Morgunblaðið - 10.09.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2005 29
UMRÆÐAN
FYRSTU helgina í september
var mér boðið sem alþingismanni
að sitja fjórðungsþing Vestjarða
þar sem Valgerður Sverrisdóttir
byggðamálaráðherra fór mikinn við
að mæra árangur ríkisstjórn-
arinnar í byggðamálum. Taldi hún
mikinn árangur hafa náðst og að
helst mætti kenna genginu um það
sem miður hefði farið.
Í umræðum um
Vaxtarsamning Vest-
fjarða lagði ég áherslu
á mikilvægi byggða-
mála og talaði um að
hér væri verið að
ræða um Ísland fram-
tíðarinnar, ef ekki
yrði tekið á myndum
við enda í borgríki.
Ég minnti á þau orð
núverandi forsætis-
ráðherra að nú væri
komið að Norðvest-
urkjördæminu í at-
vinnuuppbyggingu og
sagði eitthvað á þá leið að um-
ræddur vaxtarsamningur væri fal-
legur pappír prentaður í Reykjavík
en innihaldið mjög rýrt og ekki í
neinu samræmi við þá alvarlegu
stöðu sem er víða í atvinnumálum
Vestfirðinga. Ég benti á þá stað-
reynd að vaxtarsamningnum
fylgdu aðeins um 70 milljónir inn á
svæðið á sama tíma og á Aust-
fjörðum væri verið að framkvæma
fyrir nokkur hundruð þúsund millj-
ónir.
Ég fjallaði enn fremur um að
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur
hefðu ítrekað tekið ákvarðanir sem
hafa gengið þvert á hagsmuni
byggðarinnar á Vestfjörðum, s.s.
um hækkun á sementsverði um
tugi ef ekki hundrað prósent, stór-
hækkað rafmagnsverð á lands-
byggðinni, niðurskurð á vegafé og
að þeir hefðu svikist um að koma á
öruggu gagnaflutningasambandi á
svæðinu.
Að auki minntist ég lauslega á
þá augljósu staðreynd að fisk-
veiðistjórnunin hefði gengið þvert
á hagsmuni Vestfirðinga og að það
væri fádæma ósvífni að kynna
hana á alþjóðavettvangi þar sem
hún hefur skaðað þjóðarhag.
Tók ég sem dæmi að þrátt fyrir
að alltaf hefði verið farið eftir ráð-
lagðri veiði hvað varðar rækju
hefðu stofn og afli minnkað. Einnig
er sérstakt að þrátt fyrir svokallað
„besta fiskveiðistjórnunarkerfi í
heimi“ þolir útvegurinn ekki hátt
gengi íslensku krónunnar. Mætti
þó ætla að útvegurinn hefði borð
fyrir báru og þyldi hækkandi
gengi.
Að lokum endaði ég ræðu mína á
því að segja að gengi íslensku
krónunnar félli ekki af himnum of-
an, heldur væri það ríkisstjórninni
að kenna.
Erfið umræða fyrir stjórn-
arflokkana sem á að þagga
niður
Umræðan um byggðamál er
mjög skiljanlega erfið
fyrir sveitarstjórn-
arfulltrúa stjórn-
arflokkanna, Fram-
sóknarflokk og
Sjálfstæðisflokk, á
Vestfjörðum enda hef-
ur ríkisstjórn þessara
flokka leikið Vestfirði
hart. Forseti bæj-
arstjórnar á Ísafirði,
Birna Lárusdóttir,
hélt því fram að gagn-
rýnin umræða um
byggðamál ætti ekki
heima á fjórðungs-
þingum Vestfirðinga.
Alþingismenn Norðvesturkjördæm-
isins lentu í þeirri stórundarlegu
uppákomu að vera boðið til þings
og að taka til máls en síðan var
sett ofan í við þá úr því að skoð-
anir þeirra voru ekki þóknanlegar
kvótabrasksflokkunum Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokki. Það hefði þó
verið sök sér ef það hefði verið
gert með einhverjum málefna-
legum rökum en svo var alls ekki.
Einu rökin sem dregin hafa verið
fram eru að það eigi ekki að ræða
vandamál, heldur eingöngu lausnir,
og að miklu nær sé að stunda upp-
byggilega umræðu. Öll gagnrýnin
umræða var sögð ólundarleg.
Þetta eru í raun stórfurðuleg
rök. Hvernig er hægt að finna
lausnir á einhverjum vanda ef ekki
má ræða sjálft vandamálið? Ég er
einnig sannfærður um að meint
geðprýði stjórnmálamanna skiptir
ekki höfuðmáli um hvort íbúar
neyðast til að flytjast í burtu af
landsbyggðinni! Ef svo væri þá
væri það mikill áfellisdómur yfir
forystumönnum bæði í Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokki sem hafa ráð-
ið ferðinni síðasta áratuginn í land-
stjórninni og í sveitarstjórnum á
Vestfjörðum.
Unga fólkið á Vestfjörðum
Á fjórðungsþinginu var afar at-
hyglisvert og fróðlegt að hlýða á
framlag ungs fólks á þinginu undir
yfirskriftinni „Framtíð ungs fólks á
Vestfjörðum“. Það var greinilegt
að unga fólkið þráði heitt að sjá
fram á uppgang og bjarta framtíð
á Vestfjörðum og lagði fram mjög
áhugaverðar tillögur sem vert er
að hrinda í framkvæmd. Það setti
hins vegar að mér ákveðinn ugg að
unga fólkið tjáði sig ekkert um
sjávarútveg, undirstöðuatvinnu-
grein Vestfjarða og landsins alls.
