Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 10.09.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 25 MENNING OPNAÐAR verða í dag kl. 16 nýjar sýningar í Safni, Laugavegi 37. Limbo lamp for Pétur er nýtt ljósa- verk eftir Ólaf Elíasson, unnið sér- staklega fyrir Safn, en verk Stefáns Jónssonar nefnist Við gullna hliðið. Þetta er fjórða verk Stefáns þar sem hann sækir frumhugmyndina til verks ítalska listamannsins Giottos, Endurfundir við Gullna hliðið, úr freskuröðinni Ævi Jóa- kims. Í freskunum eru sýndir end- urfundir dýrlinganna Jóakims og Önnu og blíðleg ástríða þeirra, en afleiðing koss þeirra var fæðing dótturinnar Maríu meyjar. Stefán, sem útskrifaðist úr School of Visual Arts í New York fyrir rúmum áratug og hefur sýnt verk sín víða, hefur einkum getið sér orð fyrir hugmyndaríka skúlptúra. En af hverju þessar endurteknu end- urgerðir af verki Giottos? „Þetta byrjaði með seríu sem ég sýndi í Ásmundarsal um árið, þar sem ég týndi eftir þörfum sitthvað út úr listasögunni. Næst notaði ég mér þetta verk á sýningunni Ak- ureyri í myndlist, þar sem ég setti Akureyrarkirkju inn í verk úr lista- sögunni, þar á meðal þetta. Í þriðju útgáfunni fékkst ég við arkitekt- úrinn í verkinu og svo er þetta enn ný nálgun nú, ég nota arkitektúrinn en er líka að hugsa um söguna sjálfa á bak við freskuna.“ Stefán segist hafa gaman af svo- kallaðri „hvað ef“-sagnfræði. „Ég var að hugsa á þá vegu, að hvað ef Jóakim hefði átt smokk, þá hefði María mey aldrei fæðst og þar af leiðandi ekki Jesú heldur,“ segir Stefán. „Hvað ef kristin trúarbrögð hefðu aldrei verið til?“ Þegar Stefán er spurður um kyn- ferðislegan undirtón verksins hlær hann en neitar ekki að eitthvað slíkt kunni að vera til staðar. Allt frá því að Stefán útskrifaðist frá MHÍ árið 1992 hefur hann verið að fást við einhver form endur- gerðar í verkum sínum og kallast á við póst-módernískar hugmyndir í þá veru. „Þetta byrjaði sem svar mitt við þeim hugmyndum að búið væri að gera allt sem hægt væri að gera í myndlist. Allt í lagi, hugsaði ég, þá geri ég bara einhver verk upp á nýtt. Ég trúi því að ef maður endur- skapar hluti á nýjan hátt þá öðlist þeir líka nýtt líf. Þetta byrjaði þannig sem mitt innlegg í póst- móderníska umræðu fyrir svona 15 árum, síðan hefur það þróast áfram.“ Listamaðurinn síðastur til að fá viðbrögð Fyrir rúmu ári var fyrsta opin- bera listaverk Stefáns afhjúpað í göngugötunni á Akureyri, stór þrí- víður skúlptúr úr steinsteypu, endurgerð á hinu marglofaða mál- verki Kjarvals, Fjallamjólk. Stefán hlær þegar ég spyr hvort hann hafi ekki fengið ýmiss konar viðbrögð við því. „Listamaðurinn er oft síðastur til að fá viðbrögð við umdeildum verk- um, en einhverjir kaupmenn í mið- bænum voru ekki ánægðir með verkið þannig að það var á end- anum fært og tekur sig nú ágætlega út við Sjallann. Ég er ekkert ósátt- ur við að hafa það þar. Þarna er það ekki náttúra lands- ins heldur náttúran í verki Kjarvals sem skiptir máli. Ég labba ekki á fjöll og bý til myndir af þeim en ef ég geri landslagsmynd finnst mér áhugaverðara að gera hana eftir landslagi annarra, eins og frægu landslagi Kjarvals. Ég pæli ekki í náttúrulegu landslagi heldur hinu manngerða.