leikrit-
inu Kamilla og þjófurinn, Stoppleikhópur-
inn, Gospelkór KFUM og KFUK og fleiri
sönghópar, stuttmynd, hugleiðing, mikill
söngur.
Dagurinn endar með grillveislu og börn-
in geta fengið að sitja á hestum sem
ganga með þau um lóðina okkar á meðan.
Kvennakirkjan í
Grafarholti
HAUSTSTARF Kvennakirkjunnar hefst
með göngumessu í Grafarholti sunnudag-
inn 11. september kl. 16. Safnast verður
saman við Ingunnarskóla við Maríubaug,
sem er við tankana efst í hverfinu. Gengið
verður um Grafarholtið undir leiðsögn séra
Sigríðar Guðmarsdóttur sóknarprests.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir flytur hug-
vekju og sungið verður undir stjórn Aðal-
heiðar Þorsteinsdóttur. Messunni lýkur í
sal safnaðarins þar sem boðið verður upp
á samlokur og kaffi.
Mánudaginn 19. september kl. 17.30
hefst námskeið á vegum Kvennakirkjunn-
ar í stofum hennar í Kjörgarði,Laugavegi
59. 4. hæð. Heiti námskeiðsins er: Þung-
lyndið, sorgin og dæmalaus gleði Guðs,
sem læknar og huggar og leiðir okkur út í
birtuna og hláturinn. Námskeiðið byggir á
kafla í bók séra Auðar Eir Vilhjálmsdóttur,
Gleði Guðs, sem fjallar um einsemdina og
friðinn. Fjallað verður um þunglyndi
kvenna og lækninguna, um sorgina og
huggunina og um gleðina sem Guð gefur
okkur í traustinu til sjálfra okkar. Hvar eru
skilin milli rolukasta og þunglyndis? Veistu
að við þurfum að taka ákvörðun og gera
sjálfar okkur að forgangsverkefni?
Kennarar verða hjúkrunarfræðingarnir
Sigrún Gunnarsdóttir og Margrét Hákonar-
dóttir og séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir.
Skráning er í síma 551 3934 og á staðn-
um. Námskeiðið verður fjóra mánudagafrá
kl. 17.30 til 19.
Kvöldvaka í
Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
Á MORGUN, sunnudaginn 11. septem-
ber, verður kvöldvaka í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði og hefst hún kl. 20.
Kvöldvakan hefur að þessu sinni alþjóð-
legt yfirbragð þar sem við hugleiðum
ástand mála í heiminum, bæði það sem
sundrar og sameinar m.a. áhrif trúar-
bragða.Kirkjukórinn mun syngja lög frá
ólíkum löndum, Brasílíu, Suður-Afríku, Ír-
landi og Skotlandi og svo að sjálfsögðu fal-
leg lög frá Íslandi. Hljómveit Fríkirkjunnar
leiðir tónlistina undir stjórn Arnar Arnar-
sonar.
Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu að
lokinni kvöldvöku.
Námskeið í
heimsóknarþjónustu
NÁMSKEIÐ í heimsóknaþjónustu verður
haldið í Áskirkju miðvikudaginn 14. sept-
ember kl. 10–15 fyrir sjálfboðaliða sem
áhuga hafa á að taka þátt í safnaðarstarfi
Ásprestakalls.
Ragnheiður Sverrisdóttir, verkefna-
stjóri, kærleiksþjónustusviðs fræðslu-
deildar Biskupsstofu mun sjá um nám-
skeiðið. Fólk sem hefur áhuga að starfa í
öðrum kirkjusóknum er velkomið að taka
þátt. Boðið upp á léttan hádegisverð.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir
13. september til Áskirkju í síma
581 3540, 588 8870, 891 8137, eða á
netfangið: djákni@áskirkja.is.
Foreldramorgnar
Áskirkju
FORELDRUM er boðið til samveru með
börn sín í safnaðarheimili Áskirkju alla
fimmtudagsmorgnar milli kl. 10 og 12.
Fjölbreytt dagskrá.
Næsta fimmtudag verður Helga Rut
Guðmundsdóttir með kynningu á tónlist
fyrir börn. Umsjón: Anna Kristín Guð-
mundsdóttir og Jóhanna Ósk Valsdóttir.
Nánari upplýsingar í síma Áskirkju
581 3540.
Kópavogskirkja –
Samverur
FYRSTA samvera haustsins verður í
safnaðarheimilinu Borgum þriðjudaginn
13. september kl. 14.30. Í þeim er lögð
áhersla á góðar og nærandi samverur þar
sem almennur söngur skipar verðugan
sess. Það er hinn kunni söngvari og kór-
stjóri Sigrún Þorgeirsdóttir sem leiðir
sönginn en undirleik annast Aðalheiður
Þorsteinsdóttir. Mál dagsins er á dagskrá
og samverunum lýkur á ritningarlestri og
bæn. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Kvöldmessur og
mannrækt
NÚ hefja kvöldmessur Laugarneskirkju
sína taktvissu göngu, og eru haldnar ann-
an sunndag í mánuði fram á vorið. Þar er
frábær tónlist í umsjá Djasskvartetts
Gunnars Gunnarssonar og Kórs Laugar-
neskirkju og einkar skemmtilegt að koma.