Þessi þögn segir sína sögu um að
unga fólkið sér fá tækifæri í harð-
lokuðu kvótakerfi. Þessu kerfi þarf
að breyta eins og Frjálslyndi flokk-
urinn hefur margoft lagt til, til
þess að tryggja nýliðun ungs fólks
í atvinnugreininni. Það hlýtur að
hafa mjög alvarlegar afleiðingar
fyrir hvaða atvinnugrein sem er
þegar búið er að girða fyrir að nýir
aðilar geti haslað sér völl.
Er forseti Ísafjarðarbæjar að
gæta hagsmuna Ísfirðinga?
Það er vert að velta fyrir sér
hvað forseta bæjarstjórnar Ísa-
fjarðarbæjar gangi til þegar ítrek-
að er reynt að koma í veg fyrir
lýðræðislega umræðu um ákvarð-
anir stjórnvalda sem hafa komið
Ísfirðingum illa. Öllum má ljóst
vera að það þjónar ekki hags-
munum Ísfirðinga og þess vegna er
einsýnt að forsetinn er það hús-
bóndahollur að hann tekur þrönga
flokkshagsmuni fram yfir hags-
muni Ísfirðinga.
Húsbóndahollusta
Sigurjón Þórðarson fjallar um
byggðamál ’Hvernig er hægt aðfinna lausnir á ein-
hverjum vanda ef ekki
má ræða sjálft vanda-
málið?‘
Sigurjón
Þórðarson
Höfundur er þingmaður Frjálslynda
flokksins.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
HINN 30. ágúst fjölluðu Stak-
steinar Morgunblaðsins um kanad-
íska kvikmynd um Adolf sáluga
Hitler, en mynd þessi hafði nokkru
áður verið sýnd í Ríkissjónvarpinu.
Samkvæmt myndinni ætlaði Hitler
að fyrirfara sér, en Staksteinahöf-
undur bendir á aðrar heimildir, bók
um Hitler, þar sem kemur fram að
ekki séu gögn fyrir hendi sem bendi
til sjálfsvígstilraunar hans. Í fram-
haldi af þessu leggur höfundur
Staksteina áherslu á að heimild-
armyndir gefi sem sannasta sýn af
sögulegum atburðum og að ekki
megi „rangfæra þá með sviðsetn-
ingu, sem er tilbúningur“. Má sann-
arlega taka undir þau orð. (Vonandi
tekur Clint Eastwood tillit til
þessa.)
Á heimsstyrjaldarárunum síðari
var tekinn aragrúi kvikmynda af
hernaðarátökum af öllu tagi. Þótt
ekki væri um beinar rangfærslur að
ræða var tilgangurinn ætíð sá að
vegsama framgöngu eigin manna og
stappa stáli í fólk. Túlkun sömu at-
burða var því t.d. gerólík eftir því
hvort Bretar eða Þjóðverjar sögðu
frá og er það enn glöggt í minni
þeirra, sem hlustuðu á fréttir Rík-
isútvarpsins á stríðsárunum.
Það má því til tíðinda telja að árið
2002 lauk þýskt kvikmyndafyrirtæki
við heimildarmynd um orustuna
miklu um Stalíngrad, og er þessi
mynd sett saman úr fréttamyndum,
sem kvikmyndatökumenn þýsku og
rússnesku herjanna tóku af atburð-
unum sjálfum. Enginn hluti mynd-
arinnar er leikinn, allt er raunveru-
legt og myndin sýnir aðeins það sem
gerðist, hryllingur stríðsins ófegr-
aður, engu skotið undan. Sönn heim-
ildarmynd sem stendur undir nafni.
Í janúar 2002 var myndin fyrst
sýnd á ZDS-sjónvarpsstöðinni
þýsku, í sama mánuði í Danmörku á
DR-2 stöðinni og síðan í flestum
löndum Evrópu, en ekki enn hér á
landi. Hlutu Þjóðverjar mikið lof
fyrir gerð þessarar einstöku heim-
ildarmyndar, sem hefur verið nefnd
mesta stríðsmynd allra tíma.
Eins og flestir vita ollu innrásin í
Frakkland og orustan mikla um
Stalíngrad straumhvörfum í síðustu
heimsstyrjöld. Þjóðverjar réðust á
Stalíngrad 22. ágúst 1942 og stóð or-
ustan um borgina linnulaust til 2.
febrúar 1943, er Þjóðverjar voru
gersigraðir. Um 100 þúsund þýskir
hermenn voru teknir til fanga en um
200 þúsund manns, hermenn og
óbreyttir borgarar, týndust, frusu í
hel eða urðu hungurmorða.
Nú eru 60 ár liðin frá stríðslokum
og mál til komið að sýna þessa ein-
stöku heimildarmynd hér. Hún sýn-
ir ekki eingöngu einn örlagaríkasta
atburð 20. aldar og villimennsku
allra stríða, heldur uppfyllir einnig
þær kröfur um heiðarleika, sem höf-
undur Staksteina vill gera til heim-
ildarmynda og vikið er að í upphafi
þessa pistils.
INGVAR HALLGRÍMSSON,
Espigerði 12, Reykjavík.
Um heimildagildi
heimildarmynda
Frá Ingvari Hallgrímssyni:
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
Dalvegi 28 – Kópavogi
Sími 515 8700
BLIKKÁS –
Fréttir
í tölvupósti
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Lið-a-mót
FRÁ
Extra sterkt