Morgunblaðið - 10.09.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 27
Það er ekki stöðugleiki á Ís-landi. Gengi sem sveiflastum 40% á milli ára er ekkistöðugleiki í skilyrðum,
hvorki heimila né fyrirtækja,“ sagði
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ, á málþingi sem Starfs-
greinasambandið stóð fyrir í gær.
Sveinn Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
tók í sama streng og sagði krónuna
handónýtan gjaldmiðil.
Málþing Starfsgreinasambands-
ins fór fram á Hótel Loftleiðum
undir yfirskriftinni „Útrás eða flótti
íslenskra iðnfyrirtækja?“ Þar var
fjallað um útrás íslenskra fyrir-
tækja í iðnaði og varpað fram þeirri
spurningu hvort um flótta fyrir-
tækjanna sé að ræða frá Íslandi,
frekar en útrás þeirra.
Háð ákvörðunum
spákaupmanna
Sveinn sagði m.a. að lítið atvinnu-
leysi og sveigjanlegur vinnumark-
aður væri helsti styrkleiki Íslend-
inga og úrbætur á skattaumhverfi
íslenskra fyrirtækja væru stórt
skref í þá átt að gera Ísland að álit-
legum stað til að fjárfesta og stunda
atvinnurekstur. Krónan væri hins
vegar okkar Akkilesarhæll.
„[...] það eru aðrir þættir sem
fæla frá og þar vegur örugglega
langþyngst hin óstöðuga og sveiflu-
kennda mynt okkar. Undanfarið
hafa svokölluð ruðningsáhrif verið
mjög til umræðu. Ruðningsáhrif
eru ekki nýtt fyrirbæri á Íslandi,
því árum og áratugum saman olli
uppsveifla í sjávarútvegi því að
gengi krónunnar hækkaði upp úr
öllu valdi og strádrap iðnaðinn. Nú
er það fjárfesting í iðnaði sem er
talin undirrót hágengis sem allt er
að drepa í útflutnings- og sam-
keppnisgreinum. Sams konar áhrif
ruddu fólkinu á árum áður úr
sveitinni til útgerðarbæjanna, þar
sem verðmætasköpun var meiri og
þar með hægt að standa undir
betri launakjörum og lífskjörum
en í sveitinni,“ sagði Sveinn.
„Þessi ruðningsáhrif eru nú
eignuð stóriðjuframkvæmdum og
áhrifum þeirra en flest bendir til
þess að innstreymi fjármagns
vegna þessara miklu fjárfestinga
sé einungis hluti af skýringunni.
Þetta kom greinilega fram í fjöl-
miðlum í gær og í morgun. Miklar
erlendar lántökur fjármálastofn-
ana sem dælt er inn í hagkerfið
vega hér mun þyngra. Þetta mikla
innstreymi fjármagns sem veldur
hækkun á gengi krónunnar var
reyndar byrjað áður en yfirstand-
andi virkjana- og stóriðjufram-
kvæmdir voru hafnar. Erlendir
bankar og fjármálafyrirtæki eru í
stórum stíl farnir að nýta mikinn
vaxtamun milli Íslands og annarra
Evrópulanda. Þetta hefur enn
styrkt gengi krónunnar. Þar með
er líf og heilsa íslenskra fyrirtækja
í útflutnings- og samkeppnisgrein-
um orðið háð ákvörðunum spá-
kaupmanna. Vaxtahækkanir
Seðlabankans undanfarið ár virð-
ast hafa ýtt undir neyslu og þenslu
fremur en hið gagnstæða. Þetta
finnst mér ótvírætt merki um að
meira en lítið sé að hjá okkur og
ástæða til að íhuga alvarlega hvort
ekki sé tímabært að losa okkur við
þessa meingölluðu mynt. Hún
hoppar og skoppar eins og kork-
tappi í ólgusjó og er okkur fjötur
um fót í öllum viðskiptum. Hún
skaðar samkeppnisstöðu okkar
meira en nokkuð annað og setur
efnahagslega framtíð okkar í
hættu,“ sagði hann.
Fram kom í máli Gylfa að þrátt
fyrir að þjóðartekjur á mann hér á
landi væru með því mesta sem
þekktist í alþjóðlegum saman-
burði, þá þyrfti að taka tillit til
mikillar atvinnuþátttöku og mikill-
ar vinnu á bak við tölur um há
brúttólaun.
Gylfi benti einnig á að þrátt fyrir
lækkun skatta á fyrirtæki hér hefðu
erlend fyrirtæki ekki séð sér neinn
hag í að staðsetja starfsemi sína á
Íslandi og útrás íslensku fyrirtækj-
anna hefði haldið áfram eftir að
skattarnir lækkuðu. „Ég man ræð-
urnar sem forsvarsmenn Marels og
Össurar héldu í tengslum við þessa
ákvörðun og hvað hún myndi leiða
til mikilla straumhvarfa í fjölgun
starfsmanna hjá Marel og Össuri
við þessar aðstæður. Og Marel
byggði sérstaka verksmiðju í
Garðabæ, eins og það var kynnt fyr-
ir almenningi á grundvelli þessarar
ákvörðunar. Ég veit það fyrir víst
að þessi verksmiðja í Garðabæ var
hönnuð sem verslunarmiðstöð í
leiðinni, vegna þess að menn vildu
hafa það upp á að hlaupa,“ sagði
Gylfi og benti á að starfsemi Öss-
urar færi nú fram annars staðar en
á Íslandi. „Öll sú viðbót sem varð
hjá Össuri við þessar aðstæður hef-
ur ekki haldið áfram. Þvert á móti
fullyrði ég að þau 25 störf sem
[hingað komu] eru löngu farin aft-
ur,“ sagði Gylfi.