Messa septembermánaðar er á morg-
un, 11. september kl. 20.30 en djassinn
hefst í húsinu kl. 20, svo að gott er að
koma snemma og ná í góð sæti og njóta
alls frá byrjun.
Þá er nefna nokkur mannræktartilboð
sem snúa að fullþroska fólki:
Á þriðjudagskvöldum er kvöldsöngur í
kirkjunni kl. 20 og í beinu framhaldi, kl.
20.30 eru 12 sporahópar og mjög athygl-
isverðir trúfræðslutímar í kirkjuskipi. Á
þriðjudaginn kemur, 13. september verður
sérstaklega tekið við fólki sem vill fræðast
um 12 spora starfið með þátttöku í huga.
Sorgin gleymir engum og þaðtjáir ekki
að reyna að gleyma henni heldur. Hún þarf
sinn stað og tíma. Fyrirhuguð er tónleika-
röð þar sem Erna Blöndal, söngkona,
mun, ásamt hljómsveit, flytja lög og ljóð
sem hafa orðið henni til huggunar í sorg.
Að tónleikum loknum verður boðið upp á
kaffisopa og samtal um sorg og sorgarvið-
brögð. Fyrstu tónleikar í þessari röð, sem
ber nafnið sorgin og lífið,verða í Laugar-
neskirkju fimmtudaginn 22. september kl.
20.
Loks er fyrirhugað hjónanámskeið í
umsjá hjónanna sr. Vigfúsar Bjarna Al-
bertssonar, sjúkrahúsprests, og Valdísar
Aspar Ívarsdóttur, fíkni- og fjölskylduráð-
gjafa, þar sem myndaðir verða hjónahópar
sem vinna saman eftir einkar einföldu og
áhrifaríku kerfi, í þeim tilgangi að gera gott
hjónaband betra.
Upplýsingar fást hjá sóknarpresti í síma
820 8865.
Kyrrðarstundir í
Fella- og Hólakirkju
KYRRÐARSTUND verður alla þriðjudaga
í Fella- og Hólakirkju klukkan 12. Tónlist,
upplestur, íhugun og bæn. Að stundinni
lokinni verður boðið upp á súpu og brauð á
vægu verði. Njótum kyrrðar í nálægð við
Guð.
Fella- og Hólakirkja.
Vetrarstarfið í Hall-
grímskirkju er hafið
NÚ er hið fjölbreytta vetrarstarf í Hall-
grímskirkju að hefjast.
Sunnudagaskólinn byrjaði síðastliðinn
sunnudag kl. 11 og verður á sama tíma í
allan vetur. Starf fyrir 7–9 ára börn er á
mánudögum kl. 13 og sex ára börn eru vel-
komin á mánudögum kl. 15.45. TTT (starf
fyrir 10–12 ára börn) er á mánudögum kl.
16. 45 og unglingastarfið á mánudags-
kvöldum kl. 20.
Þá er barnakórastarfið farið af stað og
fást upplýsingar um það í síma 510 1000.
Fullorðna fólkið fær einnig sitt. Opið
hús og leikfimi fyrir eldri borgara er á
þriðjudögum og föstudögum kl. 11. Opið
hús með dagskrá fyrir eldri borgara verður
einu sinni í mánuði og verður auglýst sér-
staklega. Foreldramorgnar eru á miðviku-
dögum kl. 10–12. Fyrirbænaguðsþjónust-
ur eru á þriðjudögum kl. 11 og
morgunmessur á miðvikudögum kl. 8. Þá
er kyrrðarstund með orgelleik og íhugun
hvern fimmtudag kl. 12.
Næsta sunnudag verður messa að
venju kl. 11 í umsjá sr. Sigurðar Pálsson-
ar, organisti er Friðrik Vignir Stefánsson.
Barnastarf er á sama tíma í umsjá Magn-
eu Sverrisdóttur djákna.
Frá barnastarfi
Selfosskirkju
Á HVERJUM sunnudegi kl. 11.15 er
barnasamkoma í Safnaðarheimili Selfoss-
kirkju. Aðstandendur eru hvattir til þess að
koma með börn sín til kirkjunnar og taka
þátt í glaðlegum samverustundum.
Börnunum eru kenndar bænir og þau
syngja sálma og barnavers. Börnin fá m.a.
eyðublað, þar sem mæting er skráð með
sérstöku límmerki. Þegar 15 merki hafa
safnast á blaðið, fær barnið viðurkenn-
ingu fyrir góða ástundun.
Við vonum innilega, að við fáum að sjá
sem allra flesta á sunnudaginn kemur.
Sr. Gunnar Björnsson, sóknarprestur.
Guðsþjónusta
í Fríkirkjunni í
Reykjavík
ALMENN guðsþjónusta kl. 14 í Fríkirkj-
unni við Reykjavík. Nýr prestur safnaðar-
ins, Ása Björk Ólafsdóttir , leiðir stundina,
en tónlistina leiða Anna Sigga og Kalli.
Fermingarbörn næsta vors aðstoða og eru
börn sérstaklega velkomin. Andabrauð að
lokinni stundinni.
Barnastarf hefst hjá okkur næstu helgi,
með barnaguðsþjónustu kl. 14 á sunnu-
deginum.
Morgunblaðið/Jim Smart