“ Nýtt ljósaverk Ólafs Elíassonar Allt frá árinu 1990 hefur Ólafur Elíasson notað ljós í verkum sínum á einn eða annan hátt. Skemmst er að minnast tveggja sýninga, Weath- er Project eða „Sólin“ í Tate Mod- ern í London og „Your Activity Horizon“ í Listasafni Reykjavík- ur, þar sem lárétt ljóslína breytti litum. Í nýju verki Ólafs í Safni, Limbo Lamp for Pétur, veldur samspil kastara og disks því að ljós og litir eru á iði, eiginleiki ljóssins er að endurkasta lit af glerinu en mannsaugað nemur einnig and- stæðu hans. Áhorfandinn upplifir sig sem áhorfanda og þátttakanda um leið. Þetta er lykilatriði í list Ólafs eins og hann hefur margoft tekið fram: Að virkja áhorfandann til þátttöku svo hann verði hluti af verkinu eða í sumum tilvikum að áhorfandinn verði einn eftir með rýminu án milligöngu listaverks. Myndlist | Stefán Jónsson og Ólafur Elíasson sýna í Safni Pæli ekki í náttúru- legu landslagi Limbo lamp for Pétur, nýtt verk Ólafs Elíassonar í Safni. Morgunblaðið/Einar Falur „Ég trúi því að ef maður endur- skapar hluti á nýjan hátt, þá öðlist þeir líka nýtt líf,“ segir Stefán Jóns- son myndlistarmaður. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is SUM leikrit eru þess eðlis að í kjarna þeirra er leyndardómur sem allt hverfist um en engin svör fást við. Hvað heldur aftur af Hamlet í að hefna föður síns og leiðrétta aug- ljóst óréttlætið? Hver er Godot sá sem tveir flækingar verja lífi sínu í að bíða eftir? Af hverju hummar Ranevskaja fram af sér allar björg- unarleiðir fyrir sinn elskaða kirsu- berjagarð uns allt er um seinan? Og hvers vegna tekst hvorki Vörju né Lopakhín að aula út úr sér því bón- orði sem þó hefði haldið fólkinu þeirra á floti enn um sinn? Kirsu- berjagarður Tsjékhovs er eitt af þessum dularfullu meistaraverkum sem ráðleggingar Halldórs Laxness til leikhússgestsins eiga svo vel við. Hér duga engar lógaritmatöflur til að finna út hvað persónum og höf- undi gengur til. Þú verður einfald- lega að opna augun, eyrun og hjart- að. Koma eins og krakki. Stundum er talað eins og leiklist af því tagi sem þessir rússnesku gestir bjóða upp á sé dauð, úrelt og varla ómaksins verð. Við fáum iðu- lega að heyra að við séum orðin svo leið á klassíkinni að það þurfi ferska hugsun, nýstárlegar túlkanir, aðrar leiðir. Stundum eru þær frjóar, oft reynast þær blindgötur. Það er því svo sannarlega ánægjulegt að fá svona heimsókn, þar sem virðing fyrir höfundinum og verki hans gegnsýrir alla nálgun, og þar sem markvisst er unnið út frá hinni lifandi hefð í leikhúsvinnu sem kennd er við Stanislavsky og höfundaverk Tsékhovs og hinar byltingarkenndu kröfur þess átti svo stóran þátt í að móta. Hér er ljóðrænt, sálfræðilegt raunsæi í for- grunni. Og gleðilegt að útkoman er svona áhrifamikil. Öll framganga leik- aranna einkennist af að því er virð- ist áreynslulausu trausti á að allt hið ósagða skili sér til áhorfenda án þess að það sé útmálað á nokkurn hátt. Engin „tilþrif“, enginn „fer á kostum“, enginn „brillerar“. Allir lifa persónur sínar í botn, og fela svo afraksturinn bak við orðin. Og þetta líf skilar