1% gengishækkun jafngildir
5% launahækkun í iðnaðinum
Hann tók undir orð Sveins um
neikvæð áhrif þeirrar þróunar sem
orðið hefur á gengi krónunnar. „1%
hækkun á gengi krónunnar jafn-
gildir 5% launahækkun í iðnaði.
Gengið hefur hækkað um 20% og
það hefði einhvers staðar heyrst
hljóð úr horni ef við hefðum samið
um 100% launahækkun. Þetta
skiptir miklu meira máli varðandi
flóttann, að við búum við gríðarleg-
an óstöðugleika,“ sagði hann og
gagnrýndi einnig að ekki hefði verið
gripið til þess ráðs að auka framlög
til vinnumarkaðsmála s.s. starfs-
menntunar og fullorðinsfræðslu.
Gengissveiflur krónunnar valda óstöðugleika og fæla
fyrirtæki frá Íslandi að því er fram kom á málþingi SGS
„Skoppar eins og
korktappi í ólgusjó“
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Lítið atvinnuleysi og sveigjanlegur vinnumarkaður er helsti styrkleiki Íslendinga, en sveiflur í gengi íslensku
krónunnar eru okkar Akkilesarhæll, að mati Sveins Hannessonar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins.
anna-
mferð á
aldsson,
iðs Vega-
ekki eins-
gamálum
Í ár
að þrjár
tkun og
fljótsbrú
rfirði.
að allar
voru þær vígðar í september og
Sogsbrúin 9. september eins og
Fáskrúðsfjarðargöng.
„Vatnsföllin voru farartálmar
þess tíma og í dag má að nokkru
leyti bera jarðgöng saman við
brautryðjandaverk í brúargerð,“
sagði Hreinn.
Forsaga Fáskrúðsfjarðarganga
er í meginatriðum sú að hafið var
að kanna möguleika á göngunum í
tengslum við vinnu nefndar um
langtímaáætlun um jarðgöng, sem
skilaði skýrslu árið 1987. Mun
meiri umfjöllun varð um þau í
skýrslu nefndar um jarðgöng á
Austurlandi árið 1993 og frum-
rannsóknir fóru fram árin þar á
undan. Í árslok 1998 lögðu Arn-
björg Sveinsdóttir og Egill Jóns-
son fram tillögu til þingsályktunar
um undirbúning jarðganga milli
Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar.
Samgöngunefnd þingsins tók undir
tillöguna, en útvíkkaði hana og
lagði til að í staðinn skyldi unnið
að gerð langtímaáætlunar um jarð-
göng. Sú tillaga var samþykkt fyrir
þinglok 1999 og ári síðar sam-
þykkti Alþingi jarðgangaáætlun.
Fyrstu verkefni hennar skyldu
vera göng milli Siglufjarðar og
Ólafsfjarðar annars vegar og
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
hins vegar.
Kostaði 3,9 milljarða króna
Samgönguráðherra ákvað árið
2002 að Fáskrúðsfjarðargöng
skyldu koma fyrst og voru þau
boðin út í desember sama ár.
Framkvæmdir á verkstað byrjuðu
í apríl 2003. Jarðgangagerðin hófst
með fyrstu formlegu sprengingu
hinn 22. maí 2003 og gangagreftr-
inum lauk með gegnumbroti hinn
4. september 2004 og tók því rúm-
lega fimmtán mánuði að grafa
göngin, eða um tveimur mánuðum
skemmri tíma en áætlanir gerðu
ráð fyrir. Heildarverktími var tæp-
lega tvö og hálft ár.
Aðalverktaki við verkið var Ís-
tak hf. og Pihl og Sön AS, auk
fjölda undirverktaka, m.a. Myll-
unnar ehf., Hlaðbæjar Colas hf.,
Rafmiðlunar ehf., Vegmerkinga
ehf., Malarvinnslunnar ehf. og BM
Vallár.
Heildarkostnaður við verkið er
um 3,9 milljarðar króna á verðlagi
hvers árs.
Prestarnir Davíð Baldursson og
Þórey Guðmundsdóttir blessuðu
mannvirkið.
ngagerð í landinu á næstu árum
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
nkomið við vígslu Fáskrúðsfjarðarganga í gær. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra
viðstöðulausri jarðgangagerð hér á landi á næstu árum.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
mur Hjálmarsson, fyrrverandi menntamála-
ra, ásamt Halldóri Ásgrímssyni forsætisráð-
ið opnun Fáskrúðsfjarðarganga í gær.
ægður með nýju göngin