Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 17 ERLENT TVEIR Palestínumenn í bænum Khan Younis á Gaza-svæðinu í gær. Ljóst er af kúlnagötunum að ein- hvern tíma hefur mikið gengið á. Ísraelski herinn sprengdi í gær upp síðustu mannvirki sín í bænum en stefnt er að því að flýta brottför herjanna þannig að síðustu her- mennirnir hverfi frá Gaza á mánu- dag. Egyptar eru nú að taka við allri gæslu á landamærunum að sunnanverðu. Reuters Tímamót í Khan Younis COLIN L. Powell, fyrrverandi ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, segir í sjónvarpsviðtali, sem sýna átti í gærkvöld, að ræðan, sem hann flutti í öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna 5. febrúar 2003, yrði ævinlega „blettur“ á ferli sínum. Í ræðunni rökstuddi Powell og sýndi fram á, að því er hann sjálfur taldi, tilvist gereyðingarvopna í Írak en síðar kom í ljós, að þau voru ekki til og höfðu ekki verið all- lengi. „Það var ég, sem bar þetta á borð fyrir heiminn allan og fyrir hönd Bandaríkjanna,“ segir Powell í við- tali við Barböru Walters á ABC News. „Það verður ávallt hluti af ferli mínum.“ Walters spurði Powell hvernig honum liði með þetta og hann svar- aði: „Þetta var erfitt og það er erf- itt.“ Sagði hann, að það hefði verið „skelfilegt“ að komast að því, að hann hefði verið leyndur því, að upplýsingarnar voru óáreiðanlegar, og „hræðilegt“ að fá að vita um það síðar, að sumir innan leyniþjónust- unnar vissu það fullvel en þögðu. Í viðtalinu, sem New York Times segir frá, tekur Powell samt fram, að hann hafi verið sammála innrás- inni í Írak og fagni því, að Saddam Hussein var steypt. Hann telur þó, að beita hefði átt miklu fjölmennara herliði en úr því sem komið er, sé ekki um annað að ræða en að þreyja þorrann og góuna og reyna að byggja upp íraska herinn. Segir SÞ- ræðu „blett“ á ferlinum Montreal. AP, AFP. | Líkur á, að Ont- ario-ríki í Kanada leyfi, að fjöl- skyldudeilur verið útkljáðar í sam- ræmi við íslömsk sharía-lög hafa vakið mikla athygli og mótmæli þar í landi og víðar um heim. Í opinberri skýrslu frá Marion Boyd, ríkissaksóknara í Ontario, kemur fram, að múslímar ættu að eiga kost á milligöngu ráða eða nefnda, sem styddust við trúarleg lög, eins og væri með kristna menn og gyðinga. Á að taka þetta mál fyrir á næstunni en verði farið eftir þessum ráðum Boyds, verður Ont- ario fyrsti staðurinn Vesturlöndum til að heimila beitingu íslömsku trúarlaganna, sem eru ákaflega ströng. Í Kanada hefur tillögu Boyds verið tekið með mikilli hneykslun og til að mótmæla henni hefur verið boðað til útifunda í mörgum kan- adískum borgum, þar á meðal Montreal, Toronto og Ottawa, og einnig í París, London og Vín. Halda mótmælendur því fram, að tillaga Boyds sé tilræði við verald- legt réttarkerfi og alveg sérstak- lega við konur og jafnan rétt þeirra. Gegn stjórnarskránni Elahe Chokrai í samtökum ír- anskra kvenna í Kanada segir, að tillagan sé í hrópandi mótsögn við kanadísku stjórnarskrána: „Íslömsk lög eru frá upphafi til enda gegn stjórnarskránni,“ segir hún. „Að gifta stúlkur jafnvel ekki eldri en níu ára; fjölkvænið og ójafn erfðaréttur eru hluti af íslömskum lögum og við munum aldrei fallast á, að þau verði viðurkennd í Kan- ada.“ Said Jaziri, múslímskur klerkur í Montreal, varði sharía-lögin í út- varpsviðtali og sagði, að þau væru í sjálfum sér ekki andstæð konum. Sagði hann eðlilegt, að múslímar, sem það vildu, fengju að útkljá sín mál samkvæmt lögunum. Þess má geta, að þingið í Quebec- ríki bannaði í maí íslamska dóm- stóla og vildi með því svara tillögu Boyds en skýrsla hans kom út í desember síðastliðnum. Íslömsk lög í Kanada? Grafarvogsbúar, til hamingju með daginn Ragnar Sær

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.