sér til okkar af full- um þunga undan óbærilegum létt- leika hversdagsins. Ég hef aldrei séð Kirsuberjagarð þar sem lífsharmur frú Ranevskaju er jafn átakanlegur. Samt er túlkun Larísu Grebenstsjikovu sennilega best lýst með orðinu léttleiki. Hún flögrar um sviðið, hinn kynþokka- fulla miðja staðarins, og án þess að það sé sýnt á nokkurn hátt vitum við að eina leiðin fyrir hana til að halda sönsum er að staldra aldrei við neitt, festa ekki hönd á neinu haldreipi sem gæti svikið. Algerlega óviðjafnanleg frammistaða. Eða samleikur Dörju Semjonovu og Irínu Nízínu þegar uppeldissyst- urnar Anja og Varja hittast aftur eftir heimkomu þeirrar fyrrnefndu. Í örstuttri senu sjáum við alla bernskuna, alla leikina og sam- eiginlegu leynd- armálin sem mót- uðu samskipti þeirra og per- sónuleika. Og öll þau kynstur af upp- lýsingum sem Júlijen Balmúsov og Júríj Lútsj- enko gefa okkur um Gaev og Firs, alla þá kæfandi umhyggju sem þjónninn getur ekki hætt að sýna húsbónda sínum og hafa átt sinn þátt í að rústa þann mann. Hvað með hina algerlega áreynslulausu innlifun sem skilar áhrifamestu „trúlofunarsenu“ Vörju og Lopahíns sem ég hef séð eða reikna með að sjá? Pjotr Krasílov er hófstillingin sjálf í hlutverki hins nýríka þrælssonar, og fyrir vikið blasir fortíð hans og einmanaleg framtíð við án þess að það sé sér- staklega verið að troða því upp á okkur. Leikhópur Hins rússneska þjóð- leikhúss unga fólksins er í heild hreint afbragð, hver einasti leikari með sterka nærveru, sem varð m.a. til þess að hópsenur lifnuðu við án þess nokkurn tímann að athygli áhorfenda hvarflaði frá því sem mikilvægast var. Sviðsetningin er í sama anda og vinna leikaranna, lífræn, frjálsleg og flæðandi um rýmið og næsta skeytingarlaus um myndbyggingu. Þó svo falleg leikmyndin sé að hluta til táknræn eru heildaráhrifin raunsæisleg og minna mann á hvað svoleiðis uppfærslur á Tsékhov eru fáséðar hér hin síðari ár. Auðvitað veit maður að svona fín- gerð vinna skilar sér ekki að fullu á máli sem maður ekki skilur. Þess vegna eru áhrifin hálfu dýrmætari. Dýrmætast af öllu er þó að sjá dæmi um hverju einlægni og alger trúmennska við ætlun löngu dáins höfundar skilar sterkri sýningu, sem sýnir að því fer fjarri að sá brunnur sé þurrausinn. Kærar þakkir fyrir mig. Það virkar! LEIKLIST Rossisky Akademicesky Molodezhny Teater Höfundur: Anton Tsékhov. Leikstjóri: Alexej Borodin. Leikmynd: Staníslav Benediktov. Lýsing: Borís Volkov, tónlist: Nataly Pleje, hljóð: Ígor Merkúlov, ball- ettmeistari: Larísa Ísakova, förðun: Ljúd- míla Levtsjenko. Leikendur: Alexander Pakhomov, Darja Semjonova, Ílja Ísajev, Irína Nízína, Jevgeníj Redko, Júlijen Balmúsov, Júríj Lútsjenko, Larísa Grebenstsjikova, Oks- ana Sankova, Oleg Skljarov, Pjotr Kras- ílov, Ramílja Ískander, Roman Stepensk- íj, Stepan Morozov, Vjatsjeslav Grish- etsjkin og Vjatsjeslav Manútsjarov. Þjóðleikhúsinu 8. september 2005. Kirsuberjagarðurinn Anton Tsékhov Þorgeir Tryggvason Tilboð Álrammar 10x24 = 400.- 20x25 = 400.- 24x30 = 500.- 30x40 = 600.- 30x42 = 700.- 40x50 = 900.- 41x61 = 1.200.- 59x66 = 1.600.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.