Morgunblaðið - 10.09.2005, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 11
FRÉTTIR
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra er ekki sammála þeirri gagn-
rýni sem fram kemur í yfirlýsingu
frá stjórn Barna- og unglingageð-
læknafélags Ísland og birtist í Morg-
unblaðinu í gær. Þar kemur m.a.
fram að á þeim tímum sem geðheil-
brigðisvandi fari vaxandi á Íslandi
sem og í öðrum löndum, með vaxandi
eftirspurn eftir þjónustu, takmarki
íslensk heilbrigðisyfirvöld aðgengi
að mögulegri þjónustu með því að
fækka einingum til barnageðlækna í
samningum sérfræðilækna og
Tryggingastofnunar ríkisins.
Heilbrigðisráðherra sagði að
barna- og unglingageðlæknar hefðu
ekki nýtt þann einingafjölda sem
ætlaður var til barnageðlækna á síð-
ustu þremur árum. „Staðan er önnur
á þessu ári og útlit fyrir einingafjöld-
inn verði fullnýttur og kannski rúm-
lega það. Við munum fylgjast með
þeirri þróun, enda útlit fyrir aukn-
ingu í ár.“
Hann sagði að varðandi unglinga-
geðdeildina væri unnið að undirbún-
ingi hennar, hönnun og teikningum.
Jón sagði það ekkert nýtt að fram
komi gagnrýni úr þessari átt „Mér
finnst þeir nokkuð harðorðir
í þessari gagnrýni sinni mið-
að við stöðu málsins, því að
það er verið að vinna að
ýmsum póstum. Við höfum
verið að auka þjónustu í
geðlækningum víða, m.a. á
landsbyggðinni í gegnum
heilsugæsluna með sérstök-
um samningum.“
Jón sagði að þetta mál
sneri einnig að skipulags-
málum Landspítala – há-
skólasjúkrahúss. „Þeir hafa
verið með sjálfstæðistil-
burði á spítalanum og að
barna- og unglingageðdeild-
in verði sjálfstæð deild.
Þetta er ekki fjölmenn deild
innan spítalans og ég tel
eðlilegt að geðsviðið sé und-
ir einum hatti.“
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra
Jón Kristjánsson
Höfum verið að auka
þjónustu í geðlækningum
ÞORLEIFUR Gunn-
laugsson hefur ákveðið að
gefa kost á sér í forval
Vinstri grænna í Reykja-
vík vegna borgarstjórnar-
kosninganna 2006.
Þorleifur er varafor-
maður VGR, hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstöðum
fyrir félagið og verið virk-
ur í borgarmálapólitík í
tæp 4 ár.
Hann átti um áraraðir
sæti í framkvæmdastjórn SÁÁ,
situr þar í stjórn og var starfs-
maður samtakanna um tíma.
Hann sat lengi í stjórn
áfangaheimilanna Tak-
marksins og Dyngjunn-
ar.
Þorleifur er fyrrver-
andi formaður Félags
dúklagninga- og vegg-
fóðrarameistara og tók
þátt í að stofnun Meist-
arasambands byggingar-
manna. Í fréttatilkynn-
ingu segir að Þorleifur
hafi um áraraðir verið
virkur í hverskyns andófi gegn
stríðsrekstri, hernaði og mann-
réttindabrotum.
Gefur kost á sér í forval VGR
Þorleifur
Gunnlaugsson
LÖGREGLUMENN hjá embætti
Ríkislögreglustjóra, sem er til húsa
við Skúlagötu í Reykjavík, urðu var-
ir við grunsamlegar mannaferðir við
götuna í fyrrinótt. Þeir veittu því
eftirtekt að golfsett hafði verið lagt
upp að útidyrahurð og grunaði þá að
ekki væri allt með felldu. Þeir biðu
átekta þangað til tveir menn komu
og náðu í settið, en þá reyndust þeir
hafa stolið því úr bifreið við götuna.
Mennirnir voru handteknir og færð-
ir í fangageymslur.
Þá veittu tveir óeinkennisklæddir
lögreglumenn því athygli að kona
sem var á undan þeim í röð í verslun
í Reykjavík í fyrrinótt verslaði fyrir
tugi þúsunda. Þá grunaði að ekki
væri allt sem sýndist og ræddu þeir
við konuna. Í ljós kom að hún var að
nota stolið debetkort og hafði notað
það í nokkra daga. Konan var hand-
tekin og færð í fangageymslur.
Seinheppnir þjóf-
ar í Reykjavík
FORSPRAKKI hópsins, sem ógnaði
ungum manni með skotvopni í síð-
ustu viku, hafði hann á brott með
sér og neyddi hann til að taka pen-
inga út úr hraðbanka, var í gær úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 21.
október. Hinum fjórum mönn-
unum, sem áttu aðild að málinu,
hefur hins vegar verið sleppt.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík var pilturinn,
sem er 16 ára gamall, úrskurðaður
í svonefnda síbrotagæslu með tilliti
til almannahagsmuna en hann á
langan afbrotaferil að baki þrátt
fyrir ungan aldur.
Mennirnir sem stóðu að ráninu
hafa gefið þær skýringar á athæfi
sínu að þeir hafi verið að innheimta
skuld. Skotvopnið, sem reyndist
vera ræsibyssa, fannst í íbúð eins
mannanna í vikunni.
Úrskurðaður í
varðhald
STARFSMANNAFÉLAG Akraness
hefur samþykkt að boða til verk-
falls 3. október nk. ef ekki semst
fyrir þann tíma. Niðurstaða at-
kvæðagreiðslu um vinnustöðvun fé-
lagsmanna sem starfa hjá Akra-
nesbæ lauk í vikunni.
Á kjörskrá voru 240 félagar, en
174 kusu eða 73%. Já sögðu 168 eða
97%, nei sögðu 5 og 1 seðill var auð-
ur.
Verkfall
samþykkt
h ö n n u n : w ww . p i x i l l . i s
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
Hetthi
eikarlína
Rúm án dýnu
Queen stærð
Verð:
19.900.-
69.000.-
Cal king stærð
Verð:
75.000.-
Náttborð
Verð:
Sjónvarpsskenkur
Fáanlegur í tveimur stærðum
240cm
Verð:
29.500.-
69.000.-
183cm
Verð:
65.000.-
Hilla með ljósi
Verð:
Sjónvarpsskenkur
200cm
Verð: 67.